DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lewis

Prjónuð peysa fyrir herra með breiðum kanti að framan og sjalkraga úr DROPS Kid-Silk. Stærð S til XXXL.

DROPS 135-20
DROPS Design: Mynstur nr U-648
Garnflokkur A och B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 gr litur nr 21, milligrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-200-225-250 gr litur nr 10, grár

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 24 umf með mynstri með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS Duffeltala nr 520: 5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12892.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 5 hnappagötum frá réttu í vinstri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fimmtu l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir hana í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 14, 22, 30, 38 og 46 cm.
STÆRÐ M: 15, 23, 31, 39 og 47 cm.
STÆRÐ L: 16, 24, 32, 40 og 48 cm.
STÆRÐ XL: 17, 25, 33, 41 og 49 cm.
STÆRÐ XXL: 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XXXL: 19, 27, 35, 43 og 51 cm.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkum frá réttu að innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum Á EFTIR 1. l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum Á UNDAN 1. l þannig: Prjónið 2 l sl saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-200-212-227-248-263 l (meðtaldar eru 20 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff (séð frá réttu)þannig: Prjónið 20 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 21 l er eftir, prjónið 1 l sl og 20 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br og kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á prjóna nr 5,5. Haldið áfram með M.1 og kantlykkjum í garðaprjóni – M.1 byrjar og endar með 1 l sl (séð frá réttu).
Þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm, byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, prjónið næstu umf þannig: Fellið af fyrstu 19 l, setjið 1 prjónamerki (það sýnir hvar byrjað er á að prjóna upp kraga), prjónið 27-33-36-39-45-48 l (= hægra framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 72-84-90-99-108-117 l (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið út umf (= 46-52-55-58-64-67 l á vinstra framstykki). Snúið og fellið af fyrstu 19 l, setjið prjónamerki (prjónamerkið sýnir hvar endað er að prjóna upp kraga), prjónið út umf = 27-33-36-39-45-48 l. Hvort stykkið er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 27-33-36-39-45-48 l. Haldið áfram með M.1 eins og áður og síðasta l við miðju að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu: 2 l 0-2-2-3-4-5 sinnum og 1 l 0-2-2-3-4-5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm, er fækkað um 1 l við hálsmál – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 5-5-5-5-3-4 cm millibili alls 3-3-4-3-5-4 sinnum. Eftir allar úrtöku eru 24-24-26-27-28-29 l eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
= 72-84-90-99-108-117 l. Haldið áfram með M.1 jafnframt er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið eins og á framstykki = 72-72-78-81-84-87 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af miðju 22-22-24-25-26-27 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í byrjun næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 24-24-26-27-28-29 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 50-53-53-56-56-59 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið (séð frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á prjóna nr 5,5. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 5-5-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-9-12-12-15-15 sinnum = 68-71-77-80-86-89 l – úrauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1. Þegar stykkið mælist 53-52-51-50-49-48 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-4-5-7-8 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, að lokum fellið af 3 lykkjur1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, stykkið mælist ca 60 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

SJALKRAGI:
Prjónið upp lykkjur (innan við 1 kantlykkju) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund – byrjið við miðju að framan við prjónamerki á hægra framstykki: Prjónið upp ca 40 til 50 l upp að öxl, síðan 26 til 32 l meðfram hnakka, nú 40 til 50 l niður meðfram vinstra framstykki að prjónamerki = 106 til 132 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er aukinn til 132-138-144-150-156-162 l. Prjónið nú stroff séð frá réttu) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l sl og 1 l garðaprjón. Haldið áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Aukið nú út um 1 l í hverja af miðju 12 br einingunum, séð frá réttu (= aftan við hnakka) = 144-150-156-162-168-174 l. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til kraginn mælist ca 10 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið 3 umf slétt yfir allar l, fellið nú af með sl frá réttu. Saumið kragann fastan neðst í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið ermar í og tölur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (138)

country flag Laura wrote:

Casting off the sleeve caps, for a size XXL. Starting at 49 cm (86 sts), directions say to bind off at beg of every row in each side: 4 sts 1 time, 2 sts 3 times and 1 st 7 times. Then bind off 2 sts in each side until piece measures 59 cm. Following gauge, this would be 24 rows to bind off. That means after the decreasing is complete, there will still be 43 stitches remaining on the cap before the final bind off. Is this correct?

01.12.2019 - 23:53

DROPS Design answered:

Hi Laura, You bind off 4 stitches once on each side = 8 stitches, then2x2x3 = 12 stitches, then 1x2x7 = 14 stitches. You have 52 stitches when you start binding off 2 stitches every row = 48 stitches. You are left with approx. 4 stitches at the end. Happy knitting!

02.12.2019 - 07:25

country flag Bjørg Bunes wrote:

FINNER IKKE NOE DIAGRAM I DETTE MØNSTERET

06.11.2019 - 13:58

DROPS Design answered:

Hej. Du hittar diagrammet vid sidan av måttskissen längst ner på oppskriften. Mvh DROPS Design

06.11.2019 - 14:22

country flag Bryndis wrote:

Hei, hvor mange Drops Air trenger man i denne genseren?

31.10.2019 - 21:44

DROPS Design answered:

Hej Bryndis, hvis du vælger DROPS Air, skal du bruge ca 400-450-500-550-600-700 g til de forskellige størrelser. God fornøjelse!

01.11.2019 - 09:25

country flag Bryndis wrote:

Hæ, hversu margar dökkur af Drops Air þarf í þessa peysu í stærd Medium?

31.10.2019 - 21:43

DROPS Design answered:

Á síðunni okkar er dálkur með Kennsluefni og þar er Skýringar og hjálp. Þar getur þú séð hvernig þú skiptir út einu garni fyrir annað.

01.11.2019 - 10:10

country flag Ann wrote:

If I understand the directions correctly, for M1 I complete the right side and will have the last stitch as a Knit. When I start the wrong side for M1, I start with a purl and then go to the chart. Is this correct?

29.03.2019 - 02:46

DROPS Design answered:

Dear Ann, that's correct, you are working over an even number of sts but M.1 is worked over 3 sts, this means you start from RS with K1, and to make the pattern being symetrical on each side you finish with the first st in M.1 - this stitch will be then P from WS - read here how to read diagrams. Happy knitting!

01.04.2019 - 10:12

country flag Monica M wrote:

Your designs are beautiful but I hate the way you write instructions. Ive knitted several patterns but your patterns are always so confusing, why not write them in a more simplistic way. And as for your yarns. I understand that you promote your yarns but people have the right to alternatives outside of your yarns. I never suggest your patterns to any of my knitting friends.

01.03.2019 - 18:56

DROPS Design answered:

Dear Monica, we are sad to hear that, if we get specific questions to a pattern we always try to help our customers. We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. Happy knitting!

04.03.2019 - 15:55

country flag Rebekah wrote:

Bit stuck on the sleeve: “Then cast off 2 sts in each side until the piece measures 59cm” - is this at the beginning of each row like the previous sts, or beginning and end (so cast off 4 sts each row)?

16.02.2019 - 14:17

DROPS Design answered:

Der Rebekah, you will cast off 2 sts at the beginning of each row, ie both from RS and from WS. Happy knitting!

18.02.2019 - 09:31

country flag Elisabeth Eggelsmann wrote:

Ist das Stickmuster der Jacke das Struckturmuster?

10.01.2019 - 22:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Eggelsmann, das Struckturmuster in dieser Jacke ist Diagram M.1. Lesen Sie das Diagram von der unteren Ecke an der rechten Seite rechts nach links bei den Hinreihen und links nach rechts bei den Rückreihen. Viel Spaß beim stricken!

11.01.2019 - 09:26

Silvia wrote:

En la sisa de la manga dice rematar 2 pts en cada lado las disminuciones son cada vuelta 4 pts 1 vez, 2 pts 3 veces y 1 pt 1-2-4-5-7-8 veces. Después rem 2 pts en cada lado hasta que la pieza mida 59 cm, después rem 3 pts 1 vez en cada lado. Rem, la pieza mide

27.11.2018 - 05:07

country flag Iris wrote:

Hallo, Ich habe die Machenprobe gemacht 18Mx24R. Das ergab bei mir 13 cm Breite und 10 cm Höhe. Die Jacke soll in XXXL gestrickt werden. Welche Maschenanzahl soll ich jeweils nehmen? Wie soll ich überhaubt jetzt vorgehen, bin nicht so geübt.... Wie breit ist die Blende in cm? Vielen Dank für Ihre Mühe.

04.10.2018 - 19:52

DROPS Design answered:

Liebe Iris, Die Angabe der Nadelstärke ist nur eine Orientierungshilfe. Wenn für 10 cm weniger Maschen als in der Maschenprobe angegeben benötigt werden, zu einer dünneren Nadelstärke wechseln. Vergessen Sie nicht, die Maschenprobe im Muster M.1 (nicht glatt rechts) zu stricken. Viel Spaß beim stricken!

05.10.2018 - 07:36