DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Firenze

Prjónuð peysa fyrir herra með laskalínu og háum kraga úr DROPS Alpaca og DROPS Fabel. Stærð S - XXXL

DROPS 135-13
DROPS Design: Mynstur nr FA-170
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-450-500-550 gr litur nr 7238, dökk ólífa
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio:
250-300-350-400-450-500 gr litur nr 542, grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni og 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) nr 4 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10120.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað hvoru megin við 9 strofflykkjur í hverri skiptingu milli fram- og bakstykkis og erma.

Fækkið lykkjum frá RÉTTU þannig:
Á UNDAN 9 l: Prjónið 2 l sl saman.
Á EFTIR 9 l: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

Fækkið lykkjum frá RÖNGU þannig:
Á UNDAN 9 l: Prjónið 2 l snúnar br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).
Á EFTIR 9 l: Prjónið 2 l br saman

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSAS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 168-180-192-204-228-252 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði af Fabel + 1 þræði af Alpaca. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 4 l sl, 2 l sl saman *, endurtakið frá *-* alls 11-12-13-14-16-18 sinnum, 3 l sl, haldið áfram með stroff eins og áður yfir næstu 15 l (= miðja í hlið), endurtakið frá *-* alls 11-12-13-14-16-18 sinnum, 3 l sl, prjónið nú stroff yfir síðustu 15 l eins og áður (= miðja í hlið) = 146-156-166-176-196-216 l. Haldið áfram með stroff yfir þessar 15 l sem eru í hvorri hlið og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við þær 15 strofflykkjur í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6 cm millibili alls 5 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni = 166-176-186-196-216-236 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af miðju 7 strofflykkjur í hvorri hlið = 152-162-172-182-202-222 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-48-54-54-60-60 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði af Fabel + 1 þræði af Alpaca. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br í 9 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 33-33-39-39-45-45 l og stroff eins og áður yfir síðustu 15 l (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 11 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við þessar 15 strofflykkjur. Endurtakið útaukningu með 4-3-3½-3-3-3 cm millibili alls 10-12-11-13-12-13 sinnum = 68-72-76-80-84-86 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 49 cm í öllum stærðum, fellið af 7 miðju strofflykkjurnar = 61-65-69-73-77-79 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 274-292-310-328-356-380 l. Prjónið 1 umf sl yfir sl og br yfir br – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í allar skiptingarnar á milli fram- og bakstykkis og erma (þær eru prjónaðar með sl) = 278-296-314-332-360-384 l. Í öllum skiptingum á milli fram- og bakstykkis og erma eru nú: 3 l br, 3 l sl og 3 l br = 9 strofflykkjur. Prjónið nú með sl yfir sl og br yfir br jafnframt er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan!
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 17-18-18-18-18-19 sinnum og síðan í hverri umf alls 5-6-8-10-12-12 sinnum. JAFNFRAMT þegar 5 úrtökur eru eftir, eru miðju 18-19-20-23-25-27 l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka. JAFNFRAMT er fellt af í byrjun hverrar umf 1 l 2 sinnum á hvorri hlið (= við háls). Eftir úrtöku fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 80-81-82-81-91-105 l eftir á prjóni.

KRAGI:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið upp ca 22 til 31 l framan í hálsmáli (meðtaldar l af þræði) = 102 til 136 l. Prjónið 1 umf sl yfir sl og br yfir br jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 102-102-102-114-114-114 l (það eiga að vera 21-21-21-27-27-27 l í sléttprjóni á bakstykki, 27-27-27-33-33-33 l í sléttprjóni á framstykki og 9 l í sléttprjóni yfir hvora ermi). Haldið áfram með stroff = 3 l sl, 3 l br yfir allar l – þetta verður að passa til að laskalína haldi áfram eins og áður. Þegar kraginn mælist ca 20 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið kragann tvöfaldan að réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.03.2023
Nýtt efnismagn í DROPS Fabel. Litur nr 542p, grænn: 250-300-350-400-450-500 gr

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (168)

country flag Dana wrote:

Hola! Me perdi completamente luego de terminar la pechera. Estoy haciendo la version S, por lo tanto, me dice que debo deslizar los 18 puntos centrales a un gancho auxiliar. He estado tejiendo en todo momento con aguja circular. Que hago luego? tejo de ida y vuelta? no circular? Y luego remato como ahi aparece, cierto? Y si todo eso lo entendí bien, luego para seguir avanzando con el cuello no me cuadran ni los puntos, ni cuantos puntos debo levantar, como se eso? Muchas gracias!

05.03.2024 - 21:50

DROPS Design answered:

Hola Dana, sí, después de pasar los puntos a un gancho auxiliar continúas tejiendo de ida y vuelta, con la misma aguja circular y rematas como se indica. A la hora de levantar los puntos levantas los puntos en el gancho auxiliar y puntos cerrados en el escote a los lados de estos puntos. No hay un número exacto de puntos a levantar; tiene que ser entre 22 y 31 (por lo tanto, tendrás entre 102 y 111 puntos en tu talla, sumando los 80 en la aguja) y puedes coger más o menos puntos para obtener la forma correcta del cuello y que no quede demasiado tenso. Después trabajas el elástico y ahí ajustarás el número de puntos al necesario para el patrón.

10.03.2024 - 21:08

country flag Silvia wrote:

Per il davanti/dietro il numero di maglie che si ottiene dopo gli aumenti ai lati dovrebbe essere superiore di 20 rispetto al numero di partenza visto che si aggiunge 1 maglia da ciascun lato delle due sezioni di coste per 5 volte, quindi 2x2x5. Quello indicato ne aggiunge solo 10.

11.02.2024 - 18:37

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, gli aumenti sono corretti, ad esempio per la taglia S si passa da 146 a 166 maglie. Buon lavoro!

25.02.2024 - 21:53

country flag Yvonne wrote:

Viele Dank für die Antwort auf meine Frage zur Zunahme. Meine Anmerkung zur Garnmenge irritiert mich allerdings. Ich benötige von jeder Sorte laut Anleitung 450 gr. Alpaca Lauflänge 167 m auf 50 g = 1503 m Fabel Lauflänge 205 m auf 50 g = 1845 m Da die Garne parallellaufend gestrickt werden ist wohl klar entweder ist hier einiges an Garn zu viel oder zu wenig. Maschenprobe hin oder her. (Maschenprobe mache ich im übrigen immer)

28.02.2023 - 19:02

country flag Yvonne wrote:

Ist es möglich, dass bei der Zunahme im Vorder- und Rückenteil ein Fehler vorliegt? Man soll nach 18 cm zunehmen, alle 6 cm. Ergibt für mich 5 x die Möglichkeit der Zunahme bei einer Höhe von 49 cm. Also 10 Maschen und nicht 20. Außerdem hat das Drops Fabel Garn eine größere Lauflänge = 38 Meter. Bedeutet, dass ich weniger benötige als vom Alpaca und nicht, wie angegeben gleiche Menge. Danke!

28.02.2023 - 07:47

DROPS Design answered:

Liebe Yvonne, die 1. Zunahme stricken Sie nach 18 cm, die 2. nach 24 cm, die 3. nach 30 cm, die 4. nach 36 cm und die 5. nach 42 cm. So sind es insgesamt 4 Maschen zugenommen x 5 = 20 Zunahmen. Die gesamte Garnmenge solte für beide Garne stimmen (beachten Sie, daß Ihre Maschenprobe stimmt). Viel Spaß beim stricken!

28.02.2023 - 10:58

country flag Mirella wrote:

Onder het kopje “raglan” spreekt men van een goede en verkeerde kant. Maar ik brei rond op een rondbreinaald, dus dan heb ik toch alleen maar een goede kant? Alvast bedankt voor uw reactie. Met vriendelijke groet Mirella Kort

18.02.2023 - 21:51

DROPS Design answered:

Dag Mirella,

Op een gegeven moment ga je op het voorpand afkanten voor de hals, zodat de hals aan de voorkant lager is dan aan de achterkant. Op dat moment brei je heen en weer en moet je waarschijnlijk ook nog minderingen maken voor de raglan.

19.02.2023 - 16:57

country flag Sabine Weidenbach wrote:

Heißt Drops Alpaca 7238 oliv Mix jetzt grasgrün?\r\nHeißt Drops Fabel 432p grün Mix jetzt grün?\r\nKurz gefragt: Stimmen die Nummern auch wenn die Bezeichnung anders ist?

23.01.2023 - 09:44

DROPS Design answered:

Liebe Frau Weidenbach, folgen Sie immer die Farbennummer, die Namen können angepasst werden. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2023 - 10:21

country flag Vivi Rosendahl Lyberth wrote:

Er der altervativer til det garn, der skal bruges???? garn der ikke kradser????

19.01.2023 - 15:09

DROPS Design answered:

Hej Vivi, ja du kan strikke den i 2 tråde DROPS Baby Merino :)

08.03.2023 - 10:03

country flag Vivi Rosendahl Lyberth wrote:

Er der alternativer til det garn der skal bruges???? garn. der ikke kradser

19.01.2023 - 15:07

country flag Andrea Van Lieshout wrote:

Hebben jullie dit patroon ook van boven naar beneden breien?

30.12.2022 - 14:31

DROPS Design answered:

Dag Andrea,

Nee, dit patroon is helaas alleen van beneden naar boven.

01.01.2023 - 10:44

country flag Elisa Laperchia wrote:

Cortesemente avrei bisogno di aiuto. ho messo su un fermamaglie 27 maglie per il collo ma non so cone andare avanti. C'è scritto lavorare avanti e indietro fino alle fine ma non capisco. in mezzo c'è il fermamaglie. come devo procedere? grazie mille

29.12.2022 - 14:32

DROPS Design answered:

Buonasera Elisa, sta lavorando ancora lo sprone? Dopo aver messo in sospeso le maglie per il collo, deve proseguire la lavorazione in piano e non in tondo, quindi lavora sulle maglie avanti e indietro, senza lavorare le maglie sul fermamaglie, che verranno riprese con la lavorazione del collo. Buon lavoro!

29.12.2022 - 19:10