DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Majestic

Prjónuð peysa með upprúlluðum kanti að framan og gatamynstri úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 134-49
DROPS Design: Mynstur nr Z-579
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 6347, grár/fjólublár:
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-125-150-150-175-175 gr litur nr 11, fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm (1 mynstureining af M.1 mælist ca 4 cm á breiddina, 4 mynstureiningar af M.1 mælast ca 6 cm á hæðina).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN:
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA (á við um úrtöku á fram- og bakstykki):
Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l saman.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR:
Sjá M.1 (mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 89-96-105-114-122-134 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umf 1 = rétta). Prjónið nú 2 umf í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykkinu. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni 5-5-6-7-4-3 l í sléttprjóni, prjónið M.1 (= 7 l) alls 11-12-13-14-16-18 sinnum, 5-5-6-7-4-3 l sléttprjón, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka) og sléttprjóni í hvorri hlið á stykki, M.1 yfir þær l sem eftir eru. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-11-8-7-12-17 cm er fækkað um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið úrtöku með 8-8-7-6-12-16 cm millibili alls 4-4-5-6-3-2 sinnum (stykkið mælist nú ca 34-35-36-37-36-33 cm) = 81-88-95-102-116-130 l (11-12-13-14-16-18 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið). Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm.
Aukið nú út fyrir ermi í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l í sléttprjóni, aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING að ofan, prjónið þar til 2 l eru eftir á prjóni, aukið út um 1 l, 1 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH: nýju l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umf frá réttu alls 14 sinnum í öllum stærðum = 109-116-123-130-144-158 l (= 15-16-17-18-20-22 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið). Haldið áfram svona þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

Fellið nú af fyrir hálsmáli þannig: Í næstu umf frá röngu eru felldar af miðju 17-24-17-24-24-24 l og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi – Jafnframt er fellt af fyrir öxl þannig: Fellið af 14-14-17-17-19-21 l í byrjun á næstu 2 umf frá öxl = 16-16-17-17-20-23 l eftir á öxl. Nú mælist stykkið ca 68-70-72-74-76-78 cm, felli laust af allar l.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 52-52-60-63-67-73 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf í garðaprjóni (umf 1 = rétta). Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 18-18-18-20-20-20 l í sléttprjóni með röngu út (= lykkjur á kanti að framan), prjónið út umf í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Næsta umf frá röngu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 18-18-18-20-20-20 l, prjónið út umf í sléttprjóni með röngu út (= lykkjur á kanti framan).
Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 18-18-18-20-20-20 l í sléttprjóni með röngu út, prjónið M.1 alls 4-4-5-5-6-7 sinnum, 5-5-6-7-4-3 l í sléttprjóni, endið með 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka). Haldið áfram að prjóna mynstur í sléttprjóni í hlið og sléttprjóni með röngu út á kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-11-8-7-12-17 cm byrjar úrtaka í sléttprjóni í hlið eins og á bakstykki = 48-48-55-57-64-71 l (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni innan við 1 kantlykkju í hlið). Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm aukið út fyrir ermi í hlið innan við 1 kantlykkju og 1 l í sléttprjóni eins og á bakstykki = 62-62-69-71-78-85 l (6-6-7-7-8-9 mynstureiningar af M.1 + 1 l í sléttprjóni í hlið).
Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af fyrir öxl í byrjun næstu umf frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 14-14-17-17-19-21 l á prjóni, prjónið út umf. Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar í næstu umf frá röngu. Fellið nú af 16-16-17-17-20-23 l í næstu umf frá röngu = 18-18-18-20-20-20 l eftir fyrir kraga. Haldið áfram í sléttprjón með röngu út 9-11-9-11-11-11 cm. Fellið nú af í byrjun á næstu 2 umf frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 6 l, prjónið út umf. Fellið nú af þær 6-6-6-8-8-8 l sem eftir eru laust af í næstu umf frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 39-46-46-46-53-53 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf í garðaprjóni (umf 1 = rétta). Prjónið nú 2 umf í sléttprjóni með 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni til loka) í hvorri hlið á stykki. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 l í sléttprjóni, prjónið M.1 (= 7 l) alls 5-6-6-6-7-7 sinnum, 1 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 4 sinnum á hæðina. Prjónið nú 2 umf í sléttprjóni – Jafnframt er aukið út um 1-0-0-0-1-1 l í umf 1 = 40-46-46-46-54-54 l. Prjónið nú 4 umf í garðaprjóni, nú mælist stykkið ca 10 cm. Prjónið nú sléttprjón – Jafnframt er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið í næstu umf frá réttu. Endurtakið útaukningu með 7½-9-6½-4½-6-4½ cm millibili alls 5-4-5-7-5-6 sinnum = 50-54-56-60-64-66 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-42-41-40-38-35 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið nú af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 4-4-4-5-5-5 l 2 sinnum, 5-6-6-5-6-7 l 1 sinni = 24-26-28-30-32-32 l eftir. Fellið laust af allar l. Nú mælist stykkið ca 46-44-43-42-40-37 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma frá réttu með lykkjuspori. Saumið saman kraga frá röngu við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan við hnakka. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.02.2012
Efni: DROPS ALPACA frá Garnstudio Nr 6347, grá/fjólublár: 300-350-350-400-450-450 gr

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-49

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag MARYLINE wrote:

Bonjour, ce modèle me plait beaucoup, je voulais savoir pourquoi la quantité des laines à tricoter ensemble était différente ? merci

14.01.2022 - 00:26

DROPS Design answered:

Bonjour Marilyne, le métrage total est approximativement le même, mais Alpaca se présente sous forme de pelotes de 50 g pour environ 167 m et Kid-Silk sous forme de pelotes de 25 g pour environ 210 m, raison pour laquelle le poids est différent. Bon tricot!

14.01.2022 - 08:56

country flag Isabelle wrote:

Si oui, quelle grosseur d'aiguilles je dois utiliser ?

02.01.2015 - 13:20

DROPS Design answered:

Ce modèle a été calculé sur la base de l'échantillon de 17 m x 22 rangs en jersey avec 1 fil Alpaca et 1 fil Kid-Silk tricotés ensemble = 10 x 10 cm (1 fois le diagramme M.1 (= 7 m) = environ 4 cm de large, 4 fois le diagramme M.1 en hauteur = environ 6 cm) - si vous tricotez avec 1 seul fil Alpaca, il vous faudra recalculer entièrement le modèle - ou bien regardez dans les modèles de vestes en Alpaca, réalisées avec 1 seul fil (plus simple). Bon tricot!

02.01.2015 - 16:58

country flag Isabelle wrote:

Est-ce que je peux tricoter cette veste avec manches longues seulement avec le fil Drops Alpaca, j'ai 300gr ?

02.01.2015 - 13:19

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, si vous souhaitez utiliser uniquement DROPS Alpaca, il vous faudra tricoter avec 2 fils (Alpaca et Kid-silk sont du même groupe = groupe A) et on tricote ici avec 1 fil de chaque qualité. Ou bien tricoter avec 1 fil du groupe A au lieu de 2 fils du groupe C - Cliquez ici pour recalculer la longueur de fil nécessaire et les alternatives. Bon tricot!

02.01.2015 - 16:57

country flag Isabelle wrote:

J'ai commencé à faire cette veste avec le fil alpaca et coton viscose, j'ai commencé à tricoter le dos en grandeur small 89 mailles, il semble encore trop grand, combien de mailles je devrais monter pour avoir une grandeur plus petite qui équivaut à extra small ?

02.01.2015 - 12:34

DROPS Design answered:

Bonjour Isabelle, vous trouverez dans le schéma en bas de page toutes les mesures pour chaque taille sur la base de l'échantillon indiqué (17 m x 32 rangs jersey = 10 x 10 cm et M.1 (=7 m) = 4 cm de large. Vous pouvez recalculer avec ces données le nbe de mailles adapté à la largeur que vous souhaitez. Votre magasin DROPS pourra vous aider si nécessaire. Bon tricot!

02.01.2015 - 16:55

country flag Dorthe wrote:

Hejsa forstår slet ikke hvad der menes når der står = med vrangen ud

06.02.2013 - 17:31

DROPS Design answered:

Glatstrik med vrangen ud er at du strikker vrang paa retsiden og ret paa vrangsiden

06.02.2013 - 18:07

country flag Kido wrote:

Hallo, liebes DROPS-Team, wieder eine so wunderschöne Jacke, aber.... wieder nur in einem Stück zu stricken! Das ist eine enorme Arbeit (Vorder-und Rückenteil in einem Strück zu stricken) und es wäre viel, viel besser,wenn das Rücken-, und Vorderteil getrennt gestrickt werden könnte. Wäre dieses, vielleicht für die kommenden Anleitungen zu bedenken?? Vielen Dank, ich freue mich schon auf die neuen Anleitungen. Mit freundlichen Grüßen, kido

14.05.2012 - 00:06

country flag Maria Bellanova wrote:

Vorrei ordinare il filato per questo capo ma ho visto che manca il colore 6347 come il colore 3770 per un altro modello che mi piacerebbe realizzare

22.02.2012 - 08:59

DROPS Design answered:

Buongiorno, ha provato a contattare tutti i 3 rivenditori italiani? Trova l'elenco sul sito sotto RIVENDITORI. Se non hanno il colore o il filato disponibile, possono ordinarlo.

22.02.2012 - 09:33

country flag Enida wrote:

Es gibt keine "Ohne-Ärmel-Variante"!Du müsstest einfach ohne Ärmel stricken!

21.08.2011 - 19:51

country flag Claudia wrote:

Hi! Wann wird die Ohne-Ärmel-Variante übersetzt? :-) LG

21.08.2011 - 18:10

country flag Lena wrote:

Jättemysig kofta det enda som saknas en någon knapp eller snodd

06.07.2011 - 08:35