Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Mocaccino |
|
|
|
Prjónuð peysa með hringlaga hálsmáli og klukkuprjóni úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL
DROPS 133-11 |
|
-------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: -------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, FRAM- OG BAKSTYKKI (prjónað í hring á hringprjóna): UMFERÐ 1 * 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2 * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjunni slétt saman *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, ERMI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. UMFERÐ 2: 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 uppsláttur, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Endurtakið umferð 2. KLUKKUPRJÓNSLYKKJA: Þegar lykkjurnar eru taldar, er uppslátturinn ekki talinn sem eigin lykkja. ÚRTAKA Í KLUKKUPRJÓNI (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 2 lykkjur í umferð 2 í klukkuprjóni við hvert prjónamerki í hvorri hlið þannig: Prjónið klukkuprjón fram þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki (uppslátturinn er ekki talinn sem 1 lykkja), lyftið þessari lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman og steypið síðan lyftu lykkjunni yfir = 2 lykkjur færri, setjið prjónamerki á undan lykkjum sem prjónaðar voru saman. Haldið áfram með klukkuprjón eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, síðan eru ermar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykki frá handvegi og berustykki prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón 6 með Nepal. Fitjið upp 168-180-198-216-234-258 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina = 112-120-132-144-156-172 lykkjur. Setjið tvö prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, setjið eitt prjónamerki eftir 56-60-66-72-78-86 lykkjur (umferðin byrjar í hlið). Látið prjónamerkin fylgja með upp úr. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14-15 cm er fækkað um 2 lykkjur í umferð 2 í klukkuprjóni við hvert prjónamerki í hvorri hlið á stykki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri í umferð). Endurtakið úrtöku með 9-9-9-10-10-10 cm millibili alls 4 sinnum = 96-104-116-128-140-156 lykkjum. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 47-48-49-50-51-52 cm, stilli af að endað sé á umferð 3 í klukkuprjóni. Í næstu umferð (= umferð 2) eru felldar af 3-3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir handveg (uppslátturinn er ekki talinn sem 1 lykkja – sjá KLUKKUPRJÓNSLYKKJA að ofan) = 42-46-52-56-62-70 lykkjur á fram-/bakstykki. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 6. Fitjið upp 41-44-44-47-47-50 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Í fyrstu umferð (= ranga) er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 28-30-30-32-32-34 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, ERMI að ofan. Þegar stykkið mælist 12-12-11-11-8-8 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 15-15-11-11-8-8 cm millibili alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 32-34-36-38-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-42-41-41-40-40 cm fellið af fyrir handveg frá réttu þannig: Fellið af 3-3-2-3-4-4 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 26-28-32-32-32-34 lykkjur, klippið frá. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna 6. Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg – ATH: Passið uppá að mynstrið passi í hverri skiptingu á milli fram-/bakstykkis og erma = 136-148-168-176-188-208 lykkjur. Prjónið síðan í hring í klukkuprjóni. Þegar berustykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman er skipt yfir á hringprjón 5 og prjónuð er 1 umferð stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, uppslátturinn er prjónaður saman með lykkju) yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: * 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið í aftari hluta á lykkju), 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* út umferðina = 68-74-84-88-94-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til berustykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm, fellið síðan af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6937 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (46)
Gill wrote:
I have now tried 3 times but still cannot get the sleeve stitches to equal 36 when the length Is complete . Size L is cast on 44 then next row reduces the stitches to 30 stitches. The first row of the English rib for sleeves brings the 30 stitches back up to 44 stitches and these are the stitches you continue to work the English rib on. You then increase 1 stitch either end 3 times which gives 50 sets not 36 stitches as stated in the pattern where have I gone wrong.
22.10.2023 - 17:41DROPS Design answered:
Dear Gill, in English rib, the yarn overs are not counted as stitches, since they will later on be worked together with their respective stitches. So you will still have 30 stitches. Later on, you will increase 1 stitch on each side 3 times. Since you are increasing on each side, you increase 2 stitches on each round or 6 stitches in total = 36 stitches. Happy knitting!
23.10.2023 - 00:28Ramona Håkonsen wrote:
Dette var utrolig forvirrende da d er så mange ulike forklaringer på hvordan mønstret skal strikkes.. vil så gjerne forstå og sku hatt video som viste hvordan begynne, helt fra starten på mønstret DROPS 133-11 og litt utover noen rader.. d hadde vært flott å få svar fort som mulig..
17.09.2023 - 06:22DROPS Design answered:
Hei Ramona. Har dessverre ingen video til akkurat denne modellen, men anbefaler deg å lese forklaringene og så se på de generelle videoene som er lagt til denne modellen. Lykke til. mvh DROPS Design
18.09.2023 - 14:27Carmen-Gabriela wrote:
Hallo:) Kann es sein, dass die 2. Seitenabn. 3M li (überzoogen) zus ist? (s. Foto), evtl. auch die 4. Abn. Nur die 1. + 3. Abn. wäre 3M re überzogen zus. lt. Anleitung + Video. Würde ich alle 4 Abn re zus stricken hätte ich ein anderes Maschenbild u. würden sich die Rippen dann nicht um mich herumdrehen? Ich werde die 2. Abn li in einer 3.MuRunde machen, 3. Abn re wieder in einer 2. MuRd - so müsste es lt. Foto gut aussehen.
17.09.2022 - 17:57DROPS Design answered:
Liebe Carmen-Gabriela, der Markierung sollen Sie wie im Video nach der Abnahmen stellen (= nach der 1. Abnahmen) so kann die nächste Abnahme genauso gestrickt werden. In jeden Falls beachten Sie nur, daß es die selbe Maschenanzahl für Vorder- und Rückenteil gibt. Viel Spaß beim stricken!
19.09.2022 - 09:46Maria Rodrigues wrote:
Boa noite, muito obrigada pela vossa ajuda e paciência. Apercebi-me do meu erro, que os remates estão indicados pelos tamanhos e não pela quantidade dos pontos rematados.
03.03.2022 - 22:27Maria Rodrigues wrote:
Boa noite, mais uma vez venho junto de vocês pedir mais um esclarecimento sobre as mangas deste modelo: 1º-começo com 50 pts, diminuiu para 34 pts; 2º -aumento no meu caso 4 pts, fico com 42 pts; 3º- rematar arrematar 3-3-2-3-4-4 pts (em principio serão por vezes, senão seriam no total 19 pts);4º- 42 pts menos os remates 19 pts = 23 pts e não os 34 pts . mesmo assim, para mim e outras são muito poucos pts para o tamanho maior do modelo. Grata pela atenção dispensada.
01.03.2022 - 21:54DROPS Design answered:
Bom dia, O remate é feito apenas uma vez para todos os tamanhos. 42 pontos - 8 pontos (4 pontos de cada lado da manga para o tamanho maior) = 34 pontos. O ponto brioche é um ponto que tem muita elasticidade e alarga bastante pelo que pode parecer estreito nas agulhas mas vai alargar se usar o fio indicado no modelo. Bons tricôs!
02.03.2022 - 09:46Maria Rodrigues wrote:
Não entendo como fazer as mangas: 1º diz montar 50 pts, depois fazer os aumentos, no meu caso 4 vezes. Então como é possível ficarem 42 pts, se os aumentos no total dá 54 pts no mínimo. Poder-me-ia ajudar em como fazer as mangas com outra explicação mais clara, do que as instruções do modelo descreve. Um grande obrigada. Poder-me-ia dar
22.02.2022 - 20:14DROPS Design answered:
Bom dia, Depois de montar 50 pontos, na 1.ª volta, vai fazer diminuições. A bula diz: "Tricotar a 1.ª carreira (= pelo avesso) da seguinte maneira : 1 m/p ourela em ponto jarreteira, *1 m/p meia, 2 ms/pts tricotadas juntamente em liga/tricô (ao tricotar estas 2 malhas juntas está fazendo 1 diminuição) *, repetir de * a * até restar 1 m/p, terminar com 1 m/p ourela em ponto jarreteira = 28-30-30-32-32-34 ms/pts. Só depois se fazem aumentos. Bons tricôs.
23.02.2022 - 08:36Roberta wrote:
Buona sera, vorreri fare questo modello da regalare a mia nipote per Natale. Mi piacerebbe però farlo con il motivo raglan. La taglia sarà una L. Se fosse possibile avere un suggerimeno ve ne sarei grata. Buona serata. Roberta
18.09.2019 - 23:37DROPS Design answered:
Buongiorno Roberta, in questa sede non possiamo darle un aiuto così personalizzato, le consigliamo però di rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
19.09.2019 - 06:58Michelle wrote:
Hi, just wondering, I have tried to do this pattern 3 times now, the first row states to p2tog, k1 till end, then to yo, sl 1, k1. But I have ended up with a stitch short each time. If I join in the round like video tutorial provided for fisherman’s rib, I’m not doing the first row as stated, I’m confused! Lol, please help! Do I pin in the round whilst doing the p2tog, or do I yo then p2tog or do I just do like the video? Thanks in advance!
05.12.2017 - 10:23DROPS Design answered:
Dear Michelle, on the first round on body, repeat *P2 tog, K1* all the round = 112-120-132-144-156-172 sts remain. Then work round 1 BODY IN ENGLISH RIB round 1 (over 2 sts: *YO, slip 1 as if to K, K1* repeat from *-* around) and now repeat round 2 and 3. Number of sts should match in all size. Happy knitting!
05.12.2017 - 11:20ROBIN GUERRIERO wrote:
Can this be made with straight needles? And if there are any crocheting parts, is there another option I can use besides crocheting!
01.05.2017 - 18:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Guerriero, you will find here some informations about adapting a pattern with straight needles. This jumper is only knitted. Happy crocheting!
02.05.2017 - 11:58Michela wrote:
Buona domenica scusate se disturbo ancora,ma non ho capito bene lo sprone,le diminuzioni e come proseguire.credo di aver capito a coste normali.se mi spiegate in parole povere non sono giovanissima.grazie in anticipo per la vostra disponibilità e celerità.buona serata 😊
02.04.2017 - 15:50DROPS Design answered:
Buongiorno Michela. Per lo sprone mette tutte le maglie sullo stesso ferro, le maniche vanno inserite dove ci sono gli scalfi. Lavora poi in tondo e per le coste inglesi lavora come indicato nel paragrafo:DIETRO & DAVANTI IN COSTE INGLESI (in tondo sul ferro circolare), ripetendo i giri 2 e 3. Poi quando lo sprone misura 18-19-20-21-22-23 cm a seconda della taglia, cambia ferri, lavora 1 giro a coste normali, e al giro successivo, lavora 2 m insieme a dir ritorto e 2 m insieme a rov su tutto il giro. Prosegue a coste normali fino alla misura necessaria. Buon lavoro!
02.04.2017 - 16:08