DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 134-2
DROPS Design: Mynstur nr BS-001
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 4314, gráfjólublár:

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA NR 521: 7-7-8-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. Umf 1 = rétta.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
HNAPPAGAT = fellið af fjórðu l frá kanti. Í næstu umf er fitjuð upp ein ný l yfir þá l sem felld var af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36, 45 og 54 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 27, 35, 43, 51 og 60 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 19, 28, 36, 45, 53 og 62 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 64 cm.
Þ.e.a.s. það eru ca 2 cm að loka máli eftir síðasta hnappagati.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 199-219-239-259-289-319 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan Í garðaprjóni, 1 l sléttprjón, M.1A þar til 12 l eru eftir, endið með M.1B (= 6 l), 6 kantlykkjur að framan Í garðaprjóni. Haldið nú áfram þannig:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 53-58-63-68-75-83 l inn frá hvorri hlið = 93-103-113-123-139-153 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6 cm millibili alls 5 sinnum = 219-239-259-279-309-339 l. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu og að það hafa verið prjónaðar 3 eða 5 umf í sléttprjóni á eftir umf með gatamynstri – fellið af 10-10-10-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 93-103-113-121-137-151 l á bakstykki og 53-58-63-67-74-82 l á hvoru framstykki. Geymið stykkiið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 0-0-1-2-3-4 l í sléttprjóni, M.1A þar til eftir eru 6-6-7-8-9-10 l, endið með M.1B (= 6 l) og 0-0-1-2-3-4 l í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna eins. Þegar stykkið mælist 8-8-9-10-10-8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 4-3-2-5-2-2-2 cm millibili alls 10-13-14-16-17-18 sinnum = 76-82-86-92-96-100 l. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 46-46-45-45-44-44 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) – passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umf í sléttprjóni eftir 1 umf með gatamynstri eins og á fram- og bakstykki – fellið af 10-10-10-12-12-12 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 66-72-76-80-84-88 l. Setjið l á þráð og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 331-363-391-415-453-491 l. Prjónið 1 umf sléttprjón (umf 1 = br frá röngu og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður til loka) JAFNFRAMT er fækkað um 5-13-5-3-3-5 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 326-350-386-412-450-486 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, prjónið 1 umf slétt frá réttu og setjið 10-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 28-31-31-34-35-38 l, síðan eru sett 9-9-9-9-10-10 prjónamerki með 30-32-36-38-38-41 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 28-31-31-35-35-38 l. Allt berustykkið er prjónað í garðaprjóni (umf 1 = ranga): Prjónið 1-1-3-3-1-1 umf án þess að fækka lykkjum og fækkið síðan lykkjum hægra megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l saman. Endurtakið úrtöku í fjórðu hverri umf til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin, alls 16-17-17-19-21-22 sinnum = 166-180-216-222-219-244 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu eftir síðustu umf með úrtöku. Prjónið nú einungis M.2 með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið (í umf 9 og 23 er síðasta l á undan kantlykkjum að framan prjónuð slétt) JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í umferðum 5, 17 og 25 þannig: Í umf 5 er fækkað um 15-19-29-29-28-33 l jafnt yfir = 151-161-187-193-191-211 l. Í umf 17 er fækkað um 18-20-30-32-30-34 l jafnt yfir = 133-141-157-161-161-177 l. Í umf 25 er fækkað um 14-18-30-30-26-36 l jafnt yfir = 119-123-127-131-135-141 l. Eftir M.2 er fellt laust af með sléttu frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2013
BERUSTYKKI:...JAFNFRAMT er fellt af 5-13-5-3-3-5 l jafnt yfir (fellið ekki af yfir kantlykkjum að framan) = 326-350-386-412-450-486 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Minne wrote:

Grosses difficultées non resolues pour reprendre les mailles des manches tricotées en rond avec le corps du gilet ??\r\nMerci de vos conseils

13.05.2020 - 01:31

DROPS Design answered:

Bonjour Minne, cette vidéo montre comment glisser les mailles des manches sur la même aiguille circulaire que le dos et les devants. Les premiers rangs sont parfois un peu compliqués, vous pouvez vous aider d'une deuxième aiguille circulaire ou bien des aiguilles doubles pointes pour les manches jusqu'à ce que vous soyez plus confortable pour avoir toutes les mailles sur une seule aiguille. Bon tricot!

13.05.2020 - 09:04

country flag Viktorija wrote:

Hi, my mom is knitting this jacket currently and asked me to take a look into the description of the jacket, however I cannot understand it either. "37-38-39-40-41-42 cm - adjust so that next row is worked from RS and so that 3 or 5 rows in stocking st are worked after 1 row with lace pattern" - Does this mean that e.g. 13th row of M1A has to be knitted, then 3/5 rows in stocking st, and then proceed with cast off for armholes? Thanks in advance.

18.09.2019 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Viktorija, depending on which row in M.1A you worked, you should stop after either row 10 or 13 (= if your last lace pattern was the one on row 7) or after last row in diagram or after the first 2 rows in diagram (if your last lace pattern was the 2nd in height in the diagram). Happy knitting!

19.09.2019 - 09:33

country flag Sterenn wrote:

Bonjour, j'ai besoin d'un conseil. Dans les explications de l'empiècement, les diminutions sont bien expliquées mais il n'y a pas d'infos sur le motif. Si je diminue le nombre de mailles régulièrement, comment faire pour que le motif ne change pas (meme nombre de mailles pour le motif M1 A et B) et qu'il soit toujours au meme niveau verticalement? Merci. sterenn

12.07.2015 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sterenn, l'empiècement se tricote au point mousse, puis en suivant le diagramme M.2 (avec les diminutions aux rangs 5, 17 et 25 comme indiqué). Bon tricot!

27.07.2015 - 10:12

country flag Bine wrote:

Hallo Drops-Team, da ich noch einige Knäul Drops Baby Merino übrig habe und bei dieser Anleitung als Garnalternative Drops Baby Merino angegeben ist, möchte ich gerne diese Jacke damit stricken. Worauf muss ich beim Verbrauch achten, wenn ich auf eine der vorgeschlagenen Garnalternativen zurückgreifen möchte: benötige ich gleich viel Gewicht oder kommt es auf die Lauflänge an?

22.08.2014 - 10:47

DROPS Design answered:

Liebe Bine, es kommt immer auf die Lauflänge an. Sie müssen ausrechnen, wie viel Lauflänge Sie beim Originalgarn benötigen (die Angaben finden Sie ja beim Garn) und rechnen das dann zur Lauflänge des Alternativgarns um.

23.08.2014 - 09:52

country flag Michaela wrote:

Guten Tag. Sind bei der Anleitung M2 die Vor- und die Rückreihen dargestellt (=1 Zeile gleich 1 Reihe?)? Oder ist eine Zeile= Vor- und Rückreihe? Besten Dank im Voraus für Ihre Antwort. Mit freundlichen Grüssen, Michaela

29.04.2014 - 08:09

DROPS Design answered:

Liebe Michaela, jede Zeile ist eine R, es sind also alle R dargestellt. Viel Spaß beim Stricken!

30.04.2014 - 21:12

country flag Elisabeth wrote:

Werden die Knopflöcher in die Blende gestrickt?

01.04.2014 - 17:17

DROPS Design answered:

Liebe Elisabeth, ja richtig. Die genaue Vorgehensweise erfahren Sie über der eigentlichen Anleitung unter "KNOPFLÖCHER" (d.h. die 4. M ab dem Rand wird abgekettet).

02.04.2014 - 11:04

Aleksandra wrote:

Hello, I plan to knit this cardigan in one colour of your Babysilk yarn for all its lacy parts and in another, contrasting colour, for the upper part of the body and both sleeves that are knitted in garter stitch according to the pattern. Could you please give me an advice on how much yarn/skeins could that "garter stitch part" take me per size M piece? Many thanks in advance!

18.11.2013 - 19:57

DROPS Design answered:

Dear Aleksandra, we are sorry but are not able to answer individuel request, please ask your Drops store, that could help and advice you. Happy knitting!

19.11.2013 - 09:59

country flag Alice wrote:

Nachtrag zu meinem vorherigen Kommentar: die erste Markierung muss dann nach 35 Maschen eingezogen werden, nicht nach 34...

23.07.2013 - 14:38

country flag Alice wrote:

Hallo liebes Drops Team, ich habe einen kleinen Fehler in der Anleitung entdeckt. Wenn man bei der Passe für Größe XL 3 Maschen von insgesamt 415 M. abnimmt, bleiben 412 M. übrig, nicht 411. Beste Grüße Alice

23.07.2013 - 13:33

DROPS Design answered:

Liebe Alice, vielen Dank! Wir haben die Info an unsere Designabteilung weitergeleitet und dort wird die entsprechende Korrektur vorgenommen.

25.07.2013 - 14:55

country flag Anna wrote:

Hallo! Ich stricke die angegebene Jacke. Wenn ich nach 8cm vier neue Maschen aufnehme, verschiebt sich das Lochmuster?! Die Reihe geht dann nicht mehr, wie in M.1A und M.1B angegeben auf und das Muster ist nicht mehr wie auf dem Foto... Oder habe ich einen Denkfehler gemacht? Eine Antwort wäre super nett!!! Viele Grüße und danke für die vielen tollen Anleitungen, Anna

13.01.2013 - 21:51

DROPS Design answered:

Liebe Anna, das Muster darf sich nicht verschieben. Die seitlich aufgenommenen Maschen werden zunächst rechts gestrickt und erst ins Muster integriert wenn es aufgeht. Viel Spass beim Stricken.

14.01.2013 - 10:44