DROPS Verdi
DROPS Verdi
48% Polyakryl, 20% Ull, 17% Polyester, 15% Mohair
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 133-23
DROPS Design: Mynstur nr VE-011
Garnflokkur D
---------------------------------------------------------

Stærð: Ein stærð
Stærð:
Fram- og bakstykki breidd: 60 cm
Lengd: 75 cm frá öxl og niður

Efni:
DROPS VERDI frá Garnstudio
700 gr litur nr 06, ljós bleikur/beige

Peysan er ca 500 gr.

DROPS PRJÓNAR NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l og 7 umf með klukkuprjóni með 3 þráðum af Verdi verða 10 x 10 cm
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9 (60 cm) – fyrir hálsmál

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Verdi
DROPS Verdi
48% Polyakryl, 20% Ull, 17% Polyester, 15% Mohair
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVEIR ÞRÆÐIR:
Takið þráðinn sem er innan í og utan á dokkunni. Þegar skipt er um dokku er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verður þráðurinn ekki of þykkur.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
UMFERÐ 1: Prjónið 1 l sl, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 2 l sl.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 uppslætti, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 1 uppsláttur er eftir og 2 l, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l sl saman, 1 l sl.
Endurtakið umf 2 og 3 áfram.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað hvort fyrir sig fram og til baka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Stykkið er saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið laust upp 41 l með 3 þráðum av Verdi á prjóna nr 9 – lesið TVEIR ÞRÆÐIR. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 75 cm – endið eftir umf 2 af klukkuprjóni – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l sl saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 68 cm. Fellið nú af miðju 15 l fyrir hálsmáli og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. Þegar stykkið mælist ca 75 cm – endið eftir umf 2 í klukkuprjóni – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l sl saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Fitjið upp 15 l með 3 þráðum af Verdi á prjóna nr 9. Prjónið klukkuprjón þar til stykkið mælist 8 cm, aukið nú út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 8 cm millibili alls 5 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur = 25 l eftir útaukningu. Þegar stykkið mælist ca 50 cm – endið eftir umf 2 í klukkuprjóni – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 l sl, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l sl saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 l sl. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Saumið axlarsauma.
Takið upp ca 36 l í kringum hálsmál með 3 þráðum Verdi á prjóna nr 9. Prjónið 3 umf sléttprjón hringinn. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2011
DROPS PRJÓNAR NR 9 – eða sú stærð sem þarf til að 7 l og 7 umf með klukkuprjóni með 3 þráðum af Verdi verða 10 x 10 cm
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 9 (60 cm) – fyrir hálsmál

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Ulla wrote:

Hej! Jeg vil gerne strikke lazy sunday med 1 tråd. Hvor mange nøgler/meter garn skal så bruges til denne opskrift? Tak for svar. Ulla

19.12.2023 - 20:41

DROPS Design answered:

Hej Ulla, du kan strikke den i en tråd DROPS SNOW som den her: Dame patent 7 masker eller så kan du prøve med 1 tråd DROPS Melody, men lav en strikkeprøve, så du ved at du holder strikkefastheden ifølge opskriften : )

20.12.2023 - 09:58

country flag Sil Jacobs wrote:

Hallo, ik kom er niet uit hoeveel bollen ik nodig heb met Drops delicht en Drops brushed.🤨 Voor de trui lazy sunday.

18.09.2022 - 10:05

DROPS Design answered:

Dag Sil,

Om het garen te vervangen kun je de garenvervanger gebruiken om dit uit te rekenen. Hiervan staat een link onder de materialenlijst bij het patroon. Voor DROPS Alpaca Silk heb je dan in totaal 875 gram nodig in totaal en je breit dan met 2 draden. DROPS Delight valt in een andere garencategorie, vandaar dat deze niet bij de alternatieven staat.

19.09.2022 - 21:24

country flag Grete Lohmann wrote:

Hej. Skal man bruge 2 tråde Delight og 1 tråd Brushed Alpaca Silk til Lazy Sunday for at få ca samme tykkelse som 3 tråde Verdi? Vh Grete

13.08.2022 - 23:43

DROPS Design answered:

Hei Grete. 1 tråd DROPS Delight + 1 tråd DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 tråder) = 1 tråd DROPS Verdi. Om du skal erstatte 3 tråder DROPS Verdi må du bruke 3 tråder DROPS Delight + 3 tråd DROPS Brushed Alpaca Silk (=6 tråder). mvh DROPS Design

15.08.2022 - 11:17

country flag Grete Lohmann wrote:

Hej. Bliver modellen Lazy Sunday stribet, hvis man strikker den med Delight farve 05 og Brushed Alpaca Silk farve 12? Eller blir farvebilledet nogenlunde som på billedet af blusen, der er strikket med Verdi?

11.08.2022 - 21:14

DROPS Design answered:

Hej Grete, her ser du hvordan den kommer til at se ud. Meleringerne er naturligvis forskellige alt efter hvilken farve du vælger. DROPS Delight + Brushed Alpaca Silk

12.08.2022 - 10:40

country flag Maria wrote:

Hej Hvilket garn har I, som jeg kan bruge til denne sweater?

12.06.2022 - 10:17

DROPS Design answered:

Hei Maria. Garnet DROPS Verdi er utgått fra vårt sortiment. Denne kvaliteten var multifarget, slik at 1 nøste innholdt flere farger (som du ser på genseren). Ønsker du å strikke denne genseren, men da ensfargen kan du bruke DROPS Melody eller DROPS Brushed Alpaca Silk (men i Brushed Alpaca Silk må du bruker 2 tråder for å få samme tykkelse som 1 tråd DROPS Verdi). Men vær obs på at denne genseren er strikket i 3 tråder DROPS Verdi, så da må det brukes 3 tråder Melody eller 6 tråder DROPS Brushed Alpaca Silk. mvh DROPS Design

13.06.2022 - 11:20

country flag Trine wrote:

Hvilket garn kan erstatte drops Verdi til opskrift strikket med 3 tråde (Lazy Sunday)?

29.01.2022 - 17:54

DROPS Design answered:

Hei Trine. Vi har ingen garn som vil gi den fargemeleringen du ser på modellen. Du kan erstatte DROPS Verdi med DROPS Melody og om du velger 3-4 farger i Melody kan du prøve strikke/bytte farger som du ser på bildet. Strikkes også da med 3 tråder Melody. Du kan også strikke med 6 tråder DROPS Brushed Alpaca Silk. Bare husk å få den oppgitte strikkefastheten. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 14:03

country flag Bettina wrote:

Buongiorno, Per gli aumenti sulle maniche del modello 133/23,vanno lavorate alternando 1° ferro e dopo 8cm 2° ferro o si possono lavorare tutti gli aumenti lavorando sempre nel 1° ferro? Grazie e complimenti per il vostro lavoro!

15.02.2018 - 09:59

DROPS Design answered:

Buongiorno Bettina, non è specificato di fare gli aumenti in modo alternato, può lavorarli come preferisce ogni 8 cm. Buon lavoro!

15.02.2018 - 11:37

country flag Christine Marinier wrote:

Bonjour, vous indiquez de monter 41 mailles pour le dos, hors si je regarde la photo du pull et les mails montées sur mon aiguille, je trouve que cela fait peut pour la largeur. pourriez-vous m'expliquer pour un pull taille unique si peut de maille svp, merci

11.09.2017 - 11:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marinier, pensez à bien vérifier votre échantillon, vous devez avoir 7 m x 7 rangs en côtes anglaises = 10 x 10 cm soit 41 m en côtes anglaises = environ 60 cm de large. Bon tricot!

11.09.2017 - 11:19

country flag Christa wrote:

Ich finde den link zu vorgeschlagenen Garn nicht.

05.11.2016 - 22:39

DROPS Design answered:

Liebe Christa, Verdi ist leider nicht mehr verfügbar, gerne können Sie anstatt Melody oder Brushed Alpaca Silk und Delight stricken. Hier lesen Sie mehr über Garn-Alternative.

07.11.2016 - 09:23

country flag Khb wrote:

Hvis jeg strikker den i drops melody, blir det riktig med 14 nøster i henhold til oppskriften ? Takk for svar på forhånd !

02.11.2015 - 21:18

DROPS Design answered:

Hej. Ja det ska vara tillräckligt till detta mönster. Här kan du läsa om hur du gör för att byta ut ett garn mot ett annat. Lycka till!

03.11.2015 - 08:11