DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 123-1
DROPS Design: Mynstur nr Z-513
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garntudio
450-550-650 gr litur nr 202, ljós brúnn camel

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 (40 og 80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 7 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá teikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fellið af á eftir kanti að framan + 3 l sl + 3 l br þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fellið af á undan 3 l br + 3 l sl + kanti að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri lista að framan.
1 hnappagat = fellið af þriðja og fjórðu l frá miðju að framan. Í næstu umf eru fitaðar upp tvær nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 8, 14, 20, 26, 32, 38 og 44 cm.
STÆRÐ L/XL: 10, 16, 22, 28, 34, 40 og 46 cm.
STÆRÐ XXL/XXXL: 8, 15, 22, 29, 36, 43 og 50 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað á hringprjóna fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 699-915-1131 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Kantur að framan er prjónaður í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka, þ.e.a.s. 6 kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni í hverri umf. Prjónið 1 umf br frá röngu með 6 kantlykkjum í hvorri hlið. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 3 l sl og 6 kantlykkjum að framan. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 2-3-4 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 12 l stroffprjón eins og áður, * M.1, 39 l stroffprjón eins og áður *, endurtakið frá *-* og endið á M.1, 12 l stroffprjón eins og áður og 6 kantlykkjur að framan. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 543-711-879 l á prjóni.
Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist 7-8-9 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 6 l stroffprjón eins og áður, * M.1, 27 l stroffprjón eins og áður *, endurtakið frá *-* og endið á M.1, 6 l stroffprjón eins og áður og 6 kantlykkjur að framan. ATH! Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 387-507-627 l á prjóni. Haldið nú áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur, * M.1, 15 l stroffprjón eins og áður *, endurtakið frá *-* og endið á M.1 og 6 kantlykkjum að framan. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 231-303-375 l á prjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist ca 17-18-19 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hverri br einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 3 l br = 267-351-435 l. Í næstu umf frá röngu er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir gat.
Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Í næstu umf frá réttu er fellt af 1 l í hverri br einingu með því að 2 síðustu br l eru prjónaðar br saman = 231-303-375 l. Prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl og br yfir br. Setjið nú eitt prjónamerki í 62. – 80. – 98. l frá hvorri hlið (bakstykki = 107-143-179 l). Prjónið nú frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan, 3 l sl, 3 l br, sléttprjón yfir næstu 39-57-75 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-13 l jafnt yfir, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 3 l sl (prjónamerki er staðsett fyrir miðju í þessum l), 3 l br, 3 l sl, 3 l br, sléttprjón yfir næstu 87-123-159 l JAFNFRAMT er fækkað um 6-15-25 l jafnt yfir, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 3 l sl (prjónamerki er staðsett fyrir miðju í þessum l), 3 l br, 3 l sl, 3 l br, sléttprjón yfir næstu 39-57-75 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-13 l jafnt yfir, 3 l br, 3 l sl og 6 kantlykkjur að framan.
Nú eru 217-272-324 l á prjóni. Haldið áfram með sl yfir sl, br yfir br og sléttprjón yfir sléttprjón, kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður. Þegar stykkið mælist 27-29-31 cm er aukið út um 1 l á undan og á eftir stroff-mynstri (= 21 l) í hvorri hlið (= 4 útaukningar). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn og síðan er hann prjónaður inn í sléttprjón. Endurtakið útaukningu með 6 cm millibili alls 3 sinnum = 229-284-336 l. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 44-47-50 cm. Fellið nú af 9 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki + 4 l hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 99-126-152 l. Prjónið áfram fram og til baka með sl yfir sl, br yfir br og sléttprjón yfir sléttprjón. JAFNFRAMT er haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf á hvorri hlið. Fellið af 2 l 2-4-8 sinnum og 1 l 2-9-11 sinnum í hvorri hlið = 87-92-98 l. Haldið áfram að prjóna fram og til baka með sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 62-67-72 cm fellið af miðju 19-24-30 l fyrir hálsmáli og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.
Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir hálsmáli í hverri umf frá hálsmáli: Fellið af 1 l 2 sinnum = 32 l eftir á öxl. Stykkið mælist nú ca 64-69-74 cm. Fellið nú af þær l sem eftir eru.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 56-70-83 l. Haldið áfram að prjóna fram og til baka með sl yfir sl, br yfir br og sléttprjón yfir sléttprjón. Fellið JAFNFRAMT af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-52 cm eru prjónaðar 2 umf fram og til baka yfir einungis 6 kantlykkjur að framan. Fellið síðan af fyrir hálsmáli og aukið út fyrir kraga þannig:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 6 kantlykkjur að framan, nýjar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umf (til að koma í veg fyrir göt) og síðan eru þær prjónaðar inn í garðaprjón á við kantlykkjur að framan. Fellið af 1 l innan við kantlykkjur að framan + 3 l sl + 3 l br – lesið ÚRTAKA! Aukið út um 1 l og fellið af 1 l með ca eins cm millibili alls 12-15-18 sinnum = 18-21-24 kantlykkjur að framan.
Þegar stykkið mælist 64-69-74 cm er fellt af síðustu 32 l fyrir öxl. Haldið eftir 18-21-24 kantlykkjum að framan á prjóni, prjónið út umf og prjónið kraga (umf 1 = frá réttu) þannig: * Prjónið fram og til baka yfir síðustu 8-10-12 l, prjónið fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 6-7-8 cm (mælt þar sem er styst frá öxl). Fellið nú af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama háttog hægra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 91-103-103 l á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt. Setjið prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið nú þannig: Prjónið 2 l br * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 3 l sl og 2 l br. Haldið áfram þar til stykkið mælist 2-3-4 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið 17-23-23 l sléttprjón, stroffprjón eins og áður yfir næstu 21 l, M.1, stroff eins og áður yfir næstu 21 l og 17-23-23 l sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 3 cm er aukið út 2 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 2½-2-1½ cm millibili alls 18-19-25 sinnum (útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í sléttprjón). Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með sl yfir sl, br yfir br og sléttprjón yfir sléttprjón þar til stykkið mælist 7-8-9 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið sléttprjón fram að stroffi, 15 l stroffprjón eins og áður, M.1, 15 l stroffprjón eins og áður og sléttprjón út umf. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með sl yfir sl, br yfir br og sléttprjón yfir sléttprjón þar til stykkið mælist 12-13-14 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið sléttprjón fram að stroffprjóni, 9 l stroffprjón, M.1, 9 l stroffprjón og sléttprjón út umf. Þegar M.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni í hvorri hlið og 21 l stroffprjón við miðju á ermi.
Þegar öll útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka eru 91-105-117 l á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48-46-44 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla). Fellið nú af 8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú fram og til baka JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: Prjónið 2 l 4-5-5 sinnum og 1 l 4-8-13 sinnum. Fellið af 2 l í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þar til ermin mælist 56-57-58 cm. Á eftir því er fellt af 4 l í byrjun næstu tveggja umf. Stykkið mælist nú ca 57-58-59 cm. Fellið af þær l sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið í hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið.
Prjónið 1. lykkju af kaðlaprjóni framan við stykkið, 1. lykkju af prjóni og 1. lykkju af kaðlaprjóni aftan við stykkið slétt saman.
Prjónið 2. l af kaðlaprjóni framan við stykkið, 2. lykkju af prjóni og 2. lykkju af kaðlaprjóni aftan við stykkið slétt saman.
Prjónið 3. l af kaðlaprjóni framan við stykkið, 3. lykkju af prjóni og 3. lykkju af kaðlaprjóni aftan við stykkið slétt saman.
Nú hefur fækkað um 6 lykkjur.
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 123-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Jopie wrote:

Bij 699 st , eindig ik met eerste nld patroon nooit op M1-12 st-6 voorbies. Op 680-689 st is de laatste M1. Eén na laatste M1 is op 633-641 st. Hoe dan?

11.01.2024 - 14:51

DROPS Design answered:

Dag Jopie,

Je herhaalt steeds wat tussen sterretjes staat, dus 6 voorbiessteken, 12 steken in boordsteek, herhaal steeds M1(15st)+39 st in boordsteek tot er 27 steken over zijn op de linker naald. Dan brei je M.1 nog een keer en 12 steken in boordsteek en nog eens 6 steken in ribbelsteek. Als je M1 + 39 steken in totaal 12 keer breit dan komt het precies uit.

14.01.2024 - 18:34

country flag Barbara Schmidt wrote:

Betrifft das Diagramm M1, wie stricke ich die letzten sechs Maschen zusammen. gibt es da ein Video zum ansehen ? Freundliche Grüße

17.12.2022 - 20:28

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmidt, die stricken Sie gleichzeitig als man den Zopf bei dem letzten Symbol strickt, dh die ersten 3 M hinter die Arebeit legen, die nächsten 3 vor die Arbeit legen, dann stricken Sie die 1. Maschen der Nadel vor die Arbeit + die 1. Masche auf der Nadel + die 1. Masche hinter die Arbeit zusammen, und genau so mit den 2 nächsten Maschen jeder Nadel stricken. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2022 - 10:26

country flag Sab wrote:

De tous les modèles Drops que j'ai tricoté (une trentaine) c'est celui que je trouve le plus chouette. Il est bien structuré/ajusté avec des détails intéressants. Cependant j'aurais dû prendre la taille au-dessus, je l'ai fait en S/M, comme je suis S cela aurait dû bien convenir, pourtant il est légèrement serré.

05.02.2022 - 12:59

country flag Christine ROBERT wrote:

Bonjour, Je butte sur la réalisation de la 11ème ligne du diagramme M1 (diminution de 6 mailles) du modèle 123-1. Je n'arrive pas à faire ces diminutions, même en utilisant un crochet. Existe-t-il une vidéo explicative ? Ou une technique particulière ? Je vois que plusieurs personnes ont réalisé ce modèle, c'est que ça ne doit pas être impossible ! Merci de votre aide.

15.01.2022 - 15:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, tricotez ces 9 mailles ainsi: placez 3 m sur l'aiguille auxiliaire derrière l'ouvrage et les 3 m suivantes devant, essayez de placer les 3 aiguilles côte à côte ainsi: celle devant, l'aiguille avec toutes les autres mailles et celle de derrière; et tricotez maintenant ainsi: la 1ère maille de chacune de ces 3 aiguilles (= 3 mailles ensemble à l'endroit), puis tricotez ensemble la 2ème maille de ces 3 aiguilles et tricotez de la même façon la 3ème maille de ces 3 aiguilles = vous avez diminué 6 mailles et il ne reste plus que 3 mailles sur les 9 précédentes. Bon tricot!

17.01.2022 - 09:55

country flag Dianne A wrote:

Hi, enjoying but am stumped. Am up to where I have 303 stitches on needle. Up to 'inc 1 st in each P-section'. What does P-section mean, is it the pattern where I've 'M.1' and I increase above it? I have 15 pattern areas, and if so I would only have 15 stitches extra. Im supposed to have 351 stitches. where do the extra stitches come from?

08.10.2020 - 01:54

DROPS Design answered:

Dear Dianne, A, you have now on needles: 6 front band sts, * M.1, 15 sts in rib as before *, repeat from *-*, M.1 and 6 front band sts 303 sts. The "rib as before" = K3/P3 - the P-sections are these P3 = increasing 1 st in every P section will give you rib k3/P4; happy knitting!

08.10.2020 - 11:03

country flag Anita Larsen wrote:

Jeg er begyndt på opskrift 123-1, men jeg kan ikke få maskeantallet til at passe med mønstret.... 915 masker....6 kant + 12 rib i hver side...dvs at der skal sluttes med mønster inden til. mønster er over 9 + 39 masker....... Jeg får 6 masker for meget. Min udregning.. 915 - 36 (rib+kant) - 9 (slut mønster) =870 masker :48= 18,125

15.07.2019 - 13:23

DROPS Design answered:

Hei Anita. Mønstret er over 15 masker, ikke 9 masker. Du strikker 6 stolpemasker, 12 masker vrangbord, M.1 + 39 masker vrangbord (dette strikkes 16 ganger/16 rapporter = 864 masker), strikk M.1, strikk 12 masker vrangbord og til slutt 6 stolpemasker, dette blir da 6+12+864+15+12+6 = 915 masker. God Fornøyelse!

26.08.2019 - 14:28

country flag Heidi Von Pein wrote:

Nach 27cm macht man vor und nach der Bündchenpartie jeweils einen Umschlag. Wie werden diese Umschläge in der Rückrunde gestrickt, rechts oder links? (Gehören die Zunahmen zur Bündchenpartie oder zur glatt rechts gestrickten Partie?)

18.03.2018 - 10:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Von Pein, diese Umschläge sollen verschränkt glatt gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

19.03.2018 - 10:29

country flag Kat wrote:

Bonjour, Je suis en train de faire les manches de ce très beau modele, mais je les trouvent bien trop larges pour une taille S. Comment y remédier sans dénaturer le modèle? Merci!

18.02.2018 - 09:51

DROPS Design answered:

Bonjour Kat, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chaque modèle à chaque demande individuelle. N'hésitez pas à demander conseil à votre magasin DROPS, même par mail ou téléphone, ou à un forum de tricot. Bon tricot!

19.02.2018 - 09:49

country flag Margot Jonsson wrote:

Hej visar mönstret endast räta varv. ska man då sticka 26 v om man räknar med de aviga v?

14.07.2017 - 09:15

DROPS Design answered:

Hej. Diagrammet visar alla varv men sett från rätsidan, så det antalet varv som är i diagrammet är det antal du ska sticka. Lycka till!

14.07.2017 - 11:18

ANYA wrote:

Ten sweterek moze miec nazwe "Sweter z Bastinka"

26.03.2017 - 11:13