DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Little Chestnut

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, húfu og sokkum með köðlum úr DROPS Alpaca

DROPS Baby 19-17
DROPS Design: Mynstur nr Z-075-by-Z-076-by-Z-077-by
--------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 -98/104)
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-200-200 gr nr 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða sú stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA BRENND, NR 513: 5 - 5 - 6 (6 - 6) stk.

HÚFA:
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm
Efni:
DROPS ALPACA fra Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf tilað 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 618, ljós beige

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

HNAPPAGAT.
Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 4, 9, 14, 19 og 24 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 3, 8, 14, 19, 25 og 30 cm.
STÆRÐ 2 ára: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm.
STÆRÐ 3/4 ára 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 4. umf er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l br, M.1, * 6 l br, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) l, endið á 6 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) l jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt.
Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) l, 2 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón.
Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm.
Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 l eins og áður og 14-18-24 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 61-63-70 (79-82) l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 14-18-24 (26-29) l sléttprjón og 21 l eins og áður (= vinstra framstykki) = 131-141-160 (173-182) l eftir á prjóni. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (42-44) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvorum megin við prjónamerkin, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5.- (6.-6.) hverri umf alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 (25-29) cm. Fellið af 8 l við miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki) = 40-44-50 (54-60) l.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 211-229-260 (281-302) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) l jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) l. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, * M.1, 11-11-12 (12-12) l br *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri br mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 l br yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l br saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar l í M.1 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) l á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allat M.3 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður)
= 99-98-106 (102-109) l. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt frá réttu yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) l jafnt yfir = 86-88-92 (96-100) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.
--------------------------------------------------------

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.
Fitjið upp 95-100-105 (110-120) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 115-120-125 (130-140) l. Í næstu umf er prjónað sl yfir sl og br yfir br, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 12 l sl, 11-12-13 (14-16) l br). Prjónið nú áfram þannig: * M.1, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm (stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina) prjónið M.2 yfir allt M.1. ATH! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 eftir þörfum þegar lykkjum fækkar. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er M.3 prjónað yfir allt M.2.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 2 l í hverri br-mynstureiningu, með því að prjóna 2 síðustu l br saman í hvorri hlið. Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 55-60-65 (70-80) l. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 = 35-40-45 (50-60) l. Í næstu umf er prjónað slétt yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað og þær prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20-23 (25-30) l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist nú ca 14-15-16 (17-18) cm.
--------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 50-50-54 (58-62) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig:
STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára:
Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, 1 l sl.
STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára:
Prjónið 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, 1 l br.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm.
Prjónið 1 umf JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir í umf, fækkið ekki lykkjum yfir 16 l á ofan á fæti (= M.5 + 2 l br í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) l. Haldið eftir 16 l ofan á fæti prjóni, þær 30-30-34 (38-42) l sem eftir eru, eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 l br í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Næsta umf frá réttu er fækka um 4 l yfir M.5 = 12 l á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) l til hliðar ofan á fæti, setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) l í hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) l. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umf brugðið. Fellið af allar l nema 12 l við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla. Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.04.2010
Nýtt mynstur M.1 og M.3
Yfirfarið á vefsvæði: 12.06.2014
Nýtt efnismagn í peysu: 150-150-150-200-200 gr litur nr 618, ljós beige

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 2 l slétt saman og 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 1 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt saman og 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (96)

country flag Amalia Rubio wrote:

The yarn used in “Little chestnut “ is this a fingering weight?

25.06.2020 - 19:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rubio, this set is worked with DROPS Alpaca - click here to read more about the yarn and order. Happy knitting!

26.06.2020 - 07:35

country flag Elisabeth Huber wrote:

Erklären sie bitte die Abnahmen in der passe genauer, wie soll ich verstehen abwechselnd li. u re Seite wie kommen sie auf eine Abahme vom 114 Maschen Danke liebe Grüße Elisabeth Huber

16.12.2019 - 21:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Huber, bei der 1. Abnahmen stricken Sie die 2 letzten linken Maschen zusammen, bei der nächsten Abnahmen stricken Sie die 2 ersten linken Maschen zusammen, und so wiederholen, nächstes Mal die 2 letzten (=auf der linken Seite vom li-Partien) und nächstes Mal die 2 ersten (= auf der rechten Seite vom li-Partien) usw. Nur in die 11-12 M.li-Partien abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

17.12.2019 - 09:21

country flag France wrote:

Ok merci mais la première diminution vous dîtes dans les 11 mailles diminuer 2 mailles ensemble env reste 9 mailles? Après une diminution reste 10 mailles ? C’est 2 diminution par section env ?

26.10.2019 - 22:01

DROPS Design answered:

Bonjour France, quand vous tricotez: 2 m ens à l'env, 9 m env = il reste 10 m envers dans la section qui en avait 11. Vous tricotez ensuite ces 10 m env ainsi: 8 m env, 2 m ens à l'env = vous tricotez 10 m env en diminuant 1 m = il reste 9 m env. et ainsi de suite. Bon tricot!

04.11.2019 - 12:19

country flag France wrote:

Bonjour je ne comprends pas j’ai besoin d’aide empiècement : j’ai 256 m je diminue combien de mailles dans chaque section envers et combien de section envers il y a ? Après le premier tour combien de mailles restante ?

24.10.2019 - 01:53

DROPS Design answered:

Bonjour France, vous tricotez: 5 m point mousse, 2 m env, (M.1, 11 m env) x 10, M.1, 2 m env, 5 m point mousse = vous avez 10 sections de 11 m env chacune. Vous diminuez dans ces sections de 11 m env; la 1ère fois au début: 2 m ens à l'env, 9 m env, puis la fois suivante à la fin: 8 m env, 2 m ens à l'env, la 3ème fois: 2 m ens à l'env, 7 m env, la 4ème fois: 6 m env, 2 m ens à l'env et ainsi de suite jusqu'à ce qu'il reste 4 m env (vous avez diminué 7 fois 1 m env dans chaque section de 11 m env. En même temps, vous tricotez M.2 au-dessus de M.1 (= il reste 8 m dans chaque M.2), il reste 142 m au total. Bon tricot!

24.10.2019 - 10:44

country flag Wager Heidemarie wrote:

Meine Frage betrifft die Passe: Wo genau sind die vielen Abnahmen, wenn ich nur 8x auf der rechten und linken Voderseite abnehme (gesamt 16) und bei M2 je 4 Maschen (12x4=48 Maschen) sind insgesamt 290 - 64 = 226 . Laut Anleitung 154. Wo muss ich noch abnehmen?

10.09.2019 - 13:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wager, in die 3. Größe nehmen Sie nur in die 12-linke-Maschen-Partien = es sind dann 12 M - 8 = 4 linke Maschen zwischen jedem M.1 = 11 Abnahme pro Abnahmereihe - Dann nehmen Sie 4 M in jedem M.2 x 12 = 48 Abnahme - Es waren 290 M - 88 M - 48 M = 154 M. Viel Spaß beim stricken!

10.09.2019 - 14:44

country flag Maria wrote:

Hola! Creo que hay un error con los aumentos de la manga, dice que hay que aumentar 7 veces cada 5 CMS pero la manga debe medir 19 CMS. Cuántos puntos deben ser al final? para hacer mi propio cálculo, por favor. Estoy trabajando talla 6-9 meses

27.08.2019 - 07:30

DROPS Design answered:

Hola Maria. El patrón está correcto. El primer aumento se trabaja a 5 cm desde el inicio. Los siguientes aumentos se repiten cada 5 VUELTAS.

31.08.2019 - 21:11

country flag Claudia wrote:

Hallo, ich bin nun an der Passe, soweit alles klar aber wenn ich bei der linken Partie 11 Maschen stricken und gleichzeitig 1 Masche jeweils abnehmen soll, habe ich dann 10 Maschen weil ich Masche 10 und 11 zusammen stricke oder 11 weil ich Masche 11 und 12 zusammen stricke?

07.06.2019 - 16:46

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, wenn Sie bei der Passe abnehmen, nehmen Sie in die linken Partie ab, dh bei der 1. Abnahmen stricken Sie die 10. und 11. Linke Masche zusammen (= 10 li Maschen bleiben), bei der nächsten Abnahmen stricken Sie die 1. und 2. linke Maschen zusammen (= 9 li Maschen bleiben), bei der 3. Abnahmen stricken Sie die 8. und 9. Maschen zusammen (= 8 li Maschen) und so weiter. Viel Spaß beim stricken!

11.06.2019 - 09:30

country flag Claudia wrote:

Ich bin nun in der R am Vorder-Rückenteil in der das Zopfmuster M3 wiederholt wird aber was ist mit dem ersten und letzten M1 Zopf? Laut Diagramm werden über M1 ja noch 2 Reihen mehr gestrickt bevor dieser wieder an der Reihe ist. Stricke ich da rechts/links über diese Maschen?

10.05.2019 - 17:36

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, M.3 wird über 4 Reihen wiederholt, dh wenn M.3 einmal in der Höhe gestrickt wird, wiederholen Sie das Diagram ab der 1. Reihe. Gleichzeitig stricken Sie M.1 wie im Diagram, dh über 6 Reihen = bei der 5. Reihe in M.1 stricken Sie die 1. Reihe vom 2. Rapport M.3 usw. Viel Spaß beim stricken!

13.05.2019 - 08:37

country flag France Alarie wrote:

Pull Lors du retour « envers » ne doit on pas tricoter les mailles comment elles se presentent Ce n’est pas mentionné ainsi mais seulement « continuer en point fantaisie » Merci

17.04.2019 - 05:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Alarie, vous continuez en point fantaisie ainsi avec la répartition des mailles comme indiquée, (avec les torsades de M.1) - sur l'envers, les mailles se tricotent effectivement comme elles se présentent. Bon tricot!

23.04.2019 - 11:06

country flag Anna wrote:

Buongiorno Il diagramma a rovescio,devo lavorare le maglie come si presentano? Grazie mille

14.03.2019 - 12:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna. Sui ferri lavorati sul rovescio del lavoro, lavora le maglie come si presentano. Buon lavoro!

14.03.2019 - 12:19