Little Chestnut |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, húfu og sokkum með köðlum úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 19-17 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HNAPPAGAT. Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 4, 9, 14, 19 og 24 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 3, 8, 14, 19, 25 og 30 cm. STÆRÐ 2 ára: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm. STÆRÐ 3/4 ára 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm. -------------------------------------------------------- FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 4. umf er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l br, M.1, * 6 l br, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) l, endið á 6 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) l jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) l, 2 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 l eins og áður og 14-18-24 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 61-63-70 (79-82) l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 14-18-24 (26-29) l sléttprjón og 21 l eins og áður (= vinstra framstykki) = 131-141-160 (173-182) l eftir á prjóni. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40 (42-44) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvorum megin við prjónamerkin, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5.- (6.-6.) hverri umf alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 (25-29) cm. Fellið af 8 l við miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki) = 40-44-50 (54-60) l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 211-229-260 (281-302) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) l jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) l. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, * M.1, 11-11-12 (12-12) l br *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri br mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 l br yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l br saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar l í M.1 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) l á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allat M.3 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) = 99-98-106 (102-109) l. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt frá réttu yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) l jafnt yfir = 86-88-92 (96-100) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- HÚFA: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. -------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Fitjið upp 95-100-105 (110-120) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 115-120-125 (130-140) l. Í næstu umf er prjónað sl yfir sl og br yfir br, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 12 l sl, 11-12-13 (14-16) l br). Prjónið nú áfram þannig: * M.1, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm (stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina) prjónið M.2 yfir allt M.1. ATH! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 eftir þörfum þegar lykkjum fækkar. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er M.3 prjónað yfir allt M.2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 2 l í hverri br-mynstureiningu, með því að prjóna 2 síðustu l br saman í hvorri hlið. Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 55-60-65 (70-80) l. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 = 35-40-45 (50-60) l. Í næstu umf er prjónað slétt yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað og þær prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20-23 (25-30) l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist nú ca 14-15-16 (17-18) cm. -------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. -------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 50-50-54 (58-62) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára: Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, 1 l sl. STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára: Prjónið 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, 1 l br. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm. Prjónið 1 umf JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir í umf, fækkið ekki lykkjum yfir 16 l á ofan á fæti (= M.5 + 2 l br í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) l. Haldið eftir 16 l ofan á fæti prjóni, þær 30-30-34 (38-42) l sem eftir eru, eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 l br í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Næsta umf frá réttu er fækka um 4 l yfir M.5 = 12 l á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) l til hliðar ofan á fæti, setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) l í hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) l. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umf brugðið. Fellið af allar l nema 12 l við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla. Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (96)
Natacha wrote:
I've emailed too but am also posting here. What exactly does this mean - "dec from RS on the right and left side alternately of each P-section on every 1 cm / 3/8'' a total of 6-7-8 (9-9) times". Could you please clarify how many stitches will need to be lost in each of the 8 decrease rows. Thanks a mil.
22.09.2011 - 19:05DROPS Deutsch wrote:
Man strickt 10 Mal M2, bei jedenm Rapport in M2 werden 4 M. abgenommen (- 40 M.). Weiter wird in den 9 grossen li. Partien 6 Mal je 1 M. abgenommen (- 54 M.). 233 - 40 -54 = 139 M.
22.09.2011 - 10:23Sandra wrote:
Hallo zusammen, ich bin gerade dabei die Jacke zu stricken und bin mir bei der Passe nicht sicher, wie ich weitermachen soll. Irgedwie versteh ich nicht, wie man von 233 Maschen durch 7maliges Abnehmen je einer Masche auf beiden Seiten (14M) auf 139 Maschen kommt??? Kann mir da jemand weiterhelfen??? Vielen lieben Dank im Voraus...
22.09.2011 - 09:28Brenda wrote:
Hello dear fellow knitters! I am about to knit the above sweater and would love if someone could translate the comments made about it in Swedish? I am sure these comments would be most helpful. Thank you sooo much!
21.09.2011 - 19:59Drops Design wrote:
Har du husket indtagningerne på hver side af alle vrangpartier? Du mangler 8 indtagninger for at maskeantallet skal stemme.
16.08.2011 - 11:26Hanne Eriksen wrote:
Jeg strikker nu på bærestk. og kan ikke forstå hvordan man kommer til maskeantallet "efter alle indtagninger er der 139m (jeg har 147m. mit mønster passer)og efter M.4 skal der være 99m. jeg fatter ikke maskeantallet???????
14.08.2011 - 10:42