DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Dreams of Aran

Prjónuð peysa fyrir herra með köðlum úr DROPS Karisma, DROPS Puna eða DROPS Merino Extra Fine. Stærð 13/14 ára - XXXL

DROPS 135-3
DROPS Design: Mynstur nr U-593
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð:
13/14 ára - S - M-L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
650-750-800-850-950-1050-1150 gr litur nr 44, ljós grár

Eða notið:
DROPS PUNA frá Garnstudio
600-700-750-800-900-1000-1050 gr litur nr 07, ljós grár

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
650-750-800-850-950-1050-1150 gr litur nr 05, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til þess að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna og hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 – M.5. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Prjónið 1 l eins og í mynstri. Fækkið um 1 l með því að prjóna saman 2 l í 1, steypið síðan fyrstu l af hægri prjóni yfir þessa = fækkar um 1 l og til viðbótar er felld af 1 l
Fækkið lykkjum síðan jafnt yfir í mismunandi mynsturteikningar þannig:
M.1 (= 44-44-52-52-52-52-52 l): 10-10-12-12-12-12-12 l.
M.3 (= 8 l): 2 l.
M.4 (= 10 l): 3 l.
M.5 (= 16 l): 6 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Ermin er prjónuð upp og ermin heldur áfram upp á öxl og meðfram hnakka efst að aftan. Lykkjum í hálsmáli efst á ermi er fækkað við framstykki og smá hluti af ermi er prjónaður áfram efst á bakstykki sem saumað er saman mitt að aftan, þannig að hálsmálið verður aðeins hærri í hnakka en á framstykki – sjá mynsturteikningu 1.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 208-230-250-270-290-310-330 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma, Puna eða Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið stroff 1 l sl/1 l br. Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umf í garðaprjóni, JAFNFRAMT er aukið út um 20-10-6-6-22-18-18 l jafnt yfir í síðustu umf = 228-240-256-276-312-328-348 l. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, það fyrra í byrjun umf og það seinna eftir 114-120-128-138-156-164-174 l (= hvor hlið).
Skiptið yfir á hringprjón nr 4 og prjónið MYNSTUR þannig – sjá útskýringu að ofan:

Stærð 13/14 – L: Prjónið M.2 yfir fyrstu 9-12-12-17 l, M.3, M.4, M.3, M.1 yfir næstu 44-44-52-52 l, M.3, M.4, M.3, M.2 yfir næstu 18-24-24-34 l, M.3, M.4, M.3, M.1 yfir næstu 44-44-52-52 l, M.3, M.4, M.3, M.2 yfir síðustu 9-12-12-17 l.

Stærð XL-XXXL: Prjónið M.2 yfir fyrstu 8-12-17 l, M.3, M.4, M.3, M.4, M.3, M.1 yfir næstu 52-52-52 l, M.3, M.4, M.3, M.4, M.3, M.2 yfir næstu 16-24-34 l, M.3, M.4, M.3, M.4, M.3, M.1 yfir næstu 52-52-52 l, M.3, M.4, M.3, M.4, M.3, M.2 yfir síðustu 8-12-17 l.

ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur á hæðina, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í báðum hliðum (útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í M.2). Endurtakið útaukningu með 6-8-8-9-9-9-10 cm millibili alls 5 sinnum = 248-260-276-296-332-348-368 l. Þegar stykkið mælist 38-47-48-49-50-51-52 cm eru felldar af 6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (felldar eru 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og hvort stykki er prjónað fyrir sig (passið uppá að umf með kaðli sé frá réttu eftir skiptingu).

BAKSTYKKI:
= 118-124-132-142-160-168-178 l. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 2-2-2-2-2-3-4 sinnum og 1 l 1-1-2-3-4-4-5 sinnum = 108-114-120-128-144-148-152 l.
Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm (passið uppá að næsta umf er 7. umf í mynstri M.1, M.3 og M.4) fellið af allar l, JAFNFRAMT í þessari úrtökuumferð fækkar um 24-24-26-26-36-36-36 l jafnt yfir í mynstri – sjá ÚRTAKA!

FRAMSTYKKI:
= 118-124-132-142-160-168-178 l. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 46-56-58-60-62-64-66 cm (passið uppá að næsta umf er 1. eða 5. umf í mynstri M.1) fellið af miðju 40-40-48-48-48-48-48 l fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT fækkar l um 10-10-12-12-12-12-12 l jafnt yfir þessar 40-40-48-48-48-48-48 l.
Prjónið nú hvora öxl fyrir sig. Fellið af 2 l í byrjun á næstu umf frá hálsmáli. Þegar stykkið mælist 49-59-61-63-65-67-69 cm (stillið af eftir bakstykki) fellið af, JAFNFRAMT fækkar um 7-7-7-7-12-12-12 l jafnt yfir l í mynstri.

HÆGRI ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-58-60-62-64-66-68 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma, Puna eða Merino Extra Fine.. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú stroff 1 l sl/1 l br þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir í síðustu umf = 58-60-62-64-66-68-70 l.
Setjið prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið mynstur í næstu umf þannig: Prjónið M.2 yfir fyrstu 5-6-7-8-9-10-11 l, M.3 2 sinnum, M.5, M.3 2 sinnum, M.2 yfir síðustu 5-6-7-8-9-10-11 l. Haldið áfram með þetta mynstur á hæðina. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13-12-13-12-12-14-13 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafn óðum inn í M.2. Endurtakið útaukningu með 2-2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-15-16-17-18-19-20 sinnum = 86-90-94-98-102-106-110 l.
Þegar stykkið mælist 45-50-50-49-49-48-48 cm eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi (felldar eru af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið ermi fram og til baka (passið uppá að umf með kaðli sé frá réttu eftir skiptingu), JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 2-4-6-7-9-10-12 sinnum og 1 l 12-10-8-8-6-6-4 sinnum = 48 l eftir í öllum stærðum.
Ermin mælist nú 55-60-60-60-60-60-60 cm. Nú er mælt héðan! Haldið áfram með mynstur yfir l sem eftir eru þar til stykkið mælist 12-14-13-15-17-18-19 cm. Fellið af í hægri hlið, í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: 24 l 1 sinni (JAFNFRAMT eru 14 af þessum 24 l prjónaðar saman 2 og 2 áður en fellt er af), 3 l 2 sinnum. Prjónið 3 umf án úrtöku. Fellið af 1 í næstu umf = 17 l eftir í öllum stærðum.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-21-22-24-26-27-28 cm. Fellið af JAFNFRAMT fækkar um 4 l jafnt yfir l í mynstri.
Öll ermin mælist ca 74-81-82-84-86-87-88 cm.

VINSTRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en fellt er af efst í gagnstæðri hlið, þ.e.a.s. í byrjun á hverri umf frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið axlarlykkjur á fram- og bakstykki við M.3 í hvorri hlið við ermi (saumið í ystu l). Saumið efst á ermum saman við miðju að aftan við hnakka og saumið niður við bakstykki.

KANTUR í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 94-94-108-108-108-108-108 l í kringum hálsmál á stuttan hringprjón nr 3,5 með Karisma, Puna eða Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út 22-22-26-26-26-26-26 l jafnt yfir = 116-116-134-134-134-134-134 l. Prjónið stroff 1 sl/1 br. Þegar stroffið mælist 8 cm eru prjónaðar 2 umf í garðaprjóni. Fellið af. Brjótið kantinn saman tvöfaldan og saumið niður að innan, garðaprjón á móti garðaprjóni

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.10.2011
Nýtt mynstur M.5
Yfirfarið á vefsvæði: 31.08.2017
Breidd á öxlum hefur verið gerð á mynsturteikningu, allar stærðir
Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2017
Nýtt efnismagn. Búið er að bæta við einni dokku til viðbótar í öllum stærðum (og garntegundum)

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Dreams of Aran

Pbug, Australia

Dreams of Aran

Jackie, United States

Dreams of Aran

Yankeemomto3, United States

Dreams of Aran

peckthetech, United Kingdom

Dreams of Aran

Keribeth, United Kingdom

Dreams of Aran

Louise, Norway

Dreams of Aran

Martina, Czech Republic

Dreams of Aran

Anastasia Tarkova, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (526)

country flag Christina Borr wrote:

Jag vill köpa ett nystan Drops Karisma färg 47 dyelot 43102. \r\nChristina Borr\r\nRepslagargatan 18\r\n118 46 Stockholm\r\nVänligen\r\nChristina Borr

26.01.2024 - 14:23

DROPS Design answered:

Hej Christina, prøv at spørg i gruppen DROPS Workshop på Facebook, her er der god chance for at få fat i et specifikt farvebad :)

02.02.2024 - 12:28

country flag Kristine wrote:

Jeg er nået til min omgang med de første udtagninger efter 9 cm. Men hvordan skal de udtagninger laves? Skal de laves så det passe til M.2 mønsteret, så hvis jeg er på omgang 1 i mønsteret (r,vr,r,vr), så strikkes den første udtagning som en retudtagning og den næste som en vrang udtagning? Og gøres det i samme lænke? For det efterlader jo et hul… kan ikke helt lure den

23.01.2024 - 15:41

DROPS Design answered:

Hej Kristine, ja du kan tage ud ved at lave et omslag på hver side af masken med mærketråden i, den nye maske strikker du ind i mønsteret på næste omgang :)

02.02.2024 - 13:46

country flag Sue Warburton- Pitt wrote:

My son is huge but loves this pattern. How could I size it for a 48” , 121cm chest? Thank you, sue

29.12.2023 - 03:13

DROPS Design answered:

Dear Sue, measure a similar garment he has and likes the shape and compare the measurements to the one in the chart, this should help you to find the matching size. Read more here. Happy knitting!

02.01.2024 - 10:16

country flag Anu wrote:

Hello further to my previous question -do we do moss stich m2 pattern on 4 stitches in the beginning and then work in the increases? Thanks

08.12.2023 - 12:38

DROPS Design answered:

Dear Anu, the increases at the 9cm mark are worked 1 stitch before and after the marker. These stitches will later on be worked in M.2/ double moss stitch. Happy knitting!

11.12.2023 - 00:04

country flag Anu wrote:

Hello, Iam stuck at the very beginning.Knitting size small. The total number of stiches after the rib increases is 114 for front and back (total228) . But the cable pattern needs 124 sts ( m2 on 9, then pattern on next 44 , then next 18, then 44 and then on 9 stiches). The stich count starts increasing only after 9 cm. how do I proceed? Thank you.

08.12.2023 - 12:29

DROPS Design answered:

Dear Anu, for size S you should be working the 2nd size (the first size is for children). You cast on 230 sts and increase 10 sts (=240) so you will have 120 sts for the front piece and 120 sts for the back piece. For size S you need to work the pattern as follows: M.2 on the first 12 sts, M.3 (=8), M.4 (=10), M.3 (=8), M.1 on the next 44 sts, M.3 (=8), M.4 (=10), M.3 (=8), M.2 on the next 24 sts, M.3 (=8), M.4 (=10), M.3 (=8), M.1 on the next 44 sts, M.3 (=8), M.4 (=10), M.3 (=8), M.2 on the last 12 sts. In total, that adds up to 240 sts. The increases start when the piece measures 9cm. Happy knitting!

11.12.2023 - 00:03

country flag Eva Och Ingemar Berntsson wrote:

Hejsan! skall börja med mönstret i st. XXL efter de 12 + 52 maskorna skall M.3, M.4, M.3, M.4, M.3, M.2 över de följande 16-24-34 m göras men detta är mer än 24 maskor. Hur skall jag tyda mönstret här ?

07.12.2023 - 10:24

DROPS Design answered:

Hej Eva, I størrelse XXL strikker du således: M.2 over de første 12 m, M.3=8m, M.4=10m, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.1 over 52m, M.3=8, M.4=19, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.2 over 24m, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.1 over 52m, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.4=10, M.3=8, M.2 over 12 m. = 328 masker

08.12.2023 - 11:05

country flag Boota Singh Mann wrote:

Jeg har strikket denne genseren. det er en kjempe fin oppskrift og godt forklart. jeg vil sende et bildet til dere. kan jeg får lov til det. mvh. boota mann

06.11.2023 - 20:36

DROPS Design answered:

Hej Boota, ja gerne, klik her og send os dit billede: #dropsfan galleri

09.11.2023 - 15:21

country flag Jatinder wrote:

Not sure what a spammer is I am afraid. I have asked a few questions because I needed to and my last question remains unanswered ie the end bit of it. I am desperately try to finish the jump er hence the questions.

19.10.2023 - 17:17

country flag Jatinder wrote:

Yes I get that. Does the 14 st K2 tog include the 3sts x2 that you mention at the end of that? You haven’t really answered the later part of my question.

19.10.2023 - 16:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jatinder, you will now cast off for the right sleeve at the beg of each row from right side: 24 sts 1 time, then finish the row as before, turn, work next row, turn, cast off the first 3 sts, finish the row as before, turn and work next row; work the last 2 rows one more time = you have cast off 24 sts 1 time and 3 sts 2 times (= 30 sts in total, so that 48 - 30 =18 sts remain). Work 2 rows without casting off, then cast off 1 st at the beg of next row = 17 sts remain. Hope this helps further. Happy knitting!

20.10.2023 - 07:57

country flag Jatinder wrote:

Luckily I am now approaching the end and will not have to trouble you again. Could you please clarify the last bit of the sleeve pattern for me. It’s after when the piece measures 60 and the you knit another 13cm for the 3rd size. It’s the cast off I am having a problem with. You cast of 24 , which 14 do you k2tog, does that not include the 3st 2times? Because if this is not the case then you should have 24 sets not 17?

19.10.2023 - 15:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jatinder, you will cast off the first 24 sts seen from RS (on right sleeve), but at the same time, you will work K2 tog a total of 14 times (to avoid these 24 sts being wider as necessary). In this video we show how to decrease and cast off at the same time, this should help you. Happy knitting!

19.10.2023 - 16:03