DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Miss Enid

Prjónað stutt vesti úr DROPS Alaska með hekluðum þríhyrningum í hliðum. Stærð XS-XXL

DROPS 117-3
DROPS Design: Mynstur nr SA-058
--------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
300-300-350-400-450-500 gr litur nr 55, beige

DROPS PRJÓNAR og HRINGPRÓNAR (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
DROPS PERLUTALA nr 522: 3 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4 – mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu og sýnir eina mynstureiningu af mynstri.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA (hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru þríhyrningarnir heklaðir og síðan er fram- og bakstykki prjónað áður en stykkið er saumað saman.

HEKLAÐUR ÞRÍHYRNINGUR:
Heklið 6 ll með Alaska með heklunál nr 4,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu l.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st í hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 12 st).
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), * 5 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 5 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf (= 6 ll-bogar í umf).
UMFERÐ 3: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 fl, 1 ll, 1 hst, 1 ll, 1 st, 1 ll, 2 tbst, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 hst, 1 ll og 1 fl. Endið með 1 kl í 1. fl í byrjun umf (= 6 blöð).
UMFERÐ 4: Heklið 5 ll (= 1 þbst = 1 horn), 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði (á milli 2 tbst), 5 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 7 ll, 1 þbst á milli 2 fl á milli 2 næstu blaða, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 8 ll, 1 fl efst á næsta blaði, 7 ll, 1 þbst á milli 2 fl á milli 2 næstu blaða *, endurtakið frá *-* einu sinni enn meðfram síðustu hliðinni en endið með 1 kl í 5. ll í byrjun umf (í staðinn fyrir 1 þbst á milli 2 blaða) = 9 ll-bogar í kringum blómið með 1 þbst í hverju horni. Önnur hliðin (= við neðri brún) er aðeins styttri en hinar tvær.
UMFERÐ 5: Í horni með þbst er heklað þannig: Heklið 3 ll (= 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st. Meðfram fyrstu hliðinni er heklað þannig: Um fyrsta ll-bogann er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st), um næsta ll-boga er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll og 1 st (= alls 2 st), umf síðasta ll-boga er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st), * í þbst í horni er heklað: Heklið 1 ll, 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st, heklið nú um alla 3 ll-bogana þannig: Heklið 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st (= alls 3 st) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar meðfram síðustu hliðinni, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 3 ll, 1 st í fyrsta ll-boga, í tbst í hverju horni er heklað þannig: Heklið 1 st, 2 ll, 1 tbst, 2 ll og 1 st, heklið nú 1 st í hvern st og 1 st í hvern ll-boga frá fyrri umf. Endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Meðfram styttri hliðinni eru 23 st og meðfram hinum tveimur eru 25 st (tbst í hornum eru ekki taldir með). Klippið frá.
Þríhyrningurinn mælist ca 15 cm meðfram stystu hliðinni og 18 cm langur meðfram hinum tveimur hliðunum.
Heklið einn þríhyrning til viðbótar á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 17-20-24-27-31-36 l með Alaska á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram (frá réttu) þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l með garðaprjóni, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 3 næstu l (þ.e.a.s. 3 l verða 6 l), 2 l garðaprjón, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni = 20-23-27-30-34-39 l. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, M.1 (= 8 l), sléttprjón þar til 4 kantlykkjur að framan eru eftir, þessar l eru prjónaðar með garðaprjóni til loka. Haldið svona áfram (í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l í M.1 – þessi l er prjónið inn í sléttprjóni). Þegar aukið hefur verið út allt 19 l í M.1 er stykkið lagt til hliðar (endið á 1 umf frá réttu). Nú eru 39-42-46-49-53-58 l á prjóni og stykkið mælist ca 18 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og það vinstra, nema spegilmynd, þ.e.a.s. að í umf 1 á eftir garðaprjóni er prjónað þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón, 2 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 6-9-12-14-17-21 l sléttprjón, M.2 (= 8 l) og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Haldið svona áfram, endið eftir álíka margar umf eins og á vinstra framstykki.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-33-40-47-55-64 l með Alaska á prjóna nr 4,5. Prjónið 2 umf garðaprjón. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l (þ.e.a.s. 3 l verða að 6 l), 2 l garðaprjón, 12-19-24-29-35-42 l sléttprjón, 2 l garðaprjón, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón = 32-39-46-53-61-70 l. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón, M.1 (= 8 l), 12-19-24-29-35-42 l sléttprjón, M.2 (= 8 l) og 2-2-3-4-5-6 l garðaprjón. Haldið svona áfram (í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l í M.1 og M.2, þær eru prjónaðar inn í sléttprjón). Þegar aukið hefur verið út alls 19 l í hvorri hlið, geymið stykkið (endið á 1 umf frá réttu). Nú eru 70-77-84-91-99-108 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Setjið inn öll þrjú stykkin á sama hringprjón nr 4,5 þannig: Hægra framstykki (= 39-42-46-49-53-58 l), bakstykki (= 70-77-84-91-99-108 l) og vinstra framstykki (= 39-42-46-49-53-58 l) = alls 148-161-176-189-205-224 l. Prjónið 1 umf frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón.
LESIÐ ALLAN KAFLANN Á FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
MYNSTUR: Haldið áfram þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 23-26-29-31-34-38 l sléttprjón, M.3 (passið uppá að það séu álíka margar umf á milli hverra umf með köðlum), 4-4-6-8-10-12 l garðaprjón, (setjið prjónamerki fyrir miðju við þessar l = hlið), M.4, 46-53-58-63-69-76 l sléttprjón, M.3, 4-4-6-8-10-12 l garðaprjón (setjið prjónamerki fyrir miðju við þessar l = hlið), M.4, 23-26-29-31-34-38 l sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan með garðaprjóni.
HÁLSMÁL: JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir hálsmál – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8-8-9-9-9-10 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 4-4-4-4-5-5 sinnum.
HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti eru lykkjur prjónaðar yfir alla kaðlana saman tvær og tvær (þ.e.a.s. fækkað er um 3 l yfir hvern kaðal). Í næstu umf er fellt af 4-4-6-8-10-12 l á milli kaðla í hliðum fyrir handveg (þ.e.a.s. 2-2-3-4-5-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram í garðaprjóni yfir síðustu 5 l við handveg og 2 næstu l í gataröð eins og áður. Haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli, jafnframt sem fækkað er fyrir handveg í lokin á hlið. Fellið af 1 l í annarri hverri umf alls 3 sinnum. Haldið áfram með 4 síðustu l við handveg eins og áður með garðaprjón og gataröð. Þegar úrtöku er lokið fyrir handveg og hálsmáli eru 19-22-24-26-28-31 l eftir á öxl. Prjónið nú eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
= 60-67-72-77-83-90 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 54-61-66-71-77-84 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 l með garðaprjóni + gataröð í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 24-25-26-27-29-30 miðju l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Fellið nú af miðju 16-17-18-19-21-22 l fyrir hálsmáli = 19-22-24-26-28-31 l eftir á hvorri öxl. Prjónið nú yfir öxl eins og áður með 4 l garðaprjón við hálsmál þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið einn heklaðan þríhyrning í opið á hvorri hlið – passið uppá að styttri hliðin snúi niður. Saumið kant í kant og passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið axlarsauma.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með Alaska með heklunál nr 4,5 þannig: Byrjið aftan við hnakka, haldið áfram meðfram vinstra framstykki, meðfram neðri brún, upp meðfram hægri framstykki og til baka aftur aftan við hnakka. Heklið þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*.
Heklið alveg í kringum handveg.
Saumið tölurnar í vinstri kant að framan með ca 6 cm millibili – notið picot í hægri kanti að framan sem hnappagat.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni upp á prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (138)

country flag Elise wrote:

Bonjour. Vous annoncez après les trois premiers rangs pour les devants (sur l'endroit) : 2point mousse, 2 m end dans chacune des 3 m suivantes DEUX MAILLES MOUSSE, puis jersey puis 4 m de bordure devant au point mousse. Rang envers, ok. Mais le rang d'après, on oublie les deux mousses au milieu du travail, on parle de jersey. Pourquoi ne pas dire simplement "jersey" pour ces mailles là dès le début ?! Merci

25.01.2024 - 18:45

DROPS Design answered:

Bonjour Elise, effectivement, après ces 2 rangs, les 2 mailles au point mousse au milieu du rang sont les 2 dernières mailles de M.1, on va tricoter (devant gauche, vu sur l'endroit): 2 m point mousse, puis les 8 mailles du diagramme M.1 (= les 3 mailles augmentées à 6 mailles au 1er rang + les 2 m point mousse), et on continue en jersey en terminant par les 4 m de bordure devant au point mousse. Bon tricot!

26.01.2024 - 07:42

country flag Paula wrote:

Moet ik iedere tour herhalen aan de achterkant?\r\nDat houdt dan in 10 NLD voor ik weer kabel!\r\n\r\nPATROON:\r\nZie telpatroon M.1 tot en met M.4 – de telpatronen bevatten 1 patroonherhaling en geven de goede kant van het werk weer.

28.11.2021 - 20:19

country flag Paula wrote:

PATROON: Zie telpatroon M.1 tot en met M.4 – de telpatronen bevatten 1 patroonherhaling en geven de goede kant van het werk weer.

28.11.2021 - 20:16

DROPS Design answered:

Dag Paula,

Kun je aangeven wat je vraag precies is?

01.12.2021 - 12:04

country flag Alice wrote:

Kan man få opskriften på hollandsk?

07.02.2021 - 13:33

DROPS Design answered:

Hei Alice. Ja, du velger språk i nedtrekksmenyen under bildet. mvh DROPS design

12.02.2021 - 14:43

country flag Bärbel wrote:

Hallo liebes Drops-Team, ich habe eben die Anleitung ausgedruckt. Leider ist das Diagramm und die Zeichnung mit den Maßen nicht dabei, auch nicht in der Druckvorschau. Da werden auch nur 2 Seiten angezeigt. Wie könnt Ihr mir helfen? LG, Bärbel

10.03.2018 - 10:48

DROPS Design answered:

Liebe Bärbel, passen Sie mal auf, daß Sie alle Seiten ausdrücken damit die ganze Anleitung ausgedrückt wird. Viel Spaß beim stricken!

12.03.2018 - 08:32

country flag Birgit wrote:

Hallo, Ich benötige zur besseren Übersicht eine Häkelschrift für die Dreiecke! Nur geschrieben ist es für mich viel zu unübersichtlich und unverständlich! Vielen Dank im Voraus! LG Birgit

06.12.2017 - 18:40

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, leider gibt es zu der Dreiecke nur schriftliche Anleitung, die große Mehrheit unserer Kunden lesen lieber schriftlichen Erklärungen als Häkelschrift. Viel Spaß beim stricken!

07.12.2017 - 08:56

country flag Karen wrote:

Ugh, I have tried everything. I am very experienced with computers. If you want screen shots of the problem, I can certainly send plenty of them. This is so frustrating, you have nice patterns but if I can't use them, I just wanted to know how you pre-defined your page layout, what pre-formatted code did you set for paper, margins, defaults. Do you have a tech support who can send me email? Thank you.

02.10.2016 - 18:11

DROPS Design answered:

Dear Karen, for any further personnal assistance, please contact your DROPS store, they will be able to help you. Happy knitting!

03.10.2016 - 10:45

country flag Karen wrote:

No I am using safari on mac, have also tried with i pad and i phone and also tried saving as a pdf with preview application. Still can't print without cutting off graphics on US letter size paper.

29.09.2016 - 14:10

DROPS Design answered:

Dear Karen, just made a test on Iphone and it worked perfectly, maybe check the settings to get the diagrams on the same page without being cut. Happy knitting!

30.09.2016 - 11:57

country flag Karen wrote:

I can't print your patterns without them cutting off lines and parts of the diagrams. Also, for some strange reason, it's imbedding "(x-apple-data-detectors://20)" in multiple locations throughout the instructions. What is going on? I format for US Letter size, what is your page format? Thank You.

27.09.2016 - 19:15

DROPS Design answered:

Dear Karen, if you are printing from chrome, you have to try printing from another browser, because there is an error in the last update of chrome that we cannot fix, chrome has to. Happy knitting!

28.09.2016 - 08:39

Lana MacDonald wrote:

The gauge called for 4.5 mm needles on the pattern, but 5 mm on the yarn itself. I wondered why my gauge was tight as I usually knit true to pattern.

24.11.2015 - 14:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs MacDonald, remember you have to get the tension, ie 17 sts x 22 rows in stocking st = 10 x 10 cm - adjust the needle size, you may require smaller or larger needle. Happy knitting!

24.11.2015 - 15:18