Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Little Gent |
|||||||
|
|
||||||
Sett með prjónuðu vesti / slipover og sokkum fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-9 |
|||||||
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu! GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): * 1 umf slétt og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA (á við um handveg á vesti): Fækkið lykkjum fyrir handveg frá réttu innan við 3 l með garðaprjóni með því að prjóna saman 2 l br. ---------------------------------------------------------- VESTI FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-56-62 (70-76) l (meðtalin er ein kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l br, * prjónið 2 l sl í hverja og eina af næstu 2 l, 4 l br *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, prjónið 2 l sl í hverja og eina af næstu 2 l, 11-14-17 (21-24) l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 60-66-72 (80-86) l. Prjónið áfram frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l sl, * M.1, 4 l sl *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, M.1, 11-14-17 (21-24) l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l br, * M.1, 4 l br *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, M.1, 11-14-17 (21-24) l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna mynstur svona. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm prjónið 4 umf í garðaprjóni yfir 6 l á hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) – JAFNFRAMT í síðustu umf með garðaprjóni eru felldar af 3 l í byrjun umf, prjónið út umf, fellið síðan af 3 l í byrjun umf á hinni hliðinni. Prjónið áfram með 3 l garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg á hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA: 1 l í annarri hverri umf 4-4-4 (5-5) sinnum = 46-52-58 (64-70) l. Þegar stykkið mælist 22-23-26 (28-31) cm setjið miðju 12-12-14 (14-14) l á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umf frá hálsi: 2 l 1 sinni og 1 l 3-4-4 (4-4) sinnum = 12-14-16 (19-22) l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm prjónið 4 l yfir kaðal saman tvær og tvær = 10-12-14 (17-20) l eftir á öxl. Setjið lykkjur fyrir axlir á þráð. HÁLSMÁL: Takið upp ca 30 til 40 l meðfram hálsmáli (meðtaldar 12-12-14 (14-14) l af þræði) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt frá röngu jafnframt eru lykkjum fækkað jafnt yfir að 26-28-30 (32-34) l. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan af. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og takið upp aðrar 2 l meðfram hálsmáli = 12-14-16 (19-22) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig: 1-1-1 (2-2) l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, 5-7-9 (10-13) l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, 2-2-2 (3-3) sl. Prjónið 1 umf slétt til baka og fellið síðan af. HÆGRI ÖXL:Takið upp 2 l meðfram hálsmáli og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 12-14-16 (19-22) l. Prjóni síðan eins og vinstri öxl. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-56-62 (70-76) l (meðtaldar eru kantlykkjur á hvorri hlið) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið áfram með sléttprjón með rönguna út. Fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm. Fellið af miðju 14-16-18 (18-18) l fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 l í byrjun á næstu umf frá hálsi = 10-12-14 (17-20) l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið lykkjur fyrir öxl á þráð. HÁLSMÁL: Takið upp ca 18 til 26 l meðfram hálsmáli á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 3 umf slétt, fellið af. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og taki að auki upp 2 l meðfram hálsmáli = 12-14-16 (19-22) l. Prjónið 3 umf garðaprjón, fellið af. HÆGRI ÖXL: Prjónið eins og vinstri öxl. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju og saumið tölur á axlir. ---------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-52 (56-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 l sl/ 1 l br – umf byrjar við miðju að aftan. Þegar stykkið mælist 4-5-5 (5-6) cm prjónið 3 l (= 1 l sl, 1 l br, 1 l sl) slétt saman við miðju að aftan. Prjónið 4 umf og síðan eru prjónaðar 3 l (= 1 l br, 1 l sl, 1 l br) br saman við miðju að aftan = 44-48-48 (52-52) l. Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6 (6-6) l jafnt yfir = 38-42-42 (46-46) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið síðan fyrstu 14-15-15 (16-16) l á þráð. Haldið eftir næstu 10-12-12 (14-14) l á prjóni (= efra stykki) og setjið næstu 14-15-15 (16-16) á þráð. Prjónið fram og til baka yfir efra stykki þannig: 2-3-3 (4-4) l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, 1 l sléttprjón með rönguna út, M.1 (byrjið í 4. umf í mynstri), 1 l sléttprjón með rönguna út og 2-3-3 (4-4) l garðaprjón. Þegar efra stykkið mælist 3½-4-5 (6½-7½) cm eru teknar upp 8-9-11 (14-16) l hvoru megin á efra stykki og l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 54-60-64 (74-78) l. Prjónið nú garðaprjón hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið síðan 1 umf br. Fellið af allar l fyrir utan 10-12-12 (14-14) l við miðju að framan. Prjónið garðaprjón í 9-10-11 (13-15) cm yfir þessar l fyrir sóla. Fellið af og saumið sólann saman við sokkinn – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk alveg eins. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6934 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (86)
Marie Violaine Monier wrote:
Bonjour, lorsqu'on commence les diminutions des emmanchures il est indiqué de diminuer 3 mailles après le point mousse à 3 mailles du bord. Qu'en est-il de la maille lisière ? est-ce qu'elle est toujours là et non comptabilisée dans les explications ?
17.04.2024 - 09:24DROPS Design answered:
Bonjour Mme Monier, on a rabattu les mailles des emmanchures et on continue avec 3 mailles point mousse de chaque côté, il n'y a pas de maille lisière supplémentaire, autrement dit, diminuez après les 3 premières mailles du rang (tricotées au point mousse) et avant les 3 dernières mailles du rang (tricotées également au point mousse) comme indiqué sous DIMINUTIONS. Bon tricot!
17.04.2024 - 11:15Sylwia wrote:
Wydaje mi się, że w opisie wykończenia dekoltu tyłu kamizelki jest błąd. Podane jest by nabrać oczka, przerobić 3 rzędy i zakończyć. Żeby ładnie nabrać oczka trzeba by to zrobić z prawej strony robótki, potem więc przerobiłbym 3 rzędy i zakańczałabym z prawej strony robótki. Ale w takim wypadku wzór dekoltu inaczej wychodzi niż z przodu. Tam przerabia się tylko 2 rzędy i zakańcza - z lewej strony robótki.
05.11.2023 - 19:59Anna wrote:
Całkiem wygodnie mi się korzystało z tego wzoru, aż dotarłam do fragmentu: "przer. 4 rz. ściegiem francuskim ponad 6 o. z każdej strony". Zupełnie go nie rozumiem. Czy to oznacza, że przez następne 4 rzędy przerabiam 6 o. z każdej strony (łącznie 12 o. w rzędzie) ściegiem francuskim? A co oznacza "ponad"? Będę uprzejmie wdzięczna za podpowiedź!
24.09.2023 - 23:27DROPS Design answered:
Witaj Aniu, 6 pierwszych i ostatnich oczek w rzędzie przerabiasz na prawo w 4 kolejnych rzędach. Pozostałe oczka przerabiasz jak wcześniej. Pozdrawiamy!
25.09.2023 - 07:56Dorthe Steenholdt wrote:
Hvor er knaphullerne i denne opskrift?
21.05.2023 - 16:59DROPS Design answered:
Hei Dorthe De er beskrevet under VENSTRE SKULDER. Du strikker 2 rett sammen, 1 kast. Kastet strikkes rett på neste pinne = knappehull. mvh DROPS Design
22.05.2023 - 14:16Marica wrote:
Salve, è possibile avere la traduzione in italiano del modello? Grazie
04.05.2023 - 08:45DROPS Design answered:
Buonasera Marica, certo, potrà trovare la traduzione online la prossima settimana. Buon lavoro!
04.05.2023 - 23:40Andrea Telaar wrote:
Bin gerade mit dem Rückenteil angefangen, es rollt sich schon jetzt ganz stark nach innen ! Was tun?
03.03.2023 - 22:10DROPS Design answered:
Liebe Frau Telaar, die Weste können Sie danach mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!
06.03.2023 - 09:04Marianne wrote:
Str. 1-3 mdr. FORSTYKKE (og ryg): Jeg kan ikke se, hvordan man kan få 46 m tilbage ud af 50, når man først lukker 3 m af i hver side (50-6=44) og derefter tager en maske ind i hver side 4 gange (44-8=36!) ??? Mvh. Marianne, Danmark
30.09.2022 - 12:46Hanne Schuch wrote:
Hej. Skal der ikke tages ud til 66 masker på rygstykket, som på forstykket? Hilsen Hanne
28.06.2022 - 13:48DROPS Design answered:
Hej Hanne, du tager ud på forstykket for at få nok masker til snoningerne. Du strikker ikke snoninger på rygstykket, derfor behøver du ikke tage ud :)
29.06.2022 - 10:04Anita Bøjland wrote:
Jeg kan ikke få opskriften til at passe.. Jeg skal slå 50 masker op, men efter første mønstergang skal jeg have 60 masker!! Jeg kan ikke se noget om udtagning nogen steder?
31.01.2022 - 14:32DROPS Design answered:
Hei Anita. I dette avsnittet står det at du skal strikke 2 masker i 1 maske (har skrevet det med store bokstaver, slik at man lettere kan se). Næste p strikkes således (fra retsiden): 1 kantm i retstrik, strik 11 vrang, * STRIK 2 R I HVER AF DE NÆSTE 2 M, 4 vr *, gentag fra *-* 4 gange, STRIK 2 R I HVER AF DE NÆSTE 2 M, strik 11 vrang og 1 kantm i retstrik = 60 m. mvh DROPS Design
31.01.2022 - 15:08Karin wrote:
Bij afwerking staat “ Naai de zijnaden in de kant st en naai de knopen op de schouders” . Zitten de knopen er voor de sier of moeten ze open kunnen? Ik heb maar hele kleine gaten in de schouders door de omslag in het voorpand, niet groot genoeg voor een knoop. Of naai ik ze gewoon vast aan voor en achterpand?
14.11.2021 - 22:13DROPS Design answered:
Dag Karin,
Excuses voor het late antwoord. Als het goed is heb je bij de linker schouder op het voorpand knoopsgaten gemaakt. (2 st samen breien en 1 omslag.) De knopen naai je op de bies van het achterpand en je knoopt ze door de gaatjes op de linker bies van de schouder.
09.12.2021 - 13:50