DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Santa's BFF

Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Alpaca og DROPS Pudel eða DROPS Melody. Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti í stroffprjóni með hettu og hekluðum kanti. Stærð XS – M. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-521
DROPS Design: Mynstur z-385
Garnflokkur A + A eða C
--------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S – M
Öll peysan er prjónuð í stroffprjóni – hún sýnist vera lítil, en teygist verulega.

MÁL:
Yfirvídd: ca 28/32 – 40/44 – 48/52 cm
Lengd á bakstykki: ca 24 – 32 - 40 cm
Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

GARN:
DROPS Alpaca frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-150-200 g litur 3620, rauður
Og notið:
DROPS PUDDEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
50-50-50 g litur 01, natur
Eða notið:
DROPS Melody frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
50-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ XS:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HEKLUNÁL NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ S - M:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HEKLUNÁL NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
19 lykkjur á breidd og 25 umferðir á hæð með sléttprjóni með 2 þráðum DROPS Alpaca = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir op fyrir framfætur, bakstykki og magastykki er prjónað fram og til baka. Síðan er stykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring þar til lykkjur eru felldar af undir magastykki, afgangur af fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Prjónað er í kringum op fyrir framfætur í hring og hettan er prjónuð fram og til baka.
Í lokið er heklaður kantur í kringum op fyrir framfætur, fram- og bakstykki og hettu. Dúskur er gerður og settur í toppi á hettu.

HÁLSMÁL:
Fitjið upp 48-64-80 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjóna 4 með 2 þráðum DROPS Alpaca.
Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-6-8 cm. Prjónið 1 umferð brugðið (í þessa brugðnu umferð á að taka upp lykkjur fyrir hettu síðar).
Prjónið 1 umferð stroffprjón eins og áður, í næstu umferð er aukið út í annarri hverri einingu með 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 54-72-90 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Prjónið stroffprjón þar til stykkið mælist 6-10-14 cm, nú er aukið út í þeim einingum sem eftir eru frá 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 60-80-100 lykkjur.
Haldið áfram í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið).
Þegar stykkið mælist 8-12-16 cm skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Fellið af 2 lykkjur slétt, setjið næstu 13-18-23 lykkjur á þráð (= mitt undir magastykki), fellið af 2 lykkjur slétt, prjónið þær 43-58-73 lykkjur sem eftir eru eins og áður.

BAKSTYKKI:
= 43-58-73 lykkjur. Haldið áfram að prjóna stroffprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 5-8-10 cm frá skiptingu, setjið lykkjurnar síðan á þráð.

MAGASTYKKI:
Setjið 13-18-23 lykkjur frá magastykki til baka á prjóninn og prjónið stroffprjón í 5-8-10 cm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Síðan eru allar lykkjur settar til baka á prjóninn. Haldið áfram í stroffprjóni hringinn eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í hvorri hlið á milli magastykkis og bakstykkis = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 20-28-35 cm fellið af 9-10-13 lykkjur mitt undir magastykki.
Stykkið er prjónað til loka fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í hvorri hlið í byrjun umferðar þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2-5-7 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru 29-42-55 lykkjur.
Stykkið mælist ca 25-35-45 cm.

FRAMFÓTUR:
Prjónið upp 36-52-64 lykkjur með 1 þræði Alpaca með sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-5-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

HETTA:
Brettið kragann / hálsmálið inn í peysuna við brugðnu umferðina. Haldið peysunni þannig að brugðna umferðin snúi frá þér.
Takið upp lykkjur í þessari umferð með 1 þræði DROPS Alpaca á stuttan hringprjón 3 – ekki taka upp lykkjur í 6-10-14 lykkjur mitt undir magastykki, en í þær lykkjur sem eftir eru hringinn = 42-54-66 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið til baka -JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 70-90-110 lykkjur þannig: * Prjónið 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur í næstu 2 lykkjur *, endurtakið út umferðina.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í hvorri hlið þar til hettan mælist 12-16-20 cm.
Til að hettan verði sem fallegust er best að lykkja hettuna saman efst án þess að fella af, ef þetta er of flókið þá er hægt að fella af og sauma hettuna saman með lykkjuspori.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með DROPS Puddel eða DROPS Melody og heklunál 6 hringinn á hettunni, neðst í kringum op fyrir framfætur og neðst í kringum kant á fram- og bakstykki – passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið þannig: 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 cm og heklið 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar.

DÚSKUR:
Gerið 1 dúsk ca 5 cm að þvermáli með DROPS Puddel eða DROPS Melody. Festið dúskinn í toppinn á hettunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
Mynstrið hefur verið endurskoðað og umorðað.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Santa's BFF

Sabine, Germany

Santa's BFF

Nathalie, Canada

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-521

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Teri wrote:

I found the answer to my question in the tutorial videos. Sorry for the trouble. Thank you.

13.06.2022 - 02:01

country flag Teri wrote:

Hello-when it says to increase every other P2 to P3, exactly what does that involve, purling a knit stitch (part of K2 in previous round), or yarn over to create a new stitch? Thank you

13.06.2022 - 01:44

DROPS Design answered:

Dear Terri, you should increase the number of purled stitches in every other Purl-section, you can for example increase with a yarn over - see video. Happy knitting!

13.06.2022 - 11:31

country flag Annick Desnoyers wrote:

Bonjour, Après le montage des 64 mailles, on tricote un rang à l'envres. J'ai tout de suite monté les 90 mailles pour la capuche. Est-ce ainsi que l'on doit procéder ? Merci.

27.04.2019 - 18:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desnoyers, on doit monter 64 m dans la 2ème taille et 80 m dans la 3ème taille, puis tricoter 6-8 cm de côtes 2/2. On tricote ensuite 1 tour envers, puis au tour suivant, on tricote en côtes comme avant, et, en même temps, on augmente 1 maille env dans 1 section env sur 2 (= 8-10 augmentations) = on a maintenant 72/90 m. On tricote ensuite les mailles comme elles se présentent puis on augmente 1 m env dans les sections 2 m env restantes (= 8-10 augmentations) = 80-100 m. On continue alors en côtes 2 m end/3 m env. Bon tricot!

29.04.2019 - 09:35

country flag Mariarita wrote:

Spettabile Staff,buongiorno.Volevo augurare a tutti Voi serene festività.Un gaio 2019,all'insegna della creatività ed in compagnia del Vs. colorato e fantasioso mondo del crochet e del knitting.Grazie.

21.12.2018 - 11:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Mariarita. Ringraziamo e ricambiamo gli auguri per queste Feste!!

21.12.2018 - 13:01

country flag Susan wrote:

I am stuck at "divide for legs: Bind off 2 K sts slip next 18 bind off 2 K sts. If you bind off 2 K sts you have your working yarn on the 1st purl stitch which is counted as 1st st of 18 in order to bind off 2 K sts after 18. However, how do you bind off two K sts after the 18 that were slipped onto stitch holder when working yarn is at the beginning of the 18 slipped sts?

14.12.2017 - 09:20

DROPS Design answered:

Dear Susan, bind off the first 2 sts on round, work the next 17 sts (+ 1 st on needle after binding off 2nd st) and slip them on a st holder, bind off next 2 sts and work to end of row = 58 sts remain for back piece. Happy knitting!

14.12.2017 - 10:35

country flag Susan wrote:

Can this pattern be made with one strand of worsted weight instead of two strands of yarn?

07.12.2017 - 23:37

DROPS Design answered:

Dear Susan, You can use here 1 strand yarn group C instead of 2 strands yarn group A (as Alpaca). Read more here about alternatives. Happy knitting!

08.12.2017 - 08:31

country flag Lilou wrote:

Je trouve déplorable la nouvelle présentation de votre site. Je suis passée par google pour retrouver un modèle avec son numéro!!. Vous donnez différentes possibilités en allant sur le ?. mais dans quoi chercher??... C'était beaucoup plus simple avant!!

24.11.2016 - 10:13

DROPS Design answered:

Bonjour Lilou, nous sommes désolées que vous ayez du mal à vous faire à la nouvelle présentation, vous pouvez désormais accéder à n'importe quel modèle à partir de notre site en indiquant son numéro dans la case "Cherchez des modèles!" - plus d'infos ici, et vous avez désormais à votre disposition des filtres bien utiles pour cibler votre recherche. Bon tricot!

24.11.2016 - 11:51

country flag Julie wrote:

Hello, can you tell me if the hood is knitted on 3mm or 4mm needles with one or two strands? The pattern is not really clear. Thank you for your help.

11.11.2016 - 16:36

DROPS Design answered:

Dear Julie, hood is worked with 2 strands Alpaca and needle size 4 mm (as for body) - needle size 3 mm are only used for the edge around legs. Happy knitting!

14.11.2016 - 08:50

country flag Caroline wrote:

Hej! Undrar lite med minskningen under magen vid 20-28-35 cm. Ska det minskas 10 maskor och mitt i detta så delas arbetet så man avmaskar på varje varv sen eller ska det avmaskas 10 maskor mitt under magen? Mvh caroline

29.08.2014 - 20:27

DROPS Design answered:

Om du stickar S avm 10 m under magen när arb mäter 28 cm. Sedan avm det i varje sida enligt beskrivningen.

03.09.2014 - 11:28

country flag Alex wrote:

Merci beaucoup, ça paraît logique maintenant que vous le dites :) Merci également pour les diverses explications, ce site est une vraie mine d'informations.

10.03.2014 - 21:22