DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 18-5
DROPS design: Mynstur nr fa-004-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Höfuðmál: Ca 42-44-46 (48-50) cm.
Efni:
DROPS Fabel frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 912, súkkulaði

HÁLSSKJÓL:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4 ára)
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) g nr 618, beige

HÚFA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni með Fabel verði 10 x 10 cm.

HÁLSSKJÓL:
DROPS PRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni með Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA nr 513: 3 st.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1437.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna.
Fitjið upp 112-120-128 (136-144) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið í 8-8-10 (10-12) cm.
Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 16-18-20 (22-24) lykkjur jafnt yfir = 96-102-108 (114-120) lykkjur. Þegar stykkið mælist 13-13½-15 (15½-17) cm setjið 6 prjónamerki með 16-17-18 (19-20) lykkja millibili. Prjónið síðan 2 lykkjur slétt saman á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umferð 5-5-6 (6-7) sinnum og síðan í hverri umferð 9-10-10 (11-11) sinnum = 12 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 2 cm yfir þessar = toppurinn á húfu og prjónið síðan saman allar lykkjur 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Öll húfan (meðtalinn toppur) mælist ca 20-21-23 (24-26) cm.

EYRNALEPPUR 1:
Brjótið uppá stroffið tvöfalt að réttu.
Haldið húfunni með toppinn að þér og takið upp lykkjur með sokkaprjóni 2,5 með Fabel: 22-24-26 (28-30) lykkjur neðst meðfram annarri hliðinni – takið upp eina lykkju í hverja lykkju. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu lykkjurnar slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 5-5-6 (6-7) sinnum og síðan í annarri hverri umferð 4-5-5 (6-6) sinnum = 4 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið þessar lykkjur saman 2 og 2 og steypið þessum tveimur lykkjum sem eftir eru yfir hvora aðra. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna sem eftir er.
Eyrnaleppurinn mælist ca 5-6-6½ (7-8) cm.

EYRNALEPPUR 2:
Byrjið með að prjóna upp lykkjur frá 42-42-46 (46-50) lykkjum talið frá fyrri eyrnalepp (þessar 42-42-46 (46-50) lykkjur = eru mitt framan á húfu). Prjónið upp lykkjur með sokkaprjón 2,5 með Fabel. Eina lykkju í hverja af næstu 22-24-26 (28-30) lykkjum. (Nú eru 26-30-30 (34-34) lykkjur á milli eyrnaleppa að aftan). Prjónið þennan eyrnalepp alveg eins og fyrri.

SNÚRA
Klippið 3 þræði Fabel 60 cm og tvinnið þá saman vel. Þræðið snúruna neðst í gegnum hornið á öðrum eyrnaleppnum og leggið síðan þráðinn saman þannig að hann tvinnist aftur saman. Gerið hnút á endann á snúrunni. Endurtakið á hinum eyrnaleppnum.

--------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Stykkið er prjónað í tveimur hlutum, neðan frá og upp.

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 32-36-40 (44-48) lykkjur á prjón nr 3 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð í sléttprjónuðu umferðinni er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 4 lykkjur garðaprjón – aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í 1 lykkju. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 6-6-6 (8-8) sinnum = 44-48-52 (60-64) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 15-17-19 (20-22) cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Setjið síðan miðju 8-10-12 (14-16) lykkjur á þráð. Hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Setjið inn lykkjur frá hægri hlið (séð frá réttu) á þráð.

VINSTRI HLIÐ:
= 18-19-20 (23-24) lykkjur. Fækkið lykkjum í framhaldinu í byrjun á hverri umferð sem byrjar við hálsmál: 2 lykkjur 2 sinum og 1 lykkja 2 sinnum = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 20-22-24 (26-28) cm.

HÆGRI HLIÐ:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 18-19-20 (23-24) lykkjur. Prjónið eins og vinstri hlið þar til stykkið mælist 19-21-23 (25-27) cm = 12-13-14 (17-18) lykkjur á prjóni. Prjónið síðan 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4-5-6 (8-9) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2-2-2 (3-3) lykkjur slétt. Prjónið síðan 5 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki en fellið ekki af fyrir hálsmáli heldur prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22 (24-26) cm. Fellið af miðju 18-20-22 (24-26) lykkjurnar fyrir hálsmáli. Hvor hlið er nú prjónuð fyrir sig til loka. Setjið lykkjur á hægri hlið (séð frá réttu) á þráð.

VINSTRI HLIÐ:
= 13-14-15 (18-19) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 lykkjur garðaprjón í hlið. JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 19-21-23 (25-27) cm prjónið 12 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið nú af.

HÆGRI HLIÐ:
= 13-14-15 (18-19) lykkjur. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja við háls = 12-13-14 (17-18) lykkjur eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 20-22-24 (26-28) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri öxl.

KANTUR Í HÁLSI:
Takið upp ca 82 til 102 lykkjur á prjón 3 með Alpaca í kringum háls (deilanlegt með 4 + 2, meðtaldar lykkjur frá framstykki af þræði). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: 6 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram – JAFNFRAMT þegar kantur í hálsi mælist 2-3-3 (4-4) cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin á öxl þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, haldið síðan áfram að prjóna stroffprjón með 6 síðustu lykkjurnar í garðaprjóni. Fellið af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þegar kantur í hálsi mælist 3-4-4 (5-5) cm. Saumið tölur á öxl.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Eva Strand wrote:

Hej. Stickar kragen den minsta storleken och undrar om bakstycket. Stickar bakstycket och har maskat av 18 maskor. Jag har då sju maskor kvar på varje sida. Mönstret säger jag ska ha 13 maskor på varje sida. Har lagt upp 32 maskor och maskat av 18 i mitten det blir 7. Det stämmer ju inte

23.12.2023 - 21:45

DROPS Design answered:

Hej Eva, du lägger upp 32 m, ökar 6 m i varje sida =44 m (som på framstycket). Maska av 18m = 26 kvar/2=13 i vare sida :)

02.01.2024 - 09:46

country flag Sylvie Boucher wrote:

J'ai fais le plastron 1/3mois, j'ai cousu l'épaule droite, je dois monter 82 mailles, pour l'encolure avec 6 m point mousse *2m end ,2m env, * . ma question est: est ce que je débute le montage 6 point mousse et fini aussi par 6 points mousse.

10.10.2023 - 10:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boucher, vous relevez 82 à 102 mailles tout autour de l'encolure et vous tricotez en côtes 2 /2 en commençant et en terminant par 6 m point mousse ainsi: 6 m point mousse, tricotez en côtes 2/2 jusqu'à ce qu'il reste 8 mailles, terminez par 2 m end, 6 m point mousse. Bon tricot!

10.10.2023 - 16:14

country flag Maria wrote:

Hei! Katsotaanko kaulurin takakappaleen vasen ja oikea puoli etu- vai takapuolelta?

24.09.2023 - 15:36

DROPS Design answered:

Hei, takakappaleen vasen ja oikea puoli katsotaan etupuolelta.

18.10.2023 - 17:00

country flag Jasmine wrote:

Hei, Jeg skjønner ikke helt om halskanten skal strikkes rundt eller frem og tilbake. Og skal man plukke opp masker også fra de 6 rillene på hver side av den ene skulderen eller skal de ligge fritt?

20.12.2022 - 16:17

DROPS Design answered:

Hej Jasmine, halskanten strikkes frem og tilbage, du strikker knaphul så du kan lukke ved at knappe sammen på skulderen og videre op over halskanten :)

21.12.2022 - 14:39

country flag Annett Erixon wrote:

Har en fråga om mössan! När man stickar örnolapparna står det att man skall plocka upp 44 maskor framtill mellan öronlapparna,skall dom maskorna stickas eller vad?

08.12.2022 - 11:52

DROPS Design answered:

Hei Annett Nå du skal strikke 2. øreklaff skal du telle (ikke strikkes) 42-42-46 (46-50) masker fra den første klaffen. Disse 42-42-46 (46-50) maskene er foran på luen. Deretter strikkes det opp 1 maske i hver av de neste 22-24-26 (28-30) m. Det skal nå være 26-30-30 (34-34) masker mellom øreklaffene bak. Usikker på hvor du har maskeantallet 44 fra. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 11:13

country flag Elisabet wrote:

Hej, stickar kragen och har problem med att det rullar upp sig nerifrån. Har bytt garn till Drops baby Merino. Finns det ett sätt att släta till? Tack på förhand!

02.01.2022 - 16:00

DROPS Design answered:

Hej Elisabet. Du kan testa att stryka lite lätt på den (ha en fuktig handduk mellan). Mvh DROPS Design

03.01.2022 - 10:34

country flag Macarena wrote:

Förstår inte beskrivningen gällande höger sida av framstycket "Nästa v stickas så här (från rätsidan): 2 rm, 2 rm tills, 1 omslag, 4-5-6 (8-9) rm, 2 rm tills, 1 omslag, 2-2-2 (3-3) rm.". Betyder det 4 rm och sen ett omslag, och sen 6 rm och ett omslag? Ang. halsstycket så förstår jag inte " avm det för 1 knapphål över de andra på axeln så här (från rätsidan): 2 rm, 2 rm tills, 1 omslag, 2 rm" betyder det 4 rm och sen 1 omslag eller ska jag avmaska 2 rm?

13.02.2021 - 05:54

DROPS Design answered:

Hej Macarena, du stickar 2 rätmaskor sedan stickar du ihop 2 rätmaskor, 1 omslag. Dvs 2 rm tills = sticka ihop 2 rm :)

23.02.2021 - 14:57

country flag Bibi wrote:

Lamentablemente no veo con claridad cómo terminar el lado derecho e izquierdo del calentador de cuello. ¿Cómo y dónde coso el lado derecho, puesto que tiene los ojales? Perdona mi falta de experiencia!

24.09.2020 - 19:59

DROPS Design answered:

Hola Bibi. Cuando llegas al nivel del escote, debes terminar cada parte por separado. El lado derecho del delantero + el lado izquierdo de la espalda forman el hombro izquierdo donde hay una abertura para los botones. El lado izquierdo del delantero + el lado derecho del la espalda forman el hombro derecho, el que hay que coser antes de hacer el cuello.

27.09.2020 - 19:16

country flag Bibiana Benvenuto wrote:

Please let me know the size of the neck warmer. Thank you!

19.09.2020 - 01:57

DROPS Design answered:

Dear Bibiana, size of neckwarmer is: 1/3 –6/9 –12/18 months (2 –3/4) years (front piece measures 15-17-19 (20-22) cm before you start ribbing for the turtle neck). Happy knitting!

20.09.2020 - 15:55

country flag Hanna wrote:

Kauluria tehdessä olisi syytä korostaa etukappaleen kohdalla että joko silmukat laitetaan samalle apulangalle tai erillisille apulangoille (keskimmäiset silmukat ja oikean puolen silmukat), koska myöhemmin puhutaan vain apulangasta. toki kuvasta voi päätellä, mutta selkeys ennen kaikkea.

04.11.2016 - 15:58