DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Silver Haze

Prjónuð peysa úr DROPS Snow, DROPS Nepal eða DROPS Andes með ¾-löngum ermum. Stærð S- XXXL

DROPS 103-1
DROPS design: Modell nr EE-134
--------------------------------------------------------

Stærð: S – M – L – XL – XXL - XXXL

Efni:
DROPS Snow frá Garnstudio
¾-stuttar ermar:
650-700-800-850-950-1050 gr litur nr 46, milligrár
Langar ermar:
750-800-900-950-1050-1150 gr litur nr 46, milligrár

Eða notið:
Efni:
DROPS Andes frá Garnstudio
¾-stuttar ermar:
700-800-900-900-1000-1100 gr litur nr 9015, grár
Langar ermar:
800-900-1000-1000-1100-1200 gr litur nr 9015 grár

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA NR 536: 3 stk.

Eða notið:
Efni:
DROPS Nepal frá Garnstudio
¾-stuttar ermar:
600-650-750-800-900-1000 gr litur nr 517 milligrár
Langar ermar:
700-750-800-900-1000-1050 gr litur nr 517 milligrár

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATALA NR 536: 3 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið br yfir br og sl yfir sl.
UMFERÐ 3: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*
UMFERÐ 4: sl yfir sl og br yfir br.
Endurtakið umf 1-4 áfram upp úr.

Athugasemd varðandi mynstur:
Tvöfalt perluprjón við miðju að framan kemur til með að dragast aðeins saman þegar prjónað er. Þetta kemur til með að jafna sig þegar flíkin hefur verið prjónuð.

STROFF:
* Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN:
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 4. l frá kanti og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
Stærð S: 33, 40 og 47 cm.
Stærð M: 35, 42 og 49 cm.
Stærð L: 37, 44 og 51 cm.
Stærð XL: 38, 45 og 52 cm.
Stærð XXL: 38, 46 og 54 cm.
Stærð XXXL: 38, 47 og 56 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 64-68-72-80-84-88 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið 2 umf slétt, prjónið síðan 2 umf STROFF með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu) – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm fellið af 1 l í hvorri hlið með 3½-3½-4½-4-5-5 cm millibili alls 8-8-7-8-7-7 sinnum = 48-52-58-64-70-74 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-0-1-2-3-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-3-4 sinnum = 40-42-42-44-46-48 l. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af miðju 12-12-12-14-14-14 l fyrir hálsmáli, í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 13-14-14-14-15-16 l eftir á hvorri öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 39-41-43-49-51-53 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið 2 sléttar umf, prjónið síðan 2 umf STROFF- sjá útskýringu að ofan - með 1 kantlykkju og 2 l br í hlið (séð frá réttu). Haldið áfram í sléttprjóni með 14-14-14-16-16-16 l við miðju að framan með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af í hlið á sama hátt og á bakstykki = 31-33-36-41-44-46 l.
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 27-28-28-31-32-33 l. Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm fellið af 10 l við miðju við hálsmál. Setjið 1 prjónamerki eftir l sem felldar voru af. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 l 0-0-0-1-1-1 sinnum = 13-14-14-14-15-16 l eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan.

ERMI:
Tölur sem gefnar eru upp sem eru á undan () eiga við um ¾-stuttar ermar og tölur sem eru innan í () eiga við um langar ermar.
Fitjið upp 34-34-34-38-38-38 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10 cm er haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 11 (25) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 9-6-4½-6-4-2½ cm millibili alls 3-4-5-4-5-7 sinnum = 40-42-44-46-48-52 l. Þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-28 (49-48-47-46-44-43) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-3-4-4-6-7 sinnum, haldið áfram með úrtöku og fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40 (55) cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og síðan eru felldar af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 42 (57) cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

KRAGI:
Prjónið upp ca 24-28 l á milli prjónamerkja við útröku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. prjónið ekki upp þær 10 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan). Prjónið 2 umf slétt – í síðustu umf er aukið út um 10 l jafnt yfir = 34-38 l. Prjónið nú TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Jafnframt er aukið út um 2 l í hvorum kanti að framan þannig: Aukið út með því að prjóna 2 l í síðustu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn sem prjónaður er snúinn í umf til baka (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í TVÖFALT PERLUPRJÓN. Aukið út um 2 l í byrjun hverrar umf alls 6 sinnum í hvorri hlið = 24 auka l = 58-62 l alls. Fellið af þegar kraginn mælist 12 cm við miðju að aftan.

FRÁGANGUR:
Saumið kragann við miðju að framan í hvorri hlið kant í kant, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru saumaðar við þær 10 l sem felldar voru af í hvorri hlið. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.
________________________________________

DROPS NEPAL:

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 96-104-112-124-132-136 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 2 umf slétt, prjónið síðan 2 umf STROFF með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu) – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 5 cm fellið af 1 l í hvorri hlið með 2½-2½-2½-2½-2½-3 cm millibili alls 11-12-12-13-12-11 sinnum = 74-80-88-98-108-114 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 0-1-2-3-4-5 sinnum og 1 l 3-3-4-3-4-4 sinnum = 62-64-66-68-72-74 l. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af miðju 20-20-20-24-24-24 l fyrir hálsmáli, í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 20-21-22-21-23-24 l eftir á hvorri öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 59-63-67-75-79-81 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 2 sléttar umf, prjónið síðan 2 umf STROFF- sjá útskýringu að ofan - með 1 kantlykkju og 2 l br í hlið (séð frá réttu). Haldið áfram í sléttprjóni með 22-22-22-26-26-26 l við miðju að framan með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af í hlið á sama hátt og á bakstykki = 48-51-55-62-67-70 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki = 42-43-44-47-49-50 l. Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm fellið af 16 l við miðju við hálsmál. Setjið 1 prjónamerki eftir l sem felldar voru af. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-4-4-4 sinnum og 1 l 2 sinnum = 20-21-22-21-23-24 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan.

ERMI:
Tölur sem gefnar eru upp sem eru á undan () eiga við um ¾-stuttar ermar og tölur sem eru innan í () eiga við um langar ermar.
Fitjið upp 50-50-54-54-58-58 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 10 cm er haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 11 (25) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 5-3-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-7-7-9-9-11 sinnum = 60-64-68-72-76-80 l. Þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-28 (49-48-47-46-44-43) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-3-4-6-7 sinnum, haldið áfram með úrtöku og fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 41 (56) cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og síðan eru felldar af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 42 (57) cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

KRAGI:
Prjónið upp ca 36-42 l á milli prjónamerkja við útröku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. prjónið ekki upp þær 16 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan). Prjónið 2 umf slétt – í síðustu umf er aukið út um 12 l jafnt yfir = 48-54 l. Prjónið nú TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Jafnframt er aukið út um 2 l í hvorum kanti að framan þannig: Aukið út með því að prjóna 2 l í síðustu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn sem prjónaður er snúinn í umf til baka (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í TVÖFALT PERLUPRJÓN. Aukið út um 2 l í byrjun hverrar umf alls 9 sinnum í hvorri hlið = 36 auka l = 84-90 l alls.
Fellið af þegar kraginn mælist 12 cm við miðju að aftan.

FRÁGANGUR:
Saumið kragann við miðju að framan í hvorri hlið kant í kant, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru saumaðar við þær 16 l sem felldar voru af í hvorri hlið. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Silver Haze

bauhausprincess, Germany

Silver Haze

Rebecca, United States

Silver Haze

Dominique, France

Silver Haze

Angie, United States

Silver Haze

Cristina Gibellini, Italy

A-Shape Jacket Opaco

Lineke, Netherlands

Silver Haze

Maria, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 103-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (275)

country flag Angela wrote:

Thank you for answering my question and clarifying things for me. Kind Regards

23.07.2023 - 20:58

country flag Angela wrote:

Hello, I am having trouble with the instructions for the sleeves. I have completed the decreases which are the same as Back but then patterns says ‘Continue to bind off 2 sts each side’ which does not make sense as the last decrease I did was 1 st each side. Also there is no stitch count in these instructions compared to other sections. Any help would be great. Thank you.

21.07.2023 - 11:49

DROPS Design answered:

Dear Angela, it means that, after casting off 1 stitch the specified amount of times indicated you will continue by casting off 2 stitches on each side until the piece reaches the desired measurements (to obtain this specific sleeve cup curved shape). Since the amount of stitches is not relevant here (you will cast off all stitches right after reaching the desired length) we don't indicate the remaining stitches. After all, these remaining stitches may vary depending on the gauge of your work and it will not matter how many you have left as long as you reach the indicated length. Happy knitting!

23.07.2023 - 19:17

country flag Helena Silva wrote:

Muito obrigada pela vossa excelente explicação. Já fiz e ficou lindo

20.10.2022 - 09:20

country flag Helena Lopes Silva wrote:

Ola, ao fazer a gola deste modelo posso levantar as malhas a toda volta do decote em vez de ter fazer aumentos e depois coser? Qual a diferença? Obrigada

16.10.2022 - 23:33

DROPS Design answered:

Boa tarde, As malhas , no modelo, são levantadas para formar a gola. Pode levantar sem fazer os aumentos, mas não terá o mesmo feitio. Os aumentos vão enviesar a gola para que possa ficar como na foto ao ser dobrada. Sem os aumentos, há a possibilidade de a gola, ao ser dobrada, ficar estreita. Bons tricôs!

18.10.2022 - 15:47

country flag Karen Christensen wrote:

Vedr. drops 103-1 Nepal Ærme: …….. Når arb måler 34-33-32-29-28(49-48-47-46-44-43) Skal det ikke være…………. Når arb måler 28-29-32-33-34(43-44-46-47-48-49 Med venlig hilsen Karen Christensen

12.10.2022 - 17:15

DROPS Design answered:

Hei Karen. Nei, det er riktig slik det står (det er kortere mål i de større størrelsene pga bredere skuldervidde og lengre ermetopp). mvh DROPS Design

17.10.2022 - 13:12

country flag Helena Lopes Silva wrote:

No vosso diagrama os números são n. de malhas ou cm e na vertical são voltas? Não consigo chegar a uma conclusão. Obrigada

02.10.2022 - 22:23

DROPS Design answered:

Bom dia, Todos os números indicados no diagrama são em cm tanto em largura como em altura. Bons tricôs!

03.10.2022 - 10:09

country flag Nancy Normandeau wrote:

Est-ce que je peux prendre une autre sorte de laine moyenne pour faire ce chandail? Il est tellement beau

29.04.2022 - 03:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Normandeau, les explications de ce modèle sont disponibles en 2 versions: Snow/Andes soit 11 m x 15 rangs jersey = 10 x 10 cm soit la version Nepal (plus bas dans la page) 17 m x22 rangs jersey = 10 x 10 cm. Bon tricot!

29.04.2022 - 08:33

country flag Sharon wrote:

Hi igjen. Am working on the collar and I have a question. The collar is not yet 12 cm and it seems like it is going to be longer than the peice it is going to be sewn to. Should I knit 12 cm anyways and stretch to sew together. Or should I cast off when the collar is the correct length to see. That is the lengths are the same. Not sure how to end this .Thanks. S

27.01.2022 - 20:23

DROPS Design answered:

Dear Sharon, cast off stitches on collar when peice measures 12 cm on mid back, then sew the new stitches increased on each side along the 16 sts cast off on each front piece. Happy knitting!

28.01.2022 - 08:50

country flag Sharon wrote:

Hi! Thanks for your response, but it is impossible to pick up 36 or 42 sts. If i do there er large gaps. Had to pick up more sts and decreased. the YO is not the problem its the amount of stitches to pic up.

24.01.2022 - 08:18

DROPS Design answered:

Dear Sharon, remember that you don't have to pick up sts along the 16 sts on each front piece; this mean just pick up 8 sts on each front piece + 24 sts on neckline back piece = 42 sts. Should you get more/less sts, you can then adjust on first row. Happy knitting!

24.01.2022 - 10:25

country flag Sharon wrote:

Hi, am picking for the collar on the largest size of the Nepal version. My question is how do i pick up so there er no large gaps between the picked up stitches. I tried twice and ripped put because there were too many stitches and when i tried to pick up 42 stitches there were large gaps between stitches as mentioned. So how do I solve this problem.

23.01.2022 - 00:16

DROPS Design answered:

Hi Sharon, If you get large gaps between the stitches, when you first work the knitted-up stitches, work them twisted (i.e. in the back loop). This should avoid holes. Happy knitting!

24.01.2022 - 08:05