DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Elbe

Prjónuð tunika með hekluðum ferningum og ¾-síðum ermum úr DROPS Bomull-Lin og DROPS Cotton Viscose. Stærð S-XXL

DROPS 100-1
DROPS Design: Mynstur nr L-071
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS Bomull-Lin
350-400-400-450-500 gr litur nr 03, ljós beige
Og einnig:
DROPS Cotton Viscose
100-100-100-100-100 gr litur nr 17, ljós beige

DROPS PRJÓNAR NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 17 umf með sléttprjóni með Bomull-Lin verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að einn ferningur með Cotton Viscose mælist 12 x 12 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Sjá mynsturteikningu M.1
ATH: Síðasta umf með fl í M.1 er hekluð með heklunál nr 3,5 – ekki heklunál nr 4,5.

HEKLAÐUR KANTUR:
Sjá mynsturteikningu M.2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 98-106-110-118-128 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með DROPS Bomull-Lin og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 5 l jafnt yfir í umf – deilið niður úrtökunni svo að það verða álíka margar l á milli úrtöku (ca 16-17-18-19-21 l á milli hverra). Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með 5-5½-6-6-6½ cm millibili alls 7 sinnum – fellt er af frá réttu með því að prjóna saman 2 l sl – passið uppá að úrtakan sé fyrir ofan hverja aðra upp úr = 63-71-75-83-93 l. Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-2-2-2-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-5 sinnum = 51-53-55-57-59 l. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78 cm eru felldar af miðju 33 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 8-9-10-11-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80 cm.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 39-41-43-45-47 cm (úrtöku er lokið). Prjónið nú 4 umf garðaprjón yfir miðju 41 l (aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni). Fellið nú af miðju 35 l = 14-18-20-24-29 l eftir í hvorri hlið. Prjónið nú hægra og vinstra framstykki hvort fyrir sig. Prjónið sléttprjón með 3 l garðaprjón við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 53-54-55-56-57 cm er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 8-9-10-11-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80 cm.

ERMI:
Fitjið upp 31-32-34-36-37 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með Bomull-Lin og prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 2½-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 10-10-10-11-13 sinnum = 51-52-54-58-63 l. Jafnframt þegar ermin mælist 8, 13 og 22 cm í öllum stærðum, prjónið 2 umf slétt með 1 þræði af Bomull-Lin + 1 þræði af Cotton Viscose. Þegar ermin mælist 33-31-31-30-29 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2-2-2-2-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40-40-41-41-42 cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist 41-41-42-42-43 cm.

HEKLAÐUR FERNINGUR:
Heklið 4 ferninga með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose – sjá M.1 og útskýringu að ofan (síðasta umf). Byrjið á 4 ll sem tengdar eru í 1 hring. Heklið 3 ll og 11 st í hringinn o.s.frv.
Sjá M.1.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hekluðu ferningana 2 og 2. Mikilvægt er að sauma 1 spor í hverja fl. Heklið 1 umf með st með heklunál nr 3,5 og DROPS Cotton Viscose í kringum báða ferningana.
Á neðri brún á opinu á tunikunni eru ferningarnir saumaðir kant í kant í umf með garðaprjóni.
Í hliðum eru ferningarnir lagðir ofan á 2 síðustu l á tunikunni og saumað með smáu spori. Ferningarnir eiga að enda 6 cm áður en komið er efst á öxl.
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR:
Neðan í kringum ermar og í kringum hálsmál er heklað M.2 með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose. Að lokum er hekluð ein umf með fl neðst í kringum ermar, í kringum hálsmál og niður í kringum op/klauf.

HEKLUÐ SNÚRA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 4,5 og Cotton Viscose, tengið þær í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið nú ll þar til snúran mælist 60-70 cm, endið á að hekla kl í 4. síðustu ll. Þræðið inn snúrunni á milli 2 hekluðu ferningana á hvorri hlið við miðju að framan. Gerið 1 skúf í hvorn enda á snúrunni þannig: Klippið 20 þræði af Cotton Viscose ca 25 cm. Leggið alla þræðina saman tvöfalda, þræðið lykkjuna inn í hringinn og dragið þræðina í gegnum lykkjuna.

Mynstur

symbols = fastalykkja
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = Kúla: Heklið 4 mjög lausa hálfa stuðla án þess að draga þráðinn í gegnum hvern og einn (= 9 þræðir á heklunálinni). Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 8 fyrstu lykkjur á heklunálinni. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 síðustu lykkjur.
symbols = stuðull
symbols = tvíbrugðinn stuðull
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 100-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Anneke Hage wrote:

In de laatste 2 rijen stokjes moeten meer stokjes op de hoeken anders worden het geen mooie vierkanten. Heb er 7 gedaan. Verder erg mooi patroon

12.04.2024 - 16:09

country flag Lena Englund wrote:

Vad kan jag ersätta cotton viscouse med?

01.10.2022 - 16:15

DROPS Design answered:

Hej Lena. Du kan ersätta det med ett annat garn från Garngrupp A. Mvh DROPS Design

03.10.2022 - 14:18

country flag Karin Fenselau wrote:

Hallo liebes Drops Team! Ich stricke gerade die Tunika "Elbe" und habe das Problem einen passenden Ersatz für die 2. Wolle ( DROPS Cotton Viscose ) zu finden. Könnt ihr mir aus eurem Sortiment etwas empfehlen oder habt ihr eventuell eine Idee welche Wolle ich nehmen kann. Den Hauptteil stricke ich mit Biomull-Lin. Ich bedanke mich schonmal im Voraus! Mit lieben Grüßen! Fenselau Karin

24.06.2022 - 16:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fenselau, benutzen Sie unseren Garnumerchner, so finden Sie Alternativen. Gern kann Ihnen auch Ihr DROPS Laden damit - auch telefonisch oder per E-Mail - helfen, das beste passende Garn zu finden. Viel Spaß beim stricken und häkeln!

27.06.2022 - 08:00

country flag Rossy wrote:

Bonjour, Le Cotton Viscose est en rupture puis-je sans autre faire le crocher avec le Bomull-Lin ? Merci

12.08.2021 - 12:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rossy, DROPS Cotton Viscose n'est effectivement plus disponible, utilisez notre convertisseur pour trouver une alternative, mais c'est un fil du groupe A (DROPS Bomull-Lin est du groupe C). Bon tricot!

12.08.2021 - 16:18

country flag Leigh Olsen wrote:

Hello, I'm new to crocheting and I was wondering if someone could help me read the crochet pattern. On the fourth row (after the first row of bobbles), it looks like you do a dc-tr-dc into the corner of the 6 chains from below. My question is do you work each corner dc, tr, and dc into separate chains from the row below. Thank you so much. I hope someone else didn't already ask this question.

05.04.2021 - 07:08

DROPS Design answered:

Dear Leigh, you don't necessarily have to corchet those stitches in the corner into individual stitches, in fact, it will be easier to block the squares flat if you stitch them into the chain loop itself. Happy Crafting!

05.04.2021 - 09:56

country flag Kenzi wrote:

Das Cotton Viscose ist schon seit einiger Zeit aus dem Sortiment. Ich fand es fantastisch. Leider kommt dem feinen Glanz nichts anderes Ihrer Alternativen gleich. Ist mit einer Wiederaufnahme des Garns zu rechnen?

18.10.2020 - 21:31

DROPS Design answered:

Liebe Kenzi, es tut mir leid, sowas ist immer noch nicht geplant.Gerne wird Ihnen aber Ihr DROPS Laden die beste Alternative empfehlen. Viel Spaß beim stricken bzw häkeln!

19.10.2020 - 09:52

country flag Iwona wrote:

W opisie do wzorów w języku polskim chochlik internetowy zjadł literkę e -"Potrzebujsz pomocy do tego wzoru?" Niby drobiazg.. a jednak razi :) Serdecznie pozdrawiam cały zespół Drops i dziękuję za tak wiele wspaniałych wzorów i inspiracji

12.03.2020 - 08:00

DROPS Design answered:

Witaj Iwono! Wstyd mi okropnie, już naprawione. Mamy nadzieję, że teraz nasze wzory będą cieszyć jeszcze bardziej :) A propos, czy już zagłosowałaś na nową kolekcję DROPS Jesień/Zima, zapraszamy serdecznie!

05.06.2020 - 17:32

country flag Regina Schidlowski wrote:

Hallo,i ch habe eine Maschenprobe mit Nadel 7 gemacht,wie in der Anleitung beschrieben.Das Maschenbild gefällt mir gar nicht,zu locker.Warum sollte man ein 7 Nadel nehmen? Wer hat mit 5 Nadel gestrickt?

12.12.2019 - 22:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schidlowski, die ganze Anleitung ist mit der Maschenprobe 14 M x 17 R glatt gestrickt = 10 x 10 cm; wenn diese Maschenprobe nicht stimmt, dann wird die Tunika nicht richtig - hier lesen Sie mehr über die Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

13.12.2019 - 08:35

country flag Regina Schidlowski wrote:

Hallo,Rückenteil:Nach 6cm gleichmäßig verteilt ca.16.17 21 M.zwischen den Abk.) 5M.abk.und alle 5.6.7cm wiederholen. Die Abnahmen sind schlecht erklärt,versteh sie leider nicht.😪Für was steht Abk.in Klammern? Vielen Dank

04.12.2019 - 12:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schidlowski, nach 6 cm nehmen Sie 5 Maschen ab, dh so stricken Sie: (ca 16-17-18-19-21 Maschen, 2 Maschen rechts zusammen), und von (bis) wiederholen. Diese Abnahme wiederholen insgesamt 7 Mal aber immer sie übereinander arbeiten, dh bei 2. Abnahmen stricken Sie (ca 15-16-18-20 M, 2 M re zs) (= 1 Masche weniger zwischen 2 M re zs). Hier lesen Sie wie man gleichmäßig verteil abnimmt). Viel Spaß beim stricken!

04.12.2019 - 13:28

country flag Angelique wrote:

Ik heb te weinig wol terwijl.ik wol voor xxl heb besteld en brei de. M. Kan wel bijbestellen maar weet niet of het verfbad dan klopt.

21.01.2017 - 15:51