DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Josie

Prjónuð peysa fyrir börn án ermasauma, húfa og sokkar í garðaprjóni úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.

DROPS Baby 14-7
DROPS design: Mynstur nr z-016-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
PEYSA, SOKKAR OG HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
PEYSA:
200-200-200 (250-300) gr nr 3140, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir í garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5.
DROPS TRÉTALA NR 503: 3 st

HÚFA OG SOKKAR:
100 gr í allar stærðir nr 3140, ljós bleikur.

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 26 lykkjur og 52 umferðir í garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5.
FYLGIHLUTIR: ca 60-80 cm silkiborði (ca 1 cm breiður) t.d. ljós bleikur fyrir húfu.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. lykkju frá kanti og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af í næstu umferð.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist ca:
Stærð 1/3 mán: 18, 21 og 24 cm
Stærð 6/9 mán: 18, 22 og 26 cm
Stærð 12/18 mán : 19, 22 og 29 cm
Stærð 2 ára: 19, 25 og 30 cm
Stærð 3/4 ára: 21, 27 og 33 cm
ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umferðir eru eftir innan við úrtöku í hálsmáli.
--------------------------------------------------------

PEYSA:

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-100-108 (115-122) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Alpaca og prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm er fækkað um 36 lykkjur jafnt yfir = 57-64-72 (79-86) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (22-24) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar): 3 lykkjur 3-3-3 (3-2) sinnum, 4 lykkjur 4-4-3 (5-8) sinnum, 10 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum og síðan 10-13-12 (15-14) lykkjur 1 sinni = 168-180-197 (227-250) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-29-32 (34-37) cm fellið af miðju 19-20-24 (25-26) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Fækkið um 2 lykkjur í næstu umferð við háls = 73-78-85 (99-110) lykkjur eftir á hvorri öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 28-30-33 (35-38) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-55-59 (63-66) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fækkið um 18 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 34-37-41 (45-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (22-24) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 90-95-104 (119-130) lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (30-33) cm fellið af ystu 10-10-12 (13-13) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 73-78-85 (99-110) lykkjur eftir á öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 28-30-33 (35-38) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið allar lykkjur á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt – fellt er af fyrir HNAPPAGAT meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umferðir eru eftir áður en fellt er af fyrir hálsmáli.

FRÁGANGUR:
Saumið axla- og hliðarsauma í eitt með lykkjuspori. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp ca 65-85 lykkjur í kringum háls á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt (umferð 1 = ranga), fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá röngu. Saumið tölur í.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant neðst í kringum báðar ermar og meðfram öllu opinu á peysunni (þ.e.a.s. upp meðfram báðum framstykkjum, aftan í hnakka og meðfram öllum neðri kanti) með heklunál 2,5 og Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum sem voru heklaðar, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 3 lykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð.
Brjótið uppá 4 neðstu cm á hvorri ermi (saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum).
--------------------------------------------------------

SOKKAR:

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

Sokkurinn er prjónaður fram og til baka frá miðju að aftan.
Fitjið upp 48-52-56 (56) lykkjur á prjón 2,5 með 2 þráðum Alpaca. Takið frá annan þráðinn og prjónið STROFF í 5-6-6 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem fækkar um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur.

MEÐ GATAUMFERÐ:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

ÁN GATAUMFERÐAR:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið nú ystu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm með garðaprjóni yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjurnar. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkjur hvoru megin um miðju stykki = 54-60-64 (74) lykkjur alls á prjóni.
Prjónið 3-4-5 (5) cm í garðaprjóni yfir allar lykkjur jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lokin á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Þræðið e.t.v. silkiborða í gegnum gataumferðina.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kanti í kringum sokkinn efst með heklunál 2,5 með Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjunum, 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu lykkjum *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð.
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 cm

Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 82-88-100 lykkjur á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið slétt í hverri umferð (= garðaprjón) jafnframt því sem er gert 1 gat í hvorri hlið í 6. hverri umferð með því að fella af 3. lykkju frá kanti og fitja upp 1 nýja lykkju yfir lykkjuna sem felld var af í næstu umferð, þar til stykkið mælist 6 cm.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú sléttprjón en 5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar slétt í hverri umferð eins og áður (götin í hvorri hlið halda áfram í 6. hverri umferð eins og áður) þar til stykkið mælist 14-15-16 cm.
JAFNFRAMT í síðustu umferð frá röngu eru felldar af ystu lykkjurnar í hvorri hlið og lykkjufjöldinn jafnaður út til 70-80-90 lykkjur.
Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir 1 lykkju, síðan eiga að vera 14-16-18 lykkjur á milli hverra. Nú eru 13-15-17 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið garðaprjón jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki í annarri hverri umferð alls 12-14-16 sinnum = 10 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman við miðju að aftan í ystu lykkjubogana. Heklið kant í kringum allt opið á húfunni (þ.e.a.s. meðfram uppfitjunarkanti og neðri kanti) með heklunál 2,5 og Alpaca þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju*, 3 loftlykkjur, 1 stuðull i fyrstu af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 næstu lykkjum *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í byrjun á umferð. Brjótið uppá kant að framan tvöfaldan að réttu ca 3 cm og saumið niður neðst á hvorri hlið þannig að uppábrotið haldist – passið uppá að götin í neðri kanti passi á móti hvoru öðru. Þræðið silkiborða í gegnum götin í neðri kanti.


Sól: SjáDROPS Baby 13-30
Teppi: SjáDROPS Baby 14-24

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Bjørg wrote:

Jeg strikker på den søte jakken, men stusser litt på oppskriften som gjelder forstykkene og økning av masker til arm. På bakstykket skal det økes masker på armene, slik at armen blir litt skrå. Dette skal ikke gjøres på forstykkene, der skal man bare legge opp maskene til arm og ingen økning og . Kan dette være riktig? Mvh Bjørg

04.01.2024 - 21:55

DROPS Design answered:

Hej Bjørg, jo, Når arb måler 18-19-21 (22-24) cm legges det opp nye m i siden til erme som på bakstk = 90-95-104 (119-130) m :)

09.01.2024 - 15:27

country flag Sherill Hezfeld wrote:

In regard to the question I had about the 5 band stitches where I am confused is are these cast on right away from the start or is this a band that is made after the right and left sides are completed?

04.07.2023 - 13:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hezfeld, the front band stitches are cast on from the start (they are included in the number of stitches stated to cast on), you don't have to cast on these stitches extra. Happy knitting!

04.07.2023 - 14:49

country flag Sherill Herzfeld wrote:

In making the Left Front, what do you mean with the cast on statement " Cast on 52-55-59 (63-66) sts (includes 1 edge st at side and 5 front band sts towards mid front)"? What/How do I knit the 5 front band stitches towards mid front?

04.07.2023 - 02:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Herzfeld, these stitches are included in the number of stitches to cast on so that you don't have to cast them on extra; you will then work the edge stitch on the side (beg of row from RS for left front piece) and the front band stitches (end of row from RS for left front piece) in garter stitch to finished measurements; when decreasing evenly, do not decrease over these 5 front band stitches. Happy knitting!

04.07.2023 - 08:56

country flag Annette Müller wrote:

Hallo zusammen!Es heißt in der Anleitung der Haube: ein Markierungsfaden nach der 1.Masche und jede 2.Reihe nach dem Faden abnehmen.Diese Abnahme geschieht ja dann innerhalb der 5 Randmaschen incl.der gestrickten Löcher.Ich glaube ich verstehe die Anleitung nicht richtig . Können sie mir helfen? Ich habe vorher auf beiden Seiten die 5 Maschen abgekettet

27.12.2021 - 20:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, jetzt stricken Sie krausrechts, dh die erste Abnahmen stricken Sie innerhalb die erste Masche. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 09:09

country flag Annette wrote:

In der Beschreibung für die Seitenteile geht es um Bordmaschen, wie muss ich das verstehen.

18.12.2021 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Bordmaschen sind hier die Blendemaschen (= 5 Maschen kraus rechts gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

20.12.2021 - 07:37

country flag Alessandra wrote:

Salve! Nelle istruzioni dei calzini non ho capito la parte relativa alla diminuzioni. Prima dice di lavorare 3 cm e cominciare a diminuire dopo 1,5, poi dice di diminuire fino a 10 cm. Mi potete spiegare la corretta sequenza per favore? Grazie!

09.07.2021 - 20:29

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, abbiamo inoltrato la sua segnalazione al settore design: se ci saranno delle correzioni troverà il modello corretto direttamente online. Buon lavoro!

21.08.2021 - 23:37

country flag Marie wrote:

Bonjour, je suis entrain de faire le bonnet, je voudrais savoir s' il est normal qu' après avoir placé mes 5 marqueurs, il me reste 21 mailles. J' ai bien les 90 mailles comme demandé Je vous remercie de votre réponse.

02.02.2021 - 14:30

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, tout à fait, c'est bien ainsi que l'on procède. Bon tricot!

03.02.2021 - 09:27

country flag Josefine wrote:

Hej! Jag har letat och letat men hittar ingenstans vad som menas med att ”avpassa”. I beskrivning för koftan - på slutet - står det ” avpassa efter 1 räta v på avigsidan - sätts m på en tråd.”. Hur menar man? Och om jag ska trä upp alla maskor på tråd, vad gör jag med dem sen? Det står inget om det under montering. Ska bakstycket ”sys” ihop med framstyckena? Dvs sy övre ärm- och axelparti?

30.12.2020 - 18:33

DROPS Design answered:

Hei Josefine. I denne oppskriften står det avpass etter 1 pinne fra vrangen. Det betyr siste pinne må bli strikket fra vrangen, deretter settes maskene på1 tråd. Under montering står det: Sy axel- och ärmsömmarna i ett med osynliga maskstygn. Se hjelpevideoen under oppskriften om hvordan du syr usynlige maskesting. "Osynlig söm - stickad" mvh DROPS design

13.01.2021 - 15:16

country flag Miluška wrote:

Dobrý den, nerozumím tomu sešití rukávů u kabátku, který má bezešvé rukávy. Můžete mi prosím poradit? Upletla jsem zadní i přední díly a mám je odložené na pomocné jehlici? Co dál? Děkuji za odpověď.

20.08.2019 - 13:48

DROPS Design answered:

Dobrý den, Miluško, rukávy sice nejsou vsazované, ale zcela beze švů také nejsou - je potřeba je sešít na horní hraně paže a rameni (viz "sešijeme náramenice a rukávy") a pak na dolní hraně, v podpaží - tento šev protáhneme a rovnou sešijeme i postranní švy kabátku. Hodně zdaru! Hana

20.08.2019 - 18:53

country flag Anita Charlton wrote:

I have also had a lot of trouble deciphering the pattern regarding the casting in extra stitches for the sleeves but I see Ms Gallatin’s answer is my answer.

21.07.2019 - 15:57