Sage Coast |
|
|
|
Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli, gatamynstri, I-cord og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 249-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið frá röngu eða slétt frá réttu, það á að myndast gat. Nýjar lykkjur eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Framstykkið er prjónað í 2 stykkjum fram að böndum á öxl / hlýra og V-hálsmál hefur verið prjónað til loka, síðan eru bæði stykkin sett saman og framstykkið er prjónað til loka niður á við. Bakstykkið er prjónað fram og til baka sem 1 stykki. Í lokin eru bönd á öxlum / hlýrar fest á bakstykkið og hliðarsaumar saumaðir. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið band á öxl / hlýra þannig: UMFERÐ 1: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið fram og til baka eins og umferð 1 þar til band á öxl / hlýri mælist 6-8-10-12-14-16 cm (band á öxl / hlýri er síðar saumað niður á bakstykki). Setjið eitt merki hér til að mæla frá. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur að framan), 1 lykkja slétt (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur að framan). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur að framan, 1 lykkja brugðið (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur að framan. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir handveg og V-hálsmál. Aukið er út um 1 lykkju innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið í annarri hverri umferð – lesið ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir kantlykkjur að framan, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir V-hálsmáli og prjónið eins og áður yfir kantlykkjur að framan. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-11-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 25-27-33-45-37-31 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur að framan í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 8-8-5 sinnum til viðbótar, en í annað hvert skipti sem aukið er út, hoppið yfir útaukningu í byrjun umferðar (við handveg). Aukið er út alls 15-16-15 sinnum fyrir V-hálsmál og alls 11-12-13 sinnum við handveg = 37-39-41 lykkjur. Stykkið mælist ca 13-13-13 cm frá merki. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 45 lykkjur. Stykkið mælist ca 13 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXXL: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 4-8 sinnum til viðbótar, jafnframt er aukið út í hverri umferð við handveg (bæði frá réttu og röngu). Aukið hefur verið út alls 15-16 sinnum við V-hálsmál og 19-24 sinnum við handveg = 49-55 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 13-13 cm frá merki. Útaukningu er lokið í stærð XXL og XXXL. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 37-39-41-45-49-55 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 11-11-13-13-15-15 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið band á öxl / hlýra þannig: UMFERÐ 1: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið fram og til baka eins og umferð 1 þar til band á öxl / hlýri mælist 6-8-10-12-14-16 cm (band á öxl / hlýri er síðar saumað niður á bakstykki). Setjið eitt merki hér til að mæla frá. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur að framan), 1 lykkja slétt (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 lykkjur (kantlykkjur að framan). UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur að framan, 1 lykkja brugðið (sléttprjón), prjónið eins og áður yfir síðustu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur að framan. Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og handveg. Lykkjum er aukið út innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið í annarri hverri umferð – lesið ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið eins og áður yfir kantlykkjur að framan, aukið út 1 lykkju fyrir V-hálsmáli, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir kantlykkjur að framan. Haldið áfram fram og til baka og endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-11-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 25-27-33-45-37-31 lykkjur. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 8-8-5 sinnum til viðbótar, en í annað hvert skipti sem aukið er út, hoppið yfir útaukningu í lok umferðar (við handveg). Aukið er út alls 15-16-15 sinnum fyrir V-hálsmál og alls 11-12-13 sinnum við handveg = 37-39-41 lykkjur. Stykkið mælist ca 13-13-13 cm frá merki. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 45 lykkjur. Stykkið mælist ca 13 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXL: Aukið út innan við kantlykkjur í annarri hverri umferð fyrir V-hálsmáli 4-8 sinnum til viðbótar, jafnframt er aukið út í hverri umferð við handveg (bæði frá réttu og röngu). Aukið hefur verið út alls 15-16 sinnum við V-hálsmál og 19-24 sinnum við handveg = 49-55 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 13-13 cm frá merki. Útaukningu er lokið í stærð XXL og XXXL. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 37-39-41-45-49-55 lykkjur í umferð. Nú á að setja hægra og vinstra framstykki saman í eitt framstykki. Byrjið frá réttu á hægra framstykki, prjónið eins og áður yfir kantlykkjur að framan, prjónið slétt þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, fitjið upp 1 nýja lykkju, prjónið fyrstu 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur frá vinstra framstykki í garðaprjóni, prjónið slétt þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur og prjónið eins og áður yfir þessar lykkjur = 75-79-83-91-99-111 lykkjur. Setjið eitt merki í stykkið, stykkið nú mælt héðan. Nú eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið fyrir handveg, jafnframt því sem færri lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni við miðju að framan í V-hálsmáli, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 27-29-29-33-35-41 lykkjur brugðið, 11-11-13-13-15-15 lykkjur í garðaprjóni, 27-29-29-33-35-41 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni (kantlykkjur að framan eru ekki lengur prjónaðar). Fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 79-85-90-99-108-120 lykkjur. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 33-37-38-46-52 lykkjur slétt, 7-7-9-9-11-11 lykkjur í garðaprjóni, prjónið 29-31-31-35-37-43 lykkjur slétt, 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 83-91-97-107-117-129 lykkjur. UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 33-37-38-43-46-52 lykkjur brugðið, 7-7-9-9-11-11 lykkjur í garðaprjóni, 33-37-38-43-46-52 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 35-39-40-45-48-54 lykkjur slétt, 3-3-5-5-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 35-39-40-45-48-54 lykkjur slétt og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 35-39-40-45-48-54 lykkjur brugðið, 3-3-5-5-7-7 lykkjur í garðaprjóni, 35-39-40-45-48-54 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Nú er prjónað í sléttprjóni með 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá merki. í næstu umferð frá réttu er aukið út um 9-9-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 92-100-110-122-132-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 7-7-8-8-9-9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Framstykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá merki og ca 44-47-50-53-56-59 cm frá uppfitjunarkanti. BAKSTYKKI: Fitjið upp 53-55-57-59-61-63 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Paris og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn aftan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið eins og umferð 1 þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón (6 umferðir). Nú byrjar útaukning fyrir handveg í hvorri hlið. Auka á út 1 lykkju innan við 5-5-6-6-7-7 kantlykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING. Þ.e.a.s. prjónið frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur í garðaprjóni (5-5-6-6-7-7 kantlykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið slétt (sléttprjón) þar til eftir eru 5-5-6-6-7-7 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir handveg, prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt (5-5-6-6-7-7 kantlykkjur að framan). Haldið áfram fram og til baka með sléttprjón og kantlykkjum að framan, endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 7-8-10-16-11-8 sinnum í hvorri hlið = 67-71-77-91-83-79 lykkjur í umferð. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þanni: STÆRÐ S, M og L: Aukið út innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið í 4. hverri umferð 4-4-3 sinnum. Nú hefur verið aukið út alls 11-12-13 sinnum = 75-79-83 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-15 cm. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XL: Útaukningu er lokið í stærð XL = 91 lykkjur. Stykkið mælist ca 15 cm frá merki. Endið með 1 umferð frá röngu. STÆRÐ XXL og XXL: Aukið út fyrir handveg innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið í hverri umferð (bæði frá réttu og röngu) 8-16 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út alls 19-24 sinnum = 99-111 lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15 cm. Útaukningu er nú lokið í stærð XXL og XXXL. Endið með 1 umferð frá röngu. ALLAR STÆRÐIR: = 75-79-83-91-99-111 lykkjur í umferð. Setjið eitt merki í stykkið, stykkið er nú mælt héðan. Nú eru fitjaðar upp lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt (sléttprjón) út umferðina (kantlykkjur að framan eru ekki lengur prjónaðar) og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 79-85-90-99-108-120 lykkjur. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið brugðið (sléttprjón) út umferðina og fitjið upp 4-6-7-8-9-9 nýjar lykkjur í lok umferðar = 83-91-97-107-117-129 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni með 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 9-9-13-15-15-15 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 92-100-110-122-132-144 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til eftir eru 7-7-8-8-9-9 lykkjur, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5-5-6-6-7-7 lykkjur í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Bakstykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá merki og ca 40-41-42-43-44-45 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxlum / hlýra yst í hvora hlið á uppfitjunarkanti á bakstykki. Saumið hliðarsauma niður að þar sem stroffið byrjar = klauf í hliðum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Kelly wrote:
Summer Spirit
18.01.2024 - 21:57