DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

River Trail Top

Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í stroffprjóni með tilfærslu á lykkjum og V-hálsmáli með I-cord aftan í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 250-28
DROPS Design: Mynstur e-370
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
Málin á teikningu sýnir flíkina þegar búið er að draga hana aðeins til, flíkin verður minni vegna stroffprjóns. Stykkið er mjög teygjanlegt, þannig að best er að prjóna þá stærð sem þú notar vanalega.

GARN:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-250-250-250-300 g litur 05, lavender

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Vegna stroffprjóns þá dregst stykkið saman. Dragið aðeins út stykkið á breiddina þegar öll mál á lengdina eru tekin, til að koma í veg fyrir að flíkin verði of stutt þegar flíkin er mátuð.

ÚTAUKNING:
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón.

ÚRTAKA-1 (á við um úrtöku í stroffi):
FÆKKIÐ LYKKJUM TIL HÆGRI ÞANNIG:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan 1. / 5. merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
FÆKKIÐ LYKKJUM TIL VINSTRI ÞANNIG:
Prjónið fram að 4. / 8. merkiþræði, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir handveg og V-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 LYKKJUM ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 4 lykkjur eins og útskýrt er í mynstri.

I-CORD AFFELLING (aftan í hálsmáli):
Fitjið upp 4 lykkjur á hægri prjón frá réttu.
Lyftir þessum 4 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 4 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur).
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
UMFERÐ 2 (rétta):
Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman.
Endurtakið UMFERÐ 2 þar til 4 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 4 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kanti við 4 lykkjur frá framstykki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp aftan í hnakka og prjónaður er I-cord.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 208-224-256-272-304-336 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Skiptið yfir á hringprjón 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 104-112-128-136-152-168 lykkjur. Þessi merki merkja hliðar á fram- og bakstykki, látið merkin fylgja áfram með í stykkinu.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroffprjón þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroffprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 14-14-15-15-15-15 cm – lesið MÆLING, eru settir 8 merkiþræðir í stykkið sem útskýrt er að neðan. Merkiþræðir eru settir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðir eru notaðir þegar fækka á lykkjum og auka út í stroffprjóni til að færa til lykkjur.

Teljið 21-21-29-33-33-41 lykkjur, setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 30-38-38-38-46-46 lykkjur, setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 42-42-58-66-66-82 lykkjur, setjið 5. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 6. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 30-38-38-38-46-46 lykkjur, setjið 7. merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 16-16-16-16-20-20 lykkjur, setjið 8. merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 21-21-29-33-33-41 lykkjur í umferð á eftir síðasta merkiþræði.
Lesið ÚTAUKNING og ÚRTAKA-1. Haldið áfram í stroffprjóni jafnframt því sem lykkjum er fækkað og aukið út við merkiþræði þannig:
Fækkið lykkjum TIL HÆGRI á undan 1. og 5. merkiþráð.
Aukið út á eftir 2. og 6. merkiþráð (í 2 fyrstu skiptin eru útauknar lykkjur prjónaðar slétt, í næstu 2 skipti brugðið o.s.frv.).
Aukið út á undan 3. og 7. merkiþráð (í 2 fyrstu skiptin eru útauknar lykkjur prjónaðar slétt, í næstu 2 skipti brugðið o.s.frv.)
Fækkið lykkjum TIL VINSTRI eftir 4. og 8. merkiþráð.

Aukið út og fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 12-12-12-16-16-16 sinnum á hæðina.
Þegar tilfærsla á lykkjum er lokið, heldur stroffprjón áfram eins og áður með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm – munið eftir MÆLING, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, yfir miðju 14-14-14-22-22-22 lykkjur í hvorri hlið (7-7-7-11-11-11 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við merki í hliðum).
Í umferð á eftir 4 umferðir garðaprjón, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 4-4-4-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram með stroffprjón eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-8-8-8 lykkjur á undan merki í hinni hliðinni, fellið af 8-8-8-16-16-16 lykkjur fyrir handveg, haldið áfram í stroffprjóni eins og áður þar til eftir eru 4-4-4-8-8-8 lykkjur í umferð, fellið af 4-4-4-8-8-8 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Takið frá öll merki/merkiþræði.

FRAMSTYKKI:
= 96-104-120-120-136-152 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju að framan (á milli 2 lykkja slétt séð frá réttu). Haldið áfram í stroffprjóni fram og til baka eins og áður, en ystu 3 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg á að fækka lykkjum fyrir V-hálsmáli, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.
Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir handveg í 4-4-2-2-2-2 hverri umferð alls 4-4-12-12-16-20 sinnum í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-39 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið 2 umferðir eins og áður, en yfir miðju 10 lykkjur er prjónað sléttprjón (5 lykkjur sléttprjón hvoru megin við merkiþráðinn mitt að framan). Eftir þessar 2 umferðir skiptist stykkið fyrir V-hálsmál við merkiþráðinn og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

HLUTI-1:
Prjónið síðan eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni við handveg og 4 lykkjur í sléttprjóni við v-hálsmál. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg eins og útskýrt er að ofan.
Að auki er fækkað um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 4 lykkjur sléttprjón þannig – munið eftir ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 16 sinnum og síðan í 4. hverri umferð alls 4 sinnum.
Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmál eru 24-28-28-28-32-36 lykkjur á öxl.
Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

HLUTI-2:
Prjónið á sama hátt og HLUTI-1.

BAKSTYKKI:
= 96-104-120-120-136-152 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram í stroffprjóni eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 88-96-96-96-104-112 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið miðju 36 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður með 3 lykkjur í garðaprjóni við handveg. Að auki eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum = 20-24-24-24-28-32 lykkjur á öxl. ATH: Það eru 4 lykkjur færri á öxl á bakstykki þar sem síðar er prjónaður I-cord kantur yfir lykkjur meðfram hálsmáli aftan í hnakka sem saumaður er við 4 lykkjur á framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn – byrjið sauminn yst við öxl og saumið lykkju á móti lykkju þar til 4 lykkjur eru eftir á framstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI AFTAN Í HNAKKA:
Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 50 til 60 lykkjur innan við 1 kantlykju meðfram hálsmáli aftan í hnakka fram að hinum axlasaumnum. Fellið síðan af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan.

Mynstur

symbols = vegna stroffprjóns dregst stykkið saman samanber mál á teikningu. Prjónaðu þá stærð sem þú notar vanalega, flíkin er mjög teygjanleg.
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Dorota wrote:

W opisie wzoru są błędy ; W rozmiarze M liczba oczek (112 ) nie jest podzielna przez 3( 2o.lewe i 1 o. prawe) Bluzka wyglada jakby wzór był 2o prawe 1 o.lewe ,albo modelka założyła na lewą stronę 😄🤷🏼‍♀️ Bluzeczka bardzo mi się podoba i robię dalej modyfikując nieco wzór😅

18.04.2024 - 11:00

DROPS Design answered:

Witaj Doroto, wszystko jest ok. Ściągacz wykonywany po przerobieniu 2 cm jest następujący: * 1 oczko prawe, 2 oczka lewe, 1 oczko prawe* > czyli mamy dalej ściągacz 2 oczka prawe, 2 oczka lewe. Pozdrawiamy i miłej pracy!

18.04.2024 - 11:51

country flag Carol McMillan wrote:

I read somewhere that there was a way to highlight a size in a pattern and when printed that size is highlighted to make knitting much easier. Is this true - if so I do I use this function?

16.04.2024 - 19:01

DROPS Design answered:

Dear Carol, yes, it is true, you can highlight the relevant numbers for the size you are knitting at the newer patterns for now. To do this see the line just above the title that says "pattern instructions" and click on the size you want to knit. You should see the relevant numbers circled in the pattern. Happy Crafting!

16.04.2024 - 21:44

country flag Emily wrote:

Ocean flow

21.01.2024 - 14:04

country flag Mariana Thulin wrote:

Lavender

19.01.2024 - 19:53

country flag Sarinna wrote:

Ube Delight

18.01.2024 - 18:43

country flag Kari wrote:

Cornflower

18.01.2024 - 13:10