Violet Falls Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með ísaumuðum puffermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (mitt undir ermi): Aukið er út um 2 lykkjur í umferð með því að auka út hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræðinum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, fellið af frá réttu (kantur að framan = 16 lykkjur sem síðar er brotinn tvöfaldur niður að röngu). Fellið af fyrir 2 hnappagötum í sömu umferð, þar sem kantur að framan er brotinn inn tvöfaldur að röngu og tölum er hneppt í gegnum bæði lögin. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 3 lykkjur eins og áður og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 6 lykkjur eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið afgang af umferð eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður, uppslátturinn er prjónaður slétt – svo það myndist gat. Fellið af fyrir 2 hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 36 og 40 cm. M: 38 og 42 cm. L: 39 og 43 cm. XL: 40 og 44 cm. XXL: 41 og 45 cm. XXXL: 41 og 46 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp að handveg. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 232-247-262-283-307-328 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni – lesið GARÐAPRJÓN að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 15 lykkjur (= kantur að framan sem síðar er brotinn inn tvöfaldur að röngu), prjónið sléttprjón þar til 16 lykkjur eru eftir og fækkið lykkjum jafnframt um 20-19-22-23-27-28 lykkjur jafnt yfir þessar sléttprjónuðu lykkjur, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 15 lykkjur, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= kantur að framan sem síðar er brotinn inn tvöfaldur að röngu) = 212-228-240-260-280-300 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð 61-65-68-73-78-83 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 90-98-104-114-124-134 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar skipta á stykkinu fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni og 15 lykkjur stroff yst í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm og prjóna á næstu umferð frá röngu, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 58-62-64-69-73-78 lykkjur eins og áður (= framstykki ásamt kanti að framan), fellið af næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 84-92-96-106-114-124 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 58-62-64-69-73-78 lykkjur eins og áður (= framstykki ásamt kanti að framan). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 58-62-64-69-73-78 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið sléttprjón fram og til baka með 16 kantlykkjur að framan eins og áður og fellið af lykkjur fyrir handveg í hlið, fellið af í annarri hveri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 2-3-3-3-5-5 sinnum = 52-55-55-58-58-61 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 38-40-41-42-42-42 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar stykkið mælist 42-44-45-46-47-48 cm, fellið af ystu 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með stroff eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-4-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum = 19-22-22-22-22-25 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið stroff síðan með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 58-62-64-69-73-78 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið sléttprjón fram og til baka með 16 kantlykkjur að framan eins og áður og fellið af lykkjur fyrir handveg í hlið, fellið af í annarri hveri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 2-3-3-3-5-5 sinnum = 52-55-55-58-58-61 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 38-40-41-42-42-42 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar stykkið mælist 42-44-45-46-47-48 cm, fellið af ystu 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með stroff eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 4-4-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-4 sinnum = 19-22-22-22-22-25 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið stroff síðan með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af. BAKSTYKKI: = 84-92-96-106-114-124 lykkjur. Byrjið frá réttu, prjónið sléttprjón fram og fellið af lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af í annarri hveri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-4-5-6 sinnum og 1 lykkju 3-4-4-4-6-6 sinnum (það er felld af 1 lykkja fleiri í hvorri hlhið á bakstykki en á framstykki til að stroffið gangi jafnt upp) = 70-76-76-82-82-88 lykkjur í umferð Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 38-40-41-42-42-42 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 30-30-30-36-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með stroff eins og áður og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 19-22-22-22-22-25 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið stroff síðan með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af. ERMAR: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 54-54-60-60-66-75 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 2 þráðum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) í 12-12-12-14-14-14 cm. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= mitt undir ermi), látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4-4-4-4-6-5 lykkjur jafnt yfir = 58-58-64-66-72-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-16-16-18-18-18 cm, aukið út lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 2½-2-2-1½-1½-1½ cm alls 12-14-15-16-16-14 sinnum = 82-86-94-98-104-108 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 46-45-45-44-43-41 cm. Nú á að fækka lykkjum mitt undir ermi og ermakúpan er síðan prjónuð eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Byrjið 3-3-4-4-5-5 lykkjum á undan merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið sléttprjón út umferðina = 76-80-86-90-94-98 lykkjur í umferð. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 6-8-7-6-6-7 sinnum, síðan er felld af 1 lykkja 8-6-9-11-13-13 sinnum = 36-36-40-44-44-44 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18-18-20-22-22-22 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 58-57-58-58-59-58 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermi í við handveg – stillið af þannig að auka efnismagn í ermakúpunni rykkist saman efst ofan á erminni, þannig að ermin passi í handvegi. Brjótið kant að framan saman tvöfaldan inn að röngu og saumið niður – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur og að hnappagötin í hægri kanti að framan liggi ofan á hvoru öðru í gegnum bæði lögin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og 2 þræði. Byrjið frá réttu mitt að framan og prjónið upp ca 96-96-99-111-114-117 lykkjur í kringum hálsmál (yfir kant að framan eru prjónaðar upp lykkjur í gegnum bæði lögin), lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) prjónið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 9-9-9-11-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki og saumið niður. Saumið saman op við miðju að framan í kanti í hálsmáli með smáu spori. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (7)
Anna wrote:
En Provance
20.01.2024 - 23:40Fernanda Kazic wrote:
Lady Rose
20.01.2024 - 22:15Ana wrote:
Madame Tussaud
18.01.2024 - 23:48Noreen wrote:
Quiet Cloister
18.01.2024 - 19:12Dani wrote:
A vintage vacation
18.01.2024 - 16:51Ann-Christine Corneliusson wrote:
Midsommardröm
18.01.2024 - 16:35Pia Charlotte Nicolaisen wrote:
Syren
18.01.2024 - 15:41