Spooky Sunset Socks |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað frá tá og upp í marglitu mynstri með köttum og fleyghæl. Stærð 24-43. Þema: Halloween.
DROPS Children 47-29 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: * Prjónið 2 umferðir í litnum svartur, 1 umferð í litnum appelsína *, prjónið frá *-* þar til stykkið mælist 5-5-5-5 (6-6-7) cm frá uppfitjunarkanti. Síðan er prjónað áfram í litnum svartur. ÚTAUKNING (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hitt prjónamerkið = 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá og upp. TÁ: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum svartur í DROPS Karisma. Skiptið lykkjum niður með 3 lykkjur á hverjum prjóni. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið síðan 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 lykkjur í umferð og 1 prjónamerki á undan síðustu 3 lykkjum. Það eru 6 lykkjur á milli prjónamerkja og umferðin byrjar mitt undir sokknum. Prjónið sléttprjón og RENDUR – lesið útskýringu að ofan. Jafnframt í fyrstu umferð er aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 2-2-2-2 (3-3-4) sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 (5-6-6) sinnum = 36-36-40-40 (44-48-52) lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 4-4-4-4 (5-5-6) cm frá uppfitjunarkanti. Táin er núna tilbúin. Prjónið nú fót eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! FÓTUR: Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 9-11-12-14 (16-17½-18½) cm frá uppfitjunarkanti (það eru eftir ca 6-6-6-6 (6-6½-7½) cm að loka máli. Nú er prjónaður fleyghæll eins og útskýrt er að neðan. FLEYGHÆLL: Byrjun á umferðinni er mitt undir fæti – setjið 1 prjónamerki mitt undir fótinn. Setjið síðan 1 merkiþráð í hvora hlið, þannig að það eru 12-12-14-14 (14-16-16) lykkjur ofan á fæti og 24-24-26-26 (30-32-36) lykkjur undir fæti. Látið prjónamerkið og merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Nú er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum og í litnum svartur, prjónað er yfir 1 lykkju færri í hverri umferð þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið fram að 1. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið fram að 2. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan þar sem snúið var við í stykkinu í fyrri umferð frá réttu, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir á undan þar sem snúið var við í stykkinu í fyrri umferð frá röngu, snúið stykkinu. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til 9-9-9-9 (9-10-11) lykkjur eru eftir sem ekki hefur verið prjónað yfir í annarri hliðinni og 8-8-8-8 (8-9-10) lykkjur í hinni hliðinni á stykki, það eru 7-7-9-9 (13-13-15) lykkjur mitt í umferð – síðasta umferð var prjónuð frá röngu, snúið stykkinu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón að prjónamerki mitt undir fæti. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og prjónaðar eru 2 umferðir hringinn yfir allar lykkjurnar þannig: UMFERÐ 1: Til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni á milli lykkja, prjónið þessa umferð þannig: Prjónið sléttprjón að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá réttu, * notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til prjónað hefur verið fram að 1. merkiþræði (önnur hlið á hæl). Prjónið sléttprjón fram að 2. merkiþræði (ofan á fæti). Nú á að endurtaka frá *-*, en prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju snúið slétt saman, prjónið frá *-* þar til prjónað hefur verið yfir alla staðina þar sem stykkinu var snúið (hin hlið á hæl) og prjónið sléttprjón að miðju undir fæti (prjónamerki). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Færið merkiþræðina þannig að þeir sitji hvoru megin við miðju 6-6-8-8 (12-12-14) lykkjur mitt undir fæti. Nú er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum, prjónað er yfir 1 lykkju fleiri í hverri umferð þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón fram að 1. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið fram að 2. merkiþræði, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið sléttprjón að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá réttu, * notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju slétt saman, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið að þeim stað þar sem stykkinu var snúið í fyrri umferð frá röngu, * notið vinstri prjón og takið upp þráðinn á milli lykkja á hægri og vinstri prjóni (1 ný lykkja), prjónið nýju lykkjuna og næstu lykkju snúið brugðið saman, snúið stykkinu. Endurtakið 3. og 4. umferð þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþráðum í hvorri hlið – síðasta umferð var prjónuð frá röngu, snúið stykkinu. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur – jafnframt er hælnum lokað á sama hátt og áður. Setjið 1 prjónamerki í stykkið og prjónið stroff / legg eins og útskýrt er að neðan. Héðan er nú stykkið mælt! STROFF – LEGGUR: = 36-36-40-40-(44-48-52) lykkjur. Byrjun á umferð er mitt aftan á hæl. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum svartur þar til stykkið mælist 1-1-1-2 (2-2-2) cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð sléttprjón og aukið út 4-4-4-4 (6-7-8) lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 (50-55-60) lykkjur. Prjónið mynsturteikningu A.1 alls 4-4-4-4 (5-5-6) sinnum í kringum stroff / legg – finndu þína stærð í mynsturteikningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið með litnum appelsína. Prjónið þar til stykkið mælist 8-8-8-9 (9-9-9) cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð sléttprjón og jafnið lykkjufjöldann til þannig að það verða 44-44-52-52 (60-60-68) lykkjur í umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Brjótið tánna þannig að það verða 6 lykkjur ofan á fæti og 6 lykkjur undir fæti. Saumið uppfitjunarkantinn saman, notið e.t.v. lykkjuspor og festið þráðinn vel. ÚTSAUMUR: Notið afgang af litnum gulur, saumið út 2 smá spor með flatsaumi fyrir augu á hverjum ketti – sjá mynsturteikningu B |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Åse Westlye wrote:
Dette var en veldig komplisert oppskrift! Jeg har strikket mange sokker, men etter timer med forsøk gir jeg opp denne i frustrasjon! Kom til siste del på kilehel og forstår ikke "snudd forrige gang", og "til det gjenstår 1 maske før merketrådene i hver side" mm. Hvorfor ikke et godt illustrasjonsbilde av kilehælen? Dere har to bilder forfra som ikke er til hjelp.
07.04.2024 - 09:22