DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Chestnut Love Neck Warmer

Prjónað hálsskjól úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum.

DROPS 242-32
DROPS Design: Mynstur me-264
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL

Stykkið mælist ca:
Breidd neðst: 35-36-37 cm.
Lengd frá öxl og niður: 34-36-38 cm.
Lengd frá öxl og upp: 10-11-12 cm.

GARN:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-350 g litur 49, súkkulaði

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1/A.2 með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir/undan A.1/A.2 eins og útskýrt er í uppskrift.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýju lykkjurnar prjónaðar jafnóðum inn í stroffprjón yfir hvorri öxl og sléttprjóni á framstykki/bakstykki.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu á undan og á eftir A.1/A.2 þannig:
Á UNDAN A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn slétt eða brugðið, það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn snúinn slétt eða snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir A.1/A.2 þannig:
Á UNDAN A.1/A.2:
Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið eða snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Á EFTIR A.1/A.2:
Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjóni í lykkjuna og setjið til yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið eða slétt, það á ekki að myndast gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við kaðlana til að forma berustykkið. Síðan eru axlalykkjurnar felldar af. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að loka máli.

HÁLSSKJÓL:
Fitjið upp 128-136-144 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Fyrsta umferð er prjónuð frá hægri öxl að aftan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroffprjón í 10-11-12 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Næsta umferð er prjónuð frá hægri öxl að aftan þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, 22 lykkjur sléttprjón (mitt að framan), A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 5-6-7 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.1, 22 lykkjur sléttprjón (mitt að aftan), A.1 = 166-176-186 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á aðra öxlina, þ.e.a.s. mitt í einingu í stroffprjóni. Prjónamerki er notað aðeins síðar til að mæla frá. Síðan er mynstur prjónað og aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. Lestu báða kaflana áður en þú prjónar áfram.

MYNSTUR:
Haldið áfram með mynstur á sama hátt og útskýrt er að neðan, en þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1. A.2 er endurtekið á hæðina.
Yfir axlalykkjurnar er prjónað stroff (í fyrstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat, síðan heldur stroffið áfram með 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

LASKALÍNA:
Jafnframt í síðustu umferð í A.1 er aukið út fyrir LASKALÍNA á eftir/undan hverri mynstureiningu A.1 – lestu útskýringu að ofan (byrjaðu á að auka út í byrjun á umferð á eftir síðustu mynstureiningu A.1 í umferð – aukið er út um 8 lykkjur í hverri umferð).
Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 15 sinnum í öllum stærðum (ásamt útaukningu hvoru megin við A.1) = 286-296-306 lykkjur. Endið eftir oddatölu í umferð A.2, þannig að snúningur á kaðli sé frá réttu þegar stykkið er núna prjónað fram og til baka. Klippið þráðinn.

SKIPTING FYRIR FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Umferðin sem nú á að prjóna verður að vera á sléttri tölu í umferð í A.2.
Lyftið yfir 3 fyrstu lykkjunum í umferð (2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar. Fellið aðeins laust af næstu 51-56-61 lykkjur yfir öxl, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, A.2, 52 lykkjur sléttprjón, A.2, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni, setjið síðan þessar 92 lykkjur á þráð eða á hjálparprjón fyrir bakstykki, fellið aðeins laust af næstu 51-56-61 lykkjur yfir öxl, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, A.2, 52 lykkjur sléttprjón, A.2, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni = 92 lykkjur í umferð í öllum stærðum fyrir framstykki.

FRAMSTYKKI:
= 92 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og útskýrt er að ofan. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út í stærð M/L og L/XL þannig: Aukið út um 1 lykkju eins og áður á eftir A.2 í byrjun á umferð frá réttu og á undan A.2 í lok umferðar frá réttu = 92-94-94 lykkjur.
Endurtakið útaukningu í stærð L/XL þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir án útaukninga = 92-94-96 lykkjur.
Þegar framstykkið mælist 29-31-33 cm frá prjónamerki á öxl og næsta umferð á að prjóna frá röngu, skiptið yfir á hringprjón 3.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 52-54-56 lykkjur og aukið jafnframt út um 6-8-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.3, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni = 98-102-102 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, A.3, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 14-15-15 sinnum, 2 lykkjur slétt, A.3, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka.
Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í stroffprjóni, aukið út um 14-15-15 lykkjur á milli A.3 mitt að framan með því að auka út allar 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverjum 2 lykkjum brugðið. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat = 112-117-117 lykkjur.
Haldið áfram með stroffprjón þar til stykkið mælist ca 34-36-38 cm frá prjónamerki á öxl (ca 5 cm stroffprjón). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka 92 lykkjur af þræði/hjálparprjóni frá bakstykki á hringprjón 4.
Prjónið á sama hátt og framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt að kaðlaprjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 242-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Ify wrote:

Hei, takk for svar på det siste spm. Har et annet når det gjelder å øke til raglan i A.2 "Fortsett økningen på hver side av A.2 på hver 2.omgang til det er økt totalt 15 ganger i alle størrelser (inkludert økningen på hver side av A.1) = 286-296" - skal det økes 15 ganger totalt? Eller skal jeg telle med omgangene, siden det står at det økes hver 2nd omgang?

25.04.2024 - 12:13

DROPS Design answered:

Hej igen :) det er totalt 15 gange :)

26.04.2024 - 12:05

country flag Ify wrote:

''Sett 1 merke midt på den ene skulderen, dvs midt i det ene vrangbordpartiet. '' Hvilken skulder er det, det refereres til? Eller velger man dette selv? ''Fortsett mønsteret på samme måte som forklart over, men når A.1 er strikket ferdig i høyden, strikkes A.2 over maskene i A.1. A.2 gjentas i høyden'' Hvis mønsteret over skal gjentas, hvordan blir det med kastene? Strikkes det rett eller vrang på kastet man må lage?

27.02.2024 - 12:35

DROPS Design answered:

Hei Ify. Dette er et merke det kun skal måles fra, så da spiller det ingen rolle hvilken skulder det er. Du øker kun første gang på vrangborden og etter det strikkes vrangborden 2 rett / 3 vrang. Det økes kun ved raglan videre. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 11:55

country flag Rokky wrote:

Thank you for replying me no not A1 increases I mean the Reagan 8 increase to 296 and were it said increase 15 time. When will I start to increase. is it in the rib or before A1 thank you

03.02.2024 - 16:14

DROPS Design answered:

Dear Rokky, first you work A.1, the rib stitches (which are for the shoulders) and the stitches in stocking stitch. On the last round of A.1, increase for the raglan as specified, on each side of the A.1 repeats. Then, since you work A.2 over A.1 and A.2 has the exact same number of stitches as the last round of A.1, the raglan increases are worked in the same spot as they were worked in A.1. You need to work the increase 14 times more (the first time was in the last round of A.1, the next 14 times are on the sides of A.2). Happy knitting!

05.02.2024 - 00:08

country flag Rokky wrote:

Hi thank you for your help. you known I am having problems with were to increased it said I should increase at the last A1. Before and after but I can see in the knit2 and purl2 so am confess about were to increased can you help

01.02.2024 - 19:27

DROPS Design answered:

Dear Rocky, do you mean how to increase in A.1? On the first row in A.1 you will work the next 10 sts increasing 7 as follows: P2, YO, K1, YO, K1, YO, P1, YO, P1, YO, K1, YO, K1, YO, P2= there are now 17 sts. On the next round, knit the yarn overs twisted just as shown in A.1. On next round, work A.2 over A.1. Happy knitting!

02.02.2024 - 08:11

country flag Rokky wrote:

Hello I need help with this pattern I knitted 12 cm after I knit2 and purl2 Yarn over 6 knit2 and A1,22 stocking stitch A1 after I had done this row I have 176 stitch on the needle but I was lost when the shoulder be can you help

29.01.2024 - 14:47

DROPS Design answered:

Dear Rocky, work in the larger size as follows: * Knit 2, purl 2, 1 yarn over *, work from *-* a total of 7 times (= over the next 28 sts, there are now 35 sts), knit 2, A.1 (over the next 10 sts, increasing 7 sts, there are now 17 sts), 22 stitches in stocking stitch (mid-front), A.1 (again 10 sts increased to 17 sts), * knit 2, purl 2, 1 yarn over *, work from *-* a total of 7 times (28 sts increased to 35), knit 2, A.1 (10 sts increased to 17), 22 stitches in stocking stitch (mid-back), A.1 (10 sts increased to 17) = 35+2+17+22+17+35+2+17+22+17= 186 sts. Happy knitting!

30.01.2024 - 07:52

country flag Aderonke Uwechue wrote:

Hi after knitted 12 cm what is next how will I separate the front and back and the shoulder

29.01.2024 - 12:35

country flag Carin Ehrs wrote:

Raglanökning: Hur ska jag sticka den ökade raglanmaskan från rätsidan? Ska maskan stickas rät från rätsidan och bli en del av fram- respektive bakstycket? mvh/Carin

10.12.2023 - 08:41

DROPS Design answered:

Hei Carin. Öka 1 maska på varje sida av A.1/A.2 genom att göra 1 omslag om stickan efter/före A.1/A.2 som förklarat i beskrivningen. På nästa varv stickas omslagen vridna som förklarat nedan, sedan stickas de nya maskorna fortlöpande in i resår över varje axel och slätstickning på framstycket/bakstycket. mvh DROPS Design

11.12.2023 - 12:53

country flag Van Doninck Margriet wrote:

Hoe brei ik verder na de halswarmer. Dus het patroon , raglan op de rondbreinaald.

12.11.2023 - 21:14

DROPS Design answered:

Dag Margriet,

Je breit dan verder in patroon en meerdert tegelijkertijd voor de raglan. Daarom moet je beide paragrafen eerst goed doorlezen voordat je verder breit. Je breit dus in patroon en als A.1 klaar is in de hoogte, brei je A.2 boven A.1 en de schoudersteken brei je in boordsteek. Terwijl je dit patroon verder breit meerder je tegelijkertijd voor de RAGLAN, zoals beschreven staat onder de paragraaf RAGLAN.

15.11.2023 - 14:01

country flag Barbara Schmale wrote:

Sorry, ich habe wieder aufgemacht. Wieder eine ihrer Anleitungen mit denen man nicht klar kommt. Das ist wirklich ärgerlich.

29.09.2023 - 22:02

country flag Barbara Schmale wrote:

Nach den ersten 12cm ist dieAnleitung total unverständlich für mich. A1 und A2 sind nicht separat erklärt und ich verstehe das vorne und hinten nicht.

26.09.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schmale, nach den 12 cm sollen Sie Bündchen wie zuvor. + das Diagram A.1 stricken, so wird man für die Zöpfe in A.2 zunehmen; bei der 2. Reihe A.1 nehmen Sie für den Raglan zu; und dann stricken Sie A.2 anstatt A.1 für die Raglanlinien und stricken Sie weiter mit den Raglanzunehmen beidseitig von A.2. Viel Spaß beim stricken!

29.09.2023 - 07:43