DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Know the Ropes

Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, áferðamynstri, ísaumuðum ermum og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-40
DROPS Design: Mynstur w-907
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-700-750-800-900 g litur 17, natur
150-200-200-200-250-250 g litur 48, bensín

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með áferðamynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Það eru prjónaðar rendur og mynstur þannig:
Prjónið fyrstu 8 umferðir í A.1 í litnum natur, prjónið síðustu 4 umferðir í A.1 í litnum bensín. Prjónið svona þar til prjónaða hafa verið alls 6 rendur í litnum bensín. Nú er fram- og bakstykkið prjónað til loka í litnum natur og mynsturteikningu A.2.

RENDUR ERMAR:
Það er prjónað mynstur A.2 með röndum þannig: * 4 umferðir með litnum natur, 4 umferðir með litnum bensín *, prjónið frá *-* 3 sinnum, síðan er prjónað * 8 umferðir með litnum natur, 4 umferðir með litnum bensín *, prjónið frá *-* 3 sinnum. Nú eru ermar prjónaðar til loka í litnum natur og mynsturteikning A.2.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt – nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1/A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið, framstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig.
Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli sem prjónaður er í hring á hringprjóna. Hægt er að brjóta uppá kant í hálsmáli / kraga fyrir miðju og sauma niður ef maður vill.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 125-134-143-155-170-185 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris í litnum bensín.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Skiptið yfir í litinn natur og prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 16 cm frá uppiftjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 38-41-44-50-53-56 lykkjur jafnt yfir = 87-93-99-105-117-129 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fitjuð er upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 89-95-101-107-119-131 lykkjur.
Nú er prjónað eftir mynstrið A.1 með 1 kantlykkju í sléttprjóni í hvorri hlið – sjá RENDUR.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum natur og mynstur A.2 að loknu máli.
Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 83-89-95-101-113-125 lykkjur. Haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-1-3-4 sinnum, 1 lykkja 2-2-3-4-5-7 sinnum = 79-81-85-89-91-95 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Nú eru felldar af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja. Nú eru 24-25-26-28-28-30 lykkjur á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 51-53-54-56-57-59 cm = 79-81-85-89-91-95 lykkjur. Nú eru miðju 19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.

VINSTRI ÖXL:
= 30-31-33-35-36-38 lykkjur.
Prjónið fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli: Prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir að hálsi, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón.
Frá röngu er prjónað áfram með 3 lykkjur sléttprjón að hálsmáli að loka mál.
Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hlið alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 24-25-26-28-28-30 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

HÆGRI ÖXL:
= 30-31-33-35-36-38 lykkjur.
Prjónið fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður út umferðina.
Frá röngu er prjónað áfram með 3 lykkjur sléttprjón að hálsmáli að loka máli.
Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 24-25-26-28-28-30 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

ERMI:
Fitjið upp 65-68-71-74-77-77 lykkjur á hringprjón 4 í litnum bensín. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist ca 16 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu.
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-22-19-22-19-19 lykkjur jafnt yfir = 47-47-53-53-59-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið mynstur A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið RENDUR ERMAR.

Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram!
Þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu með ca 4½-3-3½-2½-3½-2 cm millibili alls 6-8-7-9-6-8 sinnum í hvorri hlið = 59-63-67-71-71-75 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 47-46-46-45-42-40 cm (nú eru eftir ca 4-5-5-6-9-11 cm að loka máli). Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 0-2-2-3-6-8 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni, skiljið eftir 16 cm klauf neðst.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4 og litinn natur, byrjið frá réttu við öxl. Prjónið upp ca 84-99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð á framstykki) – prjónið upp innan við 1 lykkju slétt meðfram hliðum á hálsmáli fram þannig að það verða 2 sýnilegar sléttar lykkjur meðfram kanti í hálsmáli. Prjónið hringinn í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð brugðið. Haldið áfram með stroff eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist alls 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ef maður vill er hægt að brjóta kantinn í hálsmáli inn að miðju og sauma niður með nokkrum sporum að innanverðu á stykkinu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.05.2023
ERMAR: Fitjið upp 65-68-71-74-77-77 lykkjur á hringprjón 4 í litnum bensín. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.11.2023
ERMI:..Prjónið mynstur A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið RENDUR ERMAR.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Eileen Reuben wrote:

For this pattern in a small it does not say how many skins you would need of drops Paris

26.03.2024 - 23:13

DROPS Design answered:

Dear Ellen, DROPS Paris comes in 50 grams skeins, so since the pattern says for size small you need 550 gramms of off-white and 150 gramms of petrol, you will need 11 skeins of off white and 3 skeins of petrol. I hope this helps. Happy Knitting!

27.03.2024 - 10:01

country flag Susanne wrote:

Ich weiß nicht, was ich falsch gemacht habe, aber der Pullover fällt VIEL zu groß aus. Ich habe die Größe xl ( 62cm in der Breite, Rück-Vorderteil, Anschlag 155 Maschen) gewählt, da ich Größe 44/46 trage. Ausserdem habe ich eine dickere Nadel gewählt, wie vorgeschlagen, da meine Maschenprobe statt 17 Maschen 20 Maschen ergab. Nachdem ich das Rückenteil gemessen habe ( im A1 Bereich, nach Abnahme von 50 M.) , waren es 72 cm in der Breite. Also viel zu groß.

10.01.2024 - 17:18

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, die 155 Maschen werden mit Bündchen gestrickt, danach nehmen Sie ab, so daß 105 M übrig sind, dann mit 17 M = 10 cm sind diese 105 Maschen ca 62 cm. Viel Spaß beim stricken!

11.01.2024 - 08:52

country flag Helle wrote:

Hej Jeg kan ikke få striberne så fine som på billede, det bliver meget markant når vrang masken strikkes, hvordan undgår i det

27.08.2023 - 11:11

DROPS Design answered:

Hei Helle. Når man strikker striper og skal strikke vrang, blir vrangmaskene litt markant, men sånn er det også på genseren på bildet. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 07:24

country flag Juliana wrote:

Guten Tag, ich wollte nachfragen, in welchem Muster sollte die Ärmel (Teil mit Streifen) wirklich gestrickt werden. Direkt im Anleitung für Ärmel ist A.1 angegeben, jedoch vorne in Hinweisen zur Anleitung - Streifen Ärmel ist A.2 geschrieben. Für eine Rückmeldung bedanken ich mich voraus.

24.06.2023 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Juliana, Es scheint ein Tippfehler im Muster zu sein. Wir werden uns bei der Designabteilung erkundigen. Grundsätzlich sollte man der Struktur wie am Körper folgen (A.1 für die Streifen und dann A.2 mit natur). Viele Spass zum stricken!

26.07.2023 - 16:41

country flag Janine Grela wrote:

Bonjour, concernant le modèle Know the Ropes, je souhaiterais savoir pourquoi le diagramme est différent pour les manches et les dos devant ? Exemple : devant les rayures sont tricotées dans le même sens que les 4 rangs d'en-dessous et pour les manches les 4 mailles sont intercaleées. Merci pour votre réponse.

23.05.2023 - 08:35

country flag Maria wrote:

Dzień dobry, czy ściągacz rękawa, prawa strona, ma się kończyć oczkiem prawym, trzema oczkami lewymi i oczkiem brzegowym, czy też jest błąd i zamiast 66 oczek należy nabrać 65( rozmiar S)?

26.04.2023 - 11:37

DROPS Design answered:

Witaj Mario, zgadza się, w pozostałych rozmiarach też jest błąd. W twoim rozmiarze powinno być 65 oczek. To oczywiście wpłynie na pozostałe liczby w części RĘKAWY. Korekta już została zgłoszona. Pozdrawiamy!

27.04.2023 - 08:18

country flag MURIEL wrote:

Rebonjour merci de m avoir répondue Je suis désolée je ne comprends pas pourquoi il faut tricoter les trois mailles du rang envers et reprendre a la quatrième mailles. Je pensais que dans tous les diagrammes en aller retour on tricoter tout le rang endroit de gauche a droite et l envers de droite a gauche Cordialement

17.04.2023 - 20:28

DROPS Design answered:

Bonjour Muriel, vous terminez le rang sur l'endroit par les 3 premières mailles du diagramme, donc, sur l'envers, vous devez tricotez d'abord ces 3 mailles, soit vu sur l'envers la 4ème, la 5ème et la 6èm maille de A.1 (= vu sur l'endroit, la 1ère, la 2ème et la 3ème maille de A.1). Bon tricot!

18.04.2023 - 10:04

country flag Muriel wrote:

Bonjour Je suis en train de tricoter le modèle know the ropes et j ai une question Comme il se tricote en aller retour on tricote les rangs pairs de droite à gauche et les rangs impairs de gauche à droite. Seulement pour obtenir le dessin correspondant au tricot il faut tricoter tous les rangs de droite à gauche comment ça se fait svp? Merci

16.04.2023 - 14:27

DROPS Design answered:

Bonjour Muriel, quand on lit les diagrammes en allers et retours, on lit les rangs sur l'endroit de droite à gauche et les rangs sur l'envers de gauche à droite. Vous allez tricoter 14-15-16-17-19-21 fois les 6 mailles de A.1 + les 3 premières mailles (le motif est ainsi symétrique), autrement dit, sur l'envers, vous commencez à lire par la 4ème maille à partir de la gauche (pour tricoter les 3 dernières mailles, vu sur l'envers), puis répétez A.1 en lisant les 6 m de gauche à droite. Bon tricot!

17.04.2023 - 09:40