Climbing Rose Cardigan |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni og með v-hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-6 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Hnappagöt eru prjónuð í hægri kanti að framan, með byrjun frá réttu þannig: Prjónið sjöttu og sjöundu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 8, 16 og 24 cm. S: 8, 16 og 25 cm. M: 8, 17 og 26 cm. L: 7, 14, 21 og 28 cm. XL: 7, 14, 21 og 28 cm. XXL: 7, 15, 23 og 30 cm. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið 13 kantlykkjur að framan, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið þar til 16 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 13 kantlykkjur að framan eins og áður. ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp í stykkjum og saumuð saman í lokin. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 80-88-92-100-108-120 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað fram og til baka í stroffprjóni þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-14-14-16-18-22 lykkjur jafnt yfir = 68-74-78-84-90-98 lykkjur. Síðan er prjónað í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-68-70-72-76-80 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 12-14-14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-24-26-28 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff, frá réttu og mitt að framan: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm, JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 12 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-42-46-50-54-58 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 5-6-8-9-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 47-50-52-55-58-62 lykkjur. Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir 12 kantlykkjur að framan, sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni í hlið – munið eftir HNAPPAGAT. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, er fellt af fyrir handveg, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í öðrum hverjum cm alls 10-11-11-12-12-12 sinnum – lestu ÚRTAKA. HANDVEGUR. Jafnframt því þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá röngu. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 35-36-37-37-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 22-23-24-24-26-28 lykkjur fyrir öxl og prjónað er áfram yfir kant að framan eins og áður í ca 8-9-9-10-10-10 cm. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff, frá réttu og frá hlið: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 38-42-46-50-54-58 lykkjur, JAFNFRAMT því sem fækkað er um 5-6-8-9-10-10 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur, 1 lykkja í garðaprjóni = 47-50-52-55-58-62 lykkjur. Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni í hlið, sléttprjóni og (2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt) yfir 12 kantlykkjur að framan og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli, fellið af fyrir handveg, lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í öðrum hverjum cm alls 10-11-11-12-12-12 sinnum – lestu ÚRTAKA. HANDVEGUR. Jafnframt því þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm, fellið af 2-3-4-6-7-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 35-36-37-37-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 22-23-24-24-26-28 lykkjur fyrir öxl og prjónað er áfram yfir kant að framan eins og áður í ca 8-9-9-10-10-10 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma þannig að saumurinn verði flatur og fallegur. ERMI: Notið hringprjón 6 og DROPS Melody. Prjónið upp frá réttu 50-53-56-59-62-64 lykkjur – með byrjun frá botni á handveg. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – ermin er mæld frá þessu prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-4-5-6 cm frá prjónamerki. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 6 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Byrjið umferðina við prjónamerkið og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 4-3-3-1-1-1 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4½-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 7-8-8-9-10-10 sinnum = 36-37-40-41-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43 cm frá prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-11-12-11-14-12 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 51 cm frá prjónamerki. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauminn innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (21)
Gunvor wrote:
Det skulle vara jättebra om ni kunde ange de färdiga måtten på kläderna. Åtminstone bystmått
24.04.2024 - 13:37Veerle wrote:
Beste, de panden worden van onder naar boven gebreid en de mouwen van boven naar onder? Dit geeft toch een ander beeld van het stekenpatroon ? Is dit de bedoeling ?Veerle
17.04.2024 - 14:45DROPS Design answered:
Dag Veerle,
Nee hoor, je kunt gewoon tricotsteek van boven naar onder breien, dat ziet er hetzelfde uit als wanneer je tricotsteek van onder naar boven breit.
17.04.2024 - 21:49Veerle wrote:
Beste, de panden worden van onder naar boven gebreid en de mouwen van boven naar onder? Dit geeft toch een ander beeld van het stekenpatroon ? Is dit de bedoeling ?\r\nVeerle
31.03.2024 - 16:50Kitter wrote:
DROPS Design answered: Hej, Du strikker masker op der fra hvor du lukkede masker af til ærmegab og strikker frem og tilbage de første 1-1-2-4-5-6 cm (alt efter hvilken størrelse du strikker) :) spørgsmål: Vil det så sige at de 6 masker jeg lukkede af til ærmegab skal være med i de masker jeg strikker op❓(undskyld at jeg åbenbart både skal have det skåret ud i pap og ind med skeer)
16.01.2024 - 15:47DROPS Design answered:
Hej Kitter, nej, de 6 masker du lukkede af til ærmegab, skal du ikke strikke op i, dem syr du de første cm af ærmet fast i bagefter :)
17.01.2024 - 13:12Kitter wrote:
Når jeg tager masker op til ærmer, skal jeg så tage op helt ude fra aflukningen til ærmegab, eller skal det være indenfor❓
15.01.2024 - 14:31DROPS Design answered:
Hej, Du strikker masker op der fra hvor du lukkede masker af til ærmegab og strikker frem og tilbage de første 1-1-2-4-5-6 cm (alt efter hvilken størrelse du strikker) :)
16.01.2024 - 14:27Marjorie wrote:
How do i convert patern from circular knitting needles to straight one's
02.09.2023 - 08:43DROPS Design answered:
Dear Marjorie, you can read here how to adapt a pattern for straight needles: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=19. Happy knitting!
03.09.2023 - 20:15Catherine Randall wrote:
On the climbing rose cardigan, I have started the sleeves, I am at the point of knitting in a round, but am not sure if i need to purl or knit, I am on the wrong side? can you please help?
08.07.2023 - 19:44DROPS Design answered:
Dear Catherine, after joining the sleeves you will be working in the round, which is usually the right side unless otherwise stated. Since you work in stocking stitch you will knit all rounds. Happy knitting!
10.07.2023 - 17:05Catherine Randall wrote:
I am sorry but I do not understand on the climbing rose cardigan, to knit the sleeves it says pick up 56 stitches from the right side from the bottom of the armhole, I have lots more stitches than that? could u explain what I need to do please?
28.06.2023 - 15:31DROPS Design answered:
Dear Mrs Randall, from the bottom of armhole through the seam until the bottom of armhole on the other side you should have 40 cm (size L), with a tension of 14 sts = 10 cm, you should have then 40 x 1,4 = 56 stitches along the armhole. In this video we show how to pick up stitches, it might help you. If you have some more stitches you can also decrease on first row (purling 2 stitches together evenly spaced). Happy knitting!
28.06.2023 - 16:29RIVET Danielle wrote:
Bonjour, Dans le modèle DROPS 240-6 Climbing rose cardigan , vous mentionnez "1 côte mousse = tricoter 2 rangs endroit" Je ne comprends pas bien, est-ce que cela veut dire qu'il faut toujours commencer et terminer les rangs par une maille endroit ?? Merci pour votre réponse
07.05.2023 - 15:15DROPS Design answered:
Bonjour Mme Rivet, pour tricoter au point mousse, il faut tricoter à l'endroit tous les rangs; lorsque vous tricotez 1 maille lisière au point mousse, vous tricotez cette maille à l'endroit tous les rangs (sur l'endroit et sur l'envers). Dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter 1 m lisière au point mousse de chaque côté. Bon tricot!
08.05.2023 - 08:12Thérèse wrote:
Je ne comprends pas pourquoi vous dites de coudre a contre A puisque les mailles des manches ont été relevées, normalement il n'y a pas de couture à cet endroit ? ? Ou alors je n'ai pas compris quelque chose ..? Merci d'avance de votre réponse
15.04.2023 - 14:13DROPS Design answered:
Bonjour Thérèse, vous avez raison, le schéma doit être changer ici, la partie A et a correspondent aux mailles relevées, vous n'avez que la partie B à assembler contre b (les 1-1-2-4-5-6 premiers cm de la manche tricotés en rangs). Bon tricot!
17.04.2023 - 08:58