Tweed Casual |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli og tvöföldum kanti að framan. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-38 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. HNAPPAGAT: Hnappagöt eru prjónuð, með byrjun frá réttu, þannig: Prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 8 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 8 lykkjur (síðasta umferðin er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn. Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 8 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan. Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist: XS: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. S: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. M: 6, 13, 21, 29 og 37 cm. L: 6, 14, 22, 30 og 38 cm. XL: 6, 15, 23, 31 og 39 cm. XXL: 6, 15, 24, 32 og 40 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið og bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp það sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram framstykkjum og prjónaður er tvöfaldur kantur að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-224-240-264-280 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt (frá réttu) og fækkað er um 30-34-38-38-46-46 lykkjur jafnt yfir = 162-174-186-202-218-234 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki 41-44-47-51-55-59 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 80-86-92-100-108-116 lykkjur á bakstykki á milli prjónamerkja). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT þegar lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli eru lykkjur felldar af fyrir handvegi og hvort stykki er síðan prjónað til loka fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: HANDVEGUR: Í byrjun á næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: HANDVEGUR: Í lok næstu umferðar frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. BAKSTYKKI: = 76-80-84-92-100-106 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur í hvorri hlið á stykki, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 74-78-82-86-90-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli (28-30-31-33-34-37 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 27-29-30-32-33-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-10-10-10-8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2-2 cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-46-43-42-42 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2-3-4-4-4-5 lykkjum á undan prjónamerki, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 56-58-60-62-66-66 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu þannig: Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 9-9-10-5-4-4 lykkjur í byrjun á hverri umferð alls 2-2-2-5-6-6 sinnum = 20-22-20-12-18-18 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 1½ til 2 metra inn á þráðinn og notið þráðar endann til að prjóna upp lykkjur (með þessu er hægt að prjóna áfram með dokkuna án þess að þurfa að klippa þráðinn frá í lokin) þannig: Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og 1 þráð í hvorri tegund. Nú er haldið áfram með stykki í þeim enda á umferð sem dokkan er í = neðst á framstykki. Fitjið upp 16 lykkjur fyrir kant að framan eins og viðbót við lykkjur sem teknar voru upp neðst á framstykki (uppfitjun á lykkjum er gerð frá röngu). Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 16 lykkjur samtímis sem kanturinn að framan er prjónaður saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkjunni á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu / næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 16 kantlykkjur að framan, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar allar lykkjur af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið kant í hálsmáli að aftan. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Lyftið yfir fyrstu / næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 8-8-9-9-10-10 cm. Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og síðan er fellt af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Byrjað er að taka upp lykkjur efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og 1 þráði í hvorri tegund. Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp eru fitjaðar upp 16 lykkjur fyrir kant að framan (= neðst á framstykki). Nú er kantur að framan prjónaður yfir 16 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan er prjónaður kantur í hálsmáli að aftan. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Nú eru prjónaðar 16 kantlykkjur að framan þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur. Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 8-8-9-9-10-10 cm. Í síðustu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Síðan eru lykkjur felldar af. FRÁGANGUR. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við kant í hálsmáli á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Lise Renaud wrote:
Bonjour, j\'ai reçu de la laine Mérino en cadeau et j\'amerais faire le Tweed en avec aiguille numéro 3. Le calcul en large de votre patron 240 mailles devient 325 mailles, mais je suis incertaine du résultat, pouvez-vous m\'aider\r\nMerci\r\nLise Renaud
04.04.2024 - 17:11DROPS Design answered:
Bonjour Mme Renaud, vous n'auriez pas le bon échantillon et il vous faudrait alors tout recalculer, retrouvez ici tous les modèles de gilets et de vestes que vous pouvez tricoter en Muskat (utilisez le convertisseur si besoin), avec 1 seul fil. Bon tricot!
05.04.2024 - 08:03Sigonneau wrote:
Existe-t-il une version en Français S.V.P.\r\nmerci de la mettre accessibl à toutes.
27.03.2024 - 09:51Luse wrote:
Bonjour, j’en suis à faire les diminutions pour l’encolure. Si je comprends bien, je dois faire sur le premier rang endroit le diagramme A.1. Faire ensuite mon rang envers et sur le rang endroit suivant faire A.2 au début du rang et A.3 à la fin. Je recommence ensuite au 4e rang le diagramme A.1 ?
28.02.2024 - 20:11DROPS Design answered:
Bonjour Luse, pas exactement, on diminue d'abord 4 fois 2 mailles = on va alors diminuer comme indiqué par le diagramme A.1 (devant gauche et devant droit) tous les 4 rangs (on tricote 2 rangs sans diminuer après A.1), puis on va diminuer 1 maille comme indiqué par les diagrammes A.2 (devant droit)/A.3 (devant gauche) tous les 4 rangs. Les diminutions se font sur l'endroit au 1er rang, dans A.2 et A.3 on fait 1 jeté pour diminuer comme dans A.1 mais en diminuant 1 seule maille. Bon tricot!
29.02.2024 - 08:00Susi wrote:
Kann ich die Maschen für die Ärmel auch direkt anstricken, um das lästige und unschöne Zusammen nähen zu vermeiden? Wie gehe ich dabei vor ?
31.10.2023 - 11:42DROPS Design answered:
Liebe Susi, hier würde ich lieber die Ärmel auch genauso wie in der Anleitung stricken, sonnst sollen Sie die Armkugel komplett umrechnen/anpassen. Viel Spaß beim stricken!
31.10.2023 - 16:14Elaine wrote:
I do not understand any of the instructions for the button band. Is there a video somewhere which would explain this? Thank you.
16.09.2023 - 01:18DROPS Design answered:
Dear Elaine, you can see a video on this kind of button band here: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1728&lang=en. Happy knitting!
17.09.2023 - 21:39Mary McLeod wrote:
Thank you Drops. I wasn't implying that the pattern was wrong, but what I have before me is. The circumference of the sleeve top is 29cm and I am knitting the medium size. The circumference of the arm hole is 52cm. The body is fine, but the whole sleeve is very tight. Could it be that I am knitting tightly by using DPKN ? Should I try again with circular needles? Or do you have another solution?
20.08.2023 - 22:59DROPS Design answered:
Dear McLeod, make sure to check and keep the same tension as for the body, this means you should also get 16 sts = 10 cm, use larger needle if you have more than 16 sts for 10 cm. And yes it can happen that the tension differ when working in the round. It's very important to keep the correct measurements. Happy knitting!
21.08.2023 - 09:23Mary McLeod wrote:
I have followed the pattern carefully but find that the hole for the sleeve, in the body of the work, is at least twice the size of the top of the sleeve. There is no earthly way to make it fit. Can anyone advise what I should do?
19.08.2023 - 19:57DROPS Design answered:
Dear Mary, the pattern is correct. For the smallest size, the circunference of the top of the sleeve should measure 38cm and match the armhole. Could you indicate which size you are working and the measurements of the armhole and the top of the sleeve? Happy knitting!
20.08.2023 - 18:43Kerstin Pilblad wrote:
Såg inte på Drops foto när jag beställde garnet att 237-38 har ett strukturmönster. Kan jag strunta i strukturmönstret och sticka slätstickning med samma maskantal istället?
03.08.2023 - 13:04DROPS Design answered:
Hej Kerstin, den är slätstickat, det är minskningen du stickar enligt diagrammet :)
07.08.2023 - 15:50Raffaella wrote:
Buongiorno. Vorrei sapere se il Soft Tweed è un filato che "punge" in quanto alcune lane mi irritano la pelle. Inoltre se sostituissi il Soft Tweed col il Baby Merino, quanti gomitoli in più dovrei prendere per fare una taglia L? Ho bisogno di un Vs. riscontro in quanto non ho rivenditori Drops qui vicino e l'ordine dei filati lo farò online sul Vs. sito. Abito a Venezia. Grazie.
18.05.2023 - 09:31DROPS Design answered:
Buonasera Raffaella, la reazione dei filati sulla pelle è assolutamente soggettiva, per cui non possiamo darle una risposta obiettiva. Per quanto riguarda la sostituzione di filato, Baby Merino appartiene al gruppo filati A, ed è più sottile rispetto a Soft Tweed che appartiene al gruppo B; va anche considerato il filato Kid-Silk. Buon lavoro!
18.05.2023 - 21:34Ute wrote:
Warum wird die Blende am Hals angenäht und nicht genauso angestrickt wie am Vorderteil?
19.04.2023 - 17:51DROPS Design answered:
Liebe Ute, die Blende wird, wie üblich bei solchen Modellen, wie in diesem Video gestrickt und dann zusammengenäht. Viel Spaß beim stricken!
20.04.2023 - 09:50