Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu | |
= brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu | |
= lykkja með prjónamerki (á við um ermar) |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Icing on the Cake |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Alaska með áferðamynstri og perluprjóni. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 44-13 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið A.1 í 2-3-3-3-4-4 cm. Síðan A.2 (= 7 cm á hæð). Prjónið síðan A.1 í 5-7-9-9-10-13 cm. Prjónið síðan þannig: STÆRÐ 2 og 3/4 ára: Prjónið A.3. STÆRÐ 5/6, 7/8, 9/10 og 11/12 ára: Prjónið A.4. Jafnframt skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki – eins og útskýrt er í uppskrift undir FRAM- OG BAKSTYKKI. Eftir skiptinguna er prjónað A.3/A.4 til loka. Stykkið mælist nú ca 32-35-43-43-46-49 cm. Prjónið síðan A.1 að loknu máli (ca 4-5-5-5-6-6 cm) jafnframt er fellt af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR ERMI: Staðsetjið 1 mynstureiningu mitt á ermi. Prjónið A.1 i 3-3-3-3-5-5 cm. Síðan A.2 (= 7 cm á hæðina). Prjónið síðan A.1 í 7-11-14-17-20-24 cm. Prjónið síðan A.2 að loknu máli (ca 7 cm). ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokka-prjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 124-132-140-152-160-168 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Alaska. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-4-4-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20-20-20-24-24-24 lykkjur jafn yfir = 104-112-120-128-136-144 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34-36 cm, skiptist stykkið fyrir handveg þannig: Haldið eftir fyrstu 52-56-60-64-68-72 lykkjum á prjóni, setjið þær 52-56-60-64-68-72 lykkjur sem eftir eru á þráð eða hjálparprjón. Framstykkið/bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram með MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34-38-41-45-48-51 cm, fellið af miðju 20-22-24-24-24-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 1 lykkju alls 2 sinnum = 14-15-16-18-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 52-56-60-64-68-72 lykkjur. Haldið áfram með MYNSTUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI. Þegar stykkið mælist 32-36-39-43-46-49 cm, setjið miðju 12-14-16-16-16-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur alls 2 sinnum og 1 lykkju alls 2 sinnum = 14-15-16-18-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins. ERMAR: Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 lykkjur á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Alaska. Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 5-5-7-7-7-7 lykkjur jafnt yfir = 33-35-35-37-39-41 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar auka á út. Að auki er sett 1 prjónamerki í miðjulykkjuna í umferð. Prjónið MYNSTUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan – lykkja með prjónamerki á að passa við lykkju merkta í mynsturteikningu – teljið út frá þessari lykkju hvar mynstrið byrjar mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 7-7-8-7-7-7 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-3-3-3½-3½-3½ cm millibil alls 8-8-9-10-11-12 sinnum = 49-51-53-57-61-65 lykkjur. Þegar ermin mælist 28-32-35-40-44-48 cm prjónið 1 umferð slétt. Fellið af í næstu umferð. Prjónið hina ermina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki í ystu lykkju þannig að saumurinn verði ekki þykkur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 64 til 82 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3,5 (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) í 6-6-7-7-8-8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið uppá kant í hálsmáli að röngu og saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að hálsmálið dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6937 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (16)
Malgorzata wrote:
Oczko z markerem to jest oczko oznaczone w schematach – odliczać od tego oczka, aby ustalić gdzie zaczynać pod rękawem co to znaczy
25.04.2024 - 09:50DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, oczko na środku na górze rękawa powinno być to oczko, które jest zaznaczone trójkącikiem na schemacie. Z tego wynika, że od tego oczka schematu również zaczynamy okrążenie (środek pod rękawem). Skorygowałam opis, aby to było bardziej zrozumiałe. Pozdrawiamy!
26.04.2024 - 08:38Malgorzata wrote:
A i nie jest pokazane jak wszyc rekaw robiony na okraglo
23.04.2024 - 10:37DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, do wszycia rękawa możesz użyć techniki dostępnej TUTAJ. Pomocne będzie również następujące video PATRZ TUTAJPozdrawiamy!
24.04.2024 - 09:06Malgorzata wrote:
A czemu nie ma filmiku jak zamykac oczka na dekold z moich doswiadczen wiem ze lewe ramie zamykamy na lewej stronie a prawe na prawej ale tutaj nic nie pisze
23.04.2024 - 10:34DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, rzeczywiście nie ma takiego filmiku. Zgłosiłam takie zapotrzebowanie. Pozdrawiamy!
23.04.2024 - 14:23Malgorzata wrote:
Czy te 22 cm do podzielenia robotki liczymy lacznie ze sciagaczem czy od poczatku sciegu fantazyjnego
21.04.2024 - 18:14DROPS Design answered:
Witaj Małgosiu, liczymy to włącznie ze ściągaczem. Oczywiście na tym etapie możesz dopasować długość sweterka do swoich potrzeb. Pozdrawiamy!
21.04.2024 - 20:17Betty wrote:
How can I translate this pattern to English please . Thank you
17.02.2024 - 10:26DROPS Design answered:
Dear Betty, click on the scroll down menu below pictures to edit language and get the pattern in English. Happy knitting!
19.02.2024 - 15:39Dorthe Lacoppidan wrote:
Opskrift Icing on the cake model x-039-bn I str 11/12 skal man bruge 2 nøgler mere Det er rigtig dyrt i porto ( først bestilte jeg 50g mere og i dag 50g mere) rigtig surt I str 5/6 passer garnmængden
07.11.2023 - 15:02Susi wrote:
Gibt es ähnliche Anleitungen für Kinder Strukturpullover oder mit Zopfmuster auch Topdown ohne Naht ?
26.10.2023 - 15:11DROPS Design answered:
Liebe Susi, hier finden Sie alle unsere Modellen für Pullover von oben nach unten gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
27.10.2023 - 08:17Carmen Delia Van Bockel wrote:
Gracias por la respuesta sin embargo me permito insistir porque al apattar 68 puntos no " cuadra" con el modelo. Es decir que el Me permito sugerir que una pequeña aclaración suplementaria facilitaría la comprensión ... muchas gracias.
09.10.2023 - 09:45Carmen Van Bockel wrote:
Llegué a la separación de espalda/frente. Los puntos están separados y recogidos en en un hilo. La otra mitad de puntos en la aguja. Y ahora no sé seguir como dice el tutorial: en ida y vuelta. No sé cómo hacer para poder seguir con el dibujo...por cierto: precioso. Gracias
05.10.2023 - 10:22DROPS Design answered:
Hola Carmen, trabajas sobre los puntos en la aguja,y dejas los puntos del hilo en espera. El dibujo se continúa como se indica en PATRÓN CUERPO. Ten en cuenta a la hora de trabajar el diagrama que ahora vas a tener que leer las filas de forma diferente por el lado derecho y por el lado revés.
09.10.2023 - 00:44Linda Mccoy wrote:
Hi I am doing drops Icing on the Cake.do u have a video for centering the pattern for sleeves on this particular design. I have read the lesson for this but I still do not understand.
12.06.2023 - 20:46DROPS Design answered:
Dear Mrs Mccoy, we only have the lesson explaining how to center a diagram; on the sleeve, the stitch with the black triangle in A.1/A.2 should be the one with the marker on top of sleeve; then count backwards to get the beg of the repeat (3 sts before the stitch with the marker), then count 8 sts towards the right for each new repeat until you reach the beg of the round, count the number of sts remaining between the last repeat and the beg of the round and start the round with this number of stitches, let's say there are 3 sts then you will start the round with the last 3 stitches of the round, then repeat the diagram to the end of the round. Happy knitting!
13.06.2023 - 08:18