Toby the Dog |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður leikfangahundur / hundur fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Leikföng.
DROPS Baby 43-23 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A. Mynsturteikning A.1 sýnir hvernig stykkið lítur út og hvar á að sauma. Mynsturteikning A sýnir hvernig á að sauma franskan hnút. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HUNDUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá höfði og að fótum, á sokkaprjóna – skipt er yfir á hringprjón eftir þörf. Stykkið er fyllt með vatti og saumað saman. Andlitið er saumað út og að lokum er rófan prjónuð og saumuð saman. Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. HÖFUÐ OG EYRU: Fitjið upp 18 lykkjur á 1 sokkaprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine í litnum ljós beige. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Í næstu umferð eru eyrun prjónuð þannig: Prjónið 6 lykkjur slétt, fitjið upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn. FYRRA EYRA: Snúið stykkinu. Nú er prjónað fram og til baka einungis yfir ystu 8 lykkjur í umferð – þær lykkjur sem eru eftir eru látnar hvíla á prjóni – ekki klippa þráðinn frá, það á að nota hann aftur eftir að fyrra eyrað hefur verið prjónað til loka. Skiptið yfir í litinn ryð og prjónið þannig: Prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir 8 lykkjurnar. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið slétt. Prjónið umferð 1-4 alls 3 sinnum = 14 lykkjur. Prjónið 8 umferðir garðaprjón. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið slétt. Prjónið umferð 5-6 alls 3 sinnum = 8 lykkjur. Eyrað mælist ca 6½ cm, látið þráðinn vera ca 20 cm langan áður en hann er klipptur og þræðið í gegnum 8 lykkjurnar. Brjótið eyrað að þér. Notið þráðinn í ljós beig til að fitja upp 4 nýjar lykkjur á prjóni sem eru með 2 lykkjur í litnum ljós beige. Prjónið yfir næstu 6 lykkjur frá vinstra prjóni (höfuð) með litnum ljós beige, nú eru eftir 6 lykkjur á vinstra prjóni. Ekki klippa þráðinn frá, en skipti yfir í litinn ryð og fitjið upp 4 nýjar lykkjur á hægri prjón, prjónið næstu 4 lykkjur á vinstra prjóni – nú eru 2 lykkjur eftir sem hvíla á vinstri prjóni. Snúið og prjónið einungis yfir síðustu 8 lykkjur í litnum ryð alveg eins og fyrra eyra til að gera seinna eyra. Nú er seinna eyrað tilbúið og prjónið þannig: Brjótið eyrað að þér, notið þráðinn með litnum ljós beige til að fitja upp 4 nýjar lykkjur á prjóninn með 12 lykkjur í litnum ljós beige (hægri prjónn). Prjónið síðan 2 síðustu lykkjur á vinstra prjóni. Nú eru 18 lykkjur í litnum ljós beige á prjóni og höfuðið er nú prjónað héðan. HÖFUÐ: Nú er aukið út fyrir nef þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur slétt = 20 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón. UMFERÐ 2: Prjónið 8 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn snúinn slétt þannig að ekki myndist gat, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn snúinn slétt, 8 lykkjur slétt = 22 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið 9 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn snúinn slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn snúinn slétt, prjónið 9 lykkjur slétt = 24 lykkjur. UMFERÐ 4-13: Prjónið eins og 3. umferð (aukið er út hvoru megin við miðju 2 lykkjur) þar til 44 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið garðaprjón þar til höfuðið mælist ca 6½ cm frá uppfitjunarkanti – mælt í hlið á stykki. HÁLS: UMFERÐ 1: Prjónið 11 lykkjur slétt, fellið af 22 lykkjur fyrir nef, prjónið 11 lykkjur slétt = 22 lykkjur í umferð. UMFERÐ 2: Prjónið 22 lykkjur slétt. BÚKUR: UMFERÐ 1: Prjónið 22 lykkjur slétt og fitjið upp 22 lykkju í lok umferðar = 44 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið 44 lykkjur slétt og fitjið upp 22 lykkjur í lok umferðar = 66 lykkjur. Prjónið nú rendur þannig: * 6 umferðir garðaprjón með litnum ljós beige, 2 umferðir garðaprjón með litnum natur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum. Prjónið garðaprjón í litnum ljós beige þar til búkurinn mælist ca 7 cm frá þar sem 22 lykkjurnar voru fitjaðar upp á baki. Setjið fyrstu 33 lykkjur á sokkaprjóna 3. Brjótið stykkið saman tvöfalt þannig að prjónarnir liggi á hvorum öðrum og búkurinn er brotinn saman. Í næstu umferð eru lykkjur frá fremri og aftari prjóni prjónaðar slétt saman þannig: Prjónið 1. Lykkju frá fremri prjóni slétt saman með 1. lykkju frá aftari prjóni, haldið svona áfram þar til allar lykkjur hafa verið prjónaðar saman = 33 lykkjur. Nú er prjónuð 1 umferð þar sem lykkjur eru felldar af fyrir fætur þannig: Prjónið 6 lykkjur slétt, fellið af 3 lykkjur, prjónið 6 lykkjur slétt, fellið af 3 lykkjur, prjónið 6 lykkjur slétt, fellið af 3 lykkjur og prjónið 6 lykkjur slétt. FÓTUR: Nú er búið að skipta stykkinu upp fyrir 4 fætur, það eru 6 lykkjur fyrir hvern fót. Skiptið yfir í litinn ljós brúnn og prjónið hvern fót þannig: Fitjið upp 6 lykkjur á 1 sokkaprjón 3 og prjónið fyrstu 6 lykkjur frá búknum slétt, snúið stykkinu. Prjónið nú fram og til baka yfir þessar 12 lykkjur þannig: Prjónið 6 umferðir garðaprjón. FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 lykkjur slétt = 14 lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt). Prjónið 8 umferðir garðaprjón. FYRRI ÚRTAKA: Prjónið 1 lykju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og prjónið 4 lykkjur slétt = 12 lykkjur. Snúið stykkinu, prjónið sléttar lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. ÖNNUR ÚRTAKA: Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt = 10 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið sléttar lykkjur til baka. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fóturinn mælist ca 5½ cm, látið þráðinn vera ca 20 langan áður en klippt er frá. Þræðið í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið á þræði. Prjónið hina 3 fæturna á sama hátt. RÓFA: Prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 ystu lykkjum í annarri hlið á búk frá réttu, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 ystu lykkjum í hinni hliðinni á búknum = 10 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið alls 12 umferðir garðaprjón. Látið endann vera ca 20 cm áður en klippt er frá. Þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið. Saumið rófuna saman meðfram hlið í ystu lykkjuboga í ysta garðaprjón – sjá kross í mynsturteikningu A.1 og saumið síðan í stefnu sem örin vísar. AUGA: Það á að sauma út 1 auga í hvora hlið á höfði. Notið litinn svartur og saumið út franskan hnút – sjá mynsturteikningu A og mynd af hundi. FRÁGANGUR: Saumið saum á neðri hlið á hundi/nefi – sjá svarta stjörnu í mynsturteikningu A.1 og saumið í átt sem örin sýnir. Saumið saman uppfitjunarkant á toppi á höfði – sjá hvíta stjörnu i mynsturteikningu A.1 og saumið í átt sem örin sýnir. Fyllið með vatti jafnóðum og saumið síðan meðfram bakhlið á höfði og yfir bak fram að rófu. Brjótið eyrað tvöfalt inn að höfði, notið þráðinn í enda á eyra til að sauma eyrað saman í ystu lykkjubogana neðan frá og upp – eyrun eru ekki fyllt með vatti. Saumið lykkjur niður sem fitjaðar voru upp í byrjun á eyra að innanverðu á eyra. Endurtakið á hinu eyranu. Saumið búkinn saman mitt frá rófu og niður að fæti – sjá ferning í mynsturteikningu A.1 og saumið í átt sem örin sýnir. Brjótið fótinn tvöfaldan, notið þráðinn í enda á fæti til að sauma fótinn í ystu lykkjubogana neðan frá og upp – fyllið fótinn með vatti jafnóðum. Saumið lykkjur sem fitjaðar voru upp í byrjun á fæti við lykkjur sem fóturinn byrjaði með. Endurtakið á hinum fótunum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |