DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue Pine Shore

Prjónaður toppur úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-26
DROPS Design: Mynstur w-835
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-450-450-500 g litur 62, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Í fyrsta skipti sem aukið er út, er prjónað þannig: Prjónið þar til 2-5-2-6-5-4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4-10-4-12-10-8 lykkjur brugðið (prjónamerkið situr mitt í þessum 4-10-4-12-10-8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki. Endurtakið við hitt prjónamerkið = 4 lykkjur fleiri í umferð.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið.
Í hvert skipti sem lykkjur eru auknar út á hæðina, prjónið 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 1 lykkju fleiri hvoru megin við prjónamerkin), þannig að uppslátturinn er alltaf gerður slétt á eftir gataumferðina á undan prjónamerki og strax eftir gataumferðina á eftir prjónamerki. Með þessu verður útaukningin eins lítið sýnileg og hægt er í hvorri hlið.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið 2 lykkjur brugðið saman.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 KANTLYKKJUM Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 3 kantlykkjum og prjónið þessar 2 lykkjur snúnar brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka.
Stykkið er saumað saman á öxlum. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132-144-162-178-204-230 lykkjur á hringprjón 4 með Paris – passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-2-3-3-3 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 66-72-81-89-102-115 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 0-3-0-4-3-2 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 60-60-75-75-90-105 lykkjur (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar með 15 lykkjum), prjónið A.2 (= 6 lykkjur), prjónið 0-3-0-4-3-2 lykkjur brugðið, prjónamerki *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5-5-6-6-7-7 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 148-160-178-194-220-246 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – stillið af að næsta umferð sé jöfn umferð í A.1 (þetta er mikilvægt til að koma í veg fyrir að snúa kaðlinum frá röngu þegar stykkið skiptist fyrir bakstykki og framstykki).
Prjónið nú 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 12-12-14-14-16-18 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 6-6-7-7-8-9 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Eftir 4 umferðir í garðaprjóni, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 3-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 3-3-4-4-5-6 lykkjur eru eftir í umferð og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-6 lykkjurnar fyrir handveg. Klippið þráðinn frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.
Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-74-81-89-100-111 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-6-8-10-14-17 sinnum í hvorri hlið og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið = 54-56-59-63-68-73 lykkjur eftir.
Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fækkið um 4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur = 50-52-55-57-62-67 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-27-29-30-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 10-11-12-12-14-16 lykkjur eftir.
Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 8-9-10-10-12-14 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 68-74-81-89-100-111 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 3 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-6-8-10-14-17 sinnum í hvorri hlið og síðan í 4. hverri umferð alls 3-3-3-3-2-2 sinnum í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-41-42-44-46 cm, fækkið um 4-4-4-6-6-6 lykkjur jafnt yfir miðju 24 lykkjur = 50-52-55-57-62-67 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 10-10-11-13-14-15 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum.
Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru = 10-11-12-12-14-16 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 8-9-10-10-12-14 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI.
Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 80 til 100 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með Paris – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 7 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2022
Leiðrétting á lykkjufjölda í úrtöku í hálsmáli á bakstykki og framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð af þessum 3 lykkjum yfir hinar tvær, þannig að lykkjan liggi utan um hinar tvær (1 lykkja færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju eða að hún er ekki til, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blue Pine Shore

Erkku, Finland

Blue Pine Shore

Angèle, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Sylvie wrote:

Je fais la grandeur XL . Si je fais les augmentations à 6 mailles avant le fil marqueur, je vais me ramasser avec trop de mailles pour faire mon motif de 15 mailles au tour suivant, quoi faire?

25.05.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, les augmentations des côtés se font dans les mailles envers tricotées sur les côté: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 6 mailles avant le fil marqueur sur le côté soit: les 2 dernières mailles de A.2 + les 4 mailles envers avant le fil marqueur, faites 1 jeté, tricotez ces 6 mailles, puis les 4 m envers après le fil marqueur, les 2 premières mailles de A.1 et faites 1 jeté (= 12 m entre les 2 jetés). Répétez à l'autre marqueur. Lorsque vous augmentez la fois suivante, procédez de la même façon en augmentant quand il reste 7 mailles avant le fil marqueur (vous aurez cette fois 14 mailles entre les 2 jetés) et ainsi de suite. Bon tricot!

26.05.2023 - 10:10

country flag Cindy Pedersen wrote:

Hej Jeg har fundet ud af diagrammet. Så jeg skal ikke have svar på min henvendelse.

28.06.2022 - 18:33

country flag Cindy Pedersen wrote:

Ved A1 ved maskerne 10-12 i mønstret. Pind 1 reducerer man ved maskerne antallet af masker fra 3 til 2. Pind 2 står der man skal strikke 3 masker her. Pind 3 skal man strikke 1 m og lave 1 omslag og 1 m igen. Pind 4 er der kun 2 masker at strikke. Skal de sorte firkanter ikke være på pind 2 og 3, så mener jeg mønstret passer

28.06.2022 - 17:30

DROPS Design answered:

Hej Cindy, du starter altid nederst i højre hjørne af diagrammet. Første pind strikker du: 2vr, 2r, 2vr,9r(=15m) og så videre. På næste pind laver du 1 omslag imellem de 2 ret og strikker snoningerne over de 9r :)

29.06.2022 - 11:22

country flag Bee wrote:

Dear all, the issue regarding number of back stitches after the 4 decrease is still appearing in French version. Would it be possible to correct all language ? Thank you :-)

20.06.2022 - 15:10

DROPS Design answered:

Dear Bee, this issue was already edited in French - this applies only if you printed the pattern before the date of correction, otherwise,online pattern is right. Happy knitting!

20.06.2022 - 15:25

country flag Mana wrote:

I am working on the back piece now in size small and I need clarification. After I decrease 68sts to 54sts, I continue working on it until I get 43cm in length. Then,, I am supposed to decrease 4 more stitches in the middle 24sts, but could you help me understand how I could get 48 sts? Thanks!

10.06.2022 - 23:07

DROPS Design answered:

Dear Mana, you are right, there was a mistake in the pattern, the number of stitches has been now fixed, thanks. Happy knitting!

14.06.2022 - 09:55

country flag Ulrike wrote:

Rapport A1 hat nicht 15 sondern 16M, A2 hat 7 und nicht 6m. Somit ist die Anleitung fehlerhaft. Oder habe ich einen Denkfehler gemacht? Ich würde mich über Hilfe sehr freuen. :-}

20.07.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Liebe Ulrike, die erste Reihe in A.1 wird über 15 Maschen gestrickt, aber richtig, das Muster wird bei einigen Reihen 16 Maschen sein (2,3,5,6 und 7). Viel Spaß beim stricken!

21.07.2021 - 07:51

country flag Ilaria wrote:

Molto bello! Quando sarà disponibile lo schema? Grazie.

25.04.2021 - 21:34

country flag Biggi wrote:

Muster und Farbe super schön. Trägt sich sicher angenehm!

18.01.2021 - 00:12

country flag Mechthild wrote:

Tolles Muster

16.01.2021 - 19:45

country flag Annika wrote:

Rippled Reed

16.01.2021 - 10:32