DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Citrus Sun

Prjónaður toppur í DROPS Safran. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með v-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og aðsniði með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-30
DROPS Design: Mynstur e-317
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL
Málin á flíkinni koma til með að verða aðeins minni en sem stendur í teikningu með máli vegna stroffprjóns sem dregur stykkið saman í hvorri hlið.

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200-200-250-250 g litur 28, appelsína

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

AÐSNIÐ:
Fækkið lykkjum og aukið út fyrir aðsnið við prjónamerkin á framstykki og bakstykki eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 og A.2.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjur í hvorri hlið við handveg. Þessar 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru prjónaðar frá kanti þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* alls 3-3-4-4-5-5 sinnum.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 7-7-9-9-11-11 LYKKJUM ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 7-7-9-9-11-11 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan ystu 7-7-9-9-11-11 lykkjum, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 7-7-9-9-11-11 lykkjur eins og áður.

ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið við v-hálsmál. Þessar 3 lykkjur eru prjónaðar frá kanti þannig (séð frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 3 LYKKJUM ÞANNIG:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 3 LYKKJUM ÞANNIG:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan ystu 3 lykkjum, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 3 lykkjur eins og áður.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg.
Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig að loka máli. Hlýrar eru saumaðir niður á bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-220-240-260-288-316 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm.
Skiptið til baka yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð þannig: 10-10-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju slétt), 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 21-21-27-27-33-33 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju brugðið), 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 11-11-13-13-17-17 lykkjur stroffprjón (byrjið á 1 lykkju brugðið).
Prjónið áfram í sléttprjóni og stroffprjóni í hliðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum, setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Þessi prjónamerki eru notuð þegar fækka á lykkjum og auka út fyrir aðsnið.
Teljið 10-10-14-14-16-16 lykkjur stroffprjón, 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, teljið 45-47-51-53-55-57 lykkjur sléttprjón (= mitt að framan), setjið 1 prjónamerki, teljið 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, 21-21-27-27-33-33 lykkjur stroffprjón, 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, teljið 45-47-51-53-55-57 lykkjur sléttprjón (= mitt að aftan) og setjið 1 prjónamerki. Það eru 17-21-21-25-28-34 lykkjur sléttprjón og 11-11-13-13-17-17 lykkjur stroffprjón eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og stroffprjóni eins og áður – að auki er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum með því að prjóna A.1 yfir hvert prjónamerki (prjónamerkin sitja mitt í A.1) = 8 lykkjur færri í umferð. Endurtakið A.1 alls 4 sinnum á hæðina = 168-188-208-228-256-284 lykkjur.
Prjónið áfram eins og áður án úrtöku þar til stykkið mælist 14-14-14-16-16-16 cm. Aukið nú út fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan. Aukið út með því að prjóna A.2 yfir hvert prjónamerki (prjónamerkin sitja mitt í A.2) = 8 lykkjur fleiri í umferð. Endurtakið A.2 alls 4 sinnum á hæðina = 200-220-240-260-288-316 lykkjur.
Prjónið áfram eins og áður án útaukningar þar til stykkið mælist 30-31-32-33-33-34 cm.
Fellið af fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki þannig:
Fellið af 3-3-5-5-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón eins og áður, 36-41-43-48-52-59 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja garðaprjón, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri mitt að framan), prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 36-41-43-48-52-59 lykkjur sléttprjón, 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón, fellið af 7-7-9-9-11-11 lykkjur fyrir handveg, prjónið 7-7-9-9-11-11 lykkjur strofprjón, 79-89-93-103-111-125 lykkjur sléttprjón, 7-7-9-9-11-11 lykkjur stroffprjón og fellið af síðustu 4-4-4-4-6-6 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Framstykkið og bakstykkið er nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 46-51-55-60-66-73 lykkjur.
Byrjið mitt að framan frá röngu, takið upp 1 lykkju í lykkjuna sem felld var af mitt að framan og prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju á vinstra prjóni (þetta er gert til að koma í veg fyrir að það myndist «hak» neðst í v-hálsmáli), prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir að handveg, prjónið stroffprjón yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 6-6-8-8-10-10 lykkjum stroffprjóni við handveg, sléttprjón, 2 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni við v-hálsmáli.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg og v-hálsmáli og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan.
HANDVEGUR – sjá ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum.
V-HÁLSMÁL – sjá ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 25-26-26-26-26-27 sinnum.
Eftir síðustu úrtöku eru 11-11-15-15-17-19 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm (framstykkið mælist ca 3 cm lengra en loka mál á teikningu þar sem sauma á hlýrann á öxl niður á bakstykki). Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
= 46-51-55-60-66-73 lykkjur.
Byrjið við handveg frá röngu, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir að v-hálsmáli, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli og handveg og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan:
V-HÁLSMÁL – sjá ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 25-26-26-26-26-27 sinnum.
HANDVEGUR – sjá ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum.
Eftir síðustu úrtöku eru 11-11-15-15-17-19 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 93-103-111-121-133-147 lykkjur.
Byrjið við handveg frá röngu, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur, prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-9-9-11-11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið stroffprjón eins og áður yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka.
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 10-14-14-19-23-27 sinnum = 73-75-83-83-87-93 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með 6-6-8-8-10-10 lykkjur stroffprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm.
Prjónið nú stroffprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm.
Fellið síðan af allar lykkjur með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Bakstykkið mælist ca 3 cm minna en uppgefið mál á teikningu

FRÁGANGUR:
Saumið niður hlýrana í hvora hlið á bakstykki þannig að lykkjurnar passi yfir hverja aðra.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónamerki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Monica Palmelid wrote:

Hej Hur stickar jag insnitten?

11.04.2024 - 15:05

DROPS Design answered:

Hei Monica. Det felles og økes til innsnitt ved merketrådene på forstykket og bakstykket slik diagram A.1 og A.2 viser. Se diagrammene og les forklaringene over diagrammene. mvh DROPS Deign

15.04.2024 - 10:43

country flag Corina Avram wrote:

Hi! I am a bit stuck. How do I insert the marker threads? I see in the lesson "how to use a MT between 2 sts" that before and after each MT is an increase. Or I just insert a plain sts markers and carry them along the diagrams. I don;t know how to proceed. Thanks in advance

07.03.2024 - 17:14

DROPS Design answered:

Dear Corina, a marker thread is usually used when you also using markers, to differentiate where you need to measure from and where you need to make decreases/ increases. You just put a longer piece of leftover thread between the stitches (ideally in contrasting colors to what you are knitting with) and every few rows put it from one side to the other, kind of weaving it. If you do this regurarly, it helps track your row-numbers too. After finishing, you can easily take it out. I hope this helps. Happy Knitting.

07.03.2024 - 22:30

country flag Bodil wrote:

Strikker denne toppen i str. M. Skal begynne å felle til innsnitt. Skjønner ikke helt hvor jeg skal begynne å felle de første 8 maskene. Omgangen starter jo midt i første vrangbord i siden. Har satt merketrådene der de skal være. Håper på raskt svar, da jeg er ivrig på å komme videre 😊

25.08.2023 - 21:35

DROPS Design answered:

Hei Bodil. Du strikker halve vrangborden i den ene siden, da er det 21 masker til 1. merketråd/ 1. innsnitt. Strikk 17 masker glattstrikk, deretter strikker du etter A.1 (1. innsnitt). Nå vil merketrådene sitte midt i A.1. Strikk videre til neste merketråd, (merketrådene skal sitte midt i A.1 også til innsnitt 2, 3 og 4). På 1. omgang med innsnitt har du felt 8 ganger (2 ganger på hver side av merketrådene). mvh DROPS Design

04.09.2023 - 14:16

country flag Anja wrote:

Ik moet nu het linkervoorpand gaan breien. Ik snap niet hoe ik moet beginnen . Kun je mij meer uitleg geven?

24.06.2023 - 17:41

DROPS Design answered:

Dag Anja,

Je begint midden voor en aan de verkeerde kant te breien. De steken van het achterpand en het rechter voorpand kom je verder niet aan. Eventueel zou je die ook even op een hulpdraad kunnen zetten. Je neemt eerst 1 steek op in de geminderde steek midden voor en deze brei je dan gelijk samen met de eerste steek op de linker naald. Dan volg je het patroon verder volgens de beschrijving.

25.06.2023 - 17:58

country flag Lianne wrote:

Hallo, ik kom er niet helemaal uit nu ik het linker en rechter voorpand apart moet breien. Moet ik nu alle steken op een hulpdraad zetten? Of hoe kom ik van het armsgat naar de mindering in het midden van de v hals?

22.06.2023 - 21:04

country flag Louise wrote:

Jeg forstår ikke denne passage: Gentag A.1 totalt 4 gange i højden = 168-188-208-228-256-284 masker. Hvorfor er det ikke angivet i cm. fra kanten? Mvh. Louise

09.04.2023 - 11:57

DROPS Design answered:

Hej Louise, målet er angivet i cm og er fra kanten :)

13.04.2023 - 15:04

country flag Anna wrote:

Buongiorno Ho avviato 200 maglie con i ferri circolari n 3 il .Però subito dice di passare con i ferri n2 ,5 x l'elastico mi sono confusa Grazie mille per la disponibilità

15.07.2022 - 09:20

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, il bordo a coste è realizzato sempre con i ferri più piccoli, poi si ritorna ai 3 mm. Buon lavoro!

16.07.2022 - 15:53

country flag Ane wrote:

Hei. Hvor kan jeg finne en størrelsetabell? Og hvilken størrelse er det på den modellen bruker?:)

16.06.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Hej Ane, du finder en måleskitse nederst i opskriften. Her ser du hvordan du vælger størrelse og læser skitsen: Således læser du måleskitsen

17.06.2022 - 08:49

country flag Any De Lezel Couture , Marie Darchy wrote:

Bonjour je souhaiterais savoir s il est possible de faire une encolure un peu moins profonde. Je vous remercie pour votre réponse.

13.06.2022 - 18:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Darchy, fort probablement, il vous suffit de commencer l'encolure plus tard, recalculez bien vos diminutions d'encolure-V pour qu'elles tombent juste pour les bretelles. Bon tricot!

14.06.2022 - 09:11

country flag Nini wrote:

Als ik rondbrei trekt het breiwerk naar één kant. Hoe kan ik dit voorkomen?

07.06.2022 - 15:43

DROPS Design answered:

Dag Nini,

Dit zou normaliter niet moeten gebeuren en ik heb eerlijk gezegd geen idee wat de reden is. Bij haken in de rondte zou dit wel kunnen gebeuren, maar bij breien blijven de steken boven elkaar zitten. Komt het misschien door het patroon in de zijkanten en de gaatjes in de panden? Of heb je dit ook als je alleen tricotsteek breit in de rondte?

10.06.2022 - 22:18