DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale

Spring Hive

Prjónuð peysa úr DROPS Baby Alpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í gatamynstri með ¾-löngum ermum í sléttprjóni og köntum í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 223-26
DROPS Design: Mynstur bs-163
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 2110, ljós gulur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-125-125-150-150-175 g litur 29, vanilla

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og gatamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (hvít) NR 524: 3 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um hvora hlið á framstykki, bakstykki og ermar):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1/A.2 á framstykki og bakstykki og í sléttprjóni á ermum.

ÚRTAKA (á við um í hvorri hlið á framstykki og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Þegar lykkjur eru prjónaðar í gatamynstri.
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið:
Prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman.
FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG:
Þegar allar lykkjur eru prjónaðar í gatamynstri.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman.
Þegar lykkjur eru prjónaðar brugðið:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur brugðið saman.

MÆLING:
Mikilvægt er að málin eru tekin á meðan stykkið liggur flatt. Áferðin getur leitt til að stykkið dragist aðeins saman á hæðina – dragið aðeins í stykkið þegar það er mælt og passið uppá að framstykkið og bakstykkið sé jafn stórt.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 42 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 40 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 5.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, í stykkjum. Framstykkið og bakstykkið er prjónað frá hlið frá horni að horni. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan er prjónaður kantur í garðaprjóni á annarri öxlinni, í kringum hálsmál og neðst á fram- og bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Prjónað er frá neðst í vinstra horni upp efst í hægra horn, séð frá réttu.
Fitjið upp 3 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING-1, prjónið A.1 (= 1 lykkja), aukið út um 1 lykkju og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram með mynstur og aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu).
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina (það eru núna 7 lykkjur í umferð), prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, aukið út um 1 lykkju eins og áður, prjónið A.2A (= 1 lykkja), prjónið A.2B (= 2 lykkjur), prjónið A.2C (= 2 lykkjur), aukið út um 1 lykkju eins og áður og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið áfram út í hvorri hlið alveg eins upp. A.2 er endurtekið á hæðina og í hvert skipti sem A.2 hefur verið prjónað til loka, er pláss fyrir 9 mynstureiningar fleiri með A.2B á milli A.2A og A.2C. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið svona þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm meðfram báðum köntum (þ.e.a.s. ekki er mælt í prjónstefnu) – sjá MÆLING. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið.
Nú á að auka út í byrjun á umferð eins og áður og lykkjum fækkað í lok umferðar frá réttu (þetta er gert til að lykkjufjöldinn haldist stöðugur). Þ.e.a.s. prjónið þannig: Haldið áfram með A.2 eins og áður, auka á út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og áður og fækkið um 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu – sjá ÚRTAKA. Aukið út og fækkið lykkjum svona þar til stykkið mælist 2-4-6-8-12-16 cm frá prjónamerki í hvorri hlið.
Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið þessar 3 lykkjur slétt saman. Klippið þráðinn frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Framstykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm mælt meðfram stystu hliðunum (= lengd á stykki) og 46-50-54-58-64-70 cm meðfram lengstu hliðum (= breidd á stykki). Síðar á að prjóna 4 cm kant neðst á framstykki og bakstykki. Þessi kantur kemur út yfir 44-46-48-50-52-54 cm á lengdina.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki, þ.e.a.s. framstykki og bakstykki er alveg eins.

ERMI:
Fitjið upp 42-44-46-48-50-52 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 10-14-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 52-58-64-66-72-78 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í hvorri hlið með 1½ cm millibili alls 23-22-21-21-20-19 sinnum í hvorri hlið = 98-102-106-108-112-116 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 40-39-38-38-36-34 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið nú af 16-16-16-18-18-18 lykkjur í byrjun á hverri umferð alls 2 sinnum í hvorri hlið = 34-38-42-36-40-44 lykkjur eftir. Fellið af – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-40-40-38-36 cm ofan frá og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR-1:
Leggið framstykkið og bakstykkið saman. Merkið op fyrir hálsmál ca 24-26-26-28-28-30 cm. Það eru ca 11-12-14-15-18-20 cm eftir í hvorri hlið fyrir öxl.
Saumið annan axlasauminn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni – saumið frá prjónamerki við hálsmál og út að hlið.

KANTUR FYRIR TÖLUR OG HNAPPAGÖT Á ÖXL:
Prjónið smá kant í garðaprjóni meðfram annarri öxlinni, bæði á framstykki og bakstykki. Hér á að hneppa tölum.
Byrjið á framstykki og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 20-22-26-26-32-36 lykkjur meðfram öl á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fellt er af fyrir 2 hnappagötum jafnt yfir. 1 HNAPPAGAT = Fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð yfir þær lykkjur sem felldar voru ef frá fyrri umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið á sama hátt kant á öxl á bakstykki, en ekki fella af fyrir hnappagötum á bakstykki.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við öxl á bakstykki og prjónið upp innan við 1 kantlykkju ca 90 til 112 lykkjur í kringum hálsmál og meðfram skammhlið á kanti yfir hnappagöt og tölur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm, en eftir ca ½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli þegar eftir eru 4 lykkjur í umferð frá réttu. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Saumið tölur í.

KANTUR Í GARÐAPRJÓNI NEÐST Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið á framstykki og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 86-94-102-110-122-132 lykkjur meðfram neðri kanti á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING!
Prjónið kant á sama hátt neðst á bakstykki.

FRÁGANGUR-2:
Setjið 1 prjónamerki 29-30-31-32-33-34 cm frá öxl og niður í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Prjónamerkin merkja dýpt á handveg. Saumið ermar í á milli þessa prjónamerkja – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju – byrjið yst á ermi og saumið niður meðfram framstykki og bakstykki, en endið sauminn þar sem kantur í garðaprjóni byrjar neðst á fram- og bakstykki, þannig að það myndist smá klauf í hvorri hlið.
Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Dee wrote:

Hallo, er staat dat garengroep C ook kan gebruikt worden. kan ook bv. Drops Brushed alpaca silk? Of welke andere geeft hetzelfde effect als baby Alpaca silk (deze is uitverkocht). dank u wel

05.03.2024 - 10:11

DROPS Design answered:

Dag Dee,

De trui wordt met 2 draden Baby Alpaca Silk gebreid, dus 2 draden van dikte A. Waarschijnlijk komt Alpca of Flora het meest in de buurt. Brushed Alpaca Silk heeft een ander effect.

05.03.2024 - 22:29

country flag Valentina wrote:

Cosa significa capo di qualità? È sinonimo di maglia a vivagno? Grazie dell'attenzione, cordiali saluti. Valentina

18.10.2021 - 22:25

DROPS Design answered:

Buonasera Valentina, con 1 capo di ogni qualità si intende 1 filo per ognuno dei 2 filati utilizzati. Buon lavoro!

19.10.2021 - 23:14

country flag Ranjana wrote:

Hi, how can I convert the pattern to a XS size? I want to knit this beautiful sweater for my 12 yr grand daughter. Thanks for your help.

13.05.2021 - 04:21

DROPS Design answered:

Hi Ranjana, unfortunately we are not able to adjust our patterns to any individual requests. Should you need any individual assistance, please contact the store where you bought the yarn, even per mail or telephone. Happy knitting!

13.05.2021 - 15:46

country flag Silvia wrote:

è molto bello! Peccato che, per il momento, non si veda il diagramma da seguire e l'immagine del modello con le misure

09.04.2021 - 09:49

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, durante la giornata ci sono stati alcuni problemi di visualizzazione delle immagini, al momento per fortuna risolti. Buon lavoro!

09.04.2021 - 22:48

country flag Christina Zeidler wrote:

Sommerwind

20.01.2021 - 13:03

country flag Eva wrote:

Rejoice

10.01.2021 - 23:37

country flag Valeria wrote:

Fresco ed originale. Sarà il prossimo che realizzerò

08.01.2021 - 09:16

country flag Anna wrote:

Elegant Sky

07.01.2021 - 20:09