DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Magnolia Dream

Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í perluprjóni með víðu hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-13
DROPS Design: Mynstur sk-125
Garnflokkur B + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-250-250-300-300-350 g litur 19, múrsteinn
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-175-200-200-225 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 18 umferðir á hæð með perluprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir perluprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm eða 80 cm fyrir kant í garðaprjóni í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11000.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 2.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt fram og til baka í sömu lykkju. Prjónið síðan útauknar lykkjur í perluprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað neðan frá og upp í stykkjum og prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Framstykkið skiptist mitt að framan fyrir vítt hálsmál. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan er prjónaður kantur í hálsi. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði í hvorri tegund.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-64-70-78-84 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Sky og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-4-4-5 sinnum í hvorri hlið = 44-46-46-48-50-50 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 16-18-18-18-20-20 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 13-13-13-14-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-64-70-78-84 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Sky og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið perluprjón. Fellið síðan af lykkjur fyrir handveg, stykkið skiptist fyrir op í hálsi og fellt er af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan:

HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-2-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-4-4-5 sinnum í hvorri hlið.

OP Í HÁLSMÁLI:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 lykkjur í umferð (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður).
Eftir 4 umferðir garðaprjón skiptist stykkið við miðju að framan. Lykkjur á hægra framstykki (þegar stykkið er mátað), eru settar á þráð eða hjálparprjón. Prjónið nú perluprjón yfir lykkjur á vinstra framstykki með 3 lykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (úrtaka fyrir handveg heldur áfram eins og áður).

HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 56-58-59-61-62-64 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, setjið ystu 4-5-5-5-6-6 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 13-13-13-14-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið til baka lykkjur af þræði/hjálparprjóni á hringprjón 8. Fyrsta umferð er prjónuð frá miðju að framan (rétta). Byrjið á að taka upp 1 lykkju í ystu lykkju frá vinstra framstykki og prjónið þessa lykkju slétt saman við fyrstu lykkju af vinstra prjóni. Þetta er gert til að ekki myndist hak neðst í opi í hálsi.
Prjónið síðan perluprjón yfir lykkjur á hægra framstykki með 3 lykkjum í garðaprjóni við miðju að framan (úrtaka fyrir handveg heldur áfram eins og áður).
Þegar stykkið mælist 56-58-59-61-62-64 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, setjið ystu 4-5-5-5-6-6 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en lykkjur eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 13-13-13-14-14-14 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 38-40-42-46-48-50 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Sky og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið perluprjón.
Þegar ermin mælist 37-36-36-35-33-29 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 3-3-3-3-3-4 sinnum í hvorri hlið = 44-46-48-52-54-58 lykkjur.
Þegar ermin mælist 46-45-45-44-42-41 cm, fellið af lykkjur fyrir ermakúpu í hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 2-5-6-6-8-9 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 53-54-55-55-55-56 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.
Ermin mælist ca 54-55-56-56-56-57 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar ca 12 cm eru eftir neðst á framstykki/bakstykki = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu mitt að framan og prjónið upp ca 50 til 70 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjón 7 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Agnès Buffet wrote:

Bonjour, Pensez-vous que je peux tricoter ce modèle en moins long qu'il n'est prévu sans le "déséquilibrer"? Merci.

03.10.2022 - 15:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Buffet, pas forcément, pensez à bien vérifier la longueur du modèle et celle que vous souhaitez en vérifiant les mesures sur la base d'un pull similaire que vous avez et dont vous aimez la forme. Pour tout conseil et assistance personnalisée, vous pouvez vous adresser à votre magasin ou bien à notre groupe DROPS Workshop où vous pourrez demander l'avis d'autres tricoteuses. Bon tricot!

03.10.2022 - 15:23

country flag Amanda wrote:

Hello Could this be worked in stocking stitch rather than moss st ?

16.01.2022 - 17:21

DROPS Design answered:

Dear Amanda, you can't work everything in stocking stitch, since it tends to roll up. So you would need to work some edges in rib, garter stitch, or moss stitch, which are not necessary for the original pattern. Happy knitting!

16.01.2022 - 23:46

country flag Marissa wrote:

De uitleg van het patroon voor zowel de voor- als achterzijde geeft aan dat er 54-60-64-70-78-84 steken op rondbreinaald 8 mm moeten worden gezet. Maar als ik naar maattabel kijk staat er onderaan dat dit stuk 45-50-53-58-65-70 steken zou moeten tellen. Welke moet ik volgen? Of zijn beide correct.

04.12.2021 - 15:25

DROPS Design answered:

Dag Marissa,

In de maattekening staan de maten aangegeven in centimeters en niet het aantal steken. Bij een stekenverhouding van 12 steken = 10 cm, zou je dus (als voorbeeld) bij een breedte van 5 cm, 60 steken op moeten zetten. En bij een breedte van 45 cm zet je dus (12x4,5=) 54 steken op.

09.12.2021 - 11:12

country flag Katariina wrote:

Malli sk-125. Ohjeessa kavennukset kädentietä varten: päätä jokaisen kerroksen ALUSTA kummastakin reunasta... siis päätetäänkö alusta VAI alussa ja lopussa? Jos vain alussa, niin silmukoita kavennetaan vain puolet määrästä ohjeen määrästä. Ja miten kavennukset tehdään helmineuleessa ?

22.05.2021 - 21:01

DROPS Design answered:

Hei, silmukat päätetään työn kummastakin reunasta, eli ne päätetään sekä oikean että nurjan puolen kerroksen alusta.

09.07.2021 - 14:20

country flag Cora wrote:

Ein sehr schöner Pullover mit gelungenem Ausschnitt. Die perfekte Mischung aus bequem-leger und feminin.

07.01.2021 - 21:50

country flag Mimi M Routh wrote:

I like this model! She is ready for a little car trip! I like the too-low neck to put over something else interesting. The knitting looks simple, quick to finish.

07.01.2021 - 19:58

country flag Linda wrote:

I suggest "Campfire Breakfast"

07.01.2021 - 16:36