DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Country Muse

Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli og axlarsæti. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-40
DROPS Design: Mynstur li-119
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-700-750 g litur 5310, ljós brúnn

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 3,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu fyrir axlarsæti):
Aukið út um 2 lykkjur hvoru megin við 26-26-26-30-30-30 axlalykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er að neðan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ATH: Fjöldi axlalykkja verðu sá sami – útauknar lykkjur eru taldar með í framstykki og bakstykki.
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Byrjið 4 lykkjur á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Sláið 1 sinni fast uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni fast uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu á ermum):
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúinn til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan verður snúin til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri).

ÚTAUKNING-3 (á við um útaukningu á berustykki):
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, prjónið lykkjuna með prjónamerki í sléttprjóni eins og áður, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann (= 1 lykkja fleiri hvoru megin við lykkju með prjónamerki í). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-4 (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 6 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við merkiþráðinn).
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um úrtöku mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir ermar og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir berustykki.
Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 2,5 með Lima.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-40-40-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-124-132-144-148-156 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt).

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan – berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Setjið að auki 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Það á að nota þessi prjónamerki þegar auka á út fyrir axlarsæti og prjónamerki verða að hafa annan lit en prjónamerki við hálsmál til að aðgreina þau frá hvert öðru.
Byrjið mitt að aftan, teljið 17-18-20-21-22-24 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-36-40-42-44-48 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= öxl), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 17-18-20-21-22-24 lykkjur eftir á framstykki á eftir síðasta prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum.

ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Stykkið er prjónað í sléttprjóni á bakstykki og framstykki og A.1 yfir 26-26-26-30-30-30 lykkjur á hvorri öxl (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerki og á milli 3. og 4. prjónamerki).
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir axlarsæti þannig:
Aukið út 2 lykkjur á UNDAN 1. og 3. prjónamerki (þ.e.a.s. á undan A.1) og aukið út um 2 lykkjur á EFTIR 2. og 4. prjónamerki (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚTAUKNING-1. Munið eftir að nú er bara aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami.
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út alveg eins í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-16-17 sinnum = 200-220-236-256-276-292 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-9-10-11-12-13 cm frá prjónamerki við háls. Aukið síðan út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING FYRIR ERMAR:
Færið 4 prjónamerki frá útaukningu fyrir axlarsæti, þannig að þau sitja hvoru megin við miðju 18-18-18-22-22-22 lykkjum í A.1 á hvorri öxl – sjá ör í A.1.
Haldið áfram í sléttprjóni og A.1 yfir A.1 eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig:
Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Munið eftir að auka nú bara út á ermum og fjöldi lykkja í A.1 eykst, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 15-16-16-18-19-19 sinnum = 260-284-300-328-352-368 lykkjur.
Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 11-12-12-13-14-14 cm frá þar sem útaukning fyrir ermum byrjaði. Aukið síðan út fyrir berustykki eins og útskýrt er að neðan.

ÚTAUKNING BERUSTYKKI:
Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkjunni í hvorri hlið á hvorri ermi. Nú eru 46-48-48-56-58-58 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi.
Haldið áfram í sléttprjóni, og 4 lykkjur brugðið frá A.1 sem eiga að halda áfram niður meðfram bakstykki og framstykki eins og áður.
JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er aukið út um 8 lykkjur fyrir berustykki þannig:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING-3.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 5-5-6-7-7-8 sinnum = 300-324-348-384-408-432 lykkjur.
Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm frá þar sem útaukning fyrir ermar byrjaði á eftir útaukningu fyrir axlarsæti. Stykkið mælist nú ca 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki við háls.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 45-49-52-57-62-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 90-98-104-114-124-134 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 45-49-52-57-62-67 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá og takið frá öll eldri prjónamerki! Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Byrjið umferð við merkiþráðinn í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-4 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 204-220-236-256-280-304 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-23-22-22-22 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 48-52-56-64-68-76 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 252-272-292-320-348-380 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-90-94 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 7-8-11-14-15-16 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur eftir.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-35-33-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 48-48-52-52-56-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 42-41-39-38-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli tvöfalt inn að röngu á stykki. Saumið stroffið niður, en til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónstefna
symbols = örin merkir hvar á að setja prjónamerki fyrir útaukningu á ermi - þessi prjónamerki eru sett eftir að útaukning fyrir axlarsæti er lokið
symbols = útaukning fyrir axlarsæti
symbols = útaukning fyrir ermi
symbols = útaukning fyrir berustykki
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Marianne wrote:

Hej. Jeg kan simpelthen ikke få øje på, at vrangmaskerne mellem udtagningerne på skuldrene er beskrevet nogen steder. Stirrer jeg mig blind - eller er der en fejl i opskriften?

24.09.2023 - 21:18

DROPS Design answered:

Hej Marianne, du har 4 vrangmasker i hver side af diagrammet som strikkes over skulderen :)

05.10.2023 - 09:00

country flag Torunn Ones Narvestad wrote:

Hvordan lagre oppskriften?

24.06.2023 - 17:02

DROPS Design answered:

Hei Torunn. Klikk på hjertet øverst til høyre og deretter skriv inn din e-post adresse for å legge denne oppskriften til dine favoritter. mvh DROPS Design

26.06.2023 - 11:36

country flag Mirta wrote:

Buenas tardes: Estoy haciendo el modelo 216-40. No entiendo dónde debo hacer los aumentos del canesú, dado que los 4 puntos del revés me confunden. Podrían explicarme de otra manera distinta a la ya escrita en las instrucciones? Mirando el vídeo tampoco lo logro entender. ( Me refiero al tercer tip para aumentar). Gracias por contestar.

17.07.2022 - 01:27

country flag Lenie wrote:

De meerderingen van de zadelschouder gaven een "golvend" voor- en achterpand. Ik ben opnieuw begonnen en heb nu de meerderingen voor de zadelschouder om de 2e en om de 3e naald gedaan. Nu zeer tevreden met een mooi glad pand.

29.05.2022 - 10:51

country flag Karin Börner wrote:

Ich vermisse einen Aufteilungs-Schlüssel für die Maschen, nach der Passen-Zunahme,? Z.B. Größe XL: es sind 408 Maschen vorhanden, davon werden je 80 Maschen für die Ärmel benötigt, bleiben 246 Maschen für den Rumpf. So weit, so gut. Ich arbeite aber mit dünnerem Garn und einer Größe zwischen X und XL . Es geht mir um das Aufteilungsprinzip, z.B. der 56 Maschen nach der Passenzunahme bei XL. Wie geht das?

13.03.2022 - 17:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Börner, leider könnnen wir nicht jede unsere Anleitung nach jeder Maschenprobe umrechnen, in XXL hier, stricken Sie 3 Maschen am Anfang/Ende Rücken- und Vorderteil für die Ärmel, so haben Sie 65-3 = 62 M für 1/2 Vorderteil, 74+(2x3)= 80 M für jede Ärmel und 130 - (2x3)= 124 M. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

14.03.2022 - 12:02

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, ho finito il maglione ma il collo è troppo stretto e vorrei rifarlo. Essendo un modello top down non so se è possibile disfare il collo essendo che è all’inizio del lavoro e non alla fine. Come devo procedere?

01.02.2022 - 10:35

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

01.02.2022 - 22:22

country flag Barbara wrote:

Buongiorno, ho finito il maglione che è venuto benissimo. Ma il collo è troppo stretto e non fa l’effetto a cratere. Posso disfarlo dall’alto e rifarlo con Ferri più grossi? Grazie

31.01.2022 - 12:31

DROPS Design answered:

Buonasera Barbara, può apportare le modifiche che desidera al modello. Buon lavoro!

31.01.2022 - 23:31

country flag Mel wrote:

There are 46-48-48-56-58-58 stitches between the marker-stitches on each sleeve.\r\nAT THE SAME TIME on the next round increase 8 stitches for yoke as follows:\r\nIncrease 1 stitch on each side of the 4 marker-stitches – Increase like this every 2nd round a total of 5-5-6-7-7-8 times\r\nplace the next 60-64-70-78-80-82 stitches on 1 thread for the sleeve\r\nsince it appears that all the created stitches go into the sleeve, these numbers dont add up correctly.

31.12.2021 - 01:18

DROPS Design answered:

Dear Mel, some of the stitches on the sleeve will be worked for the body, divide piece as stated to get the correct measurements as in the chart. Happy knitting!

03.01.2022 - 14:23

country flag Christiane wrote:

Sauf que dans la vidéo, à 1:35, c'est une augmentation APRÈS le marqueur, et non avant. Je persiste : à mon avis, ce que dit le modèle et ce que dit la vidéo sont en contradiction. Car augmentation manche : on augmente APRÈS le 1er marqueur, et AVANT le marqueur suivant (2ème), le nb de mailles dos et devant restant constant.

04.10.2021 - 09:27

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, en fait la vidéo est exacte, c'est le texte qui accompagne la vidéo qui doit être corrigé :) merci pour votre retour et insistance, les explications du modèle sont correctes telles quelles; Bon tricot!

04.10.2021 - 15:18

country flag Christiane wrote:

AUGMENTATIONS-2: contradiction entre tuto vidéo et explication du modèle. Qui a raison, le tuto ou le modèle ? Selon tuto vidéo: … relever le fil entre 2 mailles du rang précédent, de l'avant vers l'arrière et tricoter la maille à l'endroit, dans le brin arrière … APRÈS le marqueur : … relever le fil entre 2 mailles du rang précédent, de l'arrière vers l'avant et tricoter la maille à l'endroit, dans le brin avant …

02.10.2021 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, dans cette vidéo, on augmente bien avant le marqueur (ex 1:35) en relevant le fil de l'arrière vers l'avant pour le tricoter dans le brin avant et on augmente après le marqueur (ex. 2:06) en relevant le fil de l'avant vers l'arrière pour le tricoter dans le brin arrière - ou bien ai-je mal compris votre question?

04.10.2021 - 08:02