Enchanted Evening |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, hnútamynstri og stuttum ermum. Stærð S -XXXL.
DROPS 211-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð í þessu dæmi til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING-2 (á við um formið á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki eins og útskýrt er að neðan. AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuliðinn sem liggur utan um fyrstu lykkju á vinstri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð). AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið fram að prjónamerki, prjónið síðan 1 lykkju slétt í lykkjuna sem liggur utan um ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í lykkjuna frá fyrri umferð). ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út alveg eins á undan og á eftir prjónamerki eins og útskýrt er í ÚTAUKNING-1, en aukið út til skiptis á undan og á eftir prjónamerki. Þ.e.a.s. aukið einungis út 1 sinni í hvorri hlið með 1½ cm millibili og þetta er gert til skiptist á undan og á eftir prjónamerki (ekki í hvorri hlið). ÚRTAKA (á við um aðsnið á fram- og bakstykki): Fyrstu úrtökur koma til með að gerast samtímis og mynstrið er prjónað. Stillið af þannig að lykkjum sé fækkað án hnúta og takið vel eftir að það verða færri lykkjur sléttprjón á milli 2 hnúta eftir eina úrtöku. Fækkið um 1 lykkju eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki eins og útskýrt er að neðan. FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-130-134-138-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-26-32-16-22-35 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 138-150-162-150-160-175 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Berustykkið er síðan prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 6-6-6-5-5-5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 230-250-270-300-320-350 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.2 hringinn (= 23-25-27-30-32-35 mynstureiningar með 10 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og A.2 sýnir. Eftir síðustu útaukningu í A.2 eru 276-300-324-360-384-420 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21-23-25-27 cm frá prjónamerki við hálsmál – ATH: A.2 er prjónað eins langt og hægt er að réttu máli og í einhverjum stærðum verður að endurtaka A.x á hæðina að réttu máli (mynstrið á að halda áfram á fram- og bakstykki). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá miðju að aftan þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-62 lykkjur í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 76-84-90-102-112-124 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-72-78-80-86 lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-42-45-51-56-62 lykkjur sem eftir eru í mynstri eins og áður (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og kantar á ermum er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-196-220-244-268 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Að auki eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Teljið 21-24-27-32-37-42 lykkjur frá prjónamerki í annarri hlið á stykki, setjið 1. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 42-48-54-64-74-84 lykkjur (prjónamerki í hlið situr mitt á milli þessa lykkja), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 40-42-44-46-48-50 lykkjur, setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 21-24-27-32-37-42 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út. Haldið nú áfram með A.x JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hliðum á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan: Byrjið umferð við prjónamerki í annarri hlið á stykki og prjónið síðan A.x hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnútum á berustykki. Þær 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.x, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½ cm millibili alls 4 sinnum á hæðina = 148-164-180-204-228-252 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Að auki er aukið út um 1 lykkju við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 6 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 21 sinnum á hæðina í öllum stærðum = 274-290-306-330-354-378 lykkjur. Prjónið áfram án útaukninga þar til stykkið mælist ca 61-62-63-64-65-66 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm til loka, mátið e.t.v. kjólinn og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 20-22-24-26-26-28 lykkjur jafnt yfir = 294-312-330-356-380-406 lykkjur (það er aðeins aukið út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna, dragi kantinn saman). Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Kjóllinn mælist ca 85-88-91-94-97-100 cm frá öxl og niður. KANTUR Á ERMI: Setjið 62-66-72-78-80-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-86-90-96 lykkjur. Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið 3 umferðir sléttprjón. JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 4-4-4-4-2-2 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-68-76-82-88-94 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Kantur á ermum mælist ca 4 cm frá skiptingu. Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (63)
Sofia wrote:
Jeg tror Astrid har rett. Diagram A.1, 10. rad må være feil. Det må være én maske glattstrikk. I tillegg kan ikke rapporten starte med en økning. Den må avslutte med en, for at mønsteret skal bli riktig med tidligere knuter.
25.04.2020 - 10:07DROPS Design answered:
Hej Sofia, ja det stemmer og diagrammerne er nu rettet :)
29.04.2020 - 08:29Astrid wrote:
Da strikker jeg 2 masker på hver side av de de tre maskene og da får jeg bare en rett maske i mellom ....?
21.04.2020 - 18:30DROPS Design answered:
Hej igen Astrid.... hm... vi skal se på den pind i diagrammet... tror du har ret i at der er en maske for meget. Kommer tilbage på mandag. God weekend!
24.04.2020 - 15:55Line wrote:
Jeg strikker i s, og er nået til tiende omgang i diagrammet. På niende omgang har jeg ikke taget ud, så hvor kommer den ekstra maske fra på p10? Så mønsteret kommer til at passe...
21.04.2020 - 13:27DROPS Design answered:
Hej Line, du strikker 1 ekstra maske på hver side af knuden, så 6 masker bliver til 8 masker. God fornøjelse1
21.04.2020 - 14:00Astrid wrote:
Jeg har kommet til omg 10, får ikke "trekanten" over hverandre, lurer på om det er feil...
19.04.2020 - 11:12DROPS Design answered:
Hej Astrid, trekanten på pind 10 skal være over trekanten fra pind 2, det vil sige at trekanten på pind 6 skal være forskudt. God fornøjelse!
21.04.2020 - 14:11Lina wrote:
Det står at modellen er 170 og bruker str S eller M. Men for at det skal være verdt noe - hvilken str er kjolen hun har på seg?
16.04.2020 - 16:20DROPS Design answered:
Hei Lina. Tipper kjolen hun har på seg er størrelse S. Husk å sjekke målskissen for å finne hvilken størrelse du bør ha. mvh DROPS design
17.04.2020 - 13:58Diana wrote:
Is the colour used 76 Sky Blue or 36 Denim Blue please?
06.04.2020 - 12:47DROPS Design answered:
Dear Diana, it is no 76. Light Denim, from the Muskat yarn. Happy Knitting!
07.04.2020 - 05:30Anna Elisabeth wrote:
Ang. Aflukning, har jeg med held, lavet Itialensk aflukning. Det bliver rigtig fint, men tal lidt lang tid.
30.03.2020 - 11:29Elena wrote:
Really looking forward to a description! Such a lovely dress
04.03.2020 - 14:45Inge Bach Kofod wrote:
Smuk kjole, som jeg helt sikkert vil strikke så snart den kommer!
04.03.2020 - 11:01Yvonne Smeijsters wrote:
Komt de beschrijving hier van nog of niet meer
27.02.2020 - 09:40