Past to Present |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í vinkil með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. RENDUR: Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni, ofan frá og niður þannig: 4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum ljós sægrænn. 4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum heslihneta 4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum hvítur 4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum múrsteinn 4½-4½-4½-5-5-5 cm (= ca 7-7-7-8-8-8 umferðir) með 2 þráðum svartur Endurtakið síðan þessar 5 rendur til loka. ÚTAUKNING-2 (á við um miðju að framan/aftan + axlir): Prjónið að lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= gat). Það er aukið út um 8 lykkjur alls í hverri útauknings umferð. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (prjónamerki situr í þessari lykkju), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Útskýring með táknum sýnir hvernig stykkin eru prjónuð þegar prjónað er fram og til baka ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið mitt að framan/mitt að aftan og það er prjónað fram og til baka í 2 hlutum (= hliðar). Stroffið er prjónað í hring í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir miðju/mitt undir og prjónað er fram og til baka í eitt stykki (= neðan á ermi). Stroffið er prjónað í hring í lokin. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 58-60-62-64-68-72 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum í litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-8-14-12-16-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1= 68-68-76-76-84-84 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið næstu umferð jafnframt og sett eru 4 prjónamerki (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð fyrir útaukningu), þannig: prjónið 1 lykkju slétt og setjið fyrsta prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt á öxl), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið annað prjónamerki í þessa lykkju (= mitt að aftan), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið þriðja prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt á öxl), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið fjórða prjónamerkið í þessa lykkju (= mitt að framan), prjónið 16-16-18-18-20-20 lykkjur sem eftir eru slétt. Síðan er prjónað sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Haldið svona áfram með útaukningu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-24-26-28-29-32 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 244-260-284-300-316-340 lykkjur í umferð (= 60-64-70-74-78-84 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki í). Stykkið mælist ca 29-32-35-37-39-43 cm, mælt í prjónstefnu frá eftir kanti í hálsmáli. Klippið frá. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 25-25-29-31-31-31 lykkjur á þráð fyrir hálfri ermi, fitjið upp 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-89-97-109 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 49-49-57-61-61-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 73-81-85-89-97-109 lykkjur (= framstykki), setjið 24-24-28-30-30-30 lykkjur sem eftir eru á fyrsta þráðinn fyrir ermi og fitjið upp 2-2-3-3-4-4 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju í hvorri öxl og setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju mitt að framan. Látið prjónamerkin sitja þar – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-172-184-192-212-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og setjið 1 prjónamerki í 3.-3.-4.-4.-5.-5. lykkju af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir annarri erminni, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu (= hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni, rendur og útaukningu mitt að aftan og mitt að framan eins og áður, JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur við hvort eitt af 2 nýju prjónamerkjum í hliðum – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð til loka. Prjónið þar til stykkið mælist 13-13-13-13-11-7 cm mitt að framan, mælt frá prjónamerki í miðju lykkju frá skiptingu (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú eru eftir ca 5 cm með stroffi að loka máli) – stillið af að síðasta umferð sé prjónuð án úrtöku/útaukninga. Klippið frá. Setjið lykkju með prjónamerki í mitt að aftan + lykkjur fram til á undan lykkju með prjónamerki í mitt að framan á 1 þráð (= hálft bakstykki + hálft framstykki), það á að prjóna yfir þessar lykkjur aðeins síðar. Nú er hálft framstykki og hálft bakstykki á prjóni. HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Sjá útskýringu með táknum í A.1 fyrir þennan part. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt að framan/mitt að aftan. Haldið áfram með sléttprjón, rendur og úrtöku við prjónamerki í hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. HÁLFT FRAMSTYKKI/BAKSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði á hringprjón 7 og prjónið á sama hátt og hitt hálft framstykki/bakstykki. NEÐRI KANTUR: Byrjið í annarri hliðinni og prjónið upp ca 156-168-180-196-216-232 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum í litnum svartur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – SJÁ AFFELLING. ERMI: Setjið 49-49-57-61-61-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-54-64-68-70-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 3.-3.-4.-4.-5.-5. lykkju af 5-5-7-7-9-9 lykkjum undir ermi, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni, röndum og útaukningu mitt á ermi eins og áður, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við prjónamerki undir ermi – munið eftir ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð til loka. Prjónið þar til stykkið mælist ca 23-21-20-18-14-9 cm mitt á ermi, mælt frá prjónamerki í miðju lykkju frá skiptingu (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú er eftir ca 5 cm stroff til loka) – stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð án útaukninga/úrtöku. Nú er prjónað fram og til baka – sjá útskýringu á táknum A.2 fyrir þennan hluta. Byrjið frá réttu og fellið af lykkju með prjónamerki í mitt á ermi. Haldið áfram með sléttprjón, rendur og úrtöku við prjónamerki mitt undir ermi – JAFNFRAMT er fækkað um 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð. Haldið svona áfram þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR Á ERMI: Byrjið mitt undir ermi og prjónið upp ca 52-56-64-64-68-72 lykkjur meðfram öllum neðri kanti á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum í litnum svartur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) – prjónið upp innan við úrtöku, þannig að úrtakan verði ekki sýnileg. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (48)
Rotraud Röstel wrote:
Wie stricke ich den unteren teil, so das ein gerader Abschluss wird?
24.03.2022 - 05:59DROPS Design answered:
Liebe Frau Röstel, am Ende Rumpfteil teilen Sie die Arbeit in 2 Teilen, von der Mitte an der hinteren Mitte bis der Mitte an der vorderen Mitte (= halbes Rückenteil + halbes Vorderteil), und dann stricken Sie jedes Teil separat in Reihen, gleichzeitig sollen 2 Maschen am Anfang jeder Reihen (Hin- sowie Rückreihe = beidseitig) abgekettet bis 3 Maschen noch übrig sind. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2022 - 09:48Andrea wrote:
Hallo, ich bin am Rumpfteil angekommen und soll weiterhin in jeder 2. Reihe in der vorderen und hinteren Mitte das Loch stricken aber nur in jeder 4. Reihe an den seitlichen Markierern abnehmen. Das würde bedeuten, dass ich insgesamt aber zunehme und das Teil eine A-Form bekommt. Oder hab ich etwas falsch gelesen? Liebe Grüße und vielen Dank für die Hilfe
25.01.2022 - 17:32DROPS Design answered:
Liebe Andrea, also ja genau, das Teil wir eine leichte A-Form haben, aber es gibt auch nicht so viele Zunahmen before beide Teilen dann separat fertig sind. Viel Spaß beim stricken!
26.01.2022 - 08:47Gudrun Augst wrote:
Hallo, ich möchte dieses Modell stricken mit sky, aber nur einfädig. Dabei habe ich Schwierigkeiten mit der Umrechnung. Können Sie mir helfen? Vielen Dank Gudrun Augst
12.01.2022 - 22:45DROPS Design answered:
Liebe Frau Augst, das Modell sollten Sie dann komplett umrechnen, da die Maschenprobe unterschiedlich sein. Leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage umrechnen, hier finden Sie andere Anleitungen, die Ihnen inspirieren können. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!
13.01.2022 - 08:42Neige wrote:
Hallo, ich bin bei A1 angekommen. Ich bin mir unsicher in zwei Punkten: 1. mache ich die Abnahmen an der Seite wie vorher in jeder 4. Runde oder in A1 jede 2. Runde? 2. mache ich an jeder Seite (also vordere und hintere Mitte) zwei Abnahmen indem ich auf der Hinreihe je zwei am ende der nadel abnehme oder zwei auf der Hinrehe und zwei auf der Rückreihe abnehme? Vielen Dank für die Antwort Neige
15.05.2021 - 22:24DROPS Design answered:
Liebe Neige, A.1 wird jeweils in Reihen gestrickt, die Abnahmen bei der Seite entstehen wie zuvor in jeder 4. Reihe (= in jeder 2. Hinreihe); gleichzeitig sollen Sie die 2 ersten Maschen am Anfang jeder Reihe (Hin- sowie Rückreihe) abketten (nicht abnehmen). Viel Spaß beim stricken!
17.05.2021 - 09:14Yannick wrote:
Je voudrai faire ce modèle avec un seul fil en taille L, pouvez-vous me guider?
02.01.2021 - 11:14DROPS Design answered:
Bonjour Yannick! Vous pouvez lire: Comment remplacer un fil ou une quantité.<>
Bon tricot!
02.01.2021 - 14:03Yannick wrote:
Je voudrai faire ce modèle avec un seul fil en taille L, pouvez-vous me guider?
02.01.2021 - 11:13DROPS Design answered:
Bonjour Yannick! Vous pouvez lire: Comment remplacer un fil ou une quantité.<>
Bon tricot!
02.01.2021 - 14:03Siv wrote:
Hei. Denne er så fin! Kan man strikke den i et annet garn slik at den ikke blir så dyr?
20.09.2020 - 10:00DROPS Design answered:
Hei Siv. Du kan strikke denne genseren i kvaliteter som tilhører samme garngruppe (B) / samme strikkefastheten, der noen har halve prisen enn DROPS Sky. Men DROPS Sky har en løpelengde på ca 190 meter, men de andre kvalitetene i samme garngruppe har en kortere løpelengde og man må derfor kjøpe nesten dobbelt så mye garn som er oppgitt i oppskriften. Men ta en titt på de ulike kvalitetene i garngruppe B og sjekk prisen, sjekk også garnkalkulatoren på hvor mye garn du trenger. God Fornøyelse!
21.09.2020 - 13:55Andrea wrote:
Liebes Team, warum benötige ich in Größe S 550g Sky und bei anderen geringelten Pullovern nur 250g? Ist das "Muster" so aufwendig? Liebe Grüße
24.08.2020 - 17:37DROPS Design answered:
Liebe Andrea, dieses Pullover ist mit Streifen gestrickt, deshalb braucht man mehr Garn im Total als einen unifarbigen Pullover. Viel Spaß beim stricken!
25.08.2020 - 09:08Helle wrote:
Hej Jeg er meget glad for min trøje i Drops Sky, men jeg er i tvivl om, hvordan jeg tørrer den efter vask. I jeres vaskeanvisninger står der, at man ikke må lægge dryppende vådt tøj til tørre, men hvad gør jeg så, når den skal håndvaskes, og den hverken må trykkes eller vrides?
28.07.2020 - 15:23DROPS Design answered:
Hej Helle, jo du må gerne trykke vandet ud af blusen med et håndklæde eller 2 og så lade den ligge over et tørrestativ til den er helt tør. (Man kan også centrifugere den let om man har et sådan program i sin vaskemasken). God fornøjelse!
28.07.2020 - 15:30Barbara wrote:
Dear DROPS Team, I think there is a mistake in section with BODY decrease (it is every 4th row, and I think IT SHOULD BE every 2nd row). Otherwise the jumper will not be in straight shape/line. I will appreciate your feedback (I have checked both English and Polish versions of this pattern) My Best Regards!
15.05.2020 - 22:54DROPS Design answered:
Dear Barbara, our Design Team checked and pattern is right, you have a slight a-shape, but there shouldn't be so many increases neither. Happy knitting!
02.06.2020 - 11:41