Rose Water Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-26 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: 6½-7-7-7-7½-8 cm með ljós beige Sky 2½-2½-2½-3-3-3 cm með bleikfjólublár Kid-Silk 6½-7-7-7-7½-8 cm með hvítur Sky 2½-2½-2½-3-3-3 cm með ljós beige Kid-Silk 6½-7-7-7-7½-8 cm með ljós beige Sky 2½-2½-2½-3-3-3 cm með ljós beige Kid-Silk 6½-7-7-7-7½-8 cm með ljós fjólublár Sky 2½-2½-2½-3-3-3 cm með bleikfjólublár Kid-Silk Prjónið síðan með ljós beige Sky til loka. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo að það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Aukið út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 186 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim fjölda lykkja sem eftir er með með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 34) = 5,4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónaður er kantur meðfram miðju að framan og að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni með röndum og stroff kanti. BERUSTYKKI: Fitjið upp 106-114-122-126-134-142 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með ljós beige Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 4 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir fyrstu 19-21-23-24-26-28 lykkjur (= framstykki), annað prjónamerki er sett á eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerki er sett á eftir næstu 36-40-44-46-50-54 lykkjur (= bakstykki), fjórða prjónamerkið er sett á eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), nú eru 19-21-23-24-26-28 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= framstykki). Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 23-26-27-30-32-35 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 290-322-338-366-390-422 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 18-20-21-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti mitt fram. Ef þessu máli hefur ekki verið náð er hægt að prjóna áfram án útaukninga að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 43-47-49-54-59-65 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-68-72-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-96-106-116-128 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 60-68-72-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-47-49-54-59-65 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-238-262-286 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-38-38-46-50-54 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 220-240-256-284-312-340 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 4,5. Peysan mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-72-76-78-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjón 4,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-12-12-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-12-12-14-14 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og rendur hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 11-4-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 3-6-9-10-11-12 sinnum = 62-64-66-68-70-72 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 33-31-31-29-27-26 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-12-14-12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með hringprjón 4,5. Ermin mælist ca 36-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 101-105-109-113-117-125 lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3,5 með ljós beige Sky (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1). Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, ca 101-105-109-113-117-125 lykkjur meðfram hægra framstykki á hringprjón 3,5 með ljós beige Sky (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið á að vera ca 7 cm frá kanti í hálsmáli. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – ATH: Fallegast er ef fellt er af fyrir hnappagötum í brugðnu einingunum (séð frá réttu). Haldið áfram með stroff þar til það mælist jafn langt og á vinstri kant að framan. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 114-122-130-134-142-150 lykkjur meðfram öllu hálsmálinu á hringprjón 3,5 með litnum ljós beige Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 110-114-118-122-126-134 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Gitte Ovesen wrote:
Kan jeg bruge Drops Puna til: DROPS Design: Model sk-025
31.10.2023 - 13:50DROPS Design answered:
Hej Gitte, ja du kan bruge DROPS Puna, sørg for at overholde strikkefastheden som står i opskriften, så vil størrelsen stemme med målene i måleskitsen :)
31.10.2023 - 14:36Agnethe ONeill wrote:
Mangler ribkanten i halsen ikke i opskriften? På billedet er er der ribkant.
04.03.2022 - 15:58Else Lange wrote:
Der står “strik retstrik, strik ret på alle pinde frem og tilbage. Mener du ikke ‘glatstrik’ skiftevis ret og vrang? Vh Else.
21.10.2021 - 20:37DROPS Design answered:
Hej Else. Hele tøjet strikkes i glatstrik med ribkanter. När vi skriver "RETSTRIK (strikkes frem og tilbage): Strik ret på alle pinde" är det kun en förklaring på hur retstrik strikkes (kanktmasken strikkes i retstrik). Mvh DROPS Design
22.10.2021 - 08:30Bjørg Monsen wrote:
Det må da bli både penere og sterkere om man strikker med dobbel tråd med kid silk i oppskriften Rose Water. Det ser heller skrøpelig med bare en tråd.\r\nMvh Bjørg Monsen
12.10.2021 - 20:01Bjørg Monsen wrote:
Jeg syns feltene med Kid silk m en tråd blir så gjennomsiktig, så tror det vil bli penere og at fargene kommer bedre fram m to tråder. Er Kid silk sterk nok, de feltene ser heller skrøpelige ut.
12.10.2021 - 18:57Gunhild Auråen wrote:
Hei. Strikkes det med to tråder av kid silk i denne oppskriften ?
03.08.2021 - 11:51DROPS Design answered:
Hej Gunhild, nej du stickar med en tråd :)
04.08.2021 - 08:33Tina wrote:
Diese Jacke ist sehr gut im Schnitt und leicht zu stricken, perfekt, um Reste mit einzuarbeiten. Ich habe sie mit 3/4 Arm gemacht und stricke gerade die zweite. Vielen Dank für die tolle Anleitung.
05.05.2020 - 16:57José Van Den Boom wrote:
Ik weet niet of ik de steken voor de zijkant van de mouw , bij de mouw moet gaan meebreien of bij het rug en voorpand?
09.03.2020 - 18:57DROPS Design answered:
Dag José,
Als je het werk gaat splitsen nadat je de pas hebt gebreid zet je steken op in de zijkant, deze brei je dan bij het lijf. Als het lijf klaar is ga je de mouwen breien en neem je onder de mouw steken op in de steken die voor het lijf onder de mouw/oksel zijn opgezet.
10.03.2020 - 20:09Jorunn Engen wrote:
Hei Hvor kjøper jeg drops perlemorknapp som i denne oppskriften rosewater jacket
31.01.2020 - 16:38DROPS Design answered:
Hei Jorunn. Ta en titt under: Finn en DROPS Butikk! De fleste der skal ha denne perlemorknappen. God Fornøyelse!
03.02.2020 - 11:59Anne-Christine wrote:
Bonjour! Pour les bordures des devants, est-ce que les deux mailles lisières au point mousse sont en haut ou en bas? Merci d'avance
01.10.2019 - 03:19DROPS Design answered:
Bonjour Anne-Christine, les 2 m point mousse doivent être en bas (= devant gauche, 1er rang sur l'envers on commence par 2 m point mousse (= en bas du gilet) et on termine par 1 m lis au point mousse (en haut, côté encolure)) et devant droit, on commence sur l'endroit par le côté col = 1 m lis au point mousse et on termine par 2 m au point mousse en bas du gilet. Bon tricot!
01.10.2019 - 10:13