Talvik Jacket |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 197-11 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 7,1. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan. Ef auka á út þá er það gert á eftir ca 7. hverja lykkju (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Þegar mynsturbekkur er prjónaður með tveimur litum í berustykki, prjónið grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjuna slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í kraga mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 132-136-140-144-152-160 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið viðmiðju að framan) á hringprjón 2,5 með lintum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar storffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-17-13-13-13-17 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 115-119-127-131-139-143 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið mynstur frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 1 lykkja), prjónið A.2 (= 4 lykkjur) alls 26-27-29-30-32-33 sinnum á breidd, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Í umferð með svartri stjörnu í A.2 er aukið út um 20-24-20-24-32-36 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 239-251-263-275-299-311 lykkjur (meðtaldar 4 lykkjur sem auknar hafa verið út í mynstureiningu A.2). Prjónið nú mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.3 (= 1 lykkja), A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. JAFNFRAMT í umferð með ör er auki út jafnt yfir þannig: ÖR-1: Aukið út 24-36-36-36-36-36 lykkjur = 263-287-299-311-335-347 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur = 287-311-335-347-371-383 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 12-24-24-36-36-36 lykkjur = 299-335-359-383-407-419 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 28-28-28-28-28-28 lykkjur = 327-363-387-411-435-447 lykkjur. Þegar allt A.3 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið 20 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið prjónað áfram með ljós beige til loka. Haldið áfram með uppfitjunarkanti og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 10-8-8-10-12-13 lykkjur jafnt yfir. Aukið svona í 4.-4.-4.-6.-8.-8. hverri umferð alls 1-2-3-3-3-4 sinnum = 337-379-411-441-471-499 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 55-60-64-70-75-81 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 99-109-117-129-141-151 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 64-75-83-86-90-93 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-64-70-75-81 lykkjur sem eftir eru slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 229-249-269-293-319-345 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 60-65-70-76-82-89 lykkjur inn frá hvorri hlið = 109-119-129-141-155-167 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð alls 9 sinnum = 265-285-305-329-355-381 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 83-87-95-107-117-123 lykkjur jafnt yfir = 348-372-400-436-472-504 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-75-83-86-90-93 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-85-95-98-104-109 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona í 10.-8.-6.-6.-6.-4. hverri umferð 7-3-9-5-1-18 sinnum og í 8.-6.-4.-4.-4.-2. hverri umferð 4-12-10-14-20-4 sinnum = 52-55-57-60-62-65 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-30 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-19-20-18-19 lykkjur jafnt yfir = 68-72-76-80-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þega stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (40)
Arja wrote:
Hej, hur räknas storlekarna i denna kofta?
16.04.2023 - 12:30DROPS Design answered:
Hej Arja, du kan se målene i de forskellige størrelser i måleskitsen nederst i opskriften :)
17.04.2023 - 15:03TinTin Planthaber wrote:
Har just börjat sticka men när jag ska börja oket undrar jag varför det finns 2! olika ”natur” i diagram A4. Förklara vad det betyder för mig. Förklara det. Tack på förhand.
12.12.2022 - 21:49DROPS Design answered:
Hej Det är bara att vi har använt olika symboler för natur i de olika diagrammen. Men båda symboler ska alltså stickas med natur. Mvh DROPS Design
13.12.2022 - 14:03Ewa wrote:
Nä men vänta nu! Seriously, lite fokus. 1) ni skriver fel -ni menar 4m A2 (inte A1) 2) oket börjar väl med 1m A1? Sen A2, 4x27 och avslutar med 1m A1?! 3) det blir, hur man än räknar 110m. Det måste vara fel någonstans? Jag kan ju inte ha 1m A1 bara i ena sidan! /Ewa
27.09.2022 - 09:09DROPS Design answered:
Jo Ewa A.1 bara i ena sidan!! Så 5 kantm 1 m A.1 (4m x 27 = 108m) 5 kantm = 119 m
27.09.2022 - 09:22Ewa wrote:
Hej igen. En sak till ang oket; 5 kantm + A1 (1m) + A2 (4m) x 27 + A1 (1m) + 5 kantm = 120 m å det ska vara 119?!? 1+108+1 = 110 +5+5= 120
26.09.2022 - 16:45DROPS Design answered:
sådan her står det: 5 framkantsmaskor i rätstickning, A.1 (= 1 maska), sticka A.2 (= 4 maskor) totalt 27 ggr på bredden, 5 framkantsmaskor i rätstickning! Dvs 5 + 1 + 108 + 5 = 119
27.09.2022 - 09:06Ewa wrote:
Jag måste tänka knasigt. Får inte ihop det. Ni skriver: "Hej Ewa, jo 4 m x 27 = 108 + 1m (A.1) + kantm 5+5m = 119 maskor " Men, det ska ju vara A1 (1 maska) + A2 (4 maskor) = 5m. Det blir ju bara 21 ggr å tyvärr end 4m innan de sista 5 kantmaskorna (119m). Varför får jag inte ihop det?
26.09.2022 - 16:16DROPS Design answered:
... nej! Som sagt så er det kun de 4 masker fra A2 du strikker 27 gange - 4x27=108 !!!
27.09.2022 - 09:02Ewa wrote:
Nä, snart ger jag upp! Vad är det jag inte förstår?! Jag kommer ingenstans i mönstret - inget stämmer ju?! Stickar M = 136m. Minskar 17 = 119m. På varvet m svart stjärna öka 24m = 251 (!)m. Hur är det möjligt? Jag har 119, ökar 4m i A2 + 24m vid svart stjärna, 119+4+24= 147!!! Hur kan det bli 251?!?
26.09.2022 - 15:13DROPS Design answered:
Hej Ewa, du har 119 masker, i A.2 øker du 4 m (varv 1, 3,11,13) x 27 = 108 + 24 ved stjernen = 251 maskor :)
26.09.2022 - 15:49Ewa wrote:
Hej! Jag förstår inte. Börjar m oket. A1 (1 maska) och A2 (4 maskor). A2 ska upprepas 27ggr (!) på bredden! Omöjligt. Har 119 m varav 10 är kantmaskor. Det blir max 20ggr + 4 maskor innan kanten?! Har gjort om flera ggr å för samma resultat! Vad är felet?/Ewa
26.09.2022 - 14:53DROPS Design answered:
Hej Ewa, jo 4 m x 27 = 108 + 1m (A.1) + kantm 5+5m = 119 maskor :)
26.09.2022 - 15:52Ewa wrote:
Hej igen! Ert svar på min tidigare fråga har fått ett \"tryckfel\" igen tror jag! Se här: det ska väl stå A2 och inte A4 i parentesen?! "Hei Ewa. Ja, her har det nok blitt en tastefeil. Det skulle ha stått A.2, ikke A.1. Om du ser på diagram A.2, så økes det med 4 masker når A.2 er strikket 1 gang i høyden... (inkluder de 4 maskene som er økt i hver rapport A.4) Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design\"
26.09.2022 - 13:49Ewa wrote:
Hej! Kan förstår inte mönstret. Det står:"(inklusive de 4 maskorna som har ökats i varje rapport A1)* enl diagrammet A1 ökas det INTE i A1. Confused!
26.09.2022 - 11:36DROPS Design answered:
Hei Ewa. Ja, her har det nok blitt en tastefeil. Det skulle ha stått A.2, ikke A.1. Om du ser på diagram A.2, så økes det med 4 masker når A.2 er strikket 1 gang i høyden. Så om det står slik i oppskriften: (inkluder de 4 maskene som er økt i hver rapport A.4), så stemmer det bedre. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS Design
26.09.2022 - 13:18Ewa Klintestam Nordin wrote:
Hej! Jag ska sticka koftan Talvik Jacket, 197-11 i just de färgerna som är på bilden. MEN, färgen mellanbrun, 403 tycks inte finnas?! Det är ju nästan den som "gör" hela okmönstret då den bryter av lite... Hur blir det med hasselnöt, 9025? eller Kan jag ersätta med ngt annat garn med samma färg?
18.07.2022 - 14:25DROPS Design answered:
Hej Ewa, Alpaca farve 403 er desværre udgået, men har du set farve 22 kastanj i DROPS Nord: DROPS Nord den strikkes på samme strikkefasthed :)
03.08.2022 - 15:06