Love Letter |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með gatamynstri. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 188-31 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. MÆLING: Þegar byrjað er á öldumynstri kemur stykkið til með að bylgjast í neðri kanti. Öll mál á lengdina er gerð þar sem boginn er minnstur. ÚRTAKA-1 (á við um pilsið á kjólnum): Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-3: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 22,5. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 21. og 22. hver lykkja og 22. og 23. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á kjól og mitt undir ermum): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út hvoru megin við prjónamerki í hliðum á kjól og hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp að opi við miðju að framan, síðan er stykkið prjónað fram og til baka frá miðju að framan. Eftir úrtöku fyrir handveg er fram- og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. KJÓLL: Fitjið aðeins laust upp 247-266-285-323-342-380 lykkjur á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 (= 13-14-15-17-18-20 mynstureiningar með 19 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Í umferð merktir með ör-1 í A.1 færist byrjun á umferð um 2 lykkjur til vinstri til að mynstrið gangi jafnt upp. Í umferð merktri með ör-2 í A.1 færist byrjun á umferð um 1 lykkju til vinstri. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 156-168-180-204-216-240 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28 cm – lesið MÆLING, setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett á eftir fyrstu 18-21-24-30-32-38 lykkjur, 2. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur, 3. prjónamerki er sett á eftir næstu 36-42-48-60-64-76 lykkjur og 4. prjónamerki er sett á eftir næstu 42-42-42-42-44-44 lykkjur. Nú eru 18-21-24-30-32-38 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Í næstu umferð er lykkjum fækkað á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – lesið ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4½-4½-5½.-5½-6-6 cm millibili alls 7-7-6-6-6-6 sinnum við hvert prjónamerki = 128-140-156-180-192-216 lykkjur. Fjarlægið öll prjónamerki. Þegar stykkið mælist 59-60-61-62-63-64 cm (nú hafa allar úrtökur verið gerðar) prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-0-8-0-4 lykkjur jafnt yfir = 128-140-156-172-192-212 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í hlið), setjið 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= miðja að framan) og 1 prjónamerki á eftir 32-35-39-43-48-53 lykkjur (= í hlið), nú eru 64-70-78-86-96-106 lykkjur á milli prjónamerkja og bakstykki. Skiptið til baka yfir á hringprjón 5. Klippið frá. Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjón frá prjónamerki við miðju að framan. Byrjið fyrstu umferð frá réttu við prjónamerki við miðju að framan og prjónið þannig: A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki í hlið er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja), prjónið A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), A.3B (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur), 40-46-50-58-64-74 lykkjur sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 40-46-50-58-64-74 lykkja) og endið með A.3A (= 12-12-14-14-16-16 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm frá skiptingu = 136-148-164-180-200-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 12-12-14-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. prjónið 6-6-7-9-11-13 lykkjur í garðaprjóni hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Í fyrstu umferð frá réttu á eftir garðaprjóni eru felldar af 6-6-8-12-16-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3-3-4-6-8-10 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Framstykki og bakstykki er nú prjónað hvort fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með A.3A við miðju að framan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg (fyrsta aumferð er prjónuð frá röngu). Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3A við miðju að framan þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og stillið af þannig að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina ef það er mögulegt). Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 31-34-37-39-42-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg, sléttprjón og A.3B við miðju að framan (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Nú þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 29-31-32-33-34-34 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3B við miðju að framan, sléttprjóni og 3 kantlykkjum í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist ca 84-87-90-93-96-99 cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og endið í sömu umferð í A.3 eins og vinstra framstykki). Setjið fyrstu 7-8-8-9-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, en til þess að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: = 62-68-74-78-84-90 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, sléttprjón og A.3A/A.3B við miðju að aftan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA-2 (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 2-3-5-6-8-11 sinnum = 58-62-64-66-68-68 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með A.3A/A.3B við miðju að aftan, sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg þar til stykkið mælist 88-91-94-97-100-103 cm. Fellið nú af miðju 26-28-28-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður yfir axlalykkjur og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 15-16-17-17-17-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 90-93-96-99-102-105 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið saman op við miðju að framan, neðan frá og upp þar til eftir eru ca 10 cm fyrir hálsmál (eða að óskaðri lengd) - saumið í ysta lykkjuboga á ystu lykkju svo að saumurinn verði flatur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við miðju að framan og prjónið upp frá réttu ca 72 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 2 þræði Paris ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Festið litla tréperlu á hvorn enda á snúrunni. Gerið 2 skúfa og saumið niður einn skúf á hvorn enda á snúrunni, undir tréperlunni í hvorri hlið. 1 skúfur = Klippið 12 þræði Paris ca 11 cm. Klippið 1 þráð ca 25 cm til að sauma skúfinn með og leggið þennan þráð mitt í 12 þræðina. Leggið þræðina saman tvöfalda og hnýtið með nýjum þræði í kringum skúfinn (ca 1 cm frá toppi), festið vel og saumið skúfinn við snúruna eins og útskýrt er að ofan. Gerið hinn skúfinn alveg eins. Leggið snúruna með skúfunum saman tvöfalda og þræðið lykkjuna í gegnum eina lykkju efst í opið framan á kjólnum, þræðið snúru endana í gegnum lykkjuna. Gerið alveg eins snúru með tréperlum og skúfum og festið efst í op í hinni hliðinni. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (20)
HannaV wrote:
Hei, en saa kuviota täsmäämään\r\nkuviossa A1, rivistä 29 eteenpäin, vaikka olen siirtänyt aloituskohtaa kaksi merkkiä vasemmalle.Mitä pitäisi tehdä?
12.03.2023 - 15:13Magda wrote:
Robię tę sukienkę i utknęłam na rzędzie 27. Robię 5 oczek prawych, podwójny narzut, oczko prawe, podwójny narzut, 5oczek prawych, przekładam 1 oczko na prawy drut, przerabiam 3 oczka razem i przekładam oczko zdjęte ponad oczkami przerobionymi razem. Wzoru powinny być zamknięte 2 oczka, żeby pozostało 15 oczek na motyw, z moich obliczeń wynika, że zamykam 3 oczka, więc zostaje mi 14 oczek na motyw... Co robię źle? 21.09.2022 - 19:50
22.09.2022 - 09:51DROPS Design answered:
Witaj Magdo, wyjściowo masz 15 oczek na każdy motyw zanim zaczniesz przerabiać rząd 27. Po przerobieniu rz. 27 będziesz miała o 1 oczko mniej w każdym motywie, czyli 14 oczek > dodasz 2 oczka wykonując narzuty i zamkniesz 3 oczka (+2-3 = -1). Tak więc po przerobieniu rz. 27 zostanie Ci 14 oczek na każdy motyw, czyli dokładnie jak u Ciebie. Powodzenia!
22.09.2022 - 11:50Isabel wrote:
Guten Tag, für die Vorderteile soll laut Anleitung 3 Reihen hin- und zurückgestrickt werden, dann für den Armausschnitt in der nächsten Hin-Reihe abnehmen. Ist damit gemeint, dass jeweils 3 Reihen hin und 3 Reihen rück gestrickt werden soll oder soll insg. 3 Reihen gestrickt werden bis zum Abnehmen? Danke für die Hilfe!
06.03.2022 - 10:28DROPS Design answered:
Liebe Isabel, es sind insgesamt 3 Reihen gemeint. Viel Spaß beim stricken!
07.03.2022 - 08:59Debay JOCELNE wrote:
Bonjour, vous avez toujours des beaux modèles mais malheureusement, il me faut me contenter chaque fois du dessin du patron parce que vous ne mettez plus que des tricots faits avec les aiguilles circulaires. c'est pour ça que je ne peut essayer vos laine, mes machines à tricoter ne se prêtant pas volontiers au tricots circulaire. Je suis triste de ne plus comme avant tricoter vos propositions !
13.12.2021 - 12:52DROPS Design answered:
Bonjour Mme Debay, peut-être que cette leçon pourrait vous donner quelques pistes pour adapter nos explications sur des aiguilles droites/machine à tricoter?
14.12.2021 - 07:57Therese wrote:
I A1 er det pil 1 og 2. Hvordan forskyver jeg disse maskene? Har prøvd, men blir feil. Et eller annet jeg ikke forstår.
09.07.2021 - 23:03DROPS Design answered:
Hej Therese, jo hvis du sørger for at de 2 midterste kast havner lige over de 2 midterste kast fra tidligere pinde, så vil du få 5 retmasker på hver side af omslagene ved pil 1 og 4 retmasker ved pil 2. God fornøjelse!
13.07.2021 - 14:51TinaP wrote:
3 st kantmaskor vid ärmhålan, hur ska jag göra de?
20.04.2021 - 18:17DROPS Design answered:
Hej Tina. Du stickar 3 kantmaskor i rätstickning, dvs du stickar de räta på varje varv när du stickar fram och tillbaka. Mvh DROPS Design
21.04.2021 - 07:10Hanna wrote:
Miia, ihmettelin itse samaa, katso englanninkielinen ohje, siinä on kerrottu että aukko ommellaan lopuksi kiinni.
18.07.2020 - 14:00Mia wrote:
Miksi mekko neulotaan tasona A.2 kuvion jälkeen? Kuvassa näyttää siltä että halkion alku on ommeltu kiinni jonkin matkaa. Senhän olisi voinut pyörönä jatkaa vielä ylemmäs? Lisäksi halkion ompelusta ei ole mainintaa, mutta eihän se voi auki jäädä noin alas?
04.06.2020 - 00:15Lídia Ribeiro wrote:
Since there is no picture of the back of the dress I'd like to clarify if we need to knit A3B and A3A on the back. From what I'm reading in the instructions I understand that we do. I just need to check if I'm reading it right. Thank you.
24.04.2020 - 09:33DROPS Design answered:
Dear Mrs Ribeiro, yes you will work A.3A and A.3B in the back of piece, as explained in the written pattern. Happy knitting!
24.04.2020 - 09:45Sofia wrote:
Där det står pil 1 i mönster A1 förkjuter jag mönstret två maskor. Ska man göra det varje varv efter det. Får det inte att bli ett "hål V" annars.
27.03.2020 - 09:53DROPS Design answered:
Hej Sofia, du skal ikke forskyde maskerne yderligere, men når du har forskudt en gang, starter du nu diagrammet hver for hver gang. Sørg for at du får 2 masker mere imellem hvert omslag og strik de 3 masker sammen over hinanden hver gang. God fornøjelse!
31.03.2020 - 11:14