Morgan's Daughter |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Peysa með köðlum og A-formi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Flora.
DROPS 179-3 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 26 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 3,25. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um handveg): Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 4 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 1 lykkju sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig og prjónað er ofan frá og niður. Þegar útaukningu fyrir handvegi hafa verið gerðar, eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna til loka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á stutta hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka, síðan er prjónað í hring á stutta hringprjóna, en skipt er yfir á sokkaprjón eftir þörf. VINSTRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3 með Flora. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 31-31-33-33-35-35 lykkjur brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 10 umferðir í A.1 eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. fitjið upp 1 nýja lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru fitjaðar upp 34 nýjar lykkjur fyrir hálsáli í lok síðustu umferðar frá röngu = 77-77-79-79-81-81 lykkjur. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að framan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ FRAMAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slét frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.2 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umferðir í A.2 eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er í A.2, þ.e.a.s. fitjið upp 1 lykkju 3 sinnum og 2 lykkjur 3 sinnum = 43-43-45-45-47-47 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru hægri og vinstri öxl settar saman við framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI. Setjið lykkjur frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (þær 34 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á vinstri öxl að framan = miðja að aftan) = 120-120-124-124-128-128 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur), prjónið A.4 (= 38 lykkjur), prjónið A.5 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 17-15-16-14-13-13 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni í byrjun á umferð og á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni í lok umferðar. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3-7-7-13-17-21 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 132-142-150-162-178-190 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 3 sléttum kantlykkjum og 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.6 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir í A.6 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar frá röngu eins og útskýrt er í A.6 = 36-36-38-38-40-40 lykkjur. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í A.6 eru fitjaðar upp 48 nýjar lykkjur fyrir háls í lok síðustu umferðar frá röngu = 84-84-86-86-88-88 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl að aftan eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL AÐ AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið jafnframt út um 8 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið til baka frá röngu með 31-31-33-33-35-35 lykkjum brugðið og 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.7 (= 31-31-33-33-35-35 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir í A.7 eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok síðustu umferðar frá réttu eins og útskýrt er í A.7 = 36-36-38-38-40-40 lykkjur. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka eru vinstri og hægri öxl settar saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið lykkjurnar frá báðum öxlum á sama hringprjón 3 (48 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli á hægri öxl að aftan = miðja að aftan) = 120-120-124-124-128-128 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (byrjið á 3. umferð í A.3, A.4 og A.5 merkt með stjörnu): Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur), prjónið A.4 (= 38 lykkjur), prjónið A.5 (= 38-38-40-40-42-42 lykkjur) og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur (þegar A.3, A.4 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina frá 3. umferð, endurtakið mynstureiningu með öllum umferðum á hæðina til loka). JAFNFRAMT er aukið út fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 17-15-16-14-13-13 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – lesið ÚTAUKNING-2, þ.e.a.s. aukið út frá réttu á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni í byrjun á umferð og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í lok umferðar. Aukið út í annarri hverri umferð alls 3-7-7-13-17-21 sinnum, síðan eru fitjaðar upp 3-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok tveggja næstu umferða = 132-142-150-162-178-190 lykkjur og stykkið mælist ca 19-20-21-22-24-26 cm frá öxl og niður. Setjið nú framstykki og bakstykki saman eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið lykkjur frá framstykki á prjóninn (án þess að prjóna lykkjurnar), setjið 1 prjónamerki (= í hlið), setjið lykkjur af bakstykki á prjóninn og setjið 1 prjónamerki (= í hlið) = 264-284-300-324-356-380 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 6-7-9-9-11-13 lykkjur garðaprjón, 3-7-7-13-17-21 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón, 12-14-18-18-22-26 lykkjur í garðaprjóni (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 12-14-18-18-22-26 lykkjum), prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 3-7-7-13-17-21 lykkjur sléttprjón og endið með 6-7-9-9-11-13 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir miðju 12-14-18-18-22-26 lykkjur í hvorri hlið er næsta umferð prjónuð þannig: ATH. Byrjið umferð 3 lykkjum á undan prjónamerki á hlið, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður, prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.8 (= 6 lykkjur, prjónamerki er staðsett mitt í A.8), prjónið 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3, A.4 og A.5 eins og áður og endið með 6-11-13-19-25-31 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 32-34-36-38-40-42 cm frá öxl (ca 13-14-15-16-16-16 cm frá handveg), aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm) til loka (ef prjónfestan passar á hæðina jafngildir það ca 21 útaukningum á hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm eru ca 348-368-384-408-440-464 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru prjónaðar lykkjur í hverjum kaðli (bæði kaðlar með 4 lykkjur og köðlum með 2 lykkjum) slétt saman 2 og 2 (á einungis við um kaðla, ekki í brugðnu mynstureiningum eða einingum í sléttprjóni) = ca 294-314-330-354-386-410 lykkjur. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverri lykkju jafnframt sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Öll peysan mælist ca 74-76-78-80-82-84 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 38-40-40-42-48-48 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum, 2 lykkjur 2 sinnum í öllum stærðum, 1 lykkja 7-8-11-13-14-17 sinnum, 2 lykkjur 2-2-1-1-1-1 sinnum og 3-4-6-6-8-10 lykkjur 1 sinni = 80-86-92-98-110-120 lykkjur og stykkið mælist ca 8-9-10-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón hringinn, en yfir miðju 6 lykkjur undir ermi er prjónað A.8. Þegar stykkið mælist 3-3-3-2-2-1 cm frá prjónamerki er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 11-14-15-18-22-26 sinnum = 58-58-62-62-66-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-29-29-29-27 cm frá prjónamerki (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-23-23-24-22 lykkjur jafnt yfir = 80-80-85-85-90-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.8 yfir 6 lykkjur mitt undir ermi, prjónið A.9A þar til 4 lykkjur eru eftir á undan A.8 (= 14-14-15-15-16-16 mynstureiningar 5 lykkjur) og endið með A.9B (= 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stroffið mælist 12 cm er öllum 3 lykkjum fækkað í 2 lykkjur brugðnar með því að prjóna 2 lykkjur brugðnar saman í hverri brugðinni mynstureiningu 64-64-68-68-72-72 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stroffið mælist 15 cm (öll ermin mælist ca 53-54-54-55-56-56 cm frá uppfitjunarkanti). Í næstu umferð eru lykkjurnar í hverjum kaðli prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 48-48-51-51-54-54 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 3 eða slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju eins og á fram- og bakstykki. Ermin mælist ca 54-55-55-56-57-57 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Prjónið upp ca 116 til 126 lykkjur í kringum hálsmál á stutta hringprjóna 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er fellt af á stutta hringprjóna 3. Saumið ermar í. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (37)
Mich wrote:
Follow up to your response re: the three new stitches cast on sent March 24th. Question: I omitted to mention that I’m referring to the new stitches for the armhole. After I have increased one stitch at the beginning and at the end of every second row. Could you respond to include this additional information? Thanks
24.03.2021 - 12:00DROPS Design answered:
Dear Mich, the new stitches increased for armholes are worked in stocking stitch and the 3 new sts cast on on each side are knitted - they will be later worked in garter stitch - see under BODY. Happy knitting!
24.03.2021 - 12:56Mich wrote:
Hi, am I correct to say that only the first set of three new stitches cast on at the end of the row are knitted as they will be the first stitches of the next row? The second set of three new stitches that are cast on at the end of the row will be knitted when the front piece is joined to the back piece? Am I on the right track? Thanks
24.03.2021 - 01:18DROPS Design answered:
Dear Mich, the increases for neck are including in A.1, ie the first 2 sts increased are worked P from RS (K from WS), the 3rd st increased in worked K from RS (P from WS), ie you cast on 1 stitch 3 times and then 2 sts 3 times, just as shown in diagram. Can this help? Happy knitting!
24.03.2021 - 08:47Mich wrote:
Hello, I’ve completed the 20 rows on charts A3/4 and 5. How are the cable stitches worked that extend at the top after row 20? Also, which rows complete the pattern? Thanks
21.03.2021 - 13:38DROPS Design answered:
Dear Mich, when you are done in the diagram, go down to 1st row to repeat diagram again in height; but the cable that extend at the top should be worked on every 6th row, ie, on first row 2nd repeat in height, work 21st row in diagram over these stitches and so on. Happy knititng!
22.03.2021 - 08:12Bitte wrote:
Har strikket A3, A4 og A5, første rapporten (20 omg)på framstykket. Hvordan skal jeg begynne å gjenta rapporten når det fortsetter mønster for fletting av 4 masker på visse steder ovenfor rapporten? Skal alle de økte maskene for ermehullet fortsatt strikkes vrange? Hvordan tenkte Drops her? Jeg vil ha et svar, takk på forhånd.
19.03.2021 - 19:22DROPS Design answered:
Hei Bitte. Når du har strikket A.3, A.4 og A.5 1 gang i høyden, gjentar du diagrammene i høyden, men flettene (de over de 4 maskene) må strikkes ferdig i høyden før de kan repeteres i høyden, de vil da bli en forskyvning i høyden slik at flettene alltid har 5 omganger med glattstrikk før "fletten". Økningene til ermhullene gjøres fra retten og på neste pinne strikkes kastet vridd vrang slik at det ikke blir hull. mvh DROPS design
07.04.2021 - 11:07Kristina Nilsson wrote:
Ska diagram A3/A4/A5 på framstycket upprepas hela tiden eller fortsätter man på varv 3 när man stickat dem en gång.
30.07.2020 - 23:26DROPS Design answered:
Hej Kristina, jeg er ikke sikker på jeg forstår dit spørgsmål... A.3, A.4 og A.5 upprepas från varv 1 framöver. Lycka till
04.08.2020 - 10:39Sarah wrote:
Pour les diagrammes A3, A4 et A5, comment gérer les petits "bouts" de diagrammes restant en haut pour les torsades à 4 mailles? Doit-on recommencer en bas du diagramme mais en modifiant la partie torsade pour garder la même régularité, ajouter des lignes en fin de diagramme pour inclure ce petit morceau (mais que fait-on sur le reste de la ligne?) ou autre chose encore??
06.04.2020 - 12:58DROPS Design answered:
Bonjour Sarah, les "petits bouts" de diagrammes en hauteur correspondent aux rangs manquants pour répéter ces torsades en hauteur, autrement dit, quand ces diagrammes sont terminés en hauteur, reprenez-les au premier rang, mais continuez les torsades comme avant (= vous devez toujours avoir 5 rangs entre chaque torsade). Bon tricot!
09.04.2020 - 14:15Kristina Ramberg wrote:
Dags att börja sticka fram o bak ihop MEN upptäcker då att jag inte är på samma varv i mönstret a3-a5 på bakstycket som på FRAM! Har jag gjort något fel och var i så fall. Varför ska man börja vid stjärnan på bakstycket en omgång men i te o gång 2? Blir det inte ett konst,ig avbrott mitt i mönstret om jag lägger till två rader innan jag fortsätter med flätorna. Jag förstår inte snälla hjälp mig. Vänlig hälsning kristina
13.09.2019 - 17:38DROPS Design answered:
Hej Kristina, det gör inget att du inte är på samma varv på fram och bakstycke, om annars du har kommit lika långt i cm när du sätter ihop maskorna. Men kan det vara därfor stjärnan viser var du skall börja... ?
02.10.2019 - 12:02C J wrote:
Næste spørgsmål er så, når man begynder at tage ud til ærmegab, hvordan skal de udtagne maske strikkes? Jeg kan se at spørgsmålet er stillet før (på svensk), men jeg forstår ikke det svar der gives.
02.09.2019 - 20:02C J wrote:
Jeg forstår ikke fortsættelsen efter man har strikket mønster A3, A4 og A5. Jeg går ud fra, at man skal gentage mønsteret, men så får man for mange pinde mellem snoningerne. I mønsteret er der 5 pinde mellem hver snoning. Når man starter forfra på mønsteret vil der komme 7 pinde!
02.09.2019 - 20:01Kari Frøyland wrote:
I diagrammet for a.3+4+5 er det en fletterad i hver hvor det er vist 4 rader ekstra i høyden. Betyr det at en rapport for disse radene egentlig består av 6 rader per rapport som egentlig fungerer uavhenging av resten av diagrammet (ikke synkront med diagrammet for resten) - kan det stemme?
21.05.2019 - 19:39