DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki |
1430.00 kr /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Kid-Silk uni colour 75% Mohair, 25% Silki 1430.00 kr /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Radiant Darling Cardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með laskalínu og stroffi, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-1324 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 2 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, prjónamerki. Aukið út um 2 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinniuppá prjóninn, 2 l sl, prjónamerki. Aukið út um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, prjónamerki. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, 1 l sl, 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 l eru eftir í umf (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l slétt saman og endið með 2 l sl. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá hálsi): STÆRÐ S: 2, 9, 16, 24, 32, 40, 48 og 56 cm STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 51 og 60 cm STÆRÐ XL: 2, 9, 16, 23, 31, 39, 47, 55 og 62 cm STÆRÐ XXL: 2, 9, 16, 23, 31, 39, 47, 55 og 64 cm STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 58 og 66 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 100-104-108-112-116-120 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum BabyAlpaca Silk. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, 2 l sl, endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 3 cm, passið uppá að næsta umf sé frá röngu, skiptið yfir í 1 þráð af hvorri tegund. Prjónið 1 umf frá röngu með stroffi og garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 l eru eftir JAFNFRAMT er fækkað um 14-18-18-22-22-26 l jafnt yfir, endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 86-86-90-90-94-94 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út um 8-8-16-24-36-40 l jafnt yfir í næstu umf frá röngu = 94-94-106-114-130-134 l. Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 16-16-18-20-23-23 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki (= vinstra framstykki), 10-10-12-12-14-16 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki (= ermi), 32-32-36-40-46-46 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki (= bakstykki), 10-10-12-12-14-16 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki (= ermi), 16-16-18-20-23-23 l sléttprjón (= hægra framstykki), endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA – sjá hér: Aukið er út mismunandi á ermum og fram- og bakstykki. LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Aukið út um 2 l í hverri umf frá réttu alls 2-4-5-7-8-10 sinnum, síðan 1 l í hverri umf frá réttu 17-16-16-15-15-14 sinnum = 74-80-88-98-108-114 l á bakstykki og 42-45-49-54-59-62 l á hvoru framstykki. LASKALÍNA ERMI: Aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (= 2 l fleiri á hvorri ermi) þannig: Aukið út um 1 l í hverri umf frá réttu alls 19-20-21-22-23-24 sinnum = 48-50-54-56-60-64 l á ermi. Eftir alla útaukningu eru 254-270-294-318-346-366 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, 37-40-44-49-54-57 l sléttprjón, setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, 74-80-88-98-108-114 l sléttprjón, setjið næstu 48-50-54-56-60-64 á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 l undir ermi, 37-40-44-49-54-57 l sléttprjón, endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 174-186-202-222-242-254 l. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið með sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Munið eftir HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm aukið út um 6 l jafnt yfir = 180-192-208-228-248-260 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, endið með 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir í 2 þræði BabyAlpaca Silk. Prjónið stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br yfir stroff l og sl l yfir garðaprjóns l. ERMI: Setjið til baka 48-50-54-56-60-64 l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Fitjið upp 8 l í lok umf = 56-58-62-64-68-72 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 4½-4-3½-3-3-2½ cm millibili 8-9-10-11-12-13 sinnum til viðbótar = 38-38-40-40-42-44 l. Þegar stykkið mælist 41 cm, aukið út um 2-2-4-4-6-4 l jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 l. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 4, prjónið 1 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Skiptið yfir í 2 þræði BabyAlpaca Silk og prjónið síðan stroff þar til stykkið mælist 46 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Velia wrote:
Muy buenos los patrones,me teji 3 sweters ya,😁 genial,aprendí a tejer con agujas circulares con uds.
27.05.2024 - 19:46Velia wrote:
Estoy feliz y agradecida,aprendí con uds a tejer con agujas circulares y es mu ho más cómodo,se me dificulta reservar el jersey revés con la otra mano,nada mas
19.05.2024 - 21:15Christine wrote:
I don’t understand the 2 increases for the first 2 alternate rows. From the photo I see the yarns over one on top of each other. Further more why purl twisted the yarn over before marker ? Are the increases on the back without holes ?
12.02.2023 - 19:26DROPS Design answered:
Dear Christine, when increasing for raglan with one or 2 yarn overs, all these yarn overs will be purled twisted on next row (from the wrong side) to avoid holes. Happy knitting!
13.02.2023 - 10:21Cindy Goodman wrote:
What size button is a #600. I need either a mm or inch size
23.02.2022 - 17:00DROPS Design answered:
Dear Mrs Goodman, please find all our buttons here, including DROPS no 600 = 15 mm. Happy knitting!
24.02.2022 - 10:03Anna wrote:
Dzien dobry. Co to znaczy ze inaczej dodaje sie oczka na reglan na rekawie a inaczej na przodzie/tyle? Ktory to reglan rekawa a ktory przod/tyl? I co bedzie jesli bede oddawac na reglan tak samo wszedzie? Pozdrawiam Anna
11.04.2021 - 21:57DROPS Design answered:
Witaj Aniu, oczka na reglan są dodawane w 4 miejscach w przejściach między tyłem/przodami i rękawami. W każdym z tych miejsc są dodawane oczka zgodnie z opisem w części DODAWANIE OCZEK. Przed 1-szym i 3-cim markerem i za 2-gim i 4-tym markerem – są to reglany tyłu i przodu, za 1-szym i 3-cim markerem i przed 2-gim i 4-tym markerem – reglany rękawów. W tym wzorze jest tak, że oczka są dodawane w innej częstotliwości na tyle/przodach, a w innej na rękawach. Najlepiej sobie gdzieś na kartce to zaznaczać, żeby się nie pomylić. Jak będziesz dodawać tak samo wszędzie, to karczek będzie miał inny kształt niż ten we wzorze. Pozdrawiamy!
12.04.2021 - 10:19Francesca Antonelli wrote:
Buonasera vorrei fare questo modello con cotone Muscad è possibile?
29.03.2020 - 21:08DROPS Design answered:
Buongiorno Francesca. Muskat è più sottile del filato consigliato nel modello. Se vuole lavorare con il cotone, potrebbe usare il filato Safran (messo doppio), oppure il filato Paris (con 1 capo solo). Verifichi sempre la correttezza del campione. Il suo rivenditore Drops di fiducia è a sua disposizione per aiutarla nella scelta. Buon lavoro!
30.03.2020 - 12:53Francesca Antonelli wrote:
Buongiorno oleo fare questo cardigan però ho una lana che mi ha regalato mia zia ..come faccio per far combaciare le misure x fare questo modello ? In più è possibile farlo con il collo più alto ?
30.11.2019 - 22:08DROPS Design answered:
Buonasera Francesca, deve lavorare un campione e controllare che corrisponda a quello indicato. Per le modifiche del collo può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
30.11.2019 - 22:15Ines wrote:
Witam. Chciałabym wykonać ten model z włóczki Flora. Jak musiałabym przeliczyć dodawanie oczek na reglan? Może jest identyczny model z włóczki grupy A, żeby uniknąć przeliczeń? Z góry dziękuję za odpowiedź.
28.03.2019 - 11:23DROPS Design answered:
Witaj Ines! Jak będziesz wykonywać sweterek 2 nitkami włóczki DROPS Flora, to otrzymasz A+A=C, dokładnie jak we wzorze. Dla pewności wykonaj próbkę, jak nie będzie 100% zgodna zmień rozmiar drutów na trochę mniejszy/większy. Nic nie trzeba będzie już zmieniać we wzorze. Powodzenia!
28.03.2019 - 16:06Lolih wrote:
Bonjour Je voudrais me tricoter un gilet avec la laine Merino extra fine MAIS AVEC 2 AIGUILLES . Je ne sais pas tricoter avec les aiguilles en rond et.. je n,ai pas envie de m,y mettre. Est ce quelqu’une pourrait me donner r un modèle à suivre svp ... mil merci......
21.03.2019 - 16:21DROPS Design answered:
Bonjour Lolih! Comment adapter un modèle sur aiguille circulaire pour des aiguilles droites vous trouverez ICI. Bon tricot!
22.03.2019 - 07:58Annette wrote:
Liebes Drops Team, es gibt in dieser Anleitung einen Fehler : Muss es nicht heißen 8 M gleichmäßig verteilt abnehmen und dann im Text danach : 42 glatt re (Rückenteil) ??? Oder mache ich einen Denkfehler ? habe schon gerechnet, komme aber auf kein anderes Ergebnis. Und stimmen denn die folgenden Angaben ?? Vielen Dank und liebe Grüße
06.11.2018 - 17:18DROPS Design answered:
Liebe Annette, leider verstehe ich nicht Ihre Frage - wie weit sind Sie genau? Bei der Verteilung für die Ärmel, schlägt man 8 M über die stillgelegten Maschen (unter jeden Ärmel). Dann werden bei jedem Ärmel auch 8 M angeschlagen - diese 8 M werden dann unter dem Arm später zusammengenäht.
07.11.2018 - 08:19