DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6902.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Black Ice

Prjónuð peysa með norrænu mynstri og hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-5
DROPS Design: Mynstur nr ne-217
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
500-550-600-650-700-800 g litur nr 0100, natur
200-250-250-300-300-350 g litur nr 0506, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 6 – fyrir kraga

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6902.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 148 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 34 l) = 4,3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 3. og 4. l prjónaðar slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l) og sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp, þar til stroffið og klaufin í hvorri hlið hefur verið prjónað til loka. Síðan eru bæði stykkin sett inn á sama hringprjón og prjónað er í hring. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handvegi. Síðan eru ermar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli á stuttan hringprjón.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 92-100-112-124-132-148 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað frá réttu – þannig: 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, stroff (= 2 l br, 2 l sl) þar til 3 l eru eftir, endið með 3 l garðaprjóni. Prjónið stroff í 8 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5, prjónið 1 umf slétt og fækkið um 20-22-28-28-30-34 l jafnt yfir = 72-78-84-96-102-114 l – LESIÐ ÚRTAKA! Haldið áfram með sléttprjón með 3 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 18 cm. Geymið stykkið.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið bæði stykkin saman á sama hringprjón nr 5,5 síðan er prjónað í hring yfir allar l = 144-156-168-192-204-228 l. Haldið áfram í sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm prjónið A.1 yfir allar l (= 12-13-14-16-17-19 mynstureiningar á breiddina) – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar 1 umf er eftir í A.1 (stykkið mælist ca 40-41-42-43-44-45 cm) prjónið næstu umf þannig (= síðasta umf í A.1): Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 66-72-76-88-92-104 l (= framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 66-72-76-88-92-104 l (= bakstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar nægilega margar l hafa verið auknar út.
Fitjið upp 52-52-52-56-56-56 l á sokkaprjóna nr 4,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 6 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum = 40-40-40-44-44-44 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið sléttprjón með litnum natur. Þegar stykkið mælist 11-11-13-13-10-12 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2½-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-12-13-15 sinnum = 60-62-64-68-70-74 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-22 cm prjónið A.1, ör í A.1 = mitt á ermi, teljið út frá ör og prjónið þannig að mynstrið verði eins í báðum hliðum, útauknu l í hliðum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, ATH! Mynstrið gengur ekki jafnt upp í einni heilli mynstureiningu. Í síðustu umf í A.1 (stykkið mælist 43-43-42-42-42-41 cm, ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 l mitt undir ermi = 54-56-56-60-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 5,5 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 240-256-264-296-304-336 l. Prjónið fyrstu umf í A.2, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 234-252-270-288-306-324 l. Haldið áfram með mynstur og úrtöku eins og útskýrt er í A.2 (= 13-14-15-16-17-18 mynstureiningar). LESIÐ LEIÐBEININGAR! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka – sjá ör fyrir rétta stærð eru 130-140-150-160-153-162 l í umf. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 34-44-50-56-49-54 l jafnt yfir = 96-96-100-104-104-108 l.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið upphækkun að aftan á hringprjóna nr 5,5 með litnum natur: Prjónið sl þar til eftir eru 10-10-12-12-14-16 l á undan prjónamerki að framan, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 10-10-12-12-14-16 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 20-20-22-22-24-26 l á undan prjónamerki að framan, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 20-20-22-22-24-26 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru 30-30-32-32-34-36 l á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br þar til eftir eru 30-30-32-32-34-36 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Stykkið mælist alls 66-68-70-73-75-77 cm frá neðri kanti að öxl.

KRAGI:
= 96-96-100-104-104-108 l. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 6, síðan er prjónað stroff hringinn (2 l sl, 2 l br). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 22-22-22-24-24-24 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op í handvegi.

Mynstur

symbols = natur
symbols = dökk grár
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

#BlackIce

Tuija Nygren, Denmark

Black Ice

Maria, United Kingdom

Fair Isle Sweater

Tara, United States

173-5 Black Ice

Irina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (63)

country flag Susanna wrote:

Hola buenas tardes! Me pregunto si 100 puntos no son muchos para hacer el elástico en la parte delantera + la trasera al inicio, cuando se hacen las dos partes por separado... a mi me sale una prenda enorme!!! En que me equivoco?

09.01.2021 - 17:57

DROPS Design answered:

Hola Susanna. El patrón es correcto. Los 100 pts son sólo para la parte elástica del jersey con las aberturas laterales para que la prenda no quede muy tensa en la parte inferior. El cuerpo se trabaja sobre 156 pts. ( con la tensión según el patrón).

10.01.2021 - 11:47

country flag Emmy wrote:

Bij het breien van het patroon met 2 kleuren., sla je de draden dan aan de achterkant om of per figuur een aparte draad?

08.11.2020 - 20:12

country flag Joelle DALEGRE wrote:

Le modèle Black Ice est fait avec naturel et gris foncé mais je ne trouve pas ces couleurs dans les commandes possibles, je fais comment ? le modèle est superbe !!! ou je change pour quelle autre fil ? Merci !

21.10.2020 - 12:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dalegre, si votre boutique habituelle est en rupture de stock, n'hésitez pas à les contacter pour savoir quand ils auront du réassort - vous trouverez également la liste des magasins DROPS proposant DROPS Nepal ici, vous trouverez peut-être les couleurs que vous cherchez. Vous pouvez également utiliser notre convertisseur pour voir d'autres alternatives. Bon tricot!

21.10.2020 - 12:09

country flag Vivia wrote:

Hej. Jeg har strikket denne trøje i M og den blev ALT for stor og der var et helt ngl. grå garn aom jeg ikke fik brugt. Den blev også meget stor/land under ærmene, og det så lidt mærkeligt ud. Jeg vil gerne strikke en ny en i atørrelse S, men hvordan kan jeg ungå de mærkelige poser under ærmene?

25.09.2020 - 10:01

DROPS Design answered:

Hej Vivia, denne model er stor i størrelsen, du kan se i måleskitsen nederst i opskriften at hel længde i en Small = 66 cm og omkredsen er 90 cm. Hvis du overholder strikkefastheden som står i opskriften, så vil du få disse mål. God fornøjelse!

24.11.2020 - 14:43

country flag Fabiana wrote:

Gostaria de saber que adaptações preciso fazer na receita para tecer de cima para baixo (topdown). Obrigada!

17.06.2020 - 07:42

DROPS Design answered:

Bom dia, Não podemos indicar-lhe esse tipo de informação. Sugerimos que procure em nosso motor de busca modelos top down (cima para baixo) Deixamos uma seleção de modelos no link Bom Tricô!

17.06.2020 - 11:34

country flag Rie wrote:

Hej. Jeg har strikket Black Ice og min strikkeprøve til str L passede hele vejen. Jeg strikker løst så har været opmærksom på størrelsen hele vejen. Nu er den færdig og vasket. Den er blevet alt alt for stor - hele bryste er alt for stort og sidder ikke tæt. Kan I hjælpe? Er det modellen der er løs siddende eller er det måske "bare" en for stor størrelse jeg har strikket. Mvh Rie

21.05.2020 - 09:15

DROPS Design answered:

Hej Rie, hvis du holder strikkefastheden, så får du målene både i højde og bredde som du finder nederst i måleskitsen. Hvis du strikker løsere så vil du også automatisk få en større størrelse. L = 106 cm i omkreds ifølge måleskitsen. God fornøjelse!

27.05.2020 - 14:21

country flag Rie wrote:

Hej :-) I opskriften ved bærestk, dvs når jeg skal sætte ærmer og bolen sammen, står der man skal justere maske ant til 234 - 252 - 270 osv - men i str L skal jeg så justere FRA 264 TIL 270 m. Kan det passe?

16.04.2020 - 10:47

DROPS Design answered:

Hei Rie. Ja, det kan stemme. Det er for at mønstret skal gå opp. God Fornøyelse!

17.04.2020 - 14:09

country flag Rikke Bilde wrote:

I afsnittet luk af til ærmegab skriver I: I den ene side lukkes først for 3 m og den anden side 6 m. Efterfølgen på næste p: 3 masker i hver side. Er det 3 eller 6 m på første omgang?? Mvh Rikke

03.04.2020 - 06:28

DROPS Design answered:

Hej Rikke, du lukker 6 masker af i hver side. Når du starter omgangen lukker du 3 første 3 masker af, strikker videre og lukker alle 6 masker af i den anden side, strikker videre og lukker de sidste 3 masker af i den første side (nu har du lukket 6 masker af i hver side). God fornøjelse!

21.04.2020 - 09:28

country flag Tove wrote:

Hej vil gerne have garn og mønster i str m kan ikke lige finde ud af hvordan jeg bestiller mvh Tove

13.03.2020 - 21:09

DROPS Design answered:

Hei Tove. Da en titt på vår side; "Find en butik". Der finder du en liste over aktive DROPS forhandlere og hvem som sender garn. Mønstret skriver du ut fra nettsiden gratis. God Fornøyelse!

16.03.2020 - 13:08

country flag Wieringa Marijke wrote:

Blijkbaar word ik niet serieus genomen. Ik stel een vraag en krijg een dom en verkeerd antwoord. Slechte zaak Drops!

27.01.2020 - 13:12