Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= litur beige | |
= litur natur |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Eveningstar |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með stjörnum úr DROPS Karisma. Stærð S til XXXL.
DROPS 135-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni og mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-208-224-248-264-288 l á hringprjóna nr 3 með litnum beige DROPS Karisma. Prjónið stroff = 5 l sl, 3 l br í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað er um 10-14-10-14-10-14 l jafnt yfir = 174-194-214-234-254-274 l. Setjið prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 87-97-107-117-127-137 l (þau merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 8 cm millibili alls 4 sinnum = 190-210-230-250-270-290 l. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm er prjónuð mynsturteikning M.1 – byrjið á lykkju merktri með ör fyrir þína stærð, byrjið aftur við sömu ör þegar þú kemur að prjónamerki í hlið svo að mynstrið verði eins bæði á fram- og bakstykki með 1 stjörnu fyrir miðju. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm, fellið af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki eru nú prjónuð til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 87-97-107-117-127-137 l. Haldið áfram með M.1 til loka mynsturs, prjónið nú áfram með litnum beige. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 3 l 0-0-1-1-2-3 sinnum, 2 l 0-2-2-3-3-4 sinnum og 1 l 2-2-2-4-5-4 sinnum = 83-85-89-91-93-95 l eftir á prjóni. Stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, setjið miðju 21-21-23-23-25-25 l á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig – JAFNFRAMT er fellt af í hverri umf fyrir hálsmáli: 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum = 24-25-26-27-27-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki, en fellið ekki af fyrir hálsmáli fyrr en stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 33-33-35-35-37-37 l af. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – JAFNFRAMT er felld af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 24-25-26-27-27-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-56-56-56-56-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum beige DROPS Karisma. Prjónið stroff = 5 l sl, 3 l br 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið prjónamerki við miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 10 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 8-9-7-6-5-6 umf millibili alls 15-13-15-17-19-17 sinnum = 78-82-86-90-94-98 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-51-50-49 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 8 l við miðju undir ermi. Prjónið nú stykkið til loka fram og til baka - JAFNFRAMT fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 3 sinnum og 1 l 3-5-6-7-9-10 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61 cm, fellið nú af 4 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma og saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 85 til 95 l kringum hálsmál (meðtaldar eru lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 4 með litnum beige DROPS Karisma. Prjónið 1 umf brugðið síðan er prjónuð 1 umf slétt jafnframt er aukið út jafnt yfir til 96-96-104-104-112-112 l. Haldið áfram með stroff = 5 l sl, 3 l br í ca 4 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (48)
Strikkeinterresert wrote:
Skal ermene noen gang settes på rundpinnen med bolen? Hva betyr det at ermene skal sys i? Hvordan gjøres dette?
28.12.2019 - 16:19DROPS Design answered:
Hei. Nei, ermene settes ikke på rundpinne sammen med bolen på denne modellen. Først strikkes bolen rundt på rundpinne, før forstykket og bakstykket deles ved ermhullet og hver del strikkes hver for seg. Så strikkes ermene sammen. Ermene sys fast til bolen, se hjelpe video(Hvordan montere med en usynlig søm) under oppskriften om det behøvs. God Fornøyelse!
20.01.2020 - 11:11Amalthea wrote:
Kann es sein, dass die Abnahme für den Ärmel einen Fehler hat? In der Anleitung steht: "Weiter auf beiden Seiten je 2 M. abk. bis die Arbeit 61 cm misst. " Der Ärmel bzw. die Armkugel wird dadurch zu lang. Sind es stattdessen vielleicht auf beiden Seiten je 12 Maschen?
22.12.2019 - 10:41DROPS Design answered:
Liebe Amalthea, es wird bei der Ärmel 2 Maschen auf beiden Seiten abgekettet bis die Arbeit 61 cm in allen Größen misst - und dann 4 Maschen am Anfang nächster beiden Reihen abketten und alle restlichen Maschen abketten = die Ärmel mist 62 cm in allen Größen und die Armkugel 8 bis 13 cm je nach der Größe - siehe Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2020 - 09:57Esther Meyer wrote:
Kann ich dieses Modell auch mit Merino Extra Fine stricken?
08.01.2019 - 21:13DROPS Design answered:
Liebe Frau Meyer, ja genau, DROPS Karisma und DROPS Merino Extra Fine gehören beide zur Garngruppe B - benutzen Sie unseren Garnumrechner, um die neue Garnmenge zu kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2019 - 08:45Maria Aheinen wrote:
SAMTIDIGT maskas det av för ärmhål i början på varje v i varje sida: 3 m 0-0-1-1-2-3 ggr, 2 m 0-2-2-3-3-4 ggr och 1 m 2-2-2-4-5-4 ggr = 83-85-89-91-93-95 m kvar på st. Hur menar ni?
07.11.2018 - 20:56DROPS Design answered:
Hej Maria. Du har 117 m på framstycket i XL. Du maskar av de 3 första maskor (för ärmhål), stickar varvet ut, vänder, maskar av de 3 första maskor i den andra sidan (1 gång i varje sida). Nu maskar du av 2 m varje gång du börjar varvet, det gör du totalt 3 ggr i varje sida. Sist 1 m totalt 4 ggr i varje sida. 117m-3-3-2-2-2-2-2-2-1-1-1-1-1-1-1-1=91m. Lycka till.
08.11.2018 - 09:33Maria wrote:
Hej då jag stickat på rundstickor 49 cm och ska börja maska av och sticka indivituellt hur gör jag det på rundstickor.
02.11.2018 - 05:21DROPS Design answered:
Hej Maria, Om du har 250 maskor. Sticka 117 m framstycke, maska av 8 m för ärmhål, sticka de nästa 117 m bakstycke, maska av 8 m för ärmhål. Sätt m på bakstycket på en tråd och fortsätt fram och tillbaka över de 117 m på framstycket. Lycka till :)
02.11.2018 - 08:06Kate Martin wrote:
What size is the model in the picture wearing? I am trying to figure out what size to make for my boyfriend. Thanks!
22.01.2018 - 17:00DROPS Design answered:
Dear Mrs Martin, the best way to find out the matching size is to measure one of his jumpers he likes the shape and compare the measurements to those in measurement chart. Read more about sizing here. Happy knitting!
22.01.2018 - 18:07Suleika wrote:
Hallo ik brei de trui maat L . ik ben gisteren begonnen met het motief maar ik krijg het tweede motief niet volgens patroon boven de eerste, de sterren staan er niet netjes boven. Ik heb wel goed geteld, ik snap niet wat ik fout doe..
10.01.2017 - 07:57DROPS Design answered:
Hoi Suleika. Het is moeilijk voor mij om te zien wat er fout gaat. Maar volg je het telpatroon en begin je elke nld bij de st voor het begin van maat L, dan zou het patroon ook netjes boven elkaar komen.
10.01.2017 - 13:28Olga Ritter wrote:
Hallo! Beim stricken des Vorder- und Rückenteils soll man ja nach 15 cm beginnen Maschen aufzunehmen.Heisst das 15 cm mit oder ohne die 5 cm Bündchen? Liebe Grüße!
12.12.2016 - 22:25DROPS Design answered:
Liebe Frau Ritter, diese 15 cm sind mit die 5 cm Bündchen, dh von der Anschlagsrand. Viel Spaß beim stricken!
13.12.2016 - 08:51Corry Dubois wrote:
Hallo bij het begin van het 2de motief zijn er ondertussen aan weerszijden voor de armsgaten 4 steken afgekant,dan klopt het patroon niet waar je moet beginnen er zijn 4 steken weg, klopt dit ?
19.11.2016 - 10:26DROPS Design answered:
Hoi Corry. Jawel, je blijft het patroon breien over dezelfde st, dus er zijn wel een paar steken weg, maar je verschuift het patroon niet.
21.11.2016 - 15:04Corry Dubois wrote:
Hallo ,nog eens opnieuw begonnen in maat large, 117 steken waarvan 2 voor de zijkanten gestart bij het pijltje aan de averechtse kant zoals het patroon aanduidt ,dit is voor het grote motief dus 3steken karisma bruin dan 1 wit en dan afwisselend 9 bruin en 1 wit tot aan het eind, 11 groepen van 9 met telkens 1 wit ertussen, op het eind nog 3 bruin ,krijg het patroon niet gebreid zoals het op de diagrammen staat ,kan ook niet symmetrisch stekenaantal is on paar ,alvast bedankt groetjes Corry
17.11.2016 - 08:06DROPS Design answered:
Hoi Corry. Je begint met 117 st + 2 kantsteken (= 119 st) en je moet ook niet vergeten dat je moet meerderen aan de zijkanten: 4 keer 2 st = 125 st + 2 kantst op de nld (lees het patroon). Vanaf hier brei je het telpatroon uit vanaf het pijltje (= 12 st), hierna het hele telpatroon herhalen (20 st) 5 keer (100 st gebreid en als goed is heb je nu 13 st + 1 kantst over op de nld. Brei de eerste 13 st van het telpatroon + 1 kantst. Dan klopt het patroon ook
17.11.2016 - 13:26