Provence Purple Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með stuttum ermum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 232-52 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 10, 17, 25, 33 og 41 cm M: 10, 18, 26, 34 og 43 cm L: 10, 18, 26, 35 og 44 cm XL: 10, 19, 28, 37 og 46 cm XXL: 10, 19, 28, 37 og 47 cm XXXL: 10, 19, 29, 39 og 49 cm ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Lykkjum er fækkað innan við 2 lykkjur: Fækkið lykkjum í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju garðaprjón. Fækkið lykkjum í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið út umferðina eins og áður. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Ermar skiptast þegar fellt er af fyrir handveg og síðan er prjónað fram og til baka. PEYSA: Fitjið upp 299-327-355-383-425-453 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu með því að prjóna 2 fyrstu lykkjur í hverri brugðinni einingu brugðið saman (frá réttu). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu lykkjur í hverri brugðinni einingu brugðið saman = 217-237-257-277-307-327 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A alls 20-22-24-26-29-31 sinnum, prjónið A.1B og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 175-191-207-223-247-263 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 9 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 17-17-21-21-21-17 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 158-174-186-202-226-246 lykkjur í umferð. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni) – í 7. umferð í A.2 er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1-1-1-0-0-1 lykkja slétt, prjónið A.2 þar til eftir eru 5-6-6-5-5-6 lykkjur, prjónið 0-1-1-0-0-1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, prjónið næstu umferð þannig – nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og framstykkin/bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Prjónið 39-43-46-50-56-61 lykkjur, prjónið 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið síðustu 39-43-46-50-56-61 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 39-43-46-50-56-61 lykkjurnar á þráð og prjónið áfram yfir síðustu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju 2-4-5-8-12-15 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur af fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-20-21-21-22-23 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir handvegi í hlið – munið eftir ÚRTAKA: 1 lykkja 2-4-5-8-12-15 sinnum = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð, fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI. Setjið til baka fyrstu 39-43-46-50-56-61 lykkjur á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan og fækkið lykkjum fyrir handvegi í hlið: 1 lykkja 2-4-5-8-12-15 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 37-39-41-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm, setjið ystu 14-15-16-17-18-19 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð, fækkið um 1 lykkju 4 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. ERMI: Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm (mælt frá uppábroti), aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-6-4-3-1-1 cm millibili alls 2-3-4-6-7-9 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-20-20-20-19-17 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur færri mitt undir ermi), prjónið síðan handveg fram og til baka. Fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum, 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 28 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 29 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 76 til 106 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði á framstykki og deilanlegt með 2) með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. UMFERÐ 2 (ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Fellið aðeins laust af. Brjótið uppá stykkið við gataumferð í A.4 þannig að faldur fyrir saum verði að innanverðu á stykkinu. Saumið affellingarkantinn við efsta garðaprjón. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Ramona wrote:
Guten Tag, ich möchte diese zauberhafte Jacke bzw. den Pullover mit einer anderen Wolle stricken, für die ich Nadeln in der Stärke drei benötige - Baunwollgarn von Drops. Wie kann ich das Ganze umrechnen, denn Teile mit kurzen Ärmeln kann ich im Winter nicht tragen. Und diese Wolle ist mir im Sommer viel zu warm. Ich lebe im Süden Europas ..... Hoffentlich können Si Emir helfen. (Maschenprobe bei Nadelstärke 3 sind 24 Maschen in der Breite.)
04.01.2023 - 11:10DROPS Design answered:
Liebe Ramona, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage bzw jeder Maschenprobe umrechnen, aber hier finden Sie alle Jacken mit 25-23 Maschen für 10 cm - davon können Sie sich sicher inspirieren. Viel Spaß beim stricken!
04.01.2023 - 14:03Guillaumond wrote:
Ne tenez pas compte de ma question, je viens de comprendre mon erreur. Désolé
26.09.2022 - 16:01Guillaumond wrote:
Je me demande s'il n y a pas une erreur dans les explications, car sur la partie diminution emmanchure on tricote 39 mailles , on rabat 6m, on tricote 68 mailles on rabat 6 mailles et on tricote les 39 mailles finales, le problème pour les explications suivantes on se retrouve avec le même nombres de mailles 39 m 68 m 39 mailles où sont passé les 12 mailles diminuées ?
26.09.2022 - 15:51Sandra wrote:
In the diagram instructions there is a * after the last instruction then a left arrow folding line. I think this instruction should not be in this pattern.
06.06.2022 - 15:39DROPS Design answered:
Dear Sandra, when you work A.3 on the sleeve edge, you will work this row together with the stitches on cast on edge, see diagram key to the 8th symbol. Happy knitting!
07.06.2022 - 10:33Carole wrote:
Après avoir effectuer A.1A etA.1B, il devrait rester 191m en gr. M Les diminutions se font au 11e rang pour les 2 diagrammes, ma question les 2 m qui étaient en attente sur l’aiguille à torsade doit-on aussi les tricoter ENSEMBLES torse? Sinon où se fait l’autre diminution ? Merci de votre aide
06.06.2022 - 04:17DROPS Design answered:
Bonjour Carole, tout à fait, vous diminuez 2 mailles dans chacune des torsades; glissez 2 mailles sur l'aiguille à torsades devant l'ouvrage, tricotez 2 mailles ensemble torse à l'endroit (= on diminue 1 m), reprenez les 2 mailles sur l'aiguille à torsades et tricotez-les ensemble torse à l'endroit (mention ajoutée de suite, merci pour votre retour). Bon tricot!
07.06.2022 - 09:48Kerry Hullett wrote:
I believe the seventh symbol on your list is incorrect. It is worked over five stitches but only accounts for three stitches
03.04.2022 - 17:06DROPS Design answered:
Dear Mrs Hullett, thanks for your feedback, diagram text has been fixed. Happy knitting!
04.04.2022 - 10:54Birgitte Graven wrote:
Hurra! I viser præcis de billeder, der skal til, for at man får det bedste indtryk af det strikkede. Man ser det forfra, fra siden og fra ryggen. Masser det på en ung slank model og en ældre, som er mere fyldig. Der er nærbillede af mønstret. Det er super. Kan ikke gøres bedre. Gør gerne det noget mere. Det er meget bedre end alle de strikketøjer, hvor I viser flere næsten identiske billeder som regel skråt forfra.
30.03.2022 - 15:34Gabriele wrote:
Wunderschön! Die Jacke wird auf alle Fälle genadelt!
20.02.2022 - 10:39Josephine wrote:
Lilac lady
18.01.2022 - 19:36Au Fil De Lau wrote:
Sans chichis
17.01.2022 - 14:14