Evening Fires Jacket |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-39 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 5, 13, 21, 29, 37 og 45 cm M: 5, 13, 21, 29, 38 og 47 cm L: 5, 13, 22, 31, 40 og 49 cm XL: 5, 14, 23, 31, 41 og 51 cm XXL: 5, 14, 23, 33, 43 og 53 cm XXXL: 5, 15, 25, 35, 45 og 55 cm ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja) og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat = 2 lykkjur fleiri. Prjónið síðan nýjar lykkjur brugðið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-124-132-140-148-156 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 5 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á hringprjón 8. Haldið áfram þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8 lykkjur brugðið. A.1 (= 10 lykkjur sem auknar eru út til 15 lykkjur), 14-18-22-26-30-34 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 6 lykkjur brugðið, A.1, 14-18-22-26-30-34 lykkjur brugðið, A.1, 8 lykkjur brugðið, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 141-149-157-165-173-181 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 (= 15 lykkjur) yfir hvert A.1, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 34-36-38-40-42-44 lykkjur fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðustu 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu og síðustu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á þráð og prjónið áfram yfir 65-69-73-77-81-85 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 65-69-73-77-81-85 lykkjur. Prjónið þannig – frá réttu: 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 6 lykkjur brugðið, A.2, 4-6-8-10-12-14 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm, fækkið um 5 lykkjur yfir miðju mynstureiningu af A.2, í næstu umferð eru felldar af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-24-25-26-27 lykkjur. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir handveg). Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á hringprjón 8. Prjónið þannig – frá réttu: 6-8-10-12-14-16 lykkjur brugðið, A.2, 8 lykkjur brugðið, 5 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 8-9-10-11-12-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráð. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá skiptingu fyrir handvegi). HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka síðustu 34-36-38-40-42-44 lykkjur á hringprjón 8. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, 8 lykkjur brugðið, A.2, 6-8-10-12-14-16 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið ystu 8-9-10-11-12-13 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráð. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 22-23-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.2 eru nú prjónaðar í sléttprjóni, fækkið jafnframt um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 17-18-19-20-21-22 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 22-23-24-25-26-27 cm frá skiptingu fyrir handvegi). ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Fitjið upp 32-32-36-36-40-40 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: STÆRÐ S-M-XXL-XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 30-30-38-38 lykkjur, endið með 1 lykkju slétt. STÆRÐ L-XL: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 34-34 lykkjur, endið með 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff í 6 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið brugðnar lykkjur yfir fyrstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.1, brugðnar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, jafnframt eru auknar út 3-4-3-4-3-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina og lykkjur hafa verið auknar út jafnt yfir, eru 43-45-47-49-51-53 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.2 yfir lykkjur í A.1 og brugðnar lykkjur eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið út með 9-9-9-8-8-8 cm millibili alls 5 sinnum í öllum stærðum = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-47-46-45-44 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón til loka máls. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm, fækkið um 5 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-50-49-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er 2 cm klauf efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið tölur í vinstra framstykki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá miðju að framan frá réttu og prjónið upp ca 48-68 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum) á hringprjón 6 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff í 12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (10)
Nancy wrote:
Hello, since A1 (10 sts) is changed to A2 (15 sts) on the RS, is A2 worked on the next row, WS? Thank you.
13.12.2023 - 16:12DROPS Design answered:
Dear Nancy, A.1 is worked over 2 rows: first row is worked with increases from RS and 2nd row is worked from wrong side. A.2 starts from right side. Happy knitting!
13.12.2023 - 16:26Lena wrote:
Hvilken størrelse skal snoningspinden være?
17.10.2023 - 18:39DROPS Design answered:
Hej Lena, det betyder ikke så meget, men hvis du har flere så vælg en omkring pind 6 :)
18.10.2023 - 07:25Karin wrote:
Hoe brei ik de mouw kop van dit patroon? Staat in de beschrijving maar niet duidelijk voor mij. Patroon tekening geeft een rechte bovenkant aan.
11.10.2023 - 18:46DROPS Design answered:
Dag Karin,
Er zit geen ronde mouwkop aan de mouw. De mouw wordt wel a.h.w. een stukje in het pand geschoven, dat kun je zien aan de inham bij de oksel in de tekening. Dus een stukje van de onderarmnaad wordt tegen de mouwopening op het pand genaaid.
11.10.2023 - 19:17Betty wrote:
Bonjour, Je souhaite faire ce modèle avec des aiguilles droites, pourriez-vous m'aider à le convertir ? Je sais que je dois ajouter une maille lisière de chaque côté (donc deux mailles en tout) pour le dos et le devant, ça, ça reste simple... Comment puis-je faire pour le reste ? Les motifs et autres sont inchangés ? Dois-je tricoter différent (endroit/envers) avec des aiguilles droites ? Je suis un peu perdue ! Merci pour votre aide !
15.04.2023 - 17:49DROPS Design answered:
Bonjour Betty, comme le dos et les devants se tricotent en allers et retours sur aiguille circulaire en une seule partie, vous n'avez pas besoin de rajouter de mailles lisières, suivez simplement les indications telles qu'elles sont. Pour les manches, vous devrez juste ajouter 1 m lis de chaque côté. - pensez à les rabattre quand vous commencez le haut de la manche. Bon tricot!
17.04.2023 - 09:06Anita wrote:
Hallo liebes Drops Team,\r\nIch denke da stimmt was mit dem Ärmel nicht. Es steht Anschlag 40 Maschen, danach bei A1 2x 4 Maschen zunehmen, dann sollten total 53 Maschen sein aber das sind ja erst 48. Habe ich etwas übersehen? \r\nLiebe Grüße\r\nAnita
17.02.2023 - 22:48Silke Blechschmidt wrote:
Hallo Team Drops, das ist eine wunderbare Jacke! Können Sie sagen, wieviel Gramm Wolle man mehr benötigt, wenn man die Jacke als Longjacke/Mantel arbeitet, also oberschenkellang in der Größe XL? \r\nVielen Dank.\r\nViele Grüße
26.02.2022 - 12:31Stacey wrote:
Thank you @DROPS Design team!
16.10.2021 - 13:13Stacey wrote:
Hello, I am willing to knit this piece using 1 strand of Brushed Alpaca Silk and 1 strand of Big Merino in size M. Could you tell me how much yarn I will need?
15.10.2021 - 14:46DROPS Design answered:
Dear Stacey, the jacket is worked with 2 strands Brushed Alpaca Silk, divide the amount in 2 and use this amount to convert into Big Merino with the help of our yarn converter. Happy knitting!
15.10.2021 - 16:16Anna Meier wrote:
Als Longjacke / Mantel mit Kapute. Warte schon auf die Anleitung
04.08.2021 - 12:35HERENS wrote:
Tressage
03.08.2021 - 18:07