Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= Byrjið hér! Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Sjá punkt á hring og heklið síðan í átt sem örin sýnir | |
= loftlykkja | |
= fastalykkja í lykkju | |
= stuðull í lykkju |
|
= tvíbrugðinn stuðull í lykkju | |
= stuðull um loftlykkju / stuðull um loftlykkjuboga | |
= stuðull á milli 2 stuðla | |
= sýnir síðustu umferð á fyrri mynsturteikningu, þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð | |
= 4 loftlykkjur | |
= 3 loftlykkjur |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Autumn Ballad |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS Sky. Stykkið er heklað ofan frá og niður með gatamynstri.
DROPS 214-7 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.19. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð eru heklaðar 5 loftlykkjur, loftlykkjur koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul. ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul með því að hekla næstu 2 stuðla saman þannig: Heklið 1 stuðul, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, heklað er ofan frá og niður. SJAL: Notið heklunál 3,5 og Sky, sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið þannig: Heklið mynsturteikningu A.1. Heklið mynsturteikningu A.2, A.3 (= 4 sinnum á breiddina), A.4 yfir hornið, A.3 (= 4 sinnum á breiddina) og A.5. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 29 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.6, A.7 (= 8 sinnum á breiddina), A.8 yfir hornið, A.7 (= 8 sinnum á breiddina) og A.9. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 38 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.10, A.11 (= 11 sinnum á breiddina), A.12 yfir hornið, A.13 (= 11 sinnum á breiddina) og A.14. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 61 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.15, A.16 (= 7 sinnum á breiddina), A.17 yfir hornið, A.18 (= 7 sinnum á breiddina) og A.19. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 83 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.2, A.3 (= 26 sinnum á breiddina), A.4 yfir hornið, A.3 (= 26 sinnum á breiddina) og A.5. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 95 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.6, A.7 (= 30 sinnum á breiddina), A.8 yfir hornið, A.7 (= 30 sinnum á breiddina) og A.9. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 104 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið fyrstu umferð í mynsturteikningu A.10, A.11 (= 33 sinnum á breiddina), A.12 yfir hornið, A.13 (= 33 sinnum á breiddina) og A.14. Heklið 3 næstu umferðir. Heklið síðustu umferðina og fækkið um 2 stuðla jafnt yfir mynstureiningu af A.11 og fækkið um 2 stuðla jafnt yfir mynstureiningu af A.13. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 125 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið fyrstu umferð í mynsturteikningu A.15, A.16 (= 15 sinnum á breiddina), A.17 yfir hornið, A.18 (= 15 sinnum á breiddina) og A.19. Heklið 3 næstu umferðir. Heklið síðustu umferðina og aukið út um 2 stuðla jafnt yfir á undan horni og 2 stuðla jafnt yfir á eftir horni. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 149 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið fyrstu umferð í mynsturteikningu A.19, A.18 (= 18 sinnum á breiddina), A.17 yfir hornið, A.16 (= 18 sinnum á breiddina) og A.15. Heklið 3 næstu umferðir. Heklið síðustu umferðina og aukið út um 2 stuðla jafnt yfir á undan horni og 2 stuðla jafnt yfir á eftir horni. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 173 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið fyrstu umferð í mynsturteikningu A.15, A.16 (= 21 sinnum á breiddina), A.17 yfir hornið, A.18 (= 21 sinnum á breiddina) og A.19. Heklið 3 næstu umferðir. Heklið síðustu umferðina og aukið út um 2 stuðla jafnt yfir á undan horni og 2 stuðla jafnt yfir á eftir horni. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 197 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.2, A.3 (= 64 sinnum á breiddina), A.4 yfir hornið, A.3 (= 64 sinnum á breiddina) og A.5. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 209 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið mynsturteikningu A.6, A.7 (= 68 sinnum á breiddina), A.8 yfir hornið, A.7 (= 68 sinnum á breiddina) og A.9. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 218 stuðlar hvoru megin við hornið. Heklið fyrstu umferð í mynsturteikningu A.10, A.11 (= 71 sinnum á breiddina), A.12 yfir hornið, A.13 (= 71 sinnum á breiddina) og A.14 Heklið 2 næstu umferðir. Heklið síðustu umferðina í mynsturteikningu og fækkið um 2 stuðla jafnt yfir mynstureiningar í A.11 og fækkið um 2 stuðla jafnt yfir mynstureiningu af A.13. Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið heklaðar til loka á hæðina eru 237 stuðlar hvoru megin við hornið. Stykkið mælist ca 51 cm í heklstefnu og ca 72 cm meðfram miðju. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (13)
Corrie Velda wrote:
Ik ben met deze omslagdoek bezig, maar snap de volgorde van A2 en A 3 niet. Hoe moet ik dit lezen. Heb voor mijn doen alles alles geprobeerd maar weet niet hoe ik dit voor elkaar krijg. Graag zou ik uitleg willen. Alvast bedankt.
24.04.2024 - 16:19DROPS Design answered:
Dag Corrie,
De eerste toer (waar een sterretje bij staat) van de telpatronen hoef je niet te haken, dit is de laatste toer van het vorige telpatroon wat je gehaakt hebt en staat er alleen bij om aan te geven hoe je de steken in de vorige toer moet haken. Je haakt eerst A.2, dus je leest in dit geval van links naar rechts: 1 dubbel stokje (omdat dit de eerste is vervang je deze door 4 lossen) en dan 2 stokjes in de zelfde steek, dan 1 stokje in elk van de volgende 2 stokjes van de vorige toer. Daarna haak je 4 herhalingen van A.3 in de breedte van, A.4 haak je over de punt en dan A.3 (4 keer) en A.5 over de andere kant.
24.04.2024 - 17:50Ruth wrote:
Hola, estoy tejiendo el chal, pero tengo un problema, cuando acabo de tejer la primera vuelta de todo el patrón, hasta a19, me coinciden los puntos, pero no sé me queda bien la forma.
06.03.2023 - 00:17DROPS Design answered:
Hola Ruth, en este punto no sería la primera vuelta, sino que la mitad del chal, cuando llegues a A.19, donde tendrías 149 pts. Si la forma no es adecuada, comprueba que el patrón esté simétrico, con la misma cantidad de pts a cada lado del centro. Por otro lado, asegúrate de que la tensión de trabajo sea correcta. Qué es lo que no te queda bien de la forma? Si nos lo indicas podemos intentar ayudarte a alcanzar una solución.
12.03.2023 - 18:16Juliana wrote:
About your answer to Birgitte about this pattern: DROPS 214-7. You said "When you finish A. 1, you have 17 stitches on each side of the tip. You start with A.2 and crochet 5 stitches in 3 stitches. Then crochet A.3 4 times (over 12 stitches), then crochet A.4 over the tip. Then A.3 4 times and A.5 over the last 3 stitches." Your diagram does not mention those extra stitches in A.2. If I crochet those , that will affect the rest of the pattern. How do I adjust the pattern to account for that?
23.02.2023 - 16:23DROPS Design answered:
Dear Juliana, it might have been a typo, there are only 3 sts on the first row in A.2 and A.5 - just work as explained in the written patern following the diagram at the same time. Happy crocheting!
24.02.2023 - 09:44Jo wrote:
Rebonjour, Annule ma question. J'ai résolu pourquoi ! Merci
01.05.2022 - 17:23Jo wrote:
Concernant le diagramme A2 A5, j'obtiens 34 brides au lieu des 29. J'ai beau réfléchir, impossible de trouver la solution. Merci pour votre réponse
01.05.2022 - 13:19DROPS Design answered:
Bonjour Jo, vous devez avoir: A.2 (= 9 brides), 4 x A.3 (= 12 brides) et A.4 (8 brides avant l'arceau) soit: 9+12+8=29. Bon crochet!
02.05.2022 - 10:05Dillenseger Stéphanie wrote:
Quand on crochète la 2ème fois le diagramme A14 à A18, il est indiqué qu'on doit obtenir149 mailles. Or si on regarde le diagramme, on a 13 mailles, puis 15x8 (soit 120 mailles) puis enfin au milieu, 14 mailles. Ce qui fait un total de 147 mailles.... Comment faire ? Merci d'avance
24.02.2022 - 17:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dillenseger, au dernier rang des diagrammes, vous devez augmenter à intervalles réguliers 2 brides avant et 2 brides après la pointe, autrement dit 147 (après les diagrammes + 2 = 149 brides). Bon crochet!
24.02.2022 - 17:50Gabi wrote:
Kann ich diese Anleitung auch mit Drops Alpaca häkeln?
05.08.2021 - 13:45DROPS Design answered:
Liebe Gabi, dieses Modell wird mit DROPS Sky gehäkelt, dh mit einem Garn der Garngruppe B, DROPS Alpaca gehört aber zu der Garngruppe A - Hier finden Sie alle unsere Modellen für Alpaca bzw Garngruppe A. Viel Spaß beim häkeln!
05.08.2021 - 14:21Leena wrote:
Hei! En ymmärrä samaa jota Matilda aikaisemmin. Voitteko kertoa ohjeen suomeksi.
08.04.2021 - 16:36DROPS Design answered:
Hei, tässä kohtaa virkataan 1 kiinteä silmukka pylvääseen, 2 ketjusilmukkaa ja 1 kiinteä silmukka samaan pylvääseen, jne.
14.04.2021 - 17:07Birgitte wrote:
Når jeg har hæklet diagram A1 og skal videre med rækken A2, A3, A4 og A5, så er jeg i tvivl om række følgen og antallet af masker. Skal det forstås sådan at jeg kun skal hækle diagram A2 én gang i den første maske, derefter springe 2 masker over og hækle A3 fire gange i træk inden jeg hækler hen over spidsen? Ellers kan jeg ikke få antallet af masker til at stemme, hvis jeg hækler A2 og derefter A3 direkte i næste maske.
19.03.2021 - 14:43DROPS Design answered:
Hei Birgitte. Når du er ferdig med A. 1 har du 17 masker på hver side av spissen. Du starter med A.2 og hekler 5 masker i 3 masker. Husk * (stjernene) i diagrammene viser forrige rad. Deretter hekler du A.3 4 ganger (over 12 masker), så hekler du A.4 over spissen. Deretter A.3 4 ganger og A.5 over de siste 3 maskene. mvh DROPS design
07.04.2021 - 10:34Gabard wrote:
Bonjour, Je viens de faire le premier bloc A6 à A9 et je commence le premier bloc A.10 à A11. Lorsque je me réfère aux diagrammes A10 et A11, je ne comprends pas comment réaliser A11 par rapport au tour précédent. Au début (A10, j'ai bien une double bride puis 5 brides dans des mailles). Dois-je donc sauter les trois brides et effectuer les trois brides dans la bride du milieu autour de l'arceau ? Si je fais ca sur la longueur, je n'obtiens jamais 11 répétitions.
25.12.2020 - 16:46DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gabard, vous allez crocheter A.11 au-dessus des 4 dernières brides de A.6 + les 30 motifs de A.7 (=90 brides) + les 5 premières brides de A.8 = 99 brides au total. Ainsi vous avez bien 33 motifs de A.11 (= 99 brides). Bon crochet
04.01.2021 - 08:18