Flowering Frills |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Heklaðar og þæfðar sessur úr DROPS Snow.
DROPS 209-4 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LITUR 1: Heklað er með 2 þráðum í hverjum lit. A.1: UMFERÐ 1: bláfjólublár UMFERÐ 2: þoka A.2: UMFERÐ 1-2: natur UMFERÐ 3: ljós vínrauður UMFERÐ 4: karrí A.3: UMFERÐ 1-2: natur UMFERÐ 3: dökk bleikur UMFERÐ 4: ljós vínrauður UMFERÐ 5: þoka LITUR 2: Heklað er með 2 þráðum í hverjum lit. A.1: UMFERÐ 1: dökk bleikur UMFERÐ 2: ljós vínrauður A.2: UMFERÐ 1-2: natur UMFERÐ 3: þoka UMFERÐ 4: karrí A.3: UMFERÐ 1-2: natur UMFERÐ 3: bláfjólublár UMFERÐ 4: þoka UMFERÐ 5: ljós vínrauður HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. LITASKIPTI: Til að fá fallega skiptingu þegar skipt er um lit er síðasta keðjulykkjan í umferð hekluð með lit sem hekla á með í næstu umferð. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 2 stuðla saman í 1 lykkju þannig: Heklið 1 stuðul en bíðið með að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni). Heklið næsta stuðul í sömu lykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SESSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring úr 2 þráðum Snow. Þegar stykkið er tilbúið er það þæft í þvottavél. Heklið 2 sessur, eina í hvorri litasamsetningu. SESSA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 8 og 2 þræði Snow – sjá LITUR-1. Tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið eftir mynsturteikningu eða mynstri, þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið eftir mynsturteikningu: Sjá HEKLLEIÐBEININGAR, LITASKIPTI OG LITUR-1! Heklið A.1 (= 1 mynstureining), heklið A.2 (= 6 mynstureiningar í umferð) og heklið A.3 (= 12 mynstureiningar í umferð). Heklið eftir mynstri: A.1 er heklað þannig: UMFERÐ 1: Heklið 5 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull og loftlykkja), * 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkju hringinn, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* 10 sinnum til viðbótar, endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð = 12 tvíbrugðnir stuðlar og 12 loftlykkjur. UMFERÐ 2: 2 loftlykkjur (= 1 fastalykkja og 1 loftlykkja), 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju, * 1 loftlykkja, 2 fastalykkjur um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* 9 sinnum til viðbótar, heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 24 fastalykkjur og 12 loftlykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.2 er heklað þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um fyrstu loftlykkju, 1 loftlykkja, * 3 stuðlar um næstu loftlykkju, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 12 stuðlahópar og 12 loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hvorn af næstu 2 stuðlum, heklið 1 stuðul í fyrstu loftlykkju, * 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðum, 1 stuðull um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 48 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann í hvorn af næstu 2 stuðlum, 2 fastalykkjur í aftari lykkjubogann á næsta stuðli * 1 fastalykkja í aftari lykkjubogann á hvern af næstu 3 stuðlum, 2 fastalykkjur í aftari lykkjubogann á næsta stuðli *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 60 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur og hoppið yfir 1 fastalykkjur, * 2 stuðlar heklaðir saman að 1 stuðli í næstu fastalykkjur – SJÁ HEKLAÐ SAMAN, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, 2 stuðlar heklaðir saman í 1 stuðul í næstu fastalykkju, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 2 stuðlar heklaðir saman í 1 stuðul í næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 24 stuðlahópar og 24 loftlykkjubogar. A.3 er heklað þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 loftlykkju, 2 fastalykkjur um fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 3 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 72 fastalykkjur. UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur, 1 stuðul í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, 1 loftlykkja * 1 stuðull í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 1 loftlykkja *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 72 stuðlar og 24 loftlykkjubogar. UMFERÐ 3: Heklið 4 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 24 loftlykkjubogar og 48 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur * 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 24 stuðlahópar og 24 loftlykkjubogar. UMFERÐ 5: Heklið 8 loftlykkjubogar, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, * 7 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju = 24 loftlykkjubogar og 24 fastalykkjur. Heklið aðra sessu á sama hátt, en notið liti eins og útskýrt er í LITUR-2. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Juliette wrote:
Ik zou graag deze matjes vergroten naar een badkamer mat van 100 cm diameter. Heeft u een aanbeveling van hoeveel bollen wol ik hiervoor nodig zou hebben? Alvast bedankt!
23.06.2023 - 08:02DROPS Design answered:
Dag Juliette,
Je zou dit uit kunnen rekenen aan de hand van de oppervlakte die je wilt hebben. Als de oppervlakte bijvoorbeeld 3 keer zo groot wordt, dan heb je ook 3 keer zoveel wol nodig.
25.06.2023 - 18:24Anna wrote:
Stämmer mönstret verkligen på A.3 VARV 1, det är omöjligt att få ihop 72 fastmaskor om en bara upprepar 3fm om lmbågen. Jag får det till 42fm men inte fler. Gör jag något fel?
04.10.2022 - 10:02DROPS Design answered:
Hei Anna. Du hekler 6 rapporter av A.2 og når du har heklet 4. omgang av A.2, der det hekles luftmaskebuer vil du ha 4 luftmasker x 6 rapporter = 24 luftmaskebuer. Så når du skal hekle A.3 skal du hekle 3 fastmasker i hver luftmaskebue, altså 3 fastmasker x 24 luftmaskebuer = 72 fastmasker. mvh DROPS Design
10.10.2022 - 08:38Barbara Stibane wrote:
Hallo, ein kleiner Fehler hat sich eingeschlichen: A.3 wie folgt häkeln: 4. RUNDE: 3 Luftmaschen, 3 Stäbchen um den ersten Luftmaschenbogen, * 4 Stäbchen um den nächsten Luftmaschenbogen, 2 Luftmaschen * müsste heißen: 4. RUNDE: 3 Luftmaschen, 3 Stäbchen um den ersten Luftmaschenbogen, 2 Luftmaschen, * 4 Stäbchen um den nächsten Luftmaschenbogen, 2 Luftmaschen * Liebe Grüße, Barbara
27.06.2022 - 20:37Susanne Schenk wrote:
Hallo liebes Team, bei der Reihe A3 fehlt am Anfang der Hinweis vor dem Sterchen: 4 Luftmaschen.
02.01.2021 - 22:09Janniche wrote:
Jeg har ikke nok med 100g natur til begge sitteunderlagene. Skal det ikke være mer av den fargen?
29.02.2020 - 19:44DROPS Design answered:
Hei Janniche. Her er det nok en feil ja. Vi skal få lagt til en garnmengde rettelse. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette. mvh DROPS design
02.03.2020 - 14:31Lene wrote:
Høstblomst
10.02.2020 - 17:08Ingrid wrote:
Solsikke
28.01.2020 - 13:48Maria Cecchinato wrote:
Beautiful colour mix!
18.01.2020 - 08:16