DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Midnight Fire

Hekluð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með stuðlakrókum og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 205-44
DROPS Design: Mynstur ai-216
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 06, svartur
50-50-100-100-100-100 g litur 02, hveiti
50-50-100-100-100-100 g litur 13, appelsína
50-50-50-50-50-100 g litur 20, bleikur

HEKLFESTA:
13 tvíbrugðnir stuðlar á breidd og 5,3 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
13 lykkjur á breidd og 13 umferðir með stuðlakróka mynstri á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umferðir eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok/byrjun á umferð þannig:
Allar umferðir með fastalykkjum byrja með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju, snúið stykkinu.
Allar umferðir með stuðlum byrja með 3 loftlykkjum (koma í stað fyrsta stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu.
Allar umferðir með tvíbrugðnum stuðlum byrja með 4 loftlykkjum (koma í stað fyrsta tvíbrugðna stuðul) og enda með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, snúið stykkinu.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8.

LITASKIPTI:
Þegar skipt er um lit í byrjun á umferð, heklið keðjulykkju í lok fyrri umferðar með nýja litnum.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 58 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 5,8. Þ.e.a.s. í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju í ca 6. hverja lykkju.

RENDUR BERUSTYKKI:
ATH: Þegar skipt er um lit þá er það alltaf gert á eftir umferð með fastalykkjum!
Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig:
7-7-7-7-9-9 umferðir með hveiti.
4 umferðir með svartur.
2 umferðir með bleikur.
2 umferðir með appelsína.
4 umferðir með svartur.
2 umferðir með appelsína.
2 umferðir með hveiti.
* 2 umferðir með appelsína, 2 umferðir með bleikur *, heklið *-* alls 1-1-1-2-2-2 sinnum.
2 umferðir með hveiti.
2 umferðir með bleikur.
2 umferðir með svartur.
Heklið síðan með svartur og mynstur A.5Y til loka.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi):
Fækkið um 2 lykkjur með því að hekla eins og útskýrt er í A.7. Fækkið lykkjum til skiptis á undan og á eftir prjónamerki.

HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN (á við um ermi):
Heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins í næstu lykkju. Bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (= 1 tvíbrugðinn stuðull færri).

RENDUR STROFF:
ATH: Þegar skipt er um lit þá er það alltaf gert á eftir umferð með fastalykkjum!
Rendurnar eru heklaðar ofan frá og niður þannig:
3 umferðir með svartur.
2 umferðir með appelsína.
2 umferðir með bleikur.
2 umferðir með svartur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og röngu) og er heklað saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður.
Ermar eru heklaðar fram og til baka og eru heklaðar saman í lok hverrar umferðar, ofan frá og niður. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli.

BERUSTYKKI:
Heklið 58-60-62-66-70-72 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJ, með heklunál 5,5 með litnum svartur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Heklið 1 loftlykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju umferðina hringinn = 58-60-62-66-70-72 fastalykkjur. Skiptið yfir í litinn hveiti – sjá LITASKIPTI.
Í næstu umferð er byrjað á RENDUR BERUSTYKKI – sjá útskýringu að ofan, með byrjun frá röngu þannig:
Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og aukið út 10-10-10-12-12-12 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 68-70-72-78-82-84 fastalykkjur.
Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju = 68-70-72-78-82-84 stuðlar.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig: * A.1 (= 2 lykkjur), endurtakið A.2 yfir næstu 32-32-34-36-38-40 lykkjur (= 16-16-17-18-19-20 mynstureiningar með 2 lykkjum) *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, heklið A.2 yfir síðustu 0-2-0-2-2-0 lykkjur (= 0-1-0-1-1-0 mynstureiningar yfir 2 lykkjur). Þegar A.1 og A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 132-136-140-152-160-164 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið síðan A.1X og A.2X. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 13-13-14-14-15-15 cm – stillið af eftir umferð frá réttu.
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
Heklið A.3 yfir næstu 0-4-2-2-4-2 lykkjur (= 0-2-1-1-2-1 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), endurtakið A.4 yfir næstu 132-132-138-150-156-162 lykkjur (= 22-22-23-25-26-27 mynstureiningar yfir 6 lykkjur).
Þegar A.3 og A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 176-180-186-202-212-218 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið síðan A.3X og A.4X. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 20-20-22-22-24-24 cm – stillið af eftir umferð frá réttu.

STÆRÐ S-M:
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
* Endurtakið A.5 yfir fyrstu 86-16 maskorna (= 43-8 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið frá *-* alls 2-10 sinnum. Heklið til og með A.5X og A.6X = 180-200 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 23-24 cm – stillið af eftir umferð frá réttu.

STÆRÐ L–XL–XXXL:
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
* Endurtakið A.5 yfir fyrstu 6-10-4 lykkjur (= 3-5-2 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur), endurtakið A.5 yfir næstu 8-12-6 lykkjur (= 4-6-3 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið frá *-* alls 10-7-14 sinnum, endurtakið A.5 yfir næstu 4-18-20 lykkjur (= 2-9-10 mynstureiningar yfir 2 lykkjur) og endið með A.6 (= 2 lykkjur). Heklið til og með A.5X og A.6X = 228-232-276 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 25-27-31 cm – stillið af eftir umferð frá réttu.

STÆRÐ XXL:
Næsta umferð er hekluð frá röngu þannig:
* Endurtakið A.5 yfir fyrstu 6 lykkjurnar (= 3 mynstureiningar yfir 2 lykkjur), A.6 (= 2 lykkjur) *, heklið *-* alls 24 sinnum, endurtakið A.5 yfir síðustu 20 lykkjurnar (= 10 mynstureiningar með 2 lykkjum). Heklið til og með A.5X og A.6X = 260 lykkjur í síðustu umferð. Endurtakið A.5X og A.6X þar til síðasta röndin hefur verið gerð. Heklið síðan A.5Y yfir allar lykkjur. Endurtakið síðan A.5Y. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 29 cm – stillið af eftir umferð frá réttu.

ALLAR STÆRÐIR:
= 180-200-228-232-260-276 lykkjur.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki frá röngu þannig:
Heklið eins og áður yfir fyrstu 56-62-70-72-80-86 lykkjur (= bakstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= mitt undir ermi), hoppið yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur (= ermi), heklið eins og áður yfir næstu 56-62-70-72-80-86 lykkjur (= framstykki), heklið 6-6-6-8-8-8 lausar loftlykkjur (= mitt undir ermi), hoppið yfir 34-38-44-44-50-52 lykkjur sem eftir eru (= ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú heklað hvort fyrri sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 124-136-152-160-176-188 fastalykkjur. Haldið áfram með A.5Y eins og áður yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 28-29-39-30-30-30 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd) – stillið af eftir umferð frá röngu. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka (þ.e.a.s. til skiptis frá réttu og röngu) og heklað saman með 1 keðjulykkju í hverri umferð.
Byrjið á að hekla í 4. loftlykkju af 6-6-6-8-8-8 loftlykkjur sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 keðjulykkju, 4 loftlykkjur (= 1 tvíbrugðinn stuðull), 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja og eina af næstu 2-2-2-3-3-3 loftlykkjum, haldið áfram með A.5Y eins og áður yfir næstu 34-38-44-44-50-52 lykkjur, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af síðustu 3-3-3-4-4-4 loftlykkjum undir ermi = 40-44-50-52-58-60 tvíbrugðnir stuðlar.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það síðar fyrir úrtöku.
Haldið áfram með mynstur A.5Y eins og áður yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 2-2-4-4-6-4 sinnum = 36-40-42-44-46-52 lykkjur.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 35-34-34-32-30-29 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 10 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir umferð frá röngu. Heklið næstu umferð og fækkið lykkjum þannig: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja af fyrstu 0-1-0-2-1-1 lykkjum, * 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan, 1 tvíbrugðinn stuðull í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina = 24-27-28-30-31-35 tvíbrugðnir stuðlar. Heklið 1 umferð með fastalykkjum. Heklið næstu umferð með tvíbrugðnum stuðlum og fækkið um 2-3-4-4-3-7 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir = 22-24-24-26-28-28 tvíbrugðnir stuðlar.
Heklið síðan stroff með stuðlakrókum og RENDUR STROFF – sjá útskýringu að ofan, þannig: Heklið A.8 yfir allar lykkjur (= 11-12-12-13-14-14 mynstureiningar með 2 lykkjum). Þegar A.8 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Heklið fram og til baka yfir loftlykkjuröð í hálsi með svartur þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið mitt að aftan, festið þráðinn við stykkið með 1 keðjulykkju í fastalykkju, heklið 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 1 hálfan stuðul í hverja fastalykkju út umferðina = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Heklið 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul = 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar.
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Heklið 1 fastalykkju í hvern hálfan stuðul 58-60-62-66-70-72 hálfir stuðlar. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = umferðin hefur nú þegar verið hekluð! Byrjið við næstu ör
symbols = byrjið hér
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = stuðull í lykkju
symbols = STUÐLAKRÓKUR – TVÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklað í stuðla umferðum): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með tvíbrugðnum stuðulum/umferð með fastalykkjum í byrjun á stykki (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfa lykkjuna). Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur byrjar. Hringur í lok stuðlakróks-tvíbrugðna stuðuls = sýnir hvaða stuðull frá fyrri fastalykkju/tvíbrugðna stuðul umferðum á að hekla utan um.
symbols = STUÐLAKRÓKUR-TVÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis heklað í stuðla umferðum): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðla umferðum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul). Byrjun á línu = umferðin þar sem þessi stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull byrjar. Punktur í lok stuðlakróks-tvíbrugðna stuðuls = sýnir hvaða stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull frá fyrri stuðla umferð á að hekla utan um = tvíbrugðinn stuðull í lykkju.

symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 2 STUÐLAKRÓKAR-TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul um fyrsta stuðlakrók-tvíbrugðna stuðul, en bíðið með að bregða bandi um heklunálina og að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul til viðbótar alveg eins um næsta stuðlakrók-tvíbrugðinn stuðul. Bregðið bandinu 1 sinni yfir heklunálina og dragið í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Anja wrote:

Ik heb de pas gehaakt tm * 2 toeren oranje etc* en heb nu het benodigd aantal cm om over te gaan op het lijf. Moet ik nu de rest van de kleuren, zoals beschreven bij de pas, nog gebruiken of doorgaan met zwart?

20.11.2022 - 17:57

DROPS Design answered:

Dag Anja,

Als je, in jouw geval, al eerder de lengte van de pas hebt bereikt en het patroon is nog niet klaar, dan kun je dit inderdaad voorzetten op het lijf. Je haakt het patroon dan zo ver mogelijk door onder de mouw (/oksel). Let erop dat het patroon op de panden mooi doorloopt. Mocht je dit niet mooi vinden, dan kun je er natuurlijk ook voor kiezen om verder te haken in zwart.

22.11.2022 - 21:17

country flag Anja wrote:

Ik ben bij de 4e toer tarwe van de pas= toer A1 en A2 waar de pijl bij staat. Ik begin met 4 lossen (vervangt 1e dubbel reliëf stokje) dan 1 vaste. Dan A2: 1 dubbel reliëf stokje, 1 vaste en dit herhalen. Klopt dat? Na een dubbel reliëf stokje steeds een vaste? Dan krijg ik een heel raar patroon.

26.10.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Dag Anja,

Nee op de toer met de pijl haak je alleen vasten. Op de toer met de open en dichte rondjes haak je stokjes, waarbij de rondjes met de boogjes eraan vast relëfstokjes worden.

26.10.2022 - 19:53

country flag Debora wrote:

Ik wil dit graag met Drops Nepal maken, dat is 75 meter per 50 gram, maar Drops Air (het originele patroon) is 150 meter per 50 gram. Moet ik dan het dubbele aantal bollen Nepal kopen? Alvast bedankt!

11.10.2022 - 21:53

country flag Mette Sangstad wrote:

Det ser fint ud

19.03.2022 - 18:23

country flag Raquel wrote:

Gracias. No hay leído bien el patrón. Ya tengo el jersey terminado.

13.02.2022 - 19:25

country flag Raquel Pérez Andrés wrote:

Hola, donde dice que después de completar a.1y a.2 en altura habrá 132 puntos. Donde se hacen los aumentos??? Estoy tejiendo una talla s. Gracias

10.02.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Hola Raquel, según el patrón, empiezas con 68 puntos. Trabajas A.1 (= 2 puntos) y A.2 (= 32 puntos). En A.2, en las últimas filas, se duplica la cantidad de puntos en cada franja de A.2. Por lo tanto, se obtiene 64 puntos (+64 puntos en la otra franja) + los 4 puntos de las 2 repeticiones de A.1. Por lo tanto, tienes 132 puntos.

13.02.2022 - 19:20

country flag Åse wrote:

Hej! Var är diagram till A.1och A.2? Jag ser dem inte. Mvh Åse

20.09.2021 - 22:24

country flag Rita Maria Costa wrote:

Hola. Queria saber si puedo hacer y publicar un video sobre un pulover inspirado en este modelo? Mi patrón tiene modificaciones, otros colores y otras lanas. Mi modelo es similar. No igual. Consulto por que no quisiera inflingir los derechos de autor. Desde ya muchas gracias. Soy una gran fan. Saludos.

30.08.2021 - 15:13

DROPS Design answered:

Hola Rita, por supuesto que puede, solo indique que se inspiró en el patrón DROPS Design no.... Saludos!

30.08.2021 - 16:47

country flag Åse Viste wrote:

Hei! Det står at man skal legge opp luftmasker til bolen i sort og hekle en fastmaske i hver luftmaske og så bytte farge til hvete. På bildet ser det ut til at det svarte rundt halsen er et lengre stykke enn kun 2 runder. ????

17.08.2021 - 21:22

DROPS Design answered:

Hei Åse. Ja, det stemmer, men om du leser gjennom hele oppskriften vil du oppdage at man til slutt skal hekle en halskant . 4 rader med sort. Da stemmer bildet med oppskriften. mvh DROPS design

18.08.2021 - 15:22

country flag Pamela wrote:

Hola, qué significa : Repetir A.1X y A.2X hasta que la pieza mida aprox. 13-13-14-14-15-15 cm – ajustar para después de una hilera por el lado derecho. No entiendo Muchas gracias .

19.06.2021 - 20:43

DROPS Design answered:

Hola Pamela, despues de terminar A.1 y A.2, debes repetir solamente 2 ultimas hileras de A.1 y A.2 (con X). La ultima hilera estara por el lado derecho. Buen trabajo!

21.06.2021 - 15:54