Viola Hive |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er heklað með sólfjöðrum og kimono ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 194-34 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. Framstykki og bakstykki er heklað hvort fyrir sig og heklað saman í lokin. Fitjað er upp fyrir ermum. BAKSTYKKI: Heklið 133-145-157-169-181-193 loftlykkjur með heklunál 5 með BabyMerino. Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.1d yfir fyrstu 6 loftlykkjur, endurtakið A.1b þar til 1 lykkja er eftir (= 21-23-25-27-29-31 mynstureiningar), endið með A.1e yfir síðustu loftlykkju. Þegar A.1d/b/e er lokið á hæðina eru umferðir 3 og 4 endurteknar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 50-52-52-54-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í mynsturteikningu (= frá réttu). Klippið frá. Heklið 48-42-42-36-36-30 lausar loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram í 4. umferð í mynsturteikningu eins og áður yfir bakstykki (frá röngu) og endið með 48-42-42-36-36-30 lausar loftlykkjur fyrir ermi. Næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu): Heklið 1. umferð í A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjur, heklið 1. umferð í A.1b yfir næstu 42-36-36-30-30-24 loftlykkjur (= 7-6-6-5-5-4 mynstureiningar), heklið 3. umferð í A.1b yfir bakstykki alls 22-24-26-28-30-32 sinnum á breidd, heklið 1. umferð í A.1b yfir næstu 42-36-36-30-30-24 lykkjur (= 7-6-6-5-5-4 mynstureiningar), endið með 1. umferð í A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. Næsta umferð er hekluð með byrjun frá 4. umferð í mynsturteikningu þannig (= frá röngu): Heklið A.1c alls 1 sinni, A.1b alls 36-36-38-38-40-40 sinnum, endið með A.1a alls 1 sinni. Endurtakið síðan 3. og 4. umferð. Þegar stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm – stillið af að endað sé eftir 4. umferð (= frá röngu), heklið hvora öxl til loka fyrir sig þannig: HÆGRI ÖXL: Næsta umferð (= 3. umferð í A.1a/b/e, frá réttu) heklið síðan þannig: Heklið A.1a alls 1 sinni, A.1b alls 16-16-17-16-17-17 sinnum, endið með A.1e alls 1 sinni. Heklið 4. umferð. Klippið frá og festið enda. VINSTRI ÖXL: Hoppið yfir miðju 8-8-8-12-12-12 loftlykkjuboga í hálsmáli á bakstykki og festið enda með 1 keðjulykkju í næsta tvíbrugðna stuðul. Næsta umferð (= 3. umferð í A.1d/b/c, frá réttu) heklið þannig: Heklið A.1d alls 1 sinni, A.1b alls 15-15-16-15-16-16 sinnum, endið með A.1c alls 1 sinni. Heklið 4. umferð. Klippið frá og festið enda. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 79-85-91-97-103-109 loftlykkjur á heklunál 5 með BabyMerino. Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjurnar, endurtakið A.1b þar til 1 loftlykkja er eftir (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar), endið með A.1e yfir síðustu loftlykkju. Þegar A.1a/b/e er lokið á hæðina eru umferðir 3 og 4 síðan endurteknar. Þegar stykkið mælist ca 50-52-52-54-54-56 cm – stillið af að endað sé eftir 3. umferð í A.1a/b/e (= frá réttu). Klippið frá. Heklið 48-42-42-36-36-30 lausar loftlykkjur fyrir ermi, haldið áfram með 4. umferð í mynsturteikningu eins og áður yfir framstykki (frá röngu). Næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu): Heklið 3. umferð í A.1a, heklið A.1b yfir framstykki alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breidd, heklið 1. umferð í A.1b yfir næstu 42-36-36-30-30-24 lykkjurnar (= 7-6-6-5-5-4 mynstureiningar), endið með 1. umferð í A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. Næsta umferð er hekluð með byrjun frá 4. umferð í A.1c/b/a (= frá röngu) þannig: Heklið A.1c, A.1b alls 19-19-20-20-21-21 sinnum á breidd, endið með A.1a. Endurtakið síðan umferð 3 og 4. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm – Stillið af að endað sé eftir 4. umferð (= umferð frá röngu), heklið sjalkraga þannig: SJALKRAGI: Heklið A.2a alls 1 sinni, A.2b alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, endið með A.2c alls 1 sinni. Þegar A.2 er lokið á hæðina eru 3. til 6. umferð endurteknar 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Sjalkraginn mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm innst þar sem stykkið er minnst. Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 79-85-91-97-103-109 loftlykkjur með heklunál 5 með BabyMerino. Heklið síðan eftir mynsturteikningu þannig: Heklið A.1d yfir fyrstu 6 loftlykkjur, endurtakið A.1b þar til 7 loftlykkjur eru eftir (= 11-12-13-14-15-16 mynstureiningar), endið með A.1c yfir síðustu 7 loftlykkjur. Þegar A.1d/b/c er lokið á hæðina eru endurteknar umferðir 3 og 4. Þegar stykkið mælist ca 50-52-52-54-54-56 cm – stillið af eftir 4. umferð í mynsturteikningu (= frá röngu) og endið með 48-42-42-36-36-30 lausar loftlykkjur í lok umferðar fyrir ermi. Næsta umferð er hekluð þannig (= frá réttu): Heklið 1. umferð í A.1a yfir fyrstu 6 loftlykkjurnar, heklið 1. umferð í A.1b yfir næstu 42-36-36-30-30-24 loftlykkjurnar (= 7-6-6-5-5-4 mynstureiningar), heklið 3. umferð í A.1b yfir framstykki alls 12-13-14-15-16-17 sinnum á breidd, endið með 3. umferð í A.1c. Næsta umferð er hekluð með byrjun frá 4. umferð í A.1c/b/a (= frá röngu) þannig: Heklið A.1c alls 1 sinni, A.1b alls 19-19-20-20-21-21 sinnum á breidd, endið með A.1a. Endurtaki síðan umferð 3 og 4. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm – stillið af að endað sé eftir 4. umferð (= umferð frá röngu). Klippið frá og festið enda. Heklið sjalkraga með byrjun frá röngu þannig: SJALKRAGI: Hoppið yfir fyrstu 6 tvíbrugðnu stuðlana og hoppið yfir 32-32-34-32-34-34 loftlykkjubogar fyrir öxl og festið enda með 1 keðjulykkju í næsta tvíbrugðna stuðul. Heklið A.3a alls 1 sinni, A.3b alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, endið með A.3c alls 1 sinni. Þegar A.3 er lokið á hæðina eru endurteknar 3. til 6. umferð 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina. Sjalkraginn mælist ca 8-8-8-10-10-10 cm innst þar sem hann er minnstur. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið framstykki á bakstykki. Heklið saman í gegnum bæði lögin. Heklið axlir saman þannig: 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-*. Heklið hliðina saman með byrjun frá neðri kanti þannig: 1 fastalykkja í gegnum bæði lögin, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/stuðul/tvíbrugðinn stuðul í næstu umferð *, heklið frá *-* meðfram hlið, haldið áfram undir ermi þannig: * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, heklið frá *-*. Saumið sjalkragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka á bakstykki. Passið uppá að saumurinn snúi að röngu þegar sjalkraginn er brotinn niður. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (6)
Lisa wrote:
Guten Tag. Ich hänge an der Anleitung 194-34 A. 3 fest. Wenn in der Höhe zu Ende gehäkelt wurde, die 3. bis 6. Reihe wiederholen... Wie komme ich von der 6. Zu der 3. zurück? Da muss ich Maschen überspringen...? Und die 6. Reihe ist eine Rück-Reihe, die 4. auch... Ich kann die 4. nicht auf die 6. häkeln, dann stimmt das Muster nicht mehr...oder was verstehe ich da falsch? Bitte bitte helft mir. Ganz liebe Grüße
02.05.2023 - 17:49Blanca Torres wrote:
I did it with drop soft tweed n 17 y queda preciosa
09.04.2023 - 22:33Marie wrote:
Hallo liebes DROPS-Team, muss die Jacke hängend oder liegend gemessen werden?
03.01.2023 - 18:08DROPS Design answered:
Liebe Marie, es sollte keinen Unterschied sein, wenn die Arbeit aber länger hängend ist dann messen Sie vielleicht am besten hängend. Viel Spaß beim häkeln!
04.01.2023 - 08:54Nora wrote:
En del av symbolerna i förklaringen vad symbolerna betyder verkar ha fallit bort. Har problemet att göra med att många bilder på siten verkar ha problem att laddas ordentligt?
27.03.2021 - 06:56DROPS Design answered:
Hei Nora. Alle symbol forklaringene skal være på nett og vises nå. Si ifra om du fremdeles har problemer. mvh DROPS design
07.04.2021 - 13:04Linda wrote:
Als je de 157 steken opzet , maat L, voor de rugpand....mag je 200kg wegen, Volgens het proeflapje en de berekening, klopt niet, Mooi model.maar helaas veel telwerk!
26.06.2020 - 06:50Joyce wrote:
Another reason to learn how to crochet!
08.07.2018 - 13:44