DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3235.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Yoga Time

Heklaður poki fyrir yogamottu úr DROPS Big Merino. Stykkið er heklað í hring með stjörnumynstri. Þema: Yoga.

DROPS 193-25
DROPS Design: Mynstur mb-055
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

POKI FYRIR YOGAMOTTU:
Passar fyrir upprúllaða yogamottu með ummál ca 44-50-57 cm (þvermál: ca 14-16-18 cm).

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-100-100 g litur 10, dökk fjólublár
150-150-150 g litur 09, fjólublár

HEKLFESTA:
14 fastalykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð = 10 x 10 cm.
Ein stjarna (A.2) mælist ca 6,5 cm á breidd.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3235.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar).

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er byrjað með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, er fyrsta tvíbrugðna stuðli skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POKI FYRIR YOGAMOTTU - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá botni og upp úr.

POKI MEÐ STJÖRNUMYNSTRI:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 5 með litnum dökk fjólublár og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 fastalykkju í næstu lykkju, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fastalykkju í hvora af næstu 2 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: Heklið * 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið svona áfram hringinn og heklið 1 fastalykkju fleiri á milli hverra útaukninga þar til heklaðar hafa verið alls 12-14-16 umferðir = 72-84-96 fastalykkjur. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Nú er hekluð 1 umferð til að þræða tvinnuðu snúruna í gegn þannig: * 1 tvíbrugðinn stuðull í hverja af fyrstu 4 lykkjum, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að síðasta tvíbrugðna stuðlinum á undan næsta loftlykkjuboga. Nú eru 12-14-16 loftlykkjubogar í umferð.
Skiptið yfir í litinn fjólublár.
Nú er heklað stjörnumynstur hringinn þannig:
Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2 alls 6-7-8 sinnum hringinn í umferð. Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist 66 cm eða að óskaðri lengd. Endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 6 þræði með litnum dökk fjólublár ca 7 metrar. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút í hvorn enda.
Snúran mælist ca 220 cm. Þræðið snúrunna upp og niður í síðustu umferð með litnum dökk fjólublár (umferð sem var hekluð með tvíbrugðnum stuðlum), síðan er snúran þrædd upp og niður í umferð með loftlykkjubogum ca 6 cm niður á pokann, mælt frá síðustu umferð sem var hekluð. Hnýtið saman enda á snúru.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í loftlykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í fastalykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull um loftlykkjuboga
symbols = umferðin byrjar með 1 loftlykkju (kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju í umferð) og endar með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferð.
symbols = í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur upp að miðju á fyrsta loftlykkjuboga.
symbols = byrjið hér!
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Emily wrote:

Hello! This is my first time using a chart, and I have a question. I just finished the 4th row on the chart. If I understand it right, the 5th row will be the first row on the chart, so at the Start Here! Arrow. The chart shows it going into the treble stitches from the base, but with this round I am stitching into the star pattern, so it’s a little different. Does every around stitch go into every single chain space? It seemed to get a little bigger when I did, so I want to check. Thank you!

12.12.2023 - 05:21

DROPS Design answered:

Dear Emily, once you have worked the diagram in height, repeat the last 2 rows to continue the pattern. Happy crocheting!

12.12.2023 - 13:05

country flag Antonella wrote:

Ciao è possibile utilizzare un altro materiale al posto della lana Merino per esempio cotone per uncinetto numero 5? Grazie Buona giornata

24.07.2022 - 11:09

DROPS Design answered:

Buongiorno Antonella, può provare a lavorare con il cotone DROPS Paris. Buon lavoro!

24.07.2022 - 15:39

country flag Neide wrote:

BOA tarde...amei este tapete para yoga e faço para vender ,mas estou com dificuldades para fazer ,deseja um vídeo explicativo com uma profissional fazendo esse tapete ,com as medidas de comprimento e a m3dida da circunferência do início do tapete... agradeço muito se meu pedido for aceito.bjs

12.03.2022 - 21:23

DROPS Design answered:

Bom dia, Se vir no fundo da receita, há vários tutoriais em vídeo que ensinam vários pontos e técnicas usados neste modelo. Em alternativa, pode sempre contactar a loja DROPS onde comprou os fios, que a ajudarão. Bom Croché!

14.03.2022 - 13:50

country flag Josefine wrote:

Hej! Under materialer skriver i "100-100-100 g farve 10, ametyst 150-150-150 g farve 09, lavendel" betyder det at man skal bruge tre nøgler af 100g?

01.01.2022 - 21:03

DROPS Design answered:

Hej Josefine. Det är garnförbruk i de olika storlekarna (ca 44-50-57 cm). Väljer du den minsta storleken så ser du på det första talet genom hela opskriften osv. Så du ska alltså bruke 100 g farve 10 och 150 g farve 09 oavsett storlek du väljer. Mvh DROPS Design

03.01.2022 - 10:14

country flag Runa wrote:

Hello Drops Team, I didn't find an other way to contact you about this topic, so I write a comment. This (and other of your free patterns) are sold by an etsy shop called VintagePatternFavs. I hope you contact this person, to make sure she or he stops it.

25.07.2021 - 19:29

country flag Martine wrote:

Bonjour, je dois bien comprendre que ce rang 1 est crocheté une seule fois dans l'ouvrage. Ensuite c'est donc le rang 2 qui deviendra le rang 1. On ne revient pas à la flèche.... A2 ne comportera que 3rangs à répéter?

03.03.2020 - 10:38

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, seul le 1er rang de A.2 ne se crochète pas (il a déjà été fait et montre seulement comment crocheter le 1er rang de A.2), autrement dit, quand les 4 tours de A.2 sont faits, on recommence au 1er tour = à la flèche et on répète ainsi toujours ces 4 tours. Bon crochet!

03.03.2020 - 11:45

country flag Martine wrote:

Bonjour, la première ligne de A2 commence bien par une DB....? Cette première ligne est-elle répétée à chaque fois ? Merci d'avance

02.03.2020 - 16:33

DROPS Design answered:

Bonjour Martine. Cette première ligne coommence par une double-bride et est répétée seulement une fois. Bon travail!

03.03.2020 - 07:57

country flag Susanne Brodin wrote:

Vad gör jag för fel?! Tror att mitt arbete blir bredare för varje varv😔 det likar en stor duk.

11.11.2019 - 10:11

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Når du hekler etter diagram A.1 og A.2- Stjernemønster, hekles A.2 6, 7 eller 8 ganger hele veien, mens A.1 viser hvordan du starter og slutter hver omgang. Dersom du ikke avslutter med 1 kjedemaske i 1. fastmaske på begynnelsen av omgangene, men hekler slik at du får flere rapporter etter hver omgang, vil det ble en duk. Tell gjerne etter hver omgang at du har det antall rapporter du skal ha av A.2, slik unngår du å få en duk. God Fornøyelse!

11.11.2019 - 12:25