DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Last Harvest

Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað með gatamynstri, sólfjöðrum og vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 196-24
DROPS Design: Mynstur me-149
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-750-850-950 g litur 32, dökk bleikur

-------------------------------------------------------
FYLGIHLUTIR FYRIR STYKKIÐ:

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – A.10. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju.
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 3 loftlykkjum.
Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta stuðul með 4 loftlykkjum.
Í byrjun á hverri umferð með þríbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta þríbrugðna stuðli með 5 loftlykkjum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka. Fyrst er bakstykkið og framstykkið heklað, hvort fyrir sig, síðan eru ermar og vasar heklaðir. Öll stykkin eru saumuð saman í lokin. Heklaður er kantur í kringum hálsinn.

BAKSTYKKI:
Heklið 94-101-108-122-129-143 loftlykkjur á heklunál 4,5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 80-86-92-104-110-122 stuðlar.
Heklið síðan frá réttu þannig:

STÆRÐ M-XL:
Heklið A.1 (= 1 lykkja) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, A.3 (= 6 lykkjur) alls 14-17 sinnum á breidd og endið með A.5 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.1/A.3/A.5 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist ca 37-39 cm – stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé stuðlaumferð, gerið handveg þannig: Klippið þráðinn frá, hoppið yfir 6-12 lykkjur (= fyrir handveg), heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), A.3 (= 6 lykkjur) alls 12-13 sinnum á breidd og endið með A.5 yfir næstu lykkju (nú eru eftir 6-12 lykkjur í umferð fyrir handveg).
Nú hefur verið heklað yfir miðju 74-80 lykkjurnar í umferð. Í næstu umferð er A.1 heklað í síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur.

STÆRÐ S-L-XXL-XXXL:
Heklið A.1 (= 1 lykkja) – sjá HEKLLEIÐBEININGAR að ofan, A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur) alls 12-14-17-19 sinnum á breidd, A.4 (= 3 lykkjur) og endið með A.5 yfir síðasta stuðul. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! A.1 til A.5 er endurtekið á hæðina.
Þegar stykkið mælist ca 36-38-40-41 cm – stillið af eftir stuðlaumferð, gerið handveg þannig: Klippið frá, hoppið yfir 6-6-12-12 lykkjur (= fyrir handveg), heklið 1 keðjulykkju í næsta stuðul, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), A.2 (= 3 lykkjur), A.3 (= 6 lykkjur) alls 10-12-13-15 sinnum á breidd, A.4 (= 3 lykkjur) og endið með A.5 yfir næstu lykkju (nú eru eftir 6-6-12-12 lykkjur í umferð fyrir handveg).
Nú hefur verið heklað yfir miðju 68-80-86-98 lykkjurnar í umferð. Í næstu umferð er heklað A.1 í síðustu lykkju. Haldið svona áfram með mynstur.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm, stillið af eftir stuðlaumferð (= frá röngu), heklið hvora öxl til loka fyrir sig. Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 20-23-26-23-26-32 stuðlum (= öxl). Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm (ef ekki hefur verið náð réttu máli er haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul að réttu máli), klippið frá og festið enda. Hoppið yfir 28-28-28-34-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli, heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju og 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 19-22-25-22-25-31 lykkjum. Passið uppá að öxlin nái sömu hæð og fyrri öxl.

FRAMSTYKKI:
Heklið eins og bakstykki þar til stykkið mælist ca 42-44-44-46-46-48 cm, stillið af að síðasta umferð sem er hekluð sé síðasta umferð í mynsturteikning (= 1 stuðlaumferð frá röngu). Nú skiptist stykkið og hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig þannig:

VINSTRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Fyrsta umferð er hekluð frá réttu. Heklið A.1, A.2 yfir næstu 3-0-3-0-3-3 lykkjurnar, heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-24 lykkjurnar, heklið A.6 yfir næstu 12 lykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eftir mynsturteikningu A.6. Þegar mynsturteikning A.6 hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina eru 20-23-26-23-26-32 lykkjur í síðustu umferð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Klippið frá og festið enda.

HÆGRI ÖXL (þegar flíkin er mátuð):
Nú er hægri öxl hekluð þannig (fyrsta umferð = rétta):
Hoppið yfir 12-12-12-18-18-18 stuðla frá þar sem A.6 var heklað (= hálsmál), heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju, heklið síðan A.7yfir sömu lykkju og næstu 11 lykkjurnar (= alls 12 lykkjur), heklið A.3 yfir næstu 12-18-18-18-18-24 lykkjur, A.4 yfir næstu 3-0-3-0-3-3 lykkjur og endið með A.5 yfir síðustu lykkju. Haldið áfram með mynstur og úrtöku fyrir hálsmáli eftir mynsturteikningu A.7. Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 20-23-26-23-26-32 stuðlar í síðustu umferð. Heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka.
Heklið 44-47-49-51-54-54 loftlykkjur á heklunál 4,5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= 2 stuðlar), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 4-1-3-5-2-2 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 36-38-40-42-44-44 stuðlar.
Heklið A.8 yfir fyrsta stuðul, endurtakið A.9 þar til 1 stuðull er eftir, endið með A.10 yfir síðasta stuðul. Endurtakið 2 síðustu umferðirnar í A.8/A.9/A.10 á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 7-7-8-10-10-8 cm aukið út um 1 stuðul á hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 stuðla í fyrsta og síðasta stuðul í umferð (= 2 stuðlar fleiri). Aukið svona út með 4-4-3½-3-3-2½ cm millibili alls 11-11-12-13-13-15 sinnum = 58-60-64-68-70-74 lykkjur. Útauknu lykkjurnar eru heklaðar jafnóðum inn í A.9. ATH: A.8/A.10 er allaf heklað yst á hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 48-48-47-43-43-40 cm, er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð, síðar á að sauma ermasaum upp að prjónamerki og afgangur af umferð er saumaður saman með 6-6-6-12-12-12 stuðlum á bakstykki/framstykki sem hoppað var yfir fyrir handveg á hvorri hlið á stykki (= mitt undir ermi). Haldið síðan áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 52-52-51-51-51-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Klippið frá og festið enda. Heklið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma í ystu lykkjuboga. Saumið ermar í, prjónamerkin á ermi merkir hliðarsaum á framstykki og bakstykki og þær umferðir sem heklaðar voru á eftir prjónamerki eru saumaðar að 6-6-6-12-12-12 lykkjum sem hoppað var yfir fyrir handveg á framstykki/bakstykki. Byrjið neðst niðri á ermi og saumið ermasaum í ystu lykkjuboga, haldið áfram að sauma hliðarsaum á framstykki og bakstykki. Klippið frá og festið alla enda.

KANTUR Í HÁLSI:
Heklið kant í kringum háls frá miðju ofan á öxl þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja *, heklið frá *-* í kringum allan hálsinn og stillið af að endað sé með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð, passið uppá að kanturinn verði ekki stífur. Klippið frá og festið enda.

VASI:
Þegar vasinn er heklaður er heklað eftir mynsturteikningu A.1 fyrir stærð M-XL í allar stærðir! Heklið 32 loftlykkjur á heklunál 4,5 með Merino Extra Fine. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (= jafngildir 2 stuðlum), 1 stuðull í hverja og eina af næstu 4 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja og eina af næstu 5 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 26 stuðlar. Heklið síðan frá réttu þannig: Heklið A.1, A.3 (= 6 lykkjur) alls 4 sinnum á breidd og endið með A.5 yfir síðasta stuðul.
Heklið A.1/A.3/A.5 alls 3 sinnum á hæðina. Klippið frá og festið enda. Heklið annan vasa alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið vasana alveg niður að kanti á peysu – saumið þá þannig að þeir liggi ofan á mynstri á peysu, saumið vasana niður hvoru megin við miðju 6-6-6-7-9-9 mynstureiningar mitt á framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.09.2018
Leiðrétting: á tveimur stöðum hefur verið leiðrétt tegund á garni úr Cotton Merino í Merino Extra Fine.

Mynstur

symbols = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir hvernig hekla á næstu umferð – byrjið á næstu umferð!
symbols = loftlykkja
symbols = fastalykkja í lykkju
symbols = fastalykkja í loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = HEKLIÐ 2 TVÍBRUGÐNA STUÐLA SAMAN: * Bregðið þræðinum 2 sinnum um heklunálina, stingið heklunálinni undir loftlykkjubogann, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 næstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
symbols = 1 stuðull um bilið á milli 2 lykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðull í lykkju
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 196-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Jeannette Hiddes wrote:

Trui na wassen een jurk geworden De trui kwam uit de was zo lang als een jurk Dus vertel mij maar wat ik verkeerd heb gedaan!

13.03.2023 - 23:52

country flag Jeannette Hiddes wrote:

De trui kwam uit de was als een jurk

12.03.2023 - 14:14

country flag Jeannette Hiddes wrote:

Ik heb de trui gewassen op 30graden wolwas Zonder wasverzachter. Ik heb nu een jurk ipv. een trui Hoe kan dat?

09.03.2023 - 22:01

DROPS Design answered:

Dag Jeannette,

Het behandelen van breiwerk met merinogaren komt vrij precies, want het rekt heel makkelijk uit. Heb je het plat laten drogen op een ondergrond? (Dus bijvoorbeeld op een tafel met een handdoek eronder.)

12.03.2023 - 11:59

country flag Kelly Anne wrote:

Hello, I have just learned to crochet and do not understand how to read the diagrams despite watching several videos :( I am also using US terms so TRB for me is DC I think. Does this pattern exist without the diagrams where I can just read row by row instructions? For example Row 3: 3 DC, CH 2, ETC" I have posted and asked for help on my crochet groups but no responses so far.I would really appreciate some help if possible. Thank you so much! Oops- I am also left handed.

05.03.2022 - 17:31

DROPS Design answered:

Dear Kelly Anne, unfortunately, we only publish our patterns in a single format, most of the time in a mixture of written and chart format. Take into account that, as you are left-handed, you would need to read the chart mirrored to the one published, which has been designed for right-handed crocheting. You can check the following lesson, which may help you understand better how to read crochet diagrams: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=69&cid=19 Happy crocheting!

06.03.2022 - 13:20

country flag Chris wrote:

Bonjour, je ne comprends pas vos explications. Après avoir monté une chainette de 108 mailles, vous dites de faire un rang avec 1 br dans 6 m, puis de sauter 1 maille et ainsi de suite. Ca veut dire qu'on rétréci l'ouvrage dès le 1er rang ? En plus on arrive pas juste au bout du rang ! Et le schéma n'est pas plus explicite. Une grille du début du motif aurait été la bienvenue !

04.07.2021 - 21:28

DROPS Design answered:

Bonjour Chris, effectivement, en crochet, la chaînette de base a souvent tendance à être plus serrée que le reste de l'ouvrage, raison pour laquelle on va monter davantage de mailles en l'air (par ex 94 en S) que l'on aura de brides au 1er rang (= 80 brides seulement en S pour la largeur souhaitée). Vous crochetez ensuite A.1 (= début du rang sur l'endroit), A.3 5 ou bien A.2 et A.4 (cf taille) et terminez par A.5 (= fin de rang sur l'endroit). Cette leçon explique comment lire un diagramme et vous aidera sûrement. Bon crochet!

05.07.2021 - 08:18

country flag Virginie wrote:

Je pense qu’il y a une erreur sur le diagramme A3 : au 3ème rang je me retrouve à chaque fois avec un arceau en trop quand je le termine... ça ne tombe pas juste... et pourtant je le suis très bien et suis partie avec le bon nombre de brides au départ pour une taille M : 86 brides. C’est la quatrième fois que je te démonte tout et pourtant c’est le même problème qui se répète !! ??

07.11.2020 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, au 3ème rang, vous devez effectivement avoir un grand arceau (= de 5 mailles en l'air = 3 mailles en l'air à la fin de A.3 + 2 mailles en l'air au début du A.3 suivant). On retrouve cet arceau de 5 ml dans A.7 (vous voyez ainsi ce grand arceau entre les 2 groupes de brides et les 2 mailles serrées dans le même arceau). Bon crochet!

09.11.2020 - 12:15

country flag Aline wrote:

Ik kan geen telpatronen lezen helaas. Kan ik de trui ook haken aan de hand van de omschrijving ?

20.05.2020 - 14:56

country flag Catherine Whitear wrote:

What is the youtube name for drops 196-24 cannot find it i am finding very difficult to follow the diagram do you have a you tube showing how you do the stitch

11.04.2020 - 18:17

DROPS Design answered:

Dear Catherine, there are no youtube videos of our patterns. All the videos to help you make the jumper are below the diagram. Happy crocheting!

12.04.2020 - 18:24

country flag Donatella wrote:

Scusatemi, ho avuto una svista e non tenete conto del mio commento precedente. Grazie e un cordiale saluto.

27.09.2019 - 11:09

country flag DONATELLA wrote:

Buongiorno, Complimenti per il modello che sto realizzando ma notò che il diagramma A3 non è corretto, secondo me: nella seconda riga mancano le 5 catenelle tra i due punti bassi (a cavallo delle 5 catenelle del giro precedente) come invece presenti nei diagrammi A6 e A7. Potreste cortesemente verificare. Grazie e buona giornata😃

27.09.2019 - 10:52