DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 189-5
DROPS Design: Mynstur w-712
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Mál: Ca 100 x 130 cm.

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 102, spray blár
200 g litur 17, natur
150 g litur 100, ljós þveginn
150 g litur 25, mosagrænn
150 g litur 41, sinnep
150 g litur 58, púðurbleikur
100 g litur 21, ljós mintugrænn
100 g litur 60, dökk bleikfjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8800.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð (fer eftir því hvort fyrri umferð byrjaði með 3 eða 2 loftlykkjum).
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. eða 2. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynstureiningu A.1 til A.3.

RENDUR:
Rendur eru útskýrðar í umferð – umferð er númeruð í A.1, A.2 og A.3.
UMFERÐ 1-4: spray blár
UMFERÐ 5: púðurbleikur
UMFERÐ 6: dökk bleikfjólublár
UMFERÐ 7: natur
UMFERÐ 8: sinnep
UMFERÐ 9: ljós mintugrænn
UMFERÐ 10-11: mosagrænn
UMFERÐ 12: natur
UMFERÐ 13: púðurbleikur
UMFERÐ 14: ljós þveginn
UMFERÐ 15: sprey blár
UMFERÐ 16: ljós mintugrænn
UMFERÐ 17: mosagrænn
UMFERÐ 18: dökk bleikfjólublár
UMFERÐ 19: sinnep
UMFERÐ 20: púðurbleikur
UMFERÐ 21-22: natur
UMFERÐ 23: mosagrænn
UMFERÐ 24: sinnep
UMFERÐ 25-26: ljós þveginn
UMFERÐ 27-30: sprey blár
UMFERÐ 31: mosagrænn
UMFERÐ 32: dökk bleikfjólublár
UMFERÐ 33: sinnep
UMFERÐ 34: púðurbleikur
UMFERÐ 35-36: natur
UMFERÐ 37: mosagrænn
UMFERÐ 38: sinnep
UMFERÐ 39: púðurbleikur

LITASKIPTI:
Til að fá fallega litaskiptingu þegar skipt er um lit, þá er skipt um lit þegar bregða á þræðinum um heklunálina og draga á þráðinn í gegn á síðustu lykkjunni í umferð, dragið þráðinn með nýja litnum í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

ENDAR FESTIR:
Til að sleppa við að sauma inn marga enda við litaskipti eru heklaðir 2 fyrstu stuðlarnir/fastalykkjur í byrjun á hverri umferð með nýjum lit með tvöföldum þræði (í sama lit). Þetta er gert þannig: Passið uppá að endinn sé langur (ca 20-25 cm) þegar skipt er um lit, heklið endann saman við þráðinn frá dokkunni. Síðan er endinn látinn liggja meðfram lykkjum frá fyrri umferð og heklað er utan um hann þannig að endinn verði falinn innan í lykkjunum. Að auki á sá endi sem þú endar með í lok umferðar einnig lagður meðfram lykkjum þegar stykkinu er snúið við þannig að einnig er heklað utan um þann enda. Svona er hægt að festa enda án þess að nota nál.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka með röndum og gatamynstri.

TEPPI:
Heklið 173 loftlykkjur með heklunál 5,5 með litnum spray blár Paris. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, 1 stuðul í næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja og eina af 3 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 129 stuðlar í umferð.
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR, LITASKIPTI og ENDAR FESTIR! Síðan eru heklaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT er heklað mynstur eins og útskýrt er að neðan:
Fyrsta umferð (heklið með litnum sprey blár): Heklið A.1A (= 2 lykkjur), heklið A.1B yfir næstu 120 lykkjur (= 20 mynstureiningar með 6 lykkjum), heklið A.1C (= 7 lykkjur). Haldið áfram með rendur og mynstur svona. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið heklað til loka er heklað áfram þannig: * Heklið A.2A, A.2B og A.2C alveg eins. Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað A.3A, A.3B og A.3C alveg eins *, heklið *-* alls 3 sinnum á hæðina, en í síðasta skipti sem A.3 er heklað er endað eftir umferð 30.
Heklið síðan síðustu umferð með litnum sprey blár þannig: 1 stuðull í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga út umferðina og endið með 1 stuðul í síðasta stuðul. Klippið frá og festið enda. Teppið mælist ca 100 x 130 cm.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 stuðull um loftlykkju/loftlykkjuboga
symbols = 3 STUÐLAR SAMAN Í FASTALYKKJU: Heklið 2 stuðla í næstu fastalykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin á báðum þessum stuðlum, heklið 1 stuðul í sömu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni.
symbols = 3 STUÐLAR SAMAN UM LOFTLYKKJU/LOFTLYKKJUBOGA: Heklið 2 stuðla um loftlykkju/loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum báða þessa stuðla, heklið 1 stuðul um sömu loftlykkju/loftlykkjuboga og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjur á heklunálinni
symbols = fyrsta umferð er ekki hekluð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkjurnar
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 189-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Gassa Ingrid wrote:

Es sollen 173 lm angeschlagen werden. wenn in der ersten reihe eine Luftmasche übersprungen werden soll, soll dann auch eine luftmasche gemacht werden zum überspringen der Luftmasche? Ich denke ja, denn sonst zieht sich ja die Luftmaschenkette zusammen. Vielen Dank für eine Antwort. Ingrid Gassa

15.11.2019 - 19:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gassa, es wird bei der 1. Reihe regelmäßig Luftmaschen übersprungen, und es sind nur noch 129 Maschen (= Stäbchen) am Ende der 1. Reihe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim häkeln!

18.11.2019 - 08:17

country flag Ulrike wrote:

Hallo und guten Tag, ich würde die Decke gerne breiter machen. Habe ich richtig gerechnet, dass die Maschenzahl teilbar durch 12 sein muss plus 5? Vielen Dank für die Antwort

09.05.2019 - 13:24

DROPS Design answered:

Liebe Ulrike, wenn Sie die Decker breiter möchten, sollen Sie dann mehrmals A.2B/A.3B häkeln = 6 Maschen mehr für je 1 Rapport mehr in der Breite, so können Sie dann einfacher kalkulieren. Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2019 - 14:20

country flag Margo Molenaar wrote:

Ik lees in de eerste toer als laatste A.1c (=7 steken). Ik tel 6 stokjes en 3 stippelstreepjes boven elkaar. In de uitleg van het telpatroon zie ik die stippelstreepjes (die ook vaker voorkomen) niet uitgelegd. Wat is daarvan de bedoeling?

16.04.2019 - 17:26

DROPS Design answered:

Dag Margo,

Deze stippelstreepje zijn 3 lossen als er 3 streepjes staan, 2 lossen als er 2 streepje staan, enz. (m.a.w.: het streepje dat staat oor 1 losse, zoals uitgelegd bij de symbolen, kan zowel horizontaal als verticaal staan.)

21.04.2019 - 17:41

country flag Grethe Orluff wrote:

Hej. Har i et godt på et alternativt garn til dette tæppe, hvor man kan få tilsvarende farver? Jeg tænker ikke ren uld, men måske et blandingsprodukt eller evt. akryl. Prismæssigt gør det ikke noget hvis det bliver en smule dyrere, men det må da stadig gerne ligge i det leje i beskriver for dette produkt :-) Venlig hilsen Grethe

02.03.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Hei Grethe. Om du ikke vil ha 100% ull eller ull-alpaca balnding kna du feks se på Air eller Brushed Alpaca silk. Vær obs på at de begge har en ganske annerledes struktur enn Paris (Air er et veldig luftig garn, mens Brushed Alpaca Silk er et børste garn og derfor "hårete"). God fornøyelse

04.03.2019 - 14:14

country flag Federica wrote:

Vi ringrazio per aver messo gli schemi, che trovo molto più semplici da seguire rispetto alle descrizioni,purtroppo però non riesco a trovare nella legenda alcuni simboli presenti nello schema, tipo l’ellisse tutto nero. Inoltre nella legenda compare per 3 volte un quadratino vuoto con 3 significati diversi. Potreste per cortesia dirmi a quali simboli corrispondono. Grazie.

30.08.2018 - 17:18

DROPS Design answered:

Buonasera Federica.L’ellisse nero corrisponde a 3 maglie alte lavorate insieme in una maglia alta. Per gli altri simboli, potrebbero essere un problema di visualizzazione del suo browser. Verifichi che non ci siano aggiornamenti da installare oppure provi a svuotare la cache o a navigare con un browser diverso. Buon lavoro!

30.08.2018 - 18:44

country flag Annamaria wrote:

Questa coperta é bellissima. Vorrei farla di dimensioni maggiori 130x170. Potreste indicarmi le quantità di filato necessarie? Grazie mille!

06.07.2018 - 12:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Annamaria. Per un aiuto così personalizzato, le consigliamo di rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

06.07.2018 - 12:54